Morgunblaðið - 23.02.2021, Side 22
Það er komið að
ferðalokum hjá
elsku afa Pétri.
Fyrst og fremst er
það þakklæti sem kemur upp í
hugann þegar maður lítur yfir
árin 95 sem Pétur dvaldi á
jörðinni. Ekki bara þakklæti
fyrir að hann hafi veitt okkur
tilveruréttinn, afkomendum
hans. Heldur þakklæti fyrir
mann sem lifði lífi sínu sam-
kvæmt lífsreglum sem hann
sjálfur setti sér og skráði á
blað varla orðinn 10 ára, án
þess að skrika nokkurn tím-
ann fótur á þeirri vegferð.
Þakklæti fyrir mann sem setti
velferð og öryggi fjölskyldu
sinnar, samstarfsfólks og
starfsmanna ávallt í fyrsta
sæti. Það þótti ekki sjálfsagt
mál um það það leyti sem afi
okkar fæðist, 1925, að koma
öllum sínum afkomendum á
legg. Veit ég að afi var einkar
stoltur af sínum afkomendum
og þeirra glæsilegu afrekum í
leik og starfi.
Afi var farsæll atvinnurek-
andi í yfir 50 ár þar sem hann
átti og rak vélsmiðjuna Stál á
Seyðisfirði með Ástvaldi bróð-
ur sínum og síðar einnig með
Theodór syni sínum. Þeir ráku
sitt fyrirtæki á miklum um-
bóta- og framfaratímum en
líka á erfiðum tímum. Þegar
skórinn kreppti kom ekki til
mála að fækka starfsfólki
heldur voru bara búin til ný
verkefni og þannig haldið
dampi þangað til birti á ný.
Það er einmitt úr Stál sem
margar minningar af afa
skjóta upp kollinum. Minning-
ar af því að heimsækja afa í
vinnuna, skoða sig um í þess-
Pétur Júlíus
Blöndal
✝ Pétur JúlíusBlöndal fædd-
ist 16. nóvember.
Hann lést 19. jan-
úar 2021. Útför
Péturs fór fram
2. febrúar 2021.
um framandi
heimi sem vél-
smiðja er og fá
svo far með hon-
um heim í hádeg-
inu á gula Scout-
jeppanum, borða
svo síld á brauð
og skyr með
rjóma áður en
hlustað var á
fréttirnar og svo
kría áður en aftur
var haldið til vinnu.
Okkur systkinunum er alltaf
minnisstætt þegar afi dró jóla-
tréð fram á gólf, settist við pí-
anóið og lék jólalög fyrir okk-
ur börnin á meðan við
dönsuðum í kringum tréð. Afi
var mikill listamaður og skipti
ekki máli hvort það var tónlist,
myndlist, trélist eða annað; afi
kunni það og gerði það vel.
Sumarbústað byggði hann fjöl-
skyldu sinni í Fögruvík við
Lagarfljót á Héraði árið 1967
og hófust hann og amma
Magga strax handa við að
rækta upp landið. Þar má nú
finna mörg tré sem gefa hæstu
trjám landsins ekkert eftir og
hvergi þykir betra að vera á
fallegum sumardegi, með út-
sýni að Snæfelli. Þegar barna-
börnunum tók að fjölga byggði
afi sumarhús í barnastærð fyr-
ir okkur, þar var rúm, lítið
eldhús og tvöföld hurð þannig
að hægt var að afgreiða
drullukökur út um lúgu. Þar
leika barnabarnabörnin sér
enn þann dag í dag við ekkert
minni gleði en við upplifðum
áratugum áður.
Núna eru afi og amma sam-
einuð á ný. Minning um mann
hvers fótspor voru svo stór að
fáum öðrum er fært að standa
í þeim. Ég held að það sé
óhætt að segja að afi og amma
hafi átt einstaklega gott líf.
Fyrir það erum við þakklát.
Elsku afi, góða ferð og biðjum
að heilsa ömmu. Við elskum
ykkur að eilífu.
Gylfi, Birna og Elsa.
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Verkfæri
Stórútsala á armbandsúrum
SÍÐUSTU DAGAR
Vönduð og glæsileg -Pierre Lannier-
armbandsúr frá Frakklandi, landi lista
og fagurfræði.
Gullbúðin Bankastræti,
GÞ Bankastræti,
ERNA Skipholti, www.erna.is
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s. 458-2200
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð mun byrja að Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík,
fimmtudaginn 4. mars nk. kl. 12:15, á eftirfarandi
ökutækjum, sem hér segir:
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
22. febrúar 2021
AZ936
FSY61
HUM35
JYE78
KKG25
SK535
SKB03
SVF31
TEZ18
TPJ05
UUG59
UYY38
VB083
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Tálgað í tré kl. 13. Postu-
línsmálun kl. 13. Prjónahittingur Önnu kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafn-
framt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að
koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Upplýsingar í síma
411-2702. Allir velkomnir.
Boðinn Ganga/stafaganga kl. 10 frá anddyri Boðans. Fuglatálgun kl.
13-16. Munið grímuskyldu og tveggja metra regluna. Sundlaugin er
opin frá kl. 13.30-16.
Bústaðakirkja Félagsstarf eldriborgara, opið hús frá kl. 13-16 á
miðvikudaginn. Hugleiðing og bæn, spjall og með kaffinu verða
sýndir tónleikar til minningar um Sigfús Halldórsson sem kór
Bústaðakirkju tók upp í nóvember síðastliðnum. Boðið uppá göngu-
túr kl. 13 um nágrennið. Hólmfríður djákni sér um stundina, hlökkum
til að sjá ykkur. Munum grímuna og virðum millibil.
Fella- og Hólakirkja Verið velkomin í kyrrðarstund kl. 12, hugleið-
ing, fyrirbæn og tónlist í umsjá Kristínar Kristjánsdóttur djákna og
Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Kaffisopi og spjall eftir stundina.
Við bíðum með að byrja eldri borgarastarfið þar til samkomutakmörk
verða rýmkuð.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opnunartími kl. 8.10-16. Allir vel-
komnir. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Thai Chi kl. 9-10. Prjónum til
góðs kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópurinn Kríur
kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Hjá okkur er grímuskylda og
vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig fyrirfram í síma eða á skrif-
stofunni. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dags fyrirvara. Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Göngu-
hópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í sal í kjallara Vídalíns-
kirkju. Botsía Ásgarði kl. 12.55. Smíði Smiðju Kirkjuhvoli kl. 9 og 13.
Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15.15. Litlakot opið kl. 13-16.
Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8.30-16. Gönguhópur frá kl.
10 (leikfimi og svo ganga). Núvitund frá kl. 11-11.20. Myndlist/lista-
spírur kl. 13-16. Blöðin liggja frammi, heitt á könnunni. Í Gerðubergi
vilja allir vera næs.
Gjábakki Kl. 8.30-10.30 handavinnustofa opin, bókið daginn áður. Kl.
9.45 stólaleikfimi (fullbókað), kl. 11.30-12.30 matur. Kl. 13.30-15.30
opið fyrir spjall, bókið daginn áður.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Tréútskurður kl. 13. Munið sóttvarnir.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Gönguferð kl. 13.30 ef veður leyfir.
Korpúlfar Listmálun með Pétri Halldórssyni kl. 9 í Borgum, botsía kl.
10 í Borgum og helgistund kl. 10.30 í Borgum. Spjallahópur í lista-
smiðju kl. 13 í dag í Borgum og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug
með Brynjólfi kl. 14 í dag. Grímuskylda í félagsstarfinu og hámark 20
í hóp. Kaffi á könnunni og gleðilegir endurfundir í Borgum.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi
kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Örnámskeið / roð og
leður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30-18.30. Vatnsleikfimi í
ssundlauginni kl. 18.30. Virðum almennar sóttvarnir.
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Sveinn JóhannSveinsson bif-
reiðastjóri fæddist
15. maí 1947 í
Reykjavík. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 6.
febrúar 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Sveinn
Snæbjörn Sveins-
son, f. 10. okt. 1903,
d. 16. feb. 1993, og
Ingibjörg Theódórsdóttir f. 7.
júní 1918, d. 1. sept. 1993.
Systkini Sveins eru: Bjarni, f.
1947, Helgi Theodór, f. 1948, d.
1992, Rúnar Loftur, f. 1949, Elí-
as Rúnar, f. 1952, Guðmundur
Aðalsteinn, f. 1955, d. 2007, og
Marta María, f. 1962.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Lilja I. Sveinsdóttir, sem hann
giftist 4. des. 1971. Börn þeirra
eru: 1) Margrét Þóra, maki Sæv-
ar Már Kjart-
ansson, börn
þeirra: Jóel Örn,
María Rós og Sím-
on Valur. 2) Sig-
urður Ingi, maki
Signý Leifsdóttir,
börn þeirra: Smári,
Frosti og Hulda
Sól. 3) Logi Arnar.
Sveinn Jóhann
starfaði við sjó-
mennsku á yngri
árum en gerði síðar út vöru- og
sendibíla frá Sendibílastöðinni
Þresti, Vörubílastöðinni Þrótti
og Sendibílastöðinni hf.
Útförin fer fram 23. febrúar
kl. 13 frá Neskirkju við Haga-
torg.
Streymt verður frá útför:
https://youtu.be/APLU66H1lb4
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku pabbi minn er skyndi-
lega farinn úr þessum heimi, varð
bráðkvaddur á heimili sínu. Enda-
laust af góðum minningum kemur
upp í hugann og það huggar á
svona stundu. Ég hef alltaf verið
pabbastelpa og pabbi hélt alltaf
með mér. Hann var stoltur af
stelpunni sinni, hvort sem það var
að byrja að læra að hjóla, fá bíl-
próf eða verða hjúkrunarfræðing-
ur. Pabbi var samkvæmur sjálf-
um sér og svo ekta í gegn. Hann
hafði mikla þolinmæði í að leika
við barnabörnin sín.
Bílar hafa verið hans ær og kýr
alla tíð. Hann hugsaði alltaf vel
um bílana sína, það fór ekki fram
hjá neinum. Vinnusemi, heiðar-
leiki og hjálpsemi einkenndi hann.
Hann hefur alltaf verið bifreið-
arstjóri, allt mitt líf alla vega, og
hafði verið i vinnunni daginn áður
en hann kvaddi þennan heim svo
skyndilega sem það varð.
Hann varð „hundraðshöfðingi“
hjá Blóðgjafafélaginu og rúmlega
það með öllum þeim skiptum, alls
172 skipti, sem hann mætti af fús-
um og frjálsum vilja i Blóðbank-
ann og gaf blóð reglulega fjórum
sinnum á ári stærstan hluta ævi
sinnar. Hann hefur með blóð-gjaf-
mildi sinni gefið mörgum sjúk-
lingum betra líf og jafnvel bjargað
lífi margra þeirra.
Í lokin vil ég benda á að þeir
sem vilja minnast hans geta lagt
Blóðbankanum lið við kaup á nýj-
um Blóðbankabíl.
Elsku besti pabbi, nú er komið
að kveðjustund. Við munum ylja
okkur við fallegar minningar um
þig. Guð blessi þig. Ég elska þig.
Þín dóttir,
Margrét Þóra.
Kæri tvíburabróðir. Margs er
að minnast eftir 73 ára lífsgöngu
okkar saman. Eitt sem einkenndi
þig var dugnaður og ósérhlífni,
alltaf tilbúinn til að aðstoða t.d.
eins og mig sem stóð í flutningum
fyrir skömmu. Þá var mér kunn-
ugt um gjafmildi þína sem þú
vildir helst aldrei tala um. Eitt
gott dæmi um slíkt er þegar þú
upp á þitt eindæmi árið 1965
bauðst allri stórfjölskyldu Helgu
Bjarnadóttur, móðurömmu okk-
ar, í 75 ára afmælið hennar í
Tjarnarbúð. Bifreiðaakstur varð
þitt aðalstarf í lífinu. Byrjaðir
með lítinn sendibíl á sendibíla-
stöðinni Þresti 1974. Síðan var
keyptur stærri bíll sem var meðal
annars notaður sem kaffihús í
ferð okkar með krakkaskarann á
skíði í skíðaskálann í Hveradölum
eina helgina. Það virðist hafa ver-
ið meiri snjór þar að vetri til á
þessum árum. Eftir að þú hættir
á Þresti keyptirðu vörubíl og
byrjaðir á sendibílastöðinni
Þrótti. Þar vannst þú í mörg ár,
fyrst með bíl til malarflutninga,
síðan öflugan kranabíl. Þá rifjast
upp þegar þú varst á Þresti með
stærri sendibílinn 1978-79.
Ákváðuð þið hjónin að byggja
ykkur sumarbústað í Borgarfirði
eystri sem þú fluttir í einingum í
nokkrum ferðum austur. Þá
hjálpaði Kiddi frændi þér að
koma honum upp ásamt fleirum.
Þar í Borgarfirði áttir þú trilluna
Tindfell sem þú rerir á sumrin til
handfæraveiða. Bústaðurinn varð
síðan að heilsárshúsi og stendur
held ég enn. Ég, Lára og krakk-
arnir heimsóttum ykkur þangað
og fór ég með þér í róður einn
daginn. Þar var sami dugnaður-
inn út í gegn. Þá er ljúft að minn-
ast allra veiðiferðanna sem við
fórum í saman. Þar var sami
dugnaðurinn og þótti þér ekki
verra þótt blési hressilega; „bara
betra“ sagðir þú. Þá verð ég að
minnast á góðan veiðifélaga þinn,
Sveinbjörn Björnsson, sem vann
með þér á Þrótti, sem þú hvattir
ósjaldan til að koma með þér eða
okkur í veiði. Sveinbjörn kvaddi
þetta jarðlíf fyrir stuttu, blessuð
sé minning hans. Ég ætla rétt að
vona að þegar þið farið að veiða
saman í Sumarlandinu sé leyfður
makríll og spúnn!
Gott er að eiga góðar minn-
ingar og hugsa til þess að aldrei
bar skugga á okkar vegferð.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til Lilju og barna ykkar,
barnabarna, tengdadóttur og
tengdasonar.
Bjarni bróðir.
Sveinn Jóhann
Sveinsson
Dáinn er frændi
minn Birgir Lúð-
víksson. Við ólumst
upp saman á Berg-
staðastræti 71 uns
fjölskylda hans flutti, þá var hann
átta ára. Þegar Birgir fór minnk-
aði aðeins samvera okkar því langt
var á milli. Birgir var eins og flest-
ir í fjölskyldunni eðal-Framari og
átti hann eftir að leika og starfa
fyrir félagið sitt.
Árið 1962 varð hann t.d. Ís-
landsmeistari í knattspyrnu ásamt
tveimur bræðra sinna þeim Hall-
dóri og Þorgeiri. Birgir var lengi í
stjórn Fram eins og reyndar fleiri
í fjölskyldunni. Ég minnist þess að
einu sinni hringdi hann í mig og
spurði hvort ég myndi vilja koma
Birgir Lúðvíksson
✝ Birgir Lúðvíks-son fæddist 3.
maí 1937. Hann lést
3. febrúar 2021.
Útför Birgis fór
fram 15. febrúar
2021.
með sér og vini sín-
um á hátíð um versl-
unarmannahelgi. Ég
játti því og tók með
mér Helgu æskuvin-
konu mína. Þar og
þá kviknaði sá neisti
er logaði skært hjá
þeim upp frá því.
Birgir og Helga
giftu sig nokkru
seinna og alla tíð
hefur það hjónaband
verið traust og farsælt. Þau eign-
uðust fjögur börn, Viðar, Lúðvík,
Sigríði og Guðríði. Þau hafa alla
tíð reynst foreldrum sínum frá-
bærlega. En mikil sorg var sorg
þeirra er Viðar lést eftir erfið
veikindi.
Elsku besta Helga og allir ykk-
ar fjölskyldumeðlimir, við hjónin
samhryggjumst ykkur frá innstu
hjartarótum. Birgis verður
minnst sem sómamanns og sárt
saknað.
Guð blessi ykkur öll.
Andrea (Addý) og Ísleifur.
Elsku Lára Nes-
ari og Njarðvíking-
ur er fallin frá. Hún
var Njarðvíkingur í
húð og hár og áhugakona um
körfuboltann og þar átti Njarð-
vík hennar hjarta. Einnig var
hún liðsfélagi í íþróttafélaginu
Nesi og tók marga titla þar. Hún
var mögnuð manneskja sem tók
öllum vel. Takk fyrir allar ferð-
irnar sem við fórum saman í, ég
var reyndar sundmegin og þú
með þínu liði á bocciamóti. Við
Lára María
Ingimundardóttir
✝ Lára Maríafæddist 21.
október 1971. Hún
lést 7. febrúar
2021.
Útför Láru fór
fram 18. febrúar
2021.
hittumst svo öll
uppi á hóteli og þar
var farið yfir dag-
inn, sem gekk vel
hjá öllum sem voru
að keppa. Einnig
fórum við öll saman
að versla í búðum
og það var svo gam-
an að vera í kring-
um þig. Ég á eftir
að sakna þín mikið.
Einnig var hún mik-
il söngkona og mikill gleðigjafi.
Þín verður sárt saknað
Vin sínum
skal maður vinur vera,
þeim og þess vin.
En óvinar síns
skyli engi maður
vinar vinur vera.
Brynhildur Ólafsdóttir.