Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Síða 50
Lítill félagsþroski hjá Þrótturum
yfirleitt
Viðtal við Helga Þorvaldsson, formann
knattspyrnudeildar, skráð af Sölva óskarssyni
Helgi Þorvaldsson formaður
knattspyrnudeildar Þróttar. Senni-
lega það vel þekktur innan félags-
ins að óþarfi er að kynna hann. En
hvers vegna þekktur og fyrir hvað?
Sem leikmaður og þjálfari bæði i
handknattleik og knattspyrnu, for-
maður deildar, sér um alla get-
raunamiðasölu félagsins, situr þing
og ráðstefnur, fararstjóri i utan-
ferðum, sem sagt maðurinn sem er
allt I öllu fyrir félagið. En hvers
vegna hlaðast svona mörg störf á
einn mann, og hvernig fer hann að
þvi að anna þeim? Við ætlum að
leitast við að fá svör við þvi og
fleiru hjá honum.
Við sögöum i upphafi frá þér
sem leikmanni i knattspyrnu og
handknattleik. Hvað hefur þú leikið
marga leiki i hvorri grein, og hvaða
leikir eru þér minnisstæðastir?
Ég hef leikið 112 leiki með m.fl.
i knattspyrnu og 114 leiki i hand-
knattleik, en ég hef ekki tölu á
leikjum i yngri flokkunum, en i
knattspyrnu hef ég leikið siðan
1954.
Minnisstæðasti leikur, sem ég hef
leikið i handknattleik, er án vafa
heimaleikur okkar gegn Gróttu I 2.
deildinni s.l. vetur. Leikar stóðu
14:14 þegar um 15 sekúndur voru
eftir og við höfðum boltann. Þá var
reynd misheppnuð linusending og
Gróttumenn brunuðu upp og skor-
uðu sigurmarkið, en okkur hefði
nægt jafntefli til að hljóta sætið i 1.
deild. Og þarna fauk siðasta von
min um að sigra i móti fyrir Þrótt.
í knattspyrnunni er það liklegast
leikur, sem við lékum I 2. deild 1971
á Selfossi. Við Jón Björgvinsson
höfðum skörað sitt hvort markið úr
spyrnum, sem áttu að fara fyrir
markið, en Selfyssingarnir höfðu
jafnað og stóðu leikar 2:2, þegar
okkur var dæmd vitaspyrna. Mikil
rigning var, og völlurinn eitt forar-
svað og ekki nokkur möguleiki að
hlaupa að boltanum. Mér var falið
að framkvæma spyrnuna og varð
ég að standa við boltann og spyrna
úr kyrrstöðu. Mér tókst að koma
boltanum framhjá markverðinum,
sem átti jafnerfitt með að hreyfa
sig og reyndist það sigurmarkið.
Hvað hefur þú starfað lengi við
þjálfun fyrir félagið, (handknatt-
leik og fótbolta). Hvaða árangur
finnst þér athyglisverðastur?
Ég hef þjálfað i handknattleik
siðan 1967, utan árið 1969 og ’70, og
tel athyglisverðasta árangur-
inn sigurinn á Islandsmótinu I 4.
flokki 1972.
Knattspyrnu hef ég þjálfað siðan
1969 og hef fylgt þeim drengjum,
sem fæddir eru 1958. Við höfum
unnið mörg mót, en ég tel það ekki
athyglisverðast, heldur það, hve
drengirnir hafa lagt sig fram við að
leika góða knattspyrnu og forðast
harðan leik, en þessi atriði hef ég
lagt mesta áherslu á.
Hvað finnst þér mest ábóta-
vant i knattspyrnuþjálfun ung-
linga, þar sem þú þekkir til?
Þaö tel ég vera fámenni þjálf-
aranna og fjölmenni unglinganna,
sem gerir það að verkum, að þjálf-
ararnir geta ekki sinnt öllum sem
skyldi á þeim stutta tima sem þeir
hafa hverju sinni.
Nú hefur Þróttur verið i topp-
baráttu mörg undanfarin ár i II.
deild i knattspyrnu. Hverjar telur
þú ástæður fyrir þvi að I. deildar-
sæti hefur ekki náðst?
Ég tel það vera aí þvi að við
höfum ekki átt nógu stóran hóp
pilta sem vildu leggja það á sig,
sem þurfti til að vinna I. deildar-
sæti. Það sést best á þvi, að s.l.
sumar var liðið i baráttu við F.H.
allt mótið en það voru sjaldan fleiri
en 6—8 m.fl. menn á æfingu og þá
oftast þeir sömu.
Hvers vegna hlaðst svona
mörg störf á einn, það er að segja á
þig innan Þróttar?
Mér finnst vera ósköp litill fé-
lagsþroski hjá Þrótturum yfirleitt.
Menn, sem félagið hefur alið upp að
miklu leyti, láta sig hverfa þegar
þeir hætta að æfa og keppá og telja
sig hafa gert nóg fyrir félagið, en
að félagið hafi gert eitthvað fyrir
þá, það hvarflar ekki að þeim. Aðr-
ir segjast ekki geta unnið að stjórn-
ar og þjálfarastörfum vegna þess
að þeir séu að æfa sjálfir, en
hvernig er svo æfingasóknin hjá
þeim?
Hversu mörgum tímum á viku
eyðir þú I störf fyrir Þrótt, og
hvernig skiptast þeir?
Ætli það séu ekki milli 20 og 30
timar á viku yfir mesta annatfm-
ann og svo bætast við ferðir innan-
lands og utan, æfingabúðir o.fl.
Timarnir skiptast á þjálfun og leiki
15, stjórnarstörf 6, getraunir 5,
nokkrir timar fara i dómarastörf
og s.l. 6 ár hef ég verið fulltrúi
Þróttar i Handknattleiksráði
Reykjavikur og 2 ár I Mótanefnd
H.S.I. og i það fóru 4—5 timar á
viku mikinn hluta ársins.
Að lokum Helgi, hvernig
myndir þú skipa óskalið þitt I m.fl.
Þróttar, ef þú mættir velja úr öllum
þeim m.fl. mönnum sem þú hefur
séð um dagana.
Ég myndi skipa það eftirtöld-
um leikmönnum: Þórði Asgeirs-
syni, Eysteini Guðmundssyni,
Halldóri Bragasyni, Guðmundi
Gislasyni, Árna Valgeirssyni,
Ómari Magnússyni, Gunnari
Ingvarssyni, Aðalsteini örnólfs-
syni, Sverri Brynjólfssyni, Hauki
Þorvaldssoni og Axel Axelssyni.
50