Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 32

Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 22. mars Páskablað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 26. mars Girnilegar uppskriftir af veislumat og öðrumgómsætum réttum ásamt páskaskreytingum, páskaeggjum, ferðalögum og fleira. 60 ára Jón fæddist á Steinsstöðum II í Öxna- dal en fluttist sem ung- lingur til Akureyrar og býr þar. Hann er húsa- smíðameistari að mennt og er húsvörður á Hótel KEA. Maki: Íris Halla Sigurðardóttir, f. 1966, vinnur í fyrirtækjaþjónustu hjá Íslands- pósti. Börn: Hlynur, f. 1987, Silja, f. 1989, og Pálmi, f. 1992. Barnabörnin eru Sygin Halla Pálmadóttir, Aron Böðvar Hlynsson og Haukur Logi Oddsson, sonur Silju. Foreldrar: Bára Magnúsdóttir, f. 1934, búsett á Akureyri, og Árni Brynjólfsson, f. 1932, d. 2005. Þau voru bændur á Steinsstöðum II. Jón Eggert Árnason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú átt það alltaf á hættu að vera misskilinn, nema þú talir tæpitungulaust þannig að allir skilji. Þú hefur einstaka getu til þess að komast að sannleikanum. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ættir að kaupa eitthvað til heim- ilisins eða jafnvel fasteign í dag. Styrktu sjálfsmyndina með ráðstöfunum sem ekki tengjast efnishyggjunni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það eru margir lausir endar sem þú þarft að hnýta, áður en þú getur haldið áfram. Gættu þess að hugsa ekki svo um sjálfan þig að þú gangir á rétt annarra. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Uppbyggilegar viðræður við vini geta leitt til ánægjulegrar samvinnu. Ef markmið þín eru skýr í huga þér mun það hafa áhrif á gerðir þínar og færa þig nær takmarki þínu. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur góðan byr í seglin en þarft að gæta þess að fara ekki fram úr sjálfum/ sjálfri þér. Notaðu tækifærið á meðan kraft- urinn er til staðar og komdu eins miklu í verk og þú mögulega getur. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Tækifærin bíða þín á næsta leiti. Reyndu að sýna þolinmæði í samskiptum við aðra og vertu lítillátur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú þarft að leggja þig sérstaklega fram til þess að ná tilskildum árangri. Þér kann að þykja framkoma einhverra vinnufélaga skrýtin. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Eitthvað er að angra þig og þú losnar ekki við þá tilfinningu fyrr en þú gerir eitthvað. Sönn hamingja felst í því að halda áfram á þeirri leið sem þú hefur valið þér. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Nú er lag að söðla um og taka upp nýja háttu. Samband þitt við vini þína á eftir að batna mikið á næstu vikum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þín bíður gáskafullur og róm- antískur tími. Haltu fast við áform þín og láttu skoðanir annarra ekki hafa áhrif á þig. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ert í skapi til þess að berjast fyrir málstað annarra á vinnustað. Þú þarft að gæta þín ef þú vilt ekki að aðrir sjái í gegnum þig. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú átt erfitt með að sannfæra aðra um ágæti málstaðar þíns. Þótt þú hafir ekki mikið fé handbært þessa stundina, má allt- af gera sér glaðan dag. P áll Magnússon fæddist 12. mars 1971 í Reykja- vík en ólst upp í Kópa- vogi. „Sem drengur dvaldi ég fimm sumur í sveit í Breiðafirði. Fyrsta sumarið var í Hvallátrum en síðan í Flatey. Ég var hjá Hlyni syni Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur, föðursystur minn- ar, og þáverandi sambýliskonu hans, Hrönn Hafsteinsdóttur, í Hval- látrum. Það var ofboðslega fallegt þar og öðruvísi sveitalíf, sem tengd- ist mikið sjósókn, fuglum og eggja- tínslu, en þar var líka hefðbundinn búskapur. Þau voru með beljur og það var heyjað en féð var uppi á landi yfir sumartímann. Svo eiginlega að meginstofni þá borðaði maður mat sem var dreginn í bú, fuglakjöt og allt sjávarfang í rauninni. Í Flatey bjó ég í símstöðvarhúsinu.“ Páll æfði ýmsar íþróttir á yngri árum og var í skólahljómsveit og Hornaflokki Kópavogs. Hann var duglegur í félagsmálum og var í nemenda- félögum og tók þátt í ræðukeppnum með góðum árangri. Páll gekk í Snælandsskóla og varð stúdent frá Menntaskólanum í Kópa- vogi 1991. Hann lauk guðfræðiprófi (BA) frá Háskóla Íslands 2001 og síðan meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla 2006. Árið 2019 lauk Páll meistaragráðu í lög- fræði frá Háskólanum í Reykjavík. Með háskólanámi starfaði Páll sem lögreglumaður og fréttamaður hjá fréttastofu ríkissjónvarpsins. „Ég starfaði líka í sumarbúðum á Ír- landi sem Paul Newman stofnsetti fyrir langveik börn, en þær eru í Barretstown-kastala sem er frá 12. öld. Ég var þar eitt sumar og fór síð- an tvisvar þangað eftir það. Það var mjög skemmtilegt og gefandi.“ Páll hóf snemma afskipti af stjórn- málum og var varabæjarfulltrúi í Kópavogi fyrir Framsóknarflokkinn 1990-1998 og varaþingmaður 1999- 2007. Hann var framkvæmdastjóri auglýsingastofu 1998-1999 og síðan aðstoðarmaður iðnaðar- og við- skiptaráðherra 1999-2006. Páll var sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Kópa- vogsbæjar 2006-2019. „Ég fer úr pólitíkinni og í að stjórna stjórnsýsl- unni í Kópavogi og er líka bæjarrit- ari. Í því starfi er maður að vinna með fulltrúum úr öllum flokkum og þarf að njóta trausts þeirra. Það fór því ekki saman að vera í stjórnmálum á sama tíma og ég hætti afskiptum af þeim.“ Frá desember 2019 hefur Páll ver- ið ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. „Ég náði rétt að koma mér fyrir áður en Covid byrjaði. Þetta er búinn að vera alveg rosalega krefjandi tími og mik- ið álag verið á öllu menntakerfinu og stjórnkerfinu í heild. En við erum eitt af fáum ríkjum sem geta státað af því að hafa haldið skólastarfinu gangandi á þessum tíma. Svo hefur Covid haft mikil áhrif á allt menningarlíf og allt viðburðahald legið niðri. Með stuðn- ingsaðgerðum stjórnvalda hefur ver- ið reynt að koma til móts við þann hóp svo að fólk komist í gegnum þetta.“ Páll sat í stjórn Landsvirkjunar 2007-2011, þar af sem formaður 2007- Páll Magnússon ráðuneytisstjóri – 50 ára Hjónin Páll og Hulda við Sólbakka, gamla Símstöðvarhúsið í Flatey, þar sem Páll var í sveit fjögur sumur. Erilsamt ár í ráðuneytinu Á rjúpnaveiðum Páll ásamt Kríu fyrir ofan Höfðavatn á Höfðaströnd. 30 ára Arnar er Kópa- vogsbúi og hefur alltaf búið þar. Hann er með BA í hagfræði og er með þrjár meistaragráður: í reikningsskilum og end- urskoðun, í fjármálum fyrirtækja og kennslu- réttindum fyrir framhaldsskóla, allt frá HÍ. Arnar er hlaupari, hlaupaþjálfari og vinnur hjá Driftline Analytics. Arnar hefur 36 sinn- um orðið Íslandsmeistari í hlaupagreinum, frá 1.500 metrum og upp í maraþon. Arn- ar er íþróttamaður Kópavogs 2020. Foreldrar: Pétur H. Sigurðsson, f. 1961, deildarstjóri hjá Íslenskri getspá, og Sigrún Jónsdóttir, f. 1960, framkvæmdastýra hjá Tryggingastofnun. Þau eru búsett í Kópa- vogi. Arnar Pétursson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.