Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 20

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 20
íþróttirog slys Eftir Jón Ásgeirsson. Meöal efnis i grunnskóla Iþrótta- sambands íslands sem er nýkomið út, er bæklingur um iþróttir og slys. Jón Asgeirssoh, fréttamaður og fyrrum formaður Þróttar hefur tekiö efnið saman. Blaðstjórninni þótti ástæða til þess að vekja at- hygli á þessum bæklingi, sem margir hafa áreiðanlega gagn af að kynna sér, og fékk þvi leyfi Jóns til þess að birta formálsorð hans og inngangsorð. Förmáli 47245 manns iðka fþróttir á tslandi. Þetta segir i upplýsingabæklingi Iþróttasambands Islands, sem gef- inn var út i ágúst 1973. — Enda þótt aldrei verði unnt að fullyrða með vissu, hve margir stunda íþróttir, þá er það alveg vist, að þeim fer fjölgandi með hverju ári sem liðlr. Fólk hefur verið hvatt til þess að stunda Iþróttir sér til ánægju og heilsubótar, þótt það stefni ekki endilega að þvi að taka þátt I keppni, og þeim fjölgar lika stöð- ugt, sem leggja hart að sér við iþróttaæfingar til þess að standa sig sem best i keppni. Kröfurnar, sem gerðar eru til þeirra Iþróttamanna, sem keppa, verða sifelltstrangari, og þeir, sem taka þátt i alþjóðamótum, verða að vera vel þjálfaðir og vel undirbúnir á allan hátt. Enda ná íþróttamenn æ betri árangri, á hverju ári eru sett mörg heimsmet, og þeim árangri, sem talið hefði verið fyrir nokkrum árum, að ómögulegt væri að ná, hefur verið náð fyrir löngu. Astæðurnar fyrir framförum i keppnisiþróttum eru margar. Sjálfsagt hefur þó hvað mest að segja, að þjálfun iþróttamanna er orðin bæði meiri og árangursrikari hin síðari ár. Iþróttamenn, sem vilja ná langt, eru þjálfaðir á vis- indalegan hátt, — þjálfarar hafa öðlast meiri þekkingu og reynslu, og þeir verða lika að leggja sig meira fram, og læra meira nú, en áður. Þá hefur það ekki litið að segja, að þekking manna á mannslíkam- anum, byggingu hans og starfs- háttum einstakra liffæra, hefur stóraukist, og við það verður nota- gildi æfinganna meira. Loks hefur verið lögð á þaö vax- andi áhersla sfðari árin, að tryggja Iþróttamönnum, sem verða fyrir slysum, fljótvirka og árangursrika meðferð svo þeir verði ekki að gera hlé á æfingum eða keppni langtim- um saman, og geti byrjað æfingar sem allra fyrst eftir slys, sem verða óhjákvæmilega til þess, að þeir verða að gera hlé á æfingum. Hér á landi hefur þróunin ekki verið eins ör, og viða annars stað- ar, en ljóst er, að fjöldi þeirra, sem stunda Iþróttir er orðinn svo mikill, að Iþróttirnar eru þegar orðnar veigamikill þáttur I samfélaginu og þvi ber að stuðla að þvi, að þeir, sem þær iðka, njóti sem mestrar fræðslu, og fái eins góða þjónustu og kostur er, bæði hvað snertir þjálfun og hvaðeina annað. Þessum bæklingi er ætlað að bæta úr brýnni þörf, og bið ég les- endur að taka viljann fyrir verkið. Inngangur Iþróttaiðkendur geta ávallt átt það á hættu að meiða sig á æfing- um, eða I keppni. Oftast er áhættan þó mjög litil, en fer nokkuð eftir þvi, hver iþróttin er, og hvað við- komandi Iþróttamaður leggur sig fram, og reynir á sig. Annað sem hefur áhrif á tiðni slysa I iþróttum er t.d. það, hvernig keppnisstaður- inn sjálfur er, árstimi, notkun hlifðarbúnaðar, og siðast en ekki sist, lfkamsástand sjálfs iðkand- ans, þjálfunarstig hans, bæði lik- amlegt og andlegt. Tiðni. Slys eru, sem vænta má, algeng- ust ihópiþróttum, þar sem hætta er á árekstrum milli leikmanna, eins og til dæmis i knattspyrnu, hand- knattleik og ishokky. Þá er algeng- ast að leikmenn slasist vegna þess, að þeir fá högg af ýmsu tagi, sem siðan geta leitt til margs konar meiðsla annarra, en i einstaklings- greinum er algengara, að iþrótta- fólk verði fyrir meiðslum, sem or- sakast af of miklu álagi á vöðva, sinar og liðbönd. Oftaster um minni háttar slys að ræða, en auðvitað getur alvarleg slys lika borið að höndum. I Sviþjóð hafa rannsóknir á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur
https://timarit.is/publication/1573

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.