Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Page 11
st
skapað. Hversu góðum félagsskap
menn hafa kynnzt. Hversu góðar
stundir æfingar og keppni hafa
veitt mönnum. Liklega er enginn
maöur nógu góður félagsmaður, —
fyrr en eftir á, rétt eins og flestir
eru vitrir eftir á.
Þróttur hóf sina tilvist sem félag
fyrir tvö tiltekin borgarhverfi I suð-
vesturborginni, tvö nokkuð ein-
angruð borgarhverfi, þar sem
margir ibúanna lifðu á landsins
gæðum eins og það er kallað svo
hátiðlega i dag. Menn höfðu sinar
skepnur, kýr, kindur og hesta,
hænsn og svin.Aðrir áttu báta, sem
þeir ýttu úr vör og reru til fiskjar.
Enginn maður utan vissra lina i
bænum mátti gerast félagi i
Þrótti. Sem betur fer var þessu
breytt fljótlega, linurnar hurfu og
landakortið allt gilti, ef menn vildu
gerast félagar i Þrótti. Siðar kom i
ljós að Vesturnærinn var ekki til
skiptanna milli risans KR og litla
Þróttar. Oftkom það fyrir að félag-
ið rambaði á brúninni næstu árin,
félagið yrði hreinlega leyst upp,
hætti. En það brást ekki, sifellt
komu dugmiklir kraftar til sögunn-
ar og björguðu málunum.
Það er ekki ýkja langt siðan að
segja má að Þróttur hafi orðið full-
komin staðreynd, félag sem ekkert
fær þokað fyrir björg. Ekki hvað
sizt gerðist þetta eftir að félagið hóf
nýtt landnám i hverfunum i
Kleppsholti. Það hefur verið á-
nægjulegt að fylgjast með vexti fé-
lagsins og viðgangi á nýjum stað.
Kraftaverkið, sem Halldór Sig-
urðsson og ungir vinir hans hrundu
af stað, heldur áfram að stækka og
magnast, og það á eftir að verða til
blessunar fyrir hundruð ungra
manna og kvenna i hinu nýja
hverfi.
Tveir sextugir
Haraldur Snorrason og Börge Jónsson.
Haraldur Snorrason, fyrrverandi formaður Þróttar,
hefur átt sæti í sérráðum og samböndum knattspyrnu-
hreyfingarinnar um áratuga skeið og unnið frábær
störf fyrir félagið. Hann hlaut fyrir skömmu æðsta
kross KSí fyrir frábær störf að málum knattspyrnunn-
ar
Börge Jónsson hefur starfað fyrir Þrótt um áratuga
skeið. ófáar eru þær ferðir og heimsóknir sem hann
hefur stuðlað að. Að sjálfsögðu frá Danmörku. Hann
hefur nýlega verið gerður að ,,Ridder af Danne-
brogsordenen”. Áður hafði hann þegið Þjónustukross
úr hendi Friðriks LX. Þessar heiðursveitingar eru
veittar fyrir félagsmálastörf.
11