Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 1
Í KVÖLD KL. 19:00Á MBL.IS/BINGO TAKTUÞÁTT
VERTU MEÐ ÍBINGÓGLEÐINNI
F I M M T U D A G U R 1 1. M A R S 2 0 2 1
Stofnað 1913 59. tölublað 109. árgangur
GIRNILEG TILBOÐ Í NETTÓ!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 11.— 14. mars
Grísasteik
Fyllt með beikoni og döðlum
1.149KR/KG
ÁÐUR: 2.298 KR/KG
-50%
Lambahryggur
Fylltur
3.149KR/KG
ÁÐUR: 4.499 KR/KG
Bökunarkartöflur
125KR/KG
ÁÐUR: 249 KR/KG
-50%
-30%
VERÐUGUR
MINNISVARÐI
UM GUÐJÓN
SAGAN UM MIX
VERIÐ AFBÖKUÐ
Á SEINNI ÁRUM
GOSDRYKKURINN 30VIÐURKENNING HAGÞENKIS 67
Freyr Bjarnason
Sigurður Bogi Sævarsson
Kvikugangurinn sem nær frá Keili að Fagradals-
fjalli heldur áfram að stækka og er mesta kviku-
flæðið sem fyrr bundið við suðurenda hans sem
liggur undir og nærri Fagradalsfjalli. Á meðan
kvika heldur áfram að flæða inn ganginn þarf að
reikna með að það geti gosið á svæðinu.
Þetta var niðurstaða fundar vísindaráðs al-
mannavarna sem haldinn var í gær. Ályktað var að
eftir því sem núverandi ástand standi lengur yfir
aukist líkur á gosi. Litlar líkur eru taldar á að slíkt
gos myndi ná til byggða. Jarðvísindamenn tóku
fram í gær að mikilvægt væri að fylgjast náið með
virkninni í suðurhlíðum Fagradalsfjalls til að sjá
hvort kvikugangurinn sé að stækka í suður.
Ef gangurinn heldur áfram að stækka og valda
spennu á svæðinu má áfram eiga von á skjálftum
sem finnast í byggð, sambærilegum þeim sem orð-
ið hafa síðustu sólarhringa. Grunnt er nú talið vera
niður á kvikuna og þykir hún líklega vera á um
eins kílómetra dýpi syðst í ganginum.
Ratsjá sem greinir gosefni í lofti hefur verið sett
upp á vegum Veðurstofu Íslands við Reykjanes-
braut, á Strandarheiði rétt fyrir sunnan Kúagerði.
Gögn sem með þessu móti er aflað nýtast til að spá
fyrir um dreifingu ösku á helstu flugleiðum yfir
Norður-Atlantshafinu, komi til eldgoss. Hve hátt
gosmökkur nær er afgerandi áhrifaþáttur í því
sambandi, en eigi að síður er þarft að fylgjast með
hvernig aska og gas berast næst jörðu.
Yfir 2.400 skjálftar höfðu mælst þegar Morgun-
blaðið fór í prentun í gær, sem þykir í hærra lagi.
Upp úr klukkan 19 í gærkvöldi jókst skjálftavirkni
rétt eins og á sama tíma á þriðjudag. Riðu þá yfir
fleiri skjálftar yfir þremur að stærð. Sá stærsti
þeirra mældist 3,8 stig.
Gera þarf ráð fyrir gosi
Vísindaráð almannavarna kom saman í gær Kvikugangurinn heldur áfram að
stækka Ratsjá sem greinir gosefni í lofti hefur verið sett upp á Strandarheiði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Öskuspá Ratsjáin á að greina gosefni í lofti.
MLíklega skammur fyrirvari goss »4
Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri
Íslandspósts, segir að tekist hafi að
snúa tapi í hagnað með hagræðingu.
„Við gerum áætlanir fyrir árið og
stýrum félaginu út frá hlutföllum; ef
tekjurnar dragast saman leitum við
allra leiða til að lækka kostnaðinn á
móti. Þetta gerum við í hverjum ein-
asta mánuði,“ segir Þórhildur Ólöf.
„Allt inni í myndinni“
„Fram undan er enn frekari hag-
ræðing. Þær aðgerðir verða erfiðar
og sumpart er um að ræða aðgerðir
sem við getum ekki farið í nema til
komi aðstoð frá yfirvöldum.“
Spurð hvort til greina komi að út-
burður bréfa að 50 g verði boðinn út,
svo að þeir sem eru í fjölpósti, eða
bera út dagblöð, geti sinnt þessari
þjónustu, segir hún yfirvalda að
ákveða það. „Það er allt inni í mynd-
inni. Við værum ekkert á verri stað
ef þessi þjónusta væri boðin út og
við gætum boðið í hana líka.“ »38
Morgunblaðið/Hari
Pósturinn Tekjur hafa minnkað.
Útilokar ekki
útboð á út-
burði bréfa
Hollenski dráttarbáturinn Phoenix stendur enn
vaktina fyrir Faxaflóahafnir, en hann var feng-
inn að láni frá hollensku skipasmíðastöðinni
Damen í haust þegar sigla þurfti dráttarbátnum
Magna til viðgerða í Rotterdam. Nýsmíðinni
Magna hafði nýlega verið siglt í höfn til Reykja-
víkur þegar í ljós kom að miklir gallar voru á
smíðinni. Upphaflega átti Phoenix aðeins að
gegna þessu hlutverki fram í sl. desember.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fönix stendur vaktina og siglir enn um sundin
Um 55% háskólamenntaðra
starfsmanna telja að afköst
þeirra séu meiri þegar þeir eru
heima í fjarvinnu en á vinnu-
staðnum en aðeins 13% eru ósam-
mála því. Um 96% svarenda í
nýrri könnun meðal félagsmanna
í aðildarfélögum BHM segjast
geta sinnt venjulegum verkefnum
heima í fjarvinnu að einhverju
leyti. Aðeins um 16% unnu heima
áður en veirufaraldurinn hófst en
hlutfallið er nú komið í 74%. Í
ljós kemur að 46% vinna lengri
vinnudaga heima en á vinnustað.
Þá segja 60% að fjarvinnunni
fylgi einmanaleiki. Svarendur
vilja að réttur til fjarvinnu verði
tryggður í kjarasamningum og
mikið er rætt um að setja þurfi
reglur um réttinn til að aftengj-
ast, að sögn hagfræðings BHM.
omfr@mbl.is »42
Einmana en
afkasta miklu