Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Nýjar bækur í hverri viku
Einungis 1.490 kr. á
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Starfsmenn Merkingar og Icelandair byrjuðu í
flugskýli á Reykjavíkurflugvelli í gær að merkja
Bombardier-vélar félagsins með merkjum Ice-
landair. Eins og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu verður rekstur Icelandair og dótt-
urfélagsins Air Iceland Connect samþættur og
innanlandsflugið starfrækt og markaðssett und-
ir nafni og merki Icelandair. Tekur breytingin
formlega gildi næsta mánudag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugvélar í innanlandsflugi fá merki Icelandair
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabær
hafa óskað eftir að yfirfærslu starf-
semi hjúkrunarheimila þeirra til
heilbrigðisstofnana ríkisins verði
frestað til 1. maí og skorað á velferð-
arnefnd Alþingis að tryggja réttar-
stöðu núverandi starfsfólks við yfir-
færsluna. Jón Björn Hákonarson,
bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir að
fulltrúi stjórnvalda hafi tilkynnt að
sveitarfélaginu væri skylt að segja
starfsfólkinu upp svo nýr rekstrar-
aðili gæti auglýst störfin. Krafan hafi
komið allt of seint fram.
Fjarðabyggð rekur hjúkrunar-
heimilin Hulduhlíð á Eskifirði og
Uppsali á Fáskrúðsfirði og Vest-
mannaeyjabær rekur Hraunbúðir.
73 starfsmenn eru á hjúkrunarheim-
ilum Fjarðabyggðar og um 60 í
Eyjum, samtals 133 starfsmenn.
Fjarðabyggð og Vestmannaeyjar
voru í hópi fjögurra sveitarfélaga
sem sögðu upp samningum við ríkið
um rekstur hjúkrunarheimila vegna
tapreksturs sem ríkið neitaði að
greiða.
Of skammur fyrirvari
Þegar ráðuneytisstjóri heilbrigð-
isráðuneytisins greindi forsvars-
mönnum Fjarðabyggðar frá því á
fundi 3. mars að rekstur heimilanna
yrði færður til Heilbrigðisstofnunar
Austurlands (HSA) sagði hann jafn-
framt, eftir því sem Jón Björn lýsir,
að lög um aðilaskipti giltu ekki og
Fjarðabyggð væri skylt að segja
starfsfólkinu upp þannig að nýr
rekstraraðili gæti auglýst störfin.
Jón Björn segir að sveitarfélagið
geri ekki athugasemdir við að HSA
taki reksturinn yfir en hafi mótmælt
því að 27 dögum fyrir afhendingu
heimilisins væri sveitarfélaginu sagt
að segja starfsfólkinu upp. Það sé
allt of skammur tími. Getur hann
þess að fólkið hafi þriggja til sex
mánaða uppsagnarfrest. Telur Jón
Björn að val sé um að láta lög um að-
ilaskipti gilda og bendir á að flutn-
ingur á málefnum fatlaðra frá ríki til
sveitarfélaga hafi verið framkvæmd-
ur með þeim hætti.
Sama á við um yfirfærsluna í Eyj-
um. Í sameiginlegri yfirlýsingu
Fjarðabyggðar og Vestmannaeyja-
bæjar er bent á að störf og réttar-
staða starfsfólks hjúkrunarheimila
sem Akureyrarbær og Sveitarfélag-
ið Hornafjörður eru að hætta með
hafi verið tryggð. Segja bæjarstjór-
arnir, Jón Björn og Íris Róbertsdótt-
ir, að verði þetta niðurstaðan varð-
andi þeirri heimili kalli það á
hópuppsagnir og óvissu í þessum
sveitarfélögum þar sem mikill meiri-
hluti sé kvennastörf við umönnun
viðkvæmustu einstaklinga.
Bæjarráð Vestmannaeyja og
Fjarðabyggðar hafa samþykkt að
óska eftir frestun á uppsögn samn-
inga um einn mánuð, til 1. maí. Jafn-
framt hafa bæjaryfirvöld óskað eftir
því við velferðarnefnd Alþingis að
hún skerist í leikinn og leysi úr þess-
ari óvissu þegar í stað.
Engin viðbrögð borist
Ráðuneytið segir yfirlýsingu
sveitarfélaganna fela í sér rang-
færslur sem ráðuneytið sjái sig knú-
ið til þess að leiðrétta, í tilkynningu.
Í kjölfar uppsagna sveitarfélaganna
hafi verið ákveðið að heilbrigðis-
stofnanir í viðkomandi umdæmum
tækju að sér reksturinn. Áður hafi
SÍ auglýst eftir aðilum til þess að
taka við rekstrinum. Engin viðbrögð
hefðu borist við þeirri auglýsingu.
„Bæjarstjórarnir segjast neyddir
til að grípa til hópuppsagna starfs-
fólks viðkomandi hjúkrunarheimila,
af því að heilbrigðisráðherra sé ekki
reiðubúinn að láta lög nr. 72/2002 um
réttarstöðu starfsmanna við aðila-
skipti að fyrirtækjum gilda. Nú er
það svo að umrædd lög gilda, eins og
nafn þeirra gefur til kynna, eingöngu
um aðilaskipti að fyrirtækjum.“
Gert að segja starfsfólkinu upp
- Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabær berjast fyrir því að störf og réttarstaða starfsfólks verði tryggð við
yfirfærslu á rekstri hjúkrunarheimila til heilbrigðisstofnana - Biðja velferðarnefnd að skerast í leikinn
Jón Björn
Hákonarson
Íris
Róbertsdóttir
Bóluefni belgíska lyfjafyrirtækis-
ins Janssen, sem er í eigu Johnson
& Johnson, fékk skilyrt markaðs-
leyfi á Íslandi í gær. Um er að
ræða það bóluefni sem Íslendingar
munu hafa mestan aðgang að af
öllum bóluefnum við Covid-19, mið-
að við samninga sem liggja fyrir.
Hingað eiga að koma 235 þúsund
skammtar sem gilda fyrir 235 þús-
und einstaklinga, enda þarf aðeins
einn skammt á mann með Janssen-
bóluefninu ólíkt flestum hinna.
Á vef landlæknis segir að áætlað
sé að byrja afhendingu á öðrum
ársfjórðungi, sem sagt einhvern
tímann á næstu þremur mánuðum.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, for-
stjóri Lyfjastofnunar, sagði í sam-
tali við mbl.is í gær að rætt hefði
verið um aprílmánuð þegar kemur
að fyrstu afhendingu.
Janssen-efnið er veiruferjubólu-
efni, rétt eins og AstraZeneca.
Virkni þess er minni í samræmi við
það, en hún hefur verið um 67% að
sögn Rúnu. Virknin er þó mjög
sterk gagnvart nýjum afbrigðum
veirunnar, eins og því breska, sem
skotið hefur upp kollinum hér á
landi undanfarið.
Hlé á notkun AstraZeneca
Notkun AstraZeneca-bóluefnis-
ins var stöðvuð tímabundið á Ís-
landi í gær á meðan tengsl bólu-
efnisins við blóðtappa eru
rannsökuð til hlítar. Þar með
fylgdu Íslendingar fordæmi Dana
en Rúna sagði í samtali við mbl.is
að þrátt fyrir að Lyfjastofnun Evr-
ópu hefði ekki gefið út að stöðva
skyldi bólusetningar með efninu,
hefði henni og sóttvarnalækni þótt
tilefni til að staldra við og skoða
málið. » 14
Rætt um afhendingu í apríl
- Bóluefnið samþykkt sem Íslendingar munu hafa mestan
aðgang að - AstraZeneca-notkun stöðvuð tímabundið
AFP
Janssen Ísland fær 235.000 skammta.
Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta-
og menningar-
málaráðherra,
tilkynnti í gær-
kvöldi að ákveð-
ið hefði verið að
aflýsa fyrirhug-
uðum samræmd-
um prófum í
ensku og stærð-
fræði, sem ráðgert var að leggja
rafrænt fyrir nemendur í 9. bekk í
næstu viku. Ákvörðunin var sögð
byggja fyrst og fremst á hags-
munum nemenda og sjónarmiðum
skólasamfélagsins.
Framkvæmd samræmdra prófa í
íslensku sem lögð voru fyrir nem-
endur í 9. bekk grunnskóla á
mánudag fór úrskeiðis. Tæknilegir
örðugleikar urðu til þess að
hundruð nemenda náðu ekki að
ljúka prófinu.
„Núverandi fyrirkomulag sam-
ræmdra prófa er komið á enda-
stöð. Grundvallarbreyting á sam-
ræmdu námsmati hefur verið í
undirbúningi, þar sem markmiðið
er að tryggja betur hagsmuni
nemenda og þarfir þeirra fyrir
skýrt námsmat,“ sagði ráðherra í
tilkynningunni. Forstjóri Mennta-
málastofnunar sagði í gær að nið-
urskurður til stofnunarinnar hefði
numið 200 milljónum á síðustu
tveimur árum.
Samræmdu
prófunum aflýst
Lilja Alfreðsdóttir