Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 60
»erkues« bílkranar
Getum útvegað með stuttum fyrirvara
hina vönduðu norsku bílkrana í fjórum
stærðum:
Lyf tigeta 1700 kg — 3000 kg — 3500 kg og
5000 kg.
Stuðningsfætur og stjórntæki á báðum
hliðum.
Mesta lengd á útréttum armi er 6 metrar.
Kynnið yður verðog gæði hinna frábæru
norsku bílkrana. Leitið upplýsinga hjá
umboðsaðila.
Oskum Þrótturum til hamingju með
af mælið.
Þ. Skaftason h/f
Grandagarði 9
Reykjavík
Símar: 15750 — 14575
íslandsheimsókn
Danmerkurmeistaranna
Dagana 4.-11. april 1974 dvöldu hér
á landi Danmerkurmeistararnir
Arhus KFUM I boði handknatt-
ieiksdeildar Þróttar. Samningar
um heimsókn þess stóðu lengi yfir,
en þeir tókust loksins og var okkar
helzti milliliður Bjarni Jónsson
leikmaður með Arhus KFUM og
kunnum við honum okkar beztu
þakkir fyrir.
Danmerkurmeistararnir komu
hingað upp að öllu leyti á ekkar
kostnað, flugferðir og uppihald var
greitt af okkur fyrir utan 5 dani,
sem fengu að fljóta með, sem
tryggir aðdáendur. Nokkrir dan-
anna komu hingað með eiginkonur
sinar og alls samanstóð hópurinn af
25 manns.
Hópurinn lék alls 5 leiki hér á
landi, þar af 3 i Laugardalshöll
gegn F.H., Fram og landsliðinu og
unnu F.H. og Fram leiki sina gegn
dönunum, en landsliðið beið ósig-
ur. Einnig léku danirnir i Hafnar-
firði gegn Haukum og unnu danskir
þann leik. Þá flugu þeir norður til
Akureyrar i boði K.A. og léku þar
einn leik sem þeir unnu.
Farið var með danina austur
fyrir fjall og þrátt fyrir óhagstætt
veður höfðu þeir mikið gaman af
þeirri ferð og dáðust mikið'af hinni
hrikalegu náttúru og sumir höfðu
orð á þvi, að þeir hefðu aldrei litið
foss berum augum, er við stöldruð-
um við Gullfoss. Akureyrartúrinn
var einnig ógleymanlegur fyrir þá,
þvi áöur en þeir snæddu hádegis-
verð á Hótelinu i Hliðarfjalli, þá
brugðu sumir dananna sér á skiði
og var það kostulegt mjög. Flogið
var aftur samdægurs til Reykja-
vikur I fallegri miðnætursól.
Heimsókn þessi var að mörgu
leyti vel heppnuð, en prentaraverk-
fall gerði okkur töluvert erfitt fyrir
I sambandi við auglýsingar á leikj-
unum og má vist telja að fjárhags-
leg útkoma hefði verið betri, ef
dagblaðanna hefði notið við.
Eitt er vist, að heimsóknir er-
60
lendra liða hingað eru orðnar mikið
fjárhagslegt happdrætti og fáir eru
þeir aðilar, sem hafa undanfarið
tekið heim erlend lið, sem hafa haft
þyngri pyngju að þeim loknum.
Danirnir voru gifuriega ánægðir
með móttökurnar hér á landi og
eignuðust sumir góða vini hér og
allir flugu þeir glaðir heim til Dan-
merkur á föstudaginn langa eftir
veglegt kveðjuhóf, sem handknatt-
leiksdeild Þróttar hélt þeim á skir-
dagskvöld.
Einnig sýndi Guðjón Oddsson
formaður Þróttar þá höfðingslund
að bjóða fararstjórum Arhus
KFUM og þjálfara heim til sin og
hélt þar veglega veizlu. Viðstaddir
voru einnig fuiltrúar úr aðalstjórn
og deildum.
Óli K. Sigurðsson.