Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 ✝ Kristinn ÁgústGuðjónsson klæðskerameistari fæddist á Hólmavík í Strandasýslu 13. september 1926. Hann andaðist 14. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Guðjón Jóns- son, trésmiður á Hólmavík og víðar, f. 14.5. 1886, d. 16.12. 1939, og Kolfinna Snæ- björg Jónsdóttir, húsfreyja og saumakona á Hólmavík og í Reykjavík, f. 16.12. 1891, d. 17.1. 1985. Eiginkona Kristins var Svava Brynjólfsdóttir, fædd á Brodda- dalsá 29.5. 1925. Hún lést 15. febrúar 2018. Foreldrar hennar voru Brynjólfur Jónsson, bóndi á Broddadalsá, f. 22.12. 1899, d. 23.11. 1992 og Guðbjörg Jóns- dóttir, f. 22.12. 1901, d. 27.2. 1999. Systkini Kristins voru Har- aldur Hafsteinn, f. 11.3. 1913, Júl- 1957, kvæntur Salome Tynes flugfreyju, f. 31.5. 1961. Börn þeirra eru Bjarni Þór, Ágúst Ottó og Birna Lind. Fyrir átti Pálmi Hjalta Þór og Elísabetu. 5) Svan- dís bankastarfsmaður, f. 17.8. 1966, gift Sveini H. Bragasyni skrifstofumanni, f. 14.3. 1966. Dætur þeirra eru Sólveig Huld og Silja Karen. Kristinn ólst upp á Hólmavík uns faðir hans lést en þá fluttist móðir hans með yngri börnin til Reykjavíkur. Kristinn lærði klæð- skeraiðn og vann m.a. hjá Fata- versluninni Andrési, síðan hjá Gefjun, Iðunni og SÍS í Austur- stræti. Lengst starfaði hann hjá Fataverksmiðjunni Gefjun sem yfirverkstjóri. Um tíma starfaði hann hjá fataverksmiðjunni Úl- tíma og endaði svo starfsferilinn kominn á áttræðisaldur sem kennari í fatahönnun við Iðnskól- ann í Reykjavík. Þau Svava giftust 1947 og bjuggu lengst af í Langagerði 28 í Reykjavík uns þau fluttu á hjúkr- unarheimili Hrafnistu í Boða- þingi í Kópavogi þar sem þau lét- ust bæði. Útför Kristins fer fram frá Bú- staðakirkju í Reykjavík í dag, 23. febrúar 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. íana Ingibjörg, f. 15.1. 1915, Ólöf Ragnheiður, f. 16.12. 1918, Sig- urbjörn, f. 22.8. 1922, Magnús Ell- ert, tvíburabróðir, f. 13.9. 1926 og Elín, f. 18.6. 1931. Systkinin eru nú öll látin. Börn Svövu og Kristins eru: 1) Óm- ar viðskiptafræð- ingur, f. 2.10. 1947, kvæntur Kristínu Geirsdóttur, myndlist- armanni og kennara, f. 25.8. 1948. Börn þeirra eru Erna og Geir. 2) Hörður skrifstofumaður, f. 27.3. 1952, kvæntur Rut Maríu Jóhannesdóttur skrifstofumanni, f. 7.1. 1956. Börn þeirra eru Kristinn, Anna og Arnar. 3) Bryn- dís skrifstofumaður, f. 8.10. 1955, d. 13.3. 2004, sambýlismaður Reynir Holm sendibílstjóri, f. 28.3. 1948. Börn þeirra eru Bjarki, Svava Dís og Ásdís. 4) Pálmi verkfræðingur, f. 12.5. Með þakklæti og söknuði kveðj- um við elskulegan pabba og tengdapabba. Ótal ljúfar minningar koma upp í hugann. Allir pakkarnir og bréfin sem þú sendir mér í sveitina á Broddadalsá ylja mér um hjartarætur. Áhugi þinn og hvatning þegar ég bað um leyfi til að fara í siglinguna miklu með Hamrafellinu og traustið sem þú sýndir mér 14 ára gömlum. Allar ferðir sem við fjölskyldan áttum með þér og mömmu um landið voru ógleymanlegar. Skemmtilegustu stundir sem við áttum með ykkur voru þó í Selinu bústaðnum ykkar á Þingvöllum. Þar vildir þú helst hafa sem flesta hjá ykkur, þó ekki væri plássið mikið var alltaf pláss fyrir alla. Síð- asta ferðin sem við fórum með þér og mömmu að heimsækja æsku- slóðir þínar norður til Hólmavíkur er ógleymanleg. Glampinn og glettnin sem kom upp í augun þeg- ar rifjaðar voru upp gamlar minn- ingar og sögur. Nú ert þú elsku pabbi lagður upp í síðasta ferðalagið til sumar- landsins þar sem við vitum að mamma tekur vel á móti þér. Þar leiðist þið og styðjið hvort annað, eins og þið hafið gert á langri ævi ykkar. Þökkum öll árin sem við höfum átt saman hér í Boðaþingi sem nágrannar, hversu erfitt var að geta ekki átt með þér fleiri stundir á síðastliðnu ári, en vitandi að þér leið vel og vel var hugsað um þig gerði það bærilegra. Elsku pabbi eigu þökk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur, börnum okkar og barnabörnum. Þín verður sárt saknað. Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að Ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. (Jón frá Ljárskógum) Hörður og Rut Elsku pabbi minn. Á þessari stundu kveð ég þig þakklátur fyrir að hafa átt þig og þakklátur fyrir allt sem þú kenndir mér og það veganesti sem þú gafst mér út í líf- ið. Þú varst í senn yndislegur eig- inmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi. Pabbi var hlýr og góður maður sem öllum, sem hann þekktu, þótti vænt um. Hann var jafnan hress og glaðvær og ávallt reiðubúinn að hjálpa þeim sem á þurftu að halda. Hann var líka ráðagóður og óspar á að leiðbeina og segja öðrum til, ekki síst yngra fólki. Pabbi var glæsilegur á velli og lagði mikið upp úr því að vera snyrtilegur til fara, enda vann hann við það sem klæðskeri alla starfsævina að hanna, sauma og selja karlmannsjakkaföt. Við bræðurnir fengum líka ungir að njóta, ég minnist þess að hafa ver- ið í sparifötum í skólanum og úti að leika fram yfir fermingu þegar ég keypti mínar fyrstu gallabux- ur. Pabbi kom úr stórri fjölskyldu og var duglegur að rækta tengslin við systkini sín og frændfólk, bæði hér heima og í Noregi. Það sama átti við um fjölskyldu hans og af- komendur, hann var alltaf til stað- ar og allir elskuðu hann. Pabbi og Magnús bróðir hans voru ein- eggja tvíburar og næstum alveg eins. Þeir áttu meira að segja eins bíla á tímabili. Í barnæsku fannst mér að ég ætti tvo alveg eins pabba og montaði mig stundum af því við vini mína. Pabbi og mamma áttu margar sælustundir í sumarbústaðnum við Þingvallavatn þar sem hann stundaði gróðursetningu af kappi. Fyrstu 30 árin í bústað sem þau byggðu árið 1968 og síðan í bústað okkar hjóna sem við byggðum ár- ið 2003. Þar áttu þau sitt eigið hjónaherbergi og voru hluti af fjölskyldu okkar. Þingvallavatn og umhverfi þess átti sterkar ræt- ur í pabba, hann var vanur að segja við förunauta sína „Sjáið dýrð Drottins“ þegar hann ók fram hjá Heiðarbæ og horfði inn í skógivaxna Svínahlíðina. Pabbi starfaði í Bræðrafélagi Bústaðakirkju og tók ríkan þátt í fjáröflun og byggingu kirkjunnar á sínum tíma. Eins og mamma var hann mikill sóldýrkandi og strax kominn í stuttbuxurnar þegar sól- in fór að skína á sumardögum í Langagerðinu, austur í Þingvalla- sveit eða í sundlaugunum í Laug- ardal sem hann sótti nær daglega í yfir 50 ár. Eftir miðjan aldur voru þau síðan dugleg að fara í frí til Spánar og Kanaríeyja þar sem þau dvöldu oft vikum saman með góðum vinum. Ógleymanlegar eru allar þær samverustundir sem við fjölskyldan áttum með pabba og mömmu í fríum okkar hér heima og erlendis. Í dag eru afkomendur pabba og mömmu 37. Þau eru öll á lífi nema Bryndís systir mín sem andaðist 48 ára gömul árið 2004 og Bjarni Þór sonur minn sem lést árið 2018, aðeins 26 ára gamall. Síðustu 4-6 árin bjó pabbi á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi þar sem hann naut bestu umönnunar. Þar var hann ánægður og sáttur við Guð og menn og kvartaði aldrei. Ég vil þakka öllu starfsfólki í Boðaþingi fyrir mikla hlýju í hans garð síðustu árin. Elsku pabbi, takk fyrir lífið. Hvíl þú í friði. Þinn sonur, Pálmi Kristinsson. Það er með djúpri virðingu og söknuði sem ég kveð elskulegan tengdaföður minn hinstu kveðju. Hann lést 14. febrúar sl. á Hrafn- istu í Boðaþingi, umvafinn sínum nánustu; börnunum sínum fjórum og tengdabörnum. Hann var á 95. aldursári. Fallegri og ástríkari kveðjustund er vart hægt að hugsa sér, að lokinni langri og farsælli ævi. Það vottaði fyrir brosi á vörum gamla mannsins rétt fyrir andlátið. Meira að segja sólin baðaði út geislum sínum á annars þungbún- um degi. Var þetta kannski boð frá æðri máttarvöldum? Skyldi lífs- förunautur hans til 70 ára, hún Svava tengdamamma, hafa beðið hans með útbreiddan faðminn? Eða var himnafaðirinn að bjóða hann velkominn yfir? Eitt er þó víst að hann fór sáttur í sína hinstu för. Kristinn var glæsilegur maður, ljúfur, hjartahlýr og réttsýnn. Kristinn Ágúst Guðjónsson Hann tók öllu með jafnaðargeði og brosið hans blíða mun lifa í minn- ingunni. Þó fór hann ekki áfalla- laust í gegnum lífið frekar en flest okkar. Hann fékk sinn skerf af sorg, missti dóttur sína árið 2004 úr illvígum sjúkdómi og eiginkonu sína og barnabarn með stuttu milli- bili árið 2018. Auk þess horfði hann á eftir öllum systkinum sínum yfir móðuna miklu. En þannig er lífið, kynslóðir koma og kynslóðir fara. Við sem eftir lifum verðum að varðveita minningarnar. Gleði- stundirnar voru líka margar og eft- irminnilegar. Ég geymi í hjarta mér góðar minningar af þeim hjón- um Kristni og Svövu. Sólríkir dag- ar við Þingvallavatn, ættarmót á Ströndum, utanlandsferðir, jóla- veislur í Langagerði, kökuveislur á 17. júní, meira að segja harðfisk- mulningur Kristins við eldhúsborð- ið í Langó er mér minnisstæður. Hann hafði mikið dálæti á harðfiski og alltaf var passað upp á að það væri til harðfiskur í ísskápnum hans í Boðaþingi. Samband okkar Kristins ein- kenndist alla tíð af mikilli væntum- þykju og virðingu. Í hartnær 30 ár hefur hann verið mér yndislegur tengdafaðir. Megi minning þessa ljúfa manns lifa um ókomna tíð. Salome Tynes. Kristinn Ágúst Guðjónsson tengdafaðir minn lést 14. febrúar sl., 94 ára að aldri, jafngamall Kol- finnu móður sinni þegar hún dó. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á fallegum degi er sólargeislar brut- ust út og náðu til hans. Hann átti langt og farsælt líf. Ung að árum kynntist ég elsta syni hans. Kristinn tók mér vel allt frá okkar fyrstu kynnum. Hann var mikill fjölskyldumaður og leið best í hópi afkomenda sinna og tengdabarna og vildi helst fá að vera með okkur um hverja helgi. Hann var með stóran og hlýjan faðm og tóku þau Svava alltaf vel á móti okkur heima og í sumarbú- staðnum. Kristinn var lærður klæðskeri og vann við þá iðn alla tíð, mikill fagmaður. Hann var glæsilegur og snyrtimenni mikið, var annt um út- lit sitt og barnanna og umhverfi sitt. Þoldi illa druslugang, að klæð- ast gallabuxum á betri dögum eða aka um á óhreinum bíl fannst hon- um alls ekki við hæfi. Það má segja að ég hafi kynnst Ómari óbeint í gegnum Kristin. Hann hafði saumað blazer-jakkaföt á soninn og vini hans. Það var nýj- ung í tískuheiminum á þeim tíma og má með sanni segja að einn bla- zer-gæinn hafi fangað hug minn allan. Ferðin í Veiðivötn með tilvon- andi tengdapabba að heimsækja kærastann er ógleymanleg minn- ing. Ómar vann þar við byggingu á ferðafélagsskála sumarlangt. Frést hafði af geimförum þar á ferð, Armstrong og félögum að æfa sig fyrir fyrstu tunglferðina. Á leiðinni ræddum við Kristinn um heima og geima og komst ég að því hvað hann var fróður um margt, bók- elskur, las ekki hvað síst ævisögur og alls konar fróðleik um andleg efni. Í þessari ferð kynntist ég hon- um vel. Hann var alla tíð mjög heilsu- hraustur og varð varla misdægurt þangað til hann fótbrotnaði illa í lok síðasta árs. Hann vildi fara sem fyrst heim í Boðaþing af spítalan- um. Þar leið honum vel og á starfs- fólk spóadeildar Hrafnistu þakkir skyldar fyrir góða umönnun. Kristinn flíkaði ekki tilfinning- um sínum þegar áföll dundu yfir. Bar sorg sína í hljóði. Hann missti bæði dóttur og sonarson í blóma lífsins. Hann missti Svövu sína fyr- ir þremur árum. Þau voru búin að vera gift í yfir 70 ár, voru samhent alla tíð og alltaf gott að koma til þeirra. Hann var húsbóndinn og hún bústýran. Honum leið vel við að sýsla í garðinum, bæði heima í Langa- gerði þar sem hann ræktaði meðal annars jarðarber og rabarbara sem börnin mín voru sólgin í og í unaðsreitnum sínum í Svínahlíðinni við Þingvallavatn. Þar byggðu þau Svava sér sumarbústað sem þau áttu í yfir 30 ár. Þar naut hann sín í náttúrunni og kyrrðinni við trjá- rækt. Hann elskaði sólina og sagði að það væri alltaf gott veður í Svínahlíðinni. Börnin mín elskuðu að koma þangað til ömmu og afa, áttu þar bú og sín tré. Það er komið að leiðarlokum og hugurinn fyllist lotningu og falleg- um minningum við fráfall tengda- föður míns þar sem gagnkvæm virðing og ást ríkti alla tíð. Með honum er genginn síðasti ættlegg- ur kynslóðar hans og okkar kyn- slóð tekin við. Blessuð sé minning hans. Kristín Geirsdóttir. Kynni mín af Kristni Guðjóns- syni hófut fyrir meira en 25 árum þegar ég byrjaði í sambúð með yngsta barni hans, Svandísi. Mér leist strax mjög vel á hann. Hann var jákvæður, hjálpsamur og sá það góða í öllum. Ég tók fljótlega eftir því að hann var mjög snyrti- legur, enda var hann klæðskera- meistari. Alltaf var hann í fínum fötum og ávallt var passað upp á að bíllinn væri stífbónaður. Kristinn var mjög barngóður. Barnabörnin hændust mjög að honum og hann var alltaf tilbúinn að fara með þeim út að leika. Krist- inn og eiginkona hans Svava byggðu sér hús í Langagerði á sjötta áratug síðustu aldar. Þar var alltaf gott að koma því Kristinn hafði sérstaklega góða nærveru og öllum leið vel í návist hans. Segja má að þau hjónin hafi átt tvö heimili. Kristinn byggði sum- arbústað á Þingvöllum í kringum 1970 og voru þau hjónin þar allar helgar á sumrin. Þar undi hann sér við garðyrkju frá morgni til kvölds. Þarna var gaman að koma enda bústaðurinn á besta stað við Þing- vallavatn. Kristinn var mikill sóldýrkandi. Þau hjónin fóru í fjölmargar ferðir til sólarlanda og voru þau oft hin síðari ár á Kanaríeyjum. Það var því við hæfi að rétt áður en hann kvaddi þennan heim lét sólin sjá sig í nokkrar mínútur eftir langvar- andi rigningu. Kristinn var alla tíð mjög heilsu- hraustur og í góðu formi. Hann sýndi m.a. fimleika á lýðveldishá- tíðinni á Þingvöllum 1944 og hin síðari ár fóru þau hjónin alla morgna í Laugardalslaugina. Þar leið honum vel því þar hitti hann marga af sínum samferðamönnum. Nú er komið að kveðjustund. Takk fyrir allt og allt elsku tengda- pabbi og allt sem þú gerðir fyrir okkur fjölskylduna, minningarnar um þig munu hlýja mér og fjöl- skyldu minni um aldur og ævi. Sveinn. Í dag kveðjum við elsku afa okk- ar, Kristin Ágúst Guðjónsson. Við barnabörnin kölluðum hann alltaf afa í Langó, því að afi og amma bjuggu í Langagerði í yfir 50 ár, og þannig festist þetta viðurnefni við þau, „amma og afi í Langó“. Við bjuggum líka í næsta nágrenni við þau í mörg ár og því stutt að fara úr Logalandinu yfir í Langó. Þegar við vorum yngri áttum við sumarbústað við Þingvallavatn þar sem afi og amma voru oft með okk- ur á sumrin. Afa þótti fátt betra en að baða sig í sumarsólinni og var fyrstur allra til þess að henda sér í stuttbuxur og út á pall. Við eigum margar góðar minningar um afa sem við munum varðveita um ókomin ár. Elsku afi. Góða ferð í sumar- landið, þar sem vel verður tekið á móti þér. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Ágúst Ottó og Birna Lind. Það voru alltaf jafn hlýjar og fal- legar móttökur í hvert skipti sem við komum í heimsókn til elsku yndislega afa. „Elskan mín“ voru orð sem hann sagði við okkur í nán- ast hverri einustu setningu þegar við vorum í heimsókn hjá honum. Hann lét þessi orð hljóma af svo mikilli einlægni, sem gerði það að verkum að okkur leið vel og við fundum fyrir því hve innilega hann meinti allt það sem hann sagði við okkur. Afi var alltaf brosandi og glaður, sem smitaði að sjálfsögðu út frá sér. Afi var ótrúlega góður í sam- skiptum og hann hafði alltaf mik- inn áhuga á því sem fólkið í kringum hann var að gera, en okkur fannst það hafa verið hans allra besti kostur. Alveg fram á síðasta dag var hann stoltur af því sem við vorum að afreka í líf- inu, sama hvort það voru afrek í fótbolta, námi eða fyrstu íbúðar- kaupin. Á sínum fyrri árum var afi klæðskeri, hann var góður í því starfi og var alltaf snyrtilega klæddur. Tískan hefur svo sann- arlega breyst með árunum og í hvert sinn sem við komum í heimsókn til hans í rifnum galla- buxum skildi hann ekkert í því hvers vegna mamma væri ekki búin að gera við buxurnar og spurði hvort við hefðum nokkuð dottið á leiðinni. Hann skildi ekki tilganginn með því að hafa göt á gallabuxum og áttaði sig ekki á því að þær hefðu verið keyptar þannig. Við minnumst þess þegar afi og amma voru að passa okkur í eitt skiptið og afi vildi hlusta á hádegisfréttirnar í útvarpinu. Við vissum lítið um útvarp, enda ekki af sömu kynslóð og hann og þurftum því að hringja í mömmu og spyrja um útvarpið vegna þess að afa fannst það ómissandi. Allir sem þekktu afa geta verið sammála því að yndislegri mann var varla hægt að finna og hans verður sárt saknað. Afi var svo ótrúlega blíður og góður maður og hann skilur eftir sig margar frábærar minningar sem ylja manni um hjartarætur. Elsku afi, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur, við verðum þér ævinlega þakklátar fyrir það. Þín barnabörn, Sólveig Huld og Silja Karen. Elsku afi okkar, nú þegar þú hefur kvatt okkur vakna upp margar góðar minningar. Að koma í Langó eins og heim- ili ykkar ömmu var alltaf kallað var gott. Þú varst alltaf svo hlýr og barnelskur, þótt þú hefðir haft skoðanir á mörgu, sérstaklega klæðaburði og hári. Langó var í minningunni stórt hús, eflaust vegna þess að þar var iðulega fullt af fólki. Við börnin máttum ekki hafa hátt á meðan fréttir voru í gangi en þá fundum við aðra staði eins og skúrinn sem var skemmtilegur, fallega garðinn ykkar eða háa- loftið með öllum felustöðunum. Þið amma áttuð mörg börn og enn fleiri barnabörn. Langó var staður þar sem fólk hittist, sér- staklega á sunnudögum. Við börnin fengum að njóta hlýju frá þér og þú sýndir okkur mikinn áhuga, ekki breyttist það þegar langafabörnin komu, þú og amma voruð alltaf mætt fljótt eftir að börnin fæddust og eftir að þú fluttir í Boðaþing gladdist þú mikið þegar börn komu með í heimsókn. Minningar um bústaðinn á Þingvöllum eru margar, til dæm- is af þér í fótbolta með okkur krökkunum og að kenna okkur að standa á höndum. Þú alveg elsk- aðir að vera úti í náttúrunni, hugsa um kartöflugarðinn með börn að væflast í kringum þig. Grenitrén sem voru vökvuð með lífrænum vökva með aðstoð drengja í fjölskyldunni uxu vel í fallega landinu þínu. Þegar árin færðust yfir sýndir þú enn þessa miklu hlýju sem þú bjóst yfir, varst svo góður við ömmu og gladdist yfir heimsókn- um sem þið fenguð. Elsku afi, nú ertu kominn til ömmu, þið eruð væntanlega að leiðast á fallegri strönd í hita og sól eins og þið elskuðuð. Hvíl í friði Kristinn Harðarson, Anna Harðardóttir og Arnar Harðarson. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR GUÐLAUG PÁLSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Sléttuvegi, miðvikudaginn 10. febrúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Brúarfoss á Hrafnistu, Sléttuvegi, fyrir hlýhug og góða umönnun. Rafn Hermannsson Hlíf Harpa Róbertsdóttir Stefán Rúnar Garðarsson Arna Vala Róbertsdóttir Elías Már Hallgrímsson Páll Róbertsson Auður Sólmundsdóttir Heiðdís Ellen Róbertsdóttir ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.