Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 62

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 62
Hvaö eru Styrktar samtök Þróttar? Um áramótin ’73-’74 var skipuð fjáröflunarnefnd fyrir húsbygging- arsjóð félagsins. I ráði er að reisa hús fyrir félagslega og iþróttalega starfsemi félagsins. Þessu húsi hefur frá upphafi verið ætlaður staður á svæði félagsins við Sæ- viðarsund. Þessum framtiðar- áformum er nánar lýst I ágætri grein eftir ritarg félagsins á öðrum staðiblaðinu. Samtökin eru til þess að afla fjár til þessara miklu fram- kvæmda. En hvernig hefur til tekist? t upphafi árs 1974 voru send bréf og giróseðlar til yfir tvöhundruð Þróttara til að kynna málefnið og kanna undirtektir. Þó ekki bærust svör við fyrstu seðlunum voru sendir aðrir og gekk á þessu fram á mitt ár. Þá var útséð um að yfir eitthundrað ætluðu ekki að svara. Þrjátiu og fimm manns voru með einu sinni til fjórum sinnum. Og aðrir þrjátiu og fimm eru með 100% allt árið 1974. Gjald það sem farið var fram á var kr. 250, tiu sinnum á árinu. Ekki var leitað til unglinga eða keppnismanna félagsins. Nú I byrjun árs erum við farnir á stað aftur. Geta menn valið um, hvort þeir vilja greiða 5x1000 kr eða 10x500 kr. á árinu. Af þessum tölum má sjá að við nefndarmenn höfum gert okkur of háar hugmyndir um fjárhagslega getu félaganna. En við litum á þetta frá annari hlið. Illa hefur gengið að fá fólk til starfa fyrir félagið I stjórnir, nefndir og önnur störf. Allir bera fyrir sig timaleysi vegna mikillar vinnu. Þess vegna héldum við, að Þróttur ætti 200 manns, sem væri aflögufært með 250 kr. tiu sinnum á siðasta ári. Ef þú ert aflögufær á þessu ári eða næsta þá fylltu út giróseðil eins og hér er sýnt. Hann fæst i öllum bönkum og pósthúsum, sem veita greiðslu einnig móttöku. Einnig má hafa samband við nefndarmenn en þeír eru: Grétar Norðfjörð, Eysteinn Guðmundsson og Sölvi Óskarsson. KVITTUN FYRÍR GREiÐStU AÁ Nr. 377293 I í I I | srAoamasLv má inna af hehdi í 8ÖNXUM, PÓSTHÚSUM OG SMXiSJÓÐUM. INNBOHGAÖ KS, 500,00 V'ióTWCA^Oi"”" ~ ------------------—- Við byggjum félagsheimili. Styrktarsamtök ÞRÓTTAR: V;^!msfÖ?ÞS"’í(fíÍA!ÍANÍ>A.................KÍKii' NV Otvb. L-105 G-159 XViUUN VIÖM<iS:.*S-C»PNUNAK fV#i» GSSÍÖSUJ 1 Drekkur Ef svo er veist þú þá eftirfarandi staðreyndir? Það tekur vel þjálfaðan iþrótta- mann tiu daga að ná fyrri styrk- leika eftir að hafa drukkið hálfa flösku af sterku vini 45% á einum sólarhring. Ef drukkin er ein flaska á tveim sólarhringum er útkoman hin sama. Svo mjög gengur á sykurbirgðir likamans við að brjóta niður áfengið að full vöðva- okra getur ekki myndast fyrr en búið er að bæta tapið upp (lifrin tæmist af glykogeni en hún er vara- forðabúr vöðvanna. En er ekki hægt að bæta þetta tap upp á skemmri tima en tiu dögum? Frægasta visindastofnun svia tók að sér að svara þessari spurningu. Þeir höfðs til tilrauna hjá sér menn úr öllum greinum iþrótta, topp Iþróttamenn með háar þrektölur, menn á heimsmælikvarða á skiðum, sundi, hlaupum, knatt- spyrnu, lyftingum o.fl. o.fl. Þessir iþróttamenn fengu þennan fyrr- nefnda skammt af algengu áfengi, hálfa flösku á sólarhring eða heila flösku I tvo sólarhringa. Þrek þeirre var mælt fyrir áfengisneyslu á þrekhjóli og á margan annan hátt og siðan daglega á eftir. Reynt var að fækka dögunum sem það tók að jafna sig niður fyrir tiu. Meðal annars með þvi að þeir voru látnir bæta við sig æfingum og æfinga- áætlunum var breytt á ýmsa vegu. Finnska saunan (gufubað) var reynd. Margirhafa trú á að hægt sé að gera kraftaverk með gufubaði eftir slark. Reynt var aö gefa þeim sykur-upplausn i ýmsu formi til að bæta þeim upp sykurtapið en likaminn hafnaði svo skjótri lausn, hann vill fá tiu daga minnst. Ýmis konar mataræði var einnig reynt en alltaf var útkoman sú sama. Þetta er visindaleg sönnun á þvi sem menn hafa vitað lengi. íþróttir og áfengi eiga ekki sam- leið. Iþróttir byggja upp hraustan likama, áfengi er skaðvaldur hverjum þróttmiklum iþrótta- manni. e ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur
https://timarit.is/publication/1573

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.