Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 opið alla daga kl. 10–21 25. febrúar - 14. mars LOKAHELGIN ! Skjálftar í Grindavík Jarðhræringar á Suðurnesjum halda áfram. Snarpur skjálfti, 4,5 að stærð, reið yfir í gærmorgun. Einn af mörg þúsund slíkum á nokkrum dögum. Nætur- skjálftar þykja afar óþægilegir. Ég kvíði því að fara að sofa á kvöldin, segir kona í Grindavík – einn bæjarbúa sem Morgunblaðið ræddi við í gær. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Grindavík Elsti bæjarhlutinn, gamla kirkjan og bæjarfjallið Þorbjörn hér í bakgrunni á mynd sem tekin var í gær. „Jarðskjálftarnir ganga hér yfir eins og bylgjur. Kannski má lýsa þeim sem öldum sem koma af hafi, en brimrótið hér í fjörunni sem er fyrir opnu hafi er ansi hressilegt þessa stundina,“ segir Hörður Sig- urðsson sem býr á Hrauni í Þór- kötlustaðahverfi, skammt austan við þéttbýlið í Grindavík. Frá Hrauni eru um það bil fimm kíló- metrar að Fagradalsfjalli, en um- brotin að undanförnu hafa oft átt upptök sín þar. Samkvæmt því er ein sviðsmynd jarðvísindamanna sú að í eldgosi gæti glóandi elfur runnið í sjó fram nokkru fyrir austan Festarfjall, sem er um tvo kílómetra frá Hrauni. „Þegar ekið er héðan til austurs um Suðurstrandarveginn þarf að fara yfir háan hrygg sem tengir hásléttuna inn til landsins og Fe- starfjall saman. Sá háls myndar gott skjól fyrir byggðina í Grinda- vík renni hraun, enda þótt enginn geti nokkru sinni sagt hver at- burðarásin verði í náttúruhamför- um,“ segir Hörður sem minnist jarðskjálfta við Grindavík haustið 1973. Þeir hafi þó verið fáir og at- burðarásin ekki eins langvarandi og nú gerist. Sér til gamans búa Hörður og Valgerður Söring Valmundsdóttir kona hans á Hrauni með nokkrar kindur og hross, sem ekki hafa sýnt nein viðbrögð við jarðhrær- ingunum. „Nei, en hins vegar eru hundarnir alveg logandi hræddir. Vilja sem mest vera í nálægð mannfólksins og hjúfra sig að okk- ur. Allt eru þetta mjög undarlegar aðstæður sem seint venjast, eru ónotalegar, hvað þá ef fer að gjósa. En íbúðarhúsið hér á Hrauni haggast ekki í jarð- skjálftum. Það er sterkbyggt úr timbri, reist á þykkum malarpúða sem virðist sérstaklega góð und- irstaða.“ Búa skammt frá Fagradalsfjalli Jarðskjálftar sem haf- öldur og hundar hræddir Hraunsfólk Hörður og Valgerður hér með hundana sína, Gosa og Skottu. „Öryggismenningin hér er sterk og við gerum engar kröfur til starfs- fólks um að vera ofurhetjur,“ segir Björn Halldórsson, öryggisstjóri hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Þor- birninum hf. „Þegar snörpustu skjálftarnir ganga yfir hafa starfsmenn af er- lendum uppruna, sem ekki þekkja svona náttúruhamfarir, sumir fyllst ótta og farið heim úr vinnu sem er í góðu lagi. Nokkrum sinnum höfum við efnt til rýmingaræfinga í fisk- vinnsluhúsunum okkar þar sem gert er manntal á hverjum morgni. Einnig getum við séð stafrænt hvar fólk er statt í húsunum, þar sem við höfum gengið vel frá öllum fest- ingum og gert hlutina jafn örugga og verða má. Stöðug fræðsla er annars lykilatriði í öllu þessu starfi; það er endursögn á þeim skila- boðum og leiðbeiningum sem koma frá almannavörnum og öðrum. Fyr- irbyggjandi ráðstafanir vegna jarð- skjálfta eru teknar mjög alvarlega hér, rétt eins og smitvarnir vegna kórónuveirunnar,“ segir Björn sem hefur starfað hjá Þorbirninum í fjögur ár. Áður var hann slökkvi- liðs- og sjúkraflutningamaður og starfaði m.a. um skeið við frið- argæslu í Kabúl í Afganistan. „Ég er logandi hræddur við jarð- skjálfta; meira en flest annað í til- verunni. Þegar ég var í Kabúl var Hillary Clinton þar í heimsókn og kröftug árás var á sama tíma gerð á borgina. Eldflaug var skotið á loft, hún sveif rétt yfir höfuð mitt og féll til jarðar ekki langt frá og sprakk með hvelli. Mér var óneitanlega brugðið þá en jarðskjálftarnir núna finnast mér verri.“ Fræðsla og fyrirbyggjandi ráðstafanir hjá Þorbirninum Skjálftarnir verri en eldflaugar í Kabúl „Hér titrar stöðugt og einn skjálftinn um helgina átti upptök sín hér rétt við húsið. Jarðflekarnir eru greini- lega á stöðugri hreyfingu og færast til. Við hér í Grindavík og Suðurnesin öll erum á leiðinni til Am- eríku með sama áframhaldi,“ segir Hildur Gunn- arsdóttir sem býr með fjölskyldu sinni við götuna Glæsivelli, efst og vestarlega í bænum. Alla aðfaranótt síðasta sunnudags voru jarðskjálftar í Grindavík og bæjarbúum því ekki svefnsamt. Margir brugðu því á það ráð að fara í bíltúr um götur bæjarins, enda rórra á rúntinum en heima fyrir. „Ég náði að sofa í eina klukkustund þessa nótt og að undanförnu hef ég bókstaflega kviðið því að fara að sofa á kvöldin. Í sjálfu sér dugar ekkert í þessari stöðu nema æðruleysi og að vona að kvikan í iðrum jarðar storkni og ósköpin fjari út. Vonandi gerist það á næstu vikunni. En auðvitað eru þessar hamfarir farnar að taka á taugar og einhverjir hafa þurft róandi lyf. Fólk býr sig undir hið versta,“ segir Hildur sem lofar starf björgunarsveitarinnar Þorbjarnarins í Grindavík síð- ustu sólarhringa. Upplýsingagjöf og andlegur stuðn- ingur björgunarmanna við fólk á óvissutímum sé ómet- anlegt. Í gær var Hildur að taka kaktusa og ýmsa lausamuni úr hillum í eldhúsinu á heimili sínu. Þar hafa myndir fallið af veggjum og bækur dottið úr hillum, svo allur er varinn góður. „Skjálftarnir síðustu vikur eru bók- staflega óteljandi en venjast að nokkru leyti. Maður finnur gjarnan úr hvaða átt þeir koma. Getur líka sagt nánast strax hve sterkir þeir eru. 4,6 var styrkur þess sem hér reið yfir í morgun, kom eins og brimskafl og var lengi að ganga yfir. Mjög óþægilegur eins og þess- ar hamfarir að undanförnu hafa allar verið,“ segir Hildur Gunnarsdóttir. Hildur Gunnarsdóttir tekur kaktusa úr eldhúshillunum Suðurnes á leiðinni til Ameríku „Jarðskjálftarnir eru auðvitað mjög óþægilegir, en fólk hér tekur þessu af miklu æðruleysi,“ segir séra Elín- borg Gísladóttir, sóknarprestur Grindvíkinga. „Fólki finnst óneitanlega afar gott að vita af kirkj- unni sinni þegar svona stendur á. Þess vegna hefur frá því umbrotin hófust nokkrum sinnum verið opið hús í kirkjunni. Slíkt hefur mælst vel fyrir, fólk hefur komið og rabbað saman um stöðu mála yfir kaffibolla í rólegu andrúmslofti. Flestir sem ég hef tal af hafa fundið sínar eigin leiðir til að höndla ástandið,“ segir sr. Elínborg. Hún var á leiðinni í Sandgerði með fermingarbörnum sínum þegar Morgunblaðið hitti hana á förnum vegi í Grindavík síðdegis í gær. „Krakkarnir taka jarðskjálftunum alveg eins og hetjur og minnast raunar ekki á þá við mig,“ segir sókn- arpresturinn. Í kvöld, föstudag, er ætlunin að vera með sam- verustund í Grindavíkurkirkju fyrir þá fjölmörgu íbúa í bænum sem eru pólskir að uppruna. Margir þeirra vinna hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum í bænum og eru uppistaðan í starfsliði þeirra. Prestur kaþólskra á Suð- urnesjum, Mikolaj Kecik, mun, auk sr. Elínborgar, sinna þeirri athöfn sem hefst kl. 20. Opið hús í Grindavíkurkirkju og hlúð að pólskum íbúum í bænum Fólki finnst gott að vita af kirkjunni Skjálftahrinan á Reykjanesskaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.