Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 28
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Hefði ég skrifað þessa bók fyrir tuttugu árum, þá væri hún allt öðru- vísi, því það hefur svo margt breyst síðustu áratugi í bókmenntafræð- inni,“ segir Bergljót Soffía Krist- jánsdóttir sem tilnefnd var til viður- kenningar Hagþenkis fyrir bók sína Fræðaskjóða: Bókmenntafræði fyrir forvitna. „Að mínu mati hafa helstu breyt- ingar í bókmenntafræði undanfarið tengst uppgötvunum í líffræði og taugafræði. Við höfum lært meira um mannsheilann á síðustu þremur áratugum heldur en allar aldirnar á undan – þó að við vitum lítið um hann enn! Fyrir vikið getum við far- ið að ræða hluti í bókmenntum á annan hátt en fyrr, til dæmis tilfinn- ingar og geðshræringar, ímynd- unarafl, lestur og sköpunarkraft. Auk þess hefur bókmenntafræðin á síðustu áratugum lagt áherslu á les- andann, á upplifunina af lestrinum. Bókmenntir eru einskis virði nema af því að fólk upplifir þær á ólíkan hátt. Hver og einn lesandi getur sótt til bókmennta og bætt við þær því sem sprettur af hans eigin reynslu og kemur úr hans eigin skjóðum.“ Bækur eru skjól fyrir marga Þegar Bergljót er spurð að því hvers vegna við þurfum bókmenntir segir hún að fleiri svör en eitt séu við því. „Ég held að þráin eftir bókmennt- um sé mannkyninu eiginleg, alveg frá því það fór að tala og söngla. Þetta er nátengt þörfinni á að nýta ímyndunaraflið og vilja kynnast fleiru en því sem blasir við. Rann- sóknir sýna að þegar fólk er búið að fara í gegnum daginn og heyra enda- lausar hörmungafréttir í fjölmiðlum, þá langar það í eitthvað notalegra og hlýlegra. Þannig sækja sumir í bók- menntir til að ylja sér við þær. Aðrir sækja í þær til að kynnast öðrum heimum og leyfa ímyndunaraflinu að fara á flug. Ég held að það sé reynsla margra að bækur hafi verið skjól sem lífsnauðsynlegt var að komast í. Ég get tekið dæmi af mömmu minni sem var með sex börn á heimilinu, ég held satt best að segja að bókmenntirnar hafi bjargað henni hversdags,“ segir Bergljót og rifjar líka upp kynni sín í bernsku af gamalli alþýðukonu í Hafnarfirði. „Þetta var verkakona sem var óskaplega kát og skemmtileg. Hún lýsti fyrir mér upplifun sinni af ljóðabók Þorsteins Erlingssonar, Eiðinum. Bókin var til á einum bæ í sveitinni hennar enda ekki vel séð af mörgum. Unglingurinn laumaðist til að fara með bókina út af heimilinu og sýna félögum sínum hana. Krakk- arnir enduðu með að lesa hana upp- hátt hvert fyrir annað í tunglsljósinu – og konan sem ég þekkti kunni kveðskapinn enn! Þetta finnst mér falleg frásögn um hvernig fólk sækir í skáldskap sem því er meinað að kynnast. Þannig geta bókmenntir opnað heima sem þú færð ekki ann- ars að komast inn í.“ Unglingar spenntir fyrir nekt Þegar Bergljót er spurð hvaðan hún sé sprottin ástríða hennar fyrir bókmenntum segist hún hafa dregið hana í sig með móðurmjólkinni. „Foreldrar mínir voru mikið bóka- fólk og mamma var ljóðamanneskja fram í fingurgóma. Hún fylgdist vel með og keypti til dæmis strax bók- ina hennar Ástu Sigurðar, Sunnu- dagskvöld til mánudagsmorguns, þegar hún kom út. Unglingarnir höfðu frétt að í þeirri bók væru nekt- armyndir og fyrir vikið þorði ég ekki að segja neinum að mamma ætti þessa bók og væri ægilega hrifin af henni,“ segir Bergljót og hlær að minningunni. „Bækur ungskáldanna komu um leið inn á heimili mitt þegar þær komu út og foreldrar mínir voru líka með bókabúð um tíma,“ segir Berg- ljót sem er mikill aðdáandi ljóða. „Ég les alltaf ljóð upphátt heima hjá mér og finn bókstaflega fyrir líkamlegum viðbrögðum, ljóðin ganga mér í merg og bein. Ég var vön því að ljóð væru lesin upphátt og ég var alin upp í ljóðum, bæði af mömmu og ömmu. Mömmu fannst Fagra veröld Tómasar Guðmunds- sonar vera best fyrir börn þegar þau vou fjögurra eða fimm ára, en amma byrjaði á Káin og Páli Ólafssyni. Mamma færði sig svo yfir í Grím Thomsen og Stephan G. þegar krakkarnir urðu ögn eldri.“ Þurfum ekki að hafa áhyggjur Bergljót hefur í áratugi starfað við, grúskað í og rannsakað bók- menntir, sem kennari og prófessor. Hún hefur því mikla yfirsýn. Hún hefur ekki áhyggjur af þróun mála í bókmenntum og fagnar skáldskap á nýjum miðlum. „Mér finnst yndislegt að fólk yrkir og segir sögur á þessum nýju miðl- um, fésbók og instagram til dæmis. Þar erum við komin með eitthvað sambærilegt við það sem ferskeytl- an og stuttar frásagnir voru í gamla daga. Vissulega fyrirfinnast enn hagyrðingakvöld og kvæðamanna- kvöld á einstaka stað og fólk yrkir fyrir þorrablót og annað slíkt, en á meðan við erum með fólk úti um all- an bæ sem er að yrkja á samskipta- miðlum, þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af bókmenntum í þessu landi. Fólk þráir að tjá sig í litterat- úr og þarna hefur opnast nýr vett- vangur. Mér finnst sumt af því sem ég sé á samskiptamiðlum mjög gott, og ekkert undan því að kvarta. Sum- ir hafa áhyggjur af slíku efni en ég hef bara gaman af því.“ Með samvisku heims á herðum Þegar Bergljót er spurð að því hvað henni finnst athygliverðast í því nýjasta sem fram hefur komið í íslenskum bókmenntum segir hún að undanfarin tuttugu ár hafi margir fjallað opinskátt í skáldskap um eig- in ævi. „Þetta fólk hefur ekki leynt því að reynsla þess sjálfs væri undir í skáldskapnum. Vissulega hafa skáld alltaf sótt í eigin reynslu, en það hef- ur verið misjafnt hvernig sú reynsla hefur verið matreidd ofan í lesendur á ólíkum tímum. Upp á síðkastið hef- ur verið þó nokkuð um að fólk hafi samið játningabókmenntir og ýmis- legt af því tagi. Hinn þráðurinn sem er að koma fram í nútímabókmennt- um eru áhyggjur upprennandi kyn- slóða af því sem þær þurfa að takast á við í framtíðinni. Ég er nokkuð viss um að sá þáttur eigi eftir að verða æ þyngri næstu árin, af því að mín kynslóð skilur ekki við heiminn með glæsibrag. Þegar ég les sumt af ljóð- um unga fólksins sem nú er um tví- tugt, þá kem ég stundum heim með samvisku heimsins á herðunum. Ástandið á jörðinni er stórt verkefni fyrir þetta unga fólk að takast á við.“ Efnilegt og skemmtilegt fólk Bergljót tekur fram að eitt af því jákvæða sem hafi breyst í íslenskum bókmenntum undanfarin ár sé hversu staða ljóðsins hefur styrkst. „Ég held það sé að nokkru að þakka ritlistarkennslu í háskólanum. Mér finnst með ólíkindum hversu stór hópur ljóðskálda er kominn fram, og ég fagna því. En ég sé þetta líka erlendis, kannski tengist þetta líka nýju miðlunum og tónlistinni, því þar tjáir unga fólkið sig.“ Eftir áratuga kennslu er ekki úr vegi að spyrja við starfslok hvernig Bergljótu lítist á æskuna og framtíð- ina. „Ég kenndi síðasta hópnum mín- um í haust í þessum covid-aðstæð- um, við fengum að vera saman í tæp- an mánuð en eftir það hittumst við á netinu í gegnum zoom. Mér fannst þetta mjög efnilegt og skemmtilegt ungt fólk sem hafði skoðanir á öllu milli himins og jarðar. Þau gerðu margt svo vel að ég hef engar áhyggjur af æskunni. Ég hef hins vegar áhyggjur af stóra samheng- inu, mannkyninu og jörðinni sem við búum á, valdaskiptingu í heiminum, misskiptingu auðs og fátækt. Það situr á manni þegar maður horfir yfir sviðið. Ég hef engar áhyggjur af krökkunum, þau eru alltaf svo fín.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Bergljót Soffía „Ég les alltaf ljóð upphátt heima hjá mér og finn bókstaflega fyrir líkamlegum viðbrögðum.“ „Ég var alin upp í ljóðum“  „Þráin eftir bókmenntum er mannkyninu eiginleg,“ segir Bergljót Soffía Kristjánsdóttir sem skrifar um bókmenntir fyrir forvitna  Dró í sig ástríðu fyrir bókmenntum með móðurmjólkinni 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 SÉRBLAÐ Fermingarblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 8. mars. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 12. mars Borgarleikhúsið býður annað kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 20 áhugasömum á leiklestur á nýju leikverki sem er í vinnslu. Verkið nefnist Göngutúrinn. Ókeypis er á leiklesturinn en áhugasamir þurfa að panta miða á vefnum borgarleik- hus.is. Leiklesturinn er fyrsti viðburð- urinn í nýrri röð sviðsettra leik- lestra undir hatti Umbúðalaust, þar sem nýir sviðshöfundar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og verk í vinnslu. Göngutúrinn er gamansamt leik- rit eftir Ragnar Ísleif Bragason í leikstjórn Jörundar Ragnarssonar. Verkið fjallar um hjón sem skella sér á hótel úti á landi til að lífga upp á sambandið og nýta gjafabréf áður en það rennur út. Á hótelinu koma óvæntir hlutir upp á yfirborð- ið þegar hjónin kynnast kokkinum og móttökustúlkunni á staðnum. Leiklesa Leikararnir í verkinu. Bjóða á leiklestur á Göngutúrnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.