Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Qupperneq 17

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Qupperneq 17
Þol og þrek 1 knattspyrnu þar sem um er a& ræða alls konar hreyfingar, stutta spretti og langhlaup, með mismunandi hraða, þar sem menn þurfa að vera á hreyfingu i eina og hálfa klukkustund, er nauðsynlegt að bæði þrekið og hæfnin til að mynda orku, án tilkomu nægilegs súrefnis sé fyrir hendi. Og á þetta hvort tveggja er hægt að hafa áhrif með þjálfun. Hvað veldur þvi að sumir virðast óþreyttir eftir mikið likamlegt álag, en aðrir sem lögðu jafnmikið erfiði á sig virðast gjörsamlega uppgefnir? Mismunur á þreki og þoli. Tökum t.d. bilvél, sem gerð er til að afkasta ákveðnum hestafla- fjölda. Með þvi að stilla vélina má ná meiri afköstum úr henni. Það veldur þvi aftur að vélin, gengur fyrr úr sér. A sama hátt má auka álag á mannslikamann dag frá degi með reglubundnum æfingum. En eigum við á hættu að slitna og end- ast skemur en ella fyrir bragðið, likt og vélin? Nei, öðru nær. Með reglubundinni likamsáreynslu styrkjum við likamann, og sérstak- lega þá likamshluta sem mest reynir á. Mannslikaminn er sifellt að endurnýja sig og leitast ávallt við að mæta þvi álagi sem á hann er lagt. Sem sagt við aðlögum okkur þvi álagi, sem þjálfun okkar gefur tilefni til hverju sinni. Þetta leiðir til þess stóra mismunar, að t.d. óvænt áreynsla fram yfir hið venjulega daglega álag getur valdið mikilli þreytu og óþægind- um, jafnvel dauða, hjá vanþjálfuð- um manni. En sama álag gæti verið vel þjálfuðum manni ánægja ein, likamlega og andlega. Þvi likamlegur styrkur gefur andlega velliðan. _ Fyrst ég hef nefnt hér andléga hlið, það er að segja sálfræðilega, get ég ekki stillt mig um að benda á þá geypilegu þörf Iþróttamannsins fyrir sjálfsaga, og sjálfsafneitun sem þrekæfingar krefjast. Mark- viss þrek- og þolþjálfun krefst auk- ins álags dag frá degi, þar sem tek- ið er á öllu sem til er. Þar þýðir engin hálfvelgja við sjálfan sig. En árangurinn lætur heldur ekki á sér standa ef vel er að verið. Vist er um það, að andleg hugarró fyrir keppni er allt önnur hjá þeim mönnum er vita sig sterka og þolna. Segja þessar staðreyndir okkur ekki nóg til þess að við munum keppa að þvi að hafa þessa þætti þjálfunar okkar i lagi. Kynnið ykk- úr vinnslu hjarta, lungna og æða- kerfis, orkumyndun i vöðvum og þátt sykurefna, mjólkursýru og súrefniá. Ég er þess fullviss að árangur og ánægja ykkar verður mun meiri af iþróttum. Utanaðkomandi áhrif Með þvi er átt við andlegt jafn- vægi, mataræði, nægan svefn og hvers kyns reglusemi. Mjög mikið atriði er að hafa vald á tilfinningum sinum, fyrir þá er leggja stund á keppnisiþróttir. Mjög oft er orsök litils gengis i iþróttum sálræns eðlis. Ströng likamleg og andleg þjálfun er aðal- forsenda mikilla afreka i iþróttum. Með andlegri þjálfun, er átt við þann þátt þjálfunarinnar sem mið- ar að þvi að auka hæfni einstakl- ingsins til einbeitingar, og að hafa vald á tilfinningum sinum. Hvað oft sjáum við ekki menn á knattspyrnuvelli með hugann viðs- fjarri leiknum, eða hálfan hugann við leikinn. Sorglega oft sjáum við menn missa stjórn á skapi sinu, og oftast kemur það verst niður á leik þeirra sjálfra. Sálrænt jafnvægi, fyrir og i leik er mikilvæg forsenda fyrir góðum leik. Mataræði iþróttamanna hefur verið alltof litill gaumur gefinn. Hollustu fæðunnar hefur litið verið skeytt um, eða þann tima sem nærst er á, fyrir átök iþrótta- manna. Það er trú min að ef iþróttamenn almennt gerðu sér ljóst, hvernig mannslikaminn brýt- ur niður fæðuna og á hvaða fæðu- efni gengur mest hjá þeím i keppni, mundu haga mataræði sinu öðru visi, og fá út meiri orku og vel- liðan. Flestir vita af þörfinni fyrir nægri hvild og nógum svefni, en fæstir fara eftir þvi. Sigarettureykingar og áfengis- neysla taka að minu áliti stærsta tollinn af islenskum iþróttaafrek- um. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um skaðsemi þessara hluta. Þvi miður þekkja alltof margir islenskir knattspyrnu- menn það af eigin raun, hvern- ig er að koma til æfinga eftir áfengisneyslu. En þeir láta sér ekki segjast. Um skaðsemi reyk- inga á islenska æsku er allt of litið rættog ritað, en þvf miður held ég að þjóðin eigi eftir að vakna upp við vondan draum eftir fáa áratugi, þegar áhrifin fara að koma fram á dánarvottorðum. Hver hefur ekki séð 12-13 ára börn við reykingar á almannafæri. Þetta er mál iþróttahreyfingarinn ar. Áfengisneysla er stórkostlegt vandamál I knattspyrnuhreyfing- unni i dag. Það finnst varla nokkurt liö á landinu sem ekki á við það að striða I einhverjum mæli. Þetta eru stór orð en þau eru sönn. Ef við eigum að vera trú hinum ævafornu einkunnarorðum iþrótt- anna „Mens sana in corpore sano”, sem útleggjast á islensku sem „heilbrigð sál i hraustum likama”, verðum við að vera hreinskilin og taka á vandamálunum, en ekki fela þau. Það hefur verið mikið rætt og ritað um aðstöðuleysi, þjálfara- skort og þekkingaleysi þeirra, svo og dómaravandamál, og peninga- leysi. En ættum við ekki drengir góðir að takast á við heima- tilbúnu vandamálin, og hætta þessum feluleik sem alltof oft beinist i þá átt, að nefna fyrr- greindar ástæður fyrir getu- leysi, en lita ekki I eigin barm. Höfum hið fornkveðna i huga, að iþróttahreyfingn er til að „Gera drengi að góðum mönnum og fnenn aö góðum drengjum”. 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur
https://timarit.is/publication/1573

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.