Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 28

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 28
Danmerkurferð meistaraflokks Laugardaginn 31. ágúst ’74 hélt meistaraflokkur Þróttar i handknattleik utan til Danmerkur i æfinga- og keppnisferð. Fæðing þessarar ferðar var i aprilmánuði, þegar Danmerkurmeistararnir Arhus KFUM komu i heimsókn til íslands i boði Þróttar, en frásögn um þá ferð má lesa á öðrum stað i blaðinu. Þá tókust samningar við Bjarna Jónsson, sem hefur eins og kunnugt er, leikið stórt hlutverk með danska meistaraliðinu Arhus KFUM, um að hann tæki að sér þjálfun meistaraflokks karla hjá Þrótti og léki einnig með liðinu á komandi keppnistimabili. Flogið var beint til Kaupmanna- hafnar, og tók hópurinn, sem sam- anstóðaf 11 körlum og 7 konum sið- an lest um miðnættið áleiðis til Ar- hus og var þangað komið i morguns- árið. Voru þá ýmsir orðnir nokkuð dasaðir eftir langt og strangt ferða- lag i frekar óaðlaðandi farartæki. í Arhus hitti hópurinn svo fyrir fjóra unga sveina úr Þrótti, sem dvalizt höfðu i æfingabúðum um tima á staðnum undir handleiðslu Bjarna Jónssonar, sem stjórnað hafði æf- ingum þeirra og Tordenskjolds, hinnar kunnu dönsku striðshetju, sem stytt hafði þeim stundir milli þrekrauna. Allir litu þeir mjög vel út og var reglulega bjart yfir þeim. Vaxtarlag sumra hafði tekið mikl- um stakkaskiptum og þeir, sem áður þurftu að horfa á þriggjastafa tölu, er þeir stigu á vigtina, gátu nú stært sig af fallegri tveggja stafa tölu. Sem sagt vel hafði verið tekið á, og fannst þeim, sem að þessu stóðu vel hafa til tekizt. Að svo búnu voru lestarverðir kvaddir með virktum og eitt er víst að ekki töpuðu þeir á þessum lifsglaða hópi. Er hópurinn hafði komið sér fyrir á hótelinu, lögðust menn til hvflu og reyndu að ná úr sér ferða- þreytunni sem að visu var misjafn- lega mikill hjá mönnum. En það var engin miskunn hjá Magnúsi og skömmu eftir hádegið kom sjálfur Bjarni Jónsson og dreif menn með sér út að hlaupa, hvern- ig sem menn voru fyrir kallaðir, og eftir stutta vegalengd mátti heyra margar stunur og pústra, en áfram skyldi haldið og allir skiluðu sér á áfangastað og engum varð alvar- lega meint af þessum átökum. Arhus er að mörgu leyti mjög vinarleg borg og þó nokkuð falleg og þrifaleg. Ibúar þar eru u.þ.b. 300.000 og er hún önnur stærsta borg Danmerkur. Það gefur þvi auga leið, að þar er margt hægt að gera sér til dundurs og afslöppun- ar. Margar stórverzlanir eru i borginni og voru þær fyrstu dag- ana, sem Þróttarar dvöldu i borg- inni undirlagðar af kaupglöðum islendingum, sem létu næstum allt eftir sér i innkaupagleðinni. A mánudag var fyrsti leikurinn háður og var hann á móti Arhus Byhold, i Hörning, sem er skammt fyrir utan Arhus. Leikið var þar i glæsilegri iþróttahöll, sem vakti hrifningu okkar allra og öfunduð- um við danina mikið af þessari glæsilegu byggingu. Þessi fyrsti leikur var frekar jafn og spenn- andi, en á endasprettinum reynd- ust danirnir ivið sterkari og sigu framúr á lokaminútunum og sigr- uðu með litlum mun. Daginn eftir varlagt upp i 2ja tima rútuferð og haldið til smáborgar sem.heitir Nissum og var leikið þar við heimalið, sem leikur i fyrstu deild, og eru nýstignir upp. Sá leikur var harður og skemmtilegur og náði Þróttarliðið sér sæmilega á strik en vörnin byrjaði að leka i seinni hálf- leik og þá var ekki að sökum að spyrja og tapaðist sá leikur með naumindum. Þriðji leikurinn var leikinn i Odder við heimamenn og vilja sem fæstir tala nokkuð um þann leik sem tapaðist illa og var það versti leikur Þróttaranna i þessari ferð. Föstudaginn 6/9 hófst svo mót sem Arhus Handboldhring sá um og tóku félög frá Þýzkalandi, Noregi og íslandi þátt i þvi auk danskra liða. Auk Þróttar komu Valsmenn til leiks. Félögunum var skipt I riðla og lentum við i riðli með Arhus KFUM, Eller bekker frá Kiel i Vestur-Þýzkalandi og Nordstranden frá Noregi. Fyrsti leikur Þróttara var við hina stóru og steku Þjóðverja og tapaðist sá leikur, sennilega bara fyrir van- máttarkennd fyrir andstæðingn- um. Sama kvöld léku Þróttarar við sjálfa Danmerkurmeistarana og var það langbezti leikur okkar manna i allri ferðinni og hefði hann unnizt, ef heimadómararhefðuekki leikið aðalhlutverkið i þeim leík og dæmt okkur allt i óhag á siðustu minútum leiksins. Daginn eftir var svo leikið við Norðmennina og var það lið sett saman af mönnum úr öllum hugsanlegum þyngdarflokk- um, en allt kom fyrir ekki, lánið var ekki okkar megin og enn eitt tapið varð feruleiki, sem sagt Þróttur I neðsta sæti I sinum riðli og lék aukaleik á sunnudag við lið frá Viby en áhuginn á sigri virtist ekki vera I fyrirrúmi og tap bættist við. Valur átti ekki góða daga held- ur og komu frekar illa frá sinum leikjum og risið á islenzkum hand- bolta var ekki hátt þessa dagana I Arhus. Siðasti leikurinn var svo leikinn i Bjærringbro og i skemmtilegustu og glæsilegustu Iþróttahöll sem nokkur okkar hafði séð. Nú var tek- ið á og haft gaman af þessu og loksins kom hinn langþráði sigur og var það mikil upplyfting fyrir alla aðila. Það sem vakti mikla athygli okk- ar var, að ekkert var gert fyrir liðið af hendi Arhus KFUM, sem notið hafði allra hugsanlegra lystisemda I Islandsheimsókn sinni og voru það mikil vonbrigði fyrir okkur. Hótelið sem við bjuggum á var frekar lélegt og matur og aðbúnað- ur frekar rýr og ófullnægjandi. Það sem gert var, var undan rifjum Bjarna Jónssonar komið og verður ekki annað sagt, að hann hafi átt heiöurinn af þvi, að þessi dvöl okk- ar I Arhus varð svo eftirminnileg sem raun var á og kunnum við öll honum beztu þakkir fyrir fórnfýsi hans. Snemma á mánudagsmorgni var haldið til Kaupmannahafnar og var dvalist þar i þrjá daga við söng og gleði og allir helztu staðir sóttir heim svo sem Tivoli, dýragarður- inn og staðir sem kæti og gleði voru I hávegum höfð. Heim var haldið þann 12. sept- ember og er það almenn skoðun manna, að allir hafi haft gagn og gaman af þessari ferð og treyst hinn góða hóp til frekari dáða á ó- komnum timum. ö. 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur
https://timarit.is/publication/1573

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.