Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 35
_ Kiril Lazarov, ein mesta skytta
handboltans í seinni tíð, stýrði Norð-
ur-Makedóníu til sigurs á heimsmeist-
urum Dana í Skopje í gærkvöld, 33:29,
í undankeppni Evrópumótsins. Þótt
hinn fertugi Lazarov sé orðinn þjálfari
spilar hann áfram með liðinu og skor-
aði fjögur mörk sjálfur í leiknum.
_ Norska knattspyrnusambandið
ákvað í gær að fresta upphafi keppn-
istímabilsins í efstu deildum karla og
kvenna til 1. maí vegna útbreiðslu kór-
ónuveirunnar á sumum svæðum í Nor-
egi. Efstu kvennadeildirnar áttu að
hefjast 20. mars og efstu karladeild-
irnar 5. apríl en vegna stöðunnar þótti
ekki fært að byrja á áætluðum tíma.
_ Ísland verður í riðli með Serbíu, Sví-
þjóð og Frakklandi í fyrri hluta und-
ankeppni Evrópumóts kvenna 19 ára
og yngri í fótbolta. Leikið verður í ein-
hverju landanna fjögurra í september
eða október. Einnig var dregið hjá U17
ára stúlkum og þar er Ísland í riðli með
Norður-Írlandi, Serbíu og Spáni. Þar
verður riðlakeppnin leikin einhvern
tímann frá 1. ágúst til 14. nóvember.
Nýtt keppnisfyrirkomulag hefur verið
tekið upp í báðum aldursflokkum, leik-
ið í A- og B-deildum eftir styrkleika, og
bæði íslensku liðin hefja keppni í A-
deild.
_ Þrír af reyndustu landsliðsmönnum
Þýskalands í knattspyrnu gætu klæðst
landsliðstreyjunni á ný 25. mars þegar
Þjóðverjar taka á móti Íslendingum í
Duisburg í fyrsta leiknum í und-
ankeppni heimsmeistaramóts karla.
Joachim Löw landsliðsþjálf-
ari sagði eftir afleitt
gengi liðsins á HM
2018 að þeir
Thomas Müller,
Mats Hummels
og Jeróme
Boateng yrðu aldrei
valdir aftur á meðan
hann stýrði liðinu. Nú
hefur Löw hins vegar
sagt að vel komi til
greina að velja Müll-
er og Hummels á ný,
og Kicker segir að
Boateng komi líka
til greina ef Löw
þurfi á honum að
halda.
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Eitt
ogannað
EVRÓPUDEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Erkifjendurnir í Norður-London,
Tottenham og Arsenal, ættu að
koma ágætlega stemmdir til leiks á
sunnudaginn þegar þeir eigast við í
nágrannaslag í ensku úrvalsdeild-
inni í fótbolta.
Í gærkvöld komu bæði liðin sér í
góða stöðu í sextán liða úrslitum
Evrópudeildarinnar og eiga að geta
fylgt því eftir í seinni leikjum sínum
í þeirri keppni næsta fimmtudag.
Tottenham tók á móti Dinamo
Zagreb í London og lagði Króatana
allörugglega að velli, 2:0. Fyrirlið-
inn Harry Kane skoraði bæði mörk-
in.
Arsenal fór til Grikklands til leiks
gegn Olympiacos, sem sló enska lið-
ið út á sama stigi keppninnar fyrir
nákvæmlega ári. Arsenal vann
sannfærandi útisigur, 3:1, og ætti
að hafa alla burði til að fylgja því
eftir. Martin Ödegaard, Gabriel og
Mohamed Elneny skoruðu mörkin.
_ Staðan er ekki eins góð hjá
þriðja enska liðinu í keppninni,
Manchester United, sem fékk AC
Milan í heimsókn á Old Trafford.
Þar tryggði danski miðvörðurinn
Simon Kjær gamla ítalska stórveld-
inu jafntefli, 1:1, með fallegu skalla-
marki í uppbótartímanum. Ítalirnir
taka þar með gríðarlega dýrmætt
mark á útivelli með sér í seinni við-
ureignina á San Siro í Mílanóborg
næsta fimmtudag.
Allt stefndi í að hinn 18 ára gamli
Amad Diallo yrði hetja leiksins á
Old Trafford. Ole Gunnar Solskjær
setti hann inn á í upphafi síðari
hálfleiks og eftir aðeins fjórar mín-
útur hafði strákurinn skorað gull-
fallegt skallamark eftir að Bruno
Fernandes lyfti boltanum inn fyrir
miðja vörn Ítalanna. Diallo sneiddi
boltann aftur fyrir sig með höfðinu,
yfir hinn hávaxna Gianluigi Donn-
arumma, og í netið. United keypti
Diallo af Atalanta í janúar og mun
greiða fyrir hann allt að 36 millj-
ónum punda.
Jafntefli var verðskuldað fyrir
Ítalina sem léku án margra sterkra
leikmanna, þar á meðal Zlatans
Ibrahimovic, en komu boltanum
tvisvar í mark United í fyrri hálf-
leik án þess að mörkin væru talin
gild.
_ Nýkrýndu skosku meistararnir
Rangers náðu jafntefli gegn Slavia
Prag í Tékklandi þegar sænski mið-
vörðurinn Filip Helander jafnaði
metin, 1:1.
_ Björn Bergmann Sigurðarson
lék fyrstu 74 mínúturnar með
Molde frá Noregi sem tapaði 2:0
fyrir Granada á Spáni. Molde á því
erfitt verkefni fyrir höndum en
norska liðið sló í gegn í 32 liða úr-
slitum með því að slá Hoffenheim
frá Þýskalandi úr keppninni. Molde
spilar heimaleikinn í Búdapest
vegna sóttvarnaráðstafana í Noregi.
Mæta brött í grannaslaginn
- Góð úrslit hjá Arsenal og Tottenham en Kjær gerði United grikk á Old Trafford
AFP
Dramatík Simon Kjær fagnar ásamt Diogo Dalot eftir að hafa jafnað fyrir
AC Milan á allra síðustu stundu gegn Manchester United á Old Trafford.
Enski knattspyrnumaðurinn Gary
Martin verður áfram í Vest-
mannaeyjum en hann hefur samið á
ný við ÍBV til þriggja ára. Martin
skoraði 11 mörk í 19 leikjum Eyja-
manna í 1. deildinni á síðasta ári og
sjö að auki í bikarkeppninni. Martin
hefur tvisvar orðið markakóngur
úrvalsdeildarinnar, 2014 með KR
og 2019 þegar hann lék með bæði
Val og ÍBV. Hann hefur leikið hér á
landi frá 2010 og skorað 87 deilda-
mörk, þar af 57 í úrvalsdeildinni, en
hann er þriðji markahæsti útlend-
ingurinn í deildinni frá upphafi.
Martin hreiðrar
um sig í Eyjum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Eyjar Gary Martin skrifaði undir
nýjan samning til þriggja ára.
Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi
varð í gær annar á landsmóti í Mal-
bun í Liechtenstein í svigi í stand-
andi flokki karla. Frakkinn Arthur
Bauchet bar sigur úr býtum en
Hilmar bætti tíma sinn á milli ferða.
Hann kom í mark á tímanum
44,69 sekúndur í fyrri ferð en í
þeirri síðari náði hann að skafa
tíma sinn örlítið niður og kom í
mark á 44 sekúndum sléttum.
Heildartími dagsins var því 1:28,69
mínútur. Hann lýkur keppni í Mal-
bun í dag þegar svigkeppni Evr-
ópubikars IPC fer þar fram.
Hilmar krækti í
silfur í Malbun
Ljósmynd/ÍF/JBÓ
Liechtenstein Hilmar Snær
Örvarsson á verðlaunapallinum.
Undankeppni EM karla
7. riðill:
Finnland – Sviss ................................... 19:32
Norður-Makedónía – Danmörk .......... 33:29
_ Norður-Makedónía 6, Danmörk 4, Sviss
2, Finnland 0.
Olísdeild kvenna
HK – KA/Þór ..................................... frestað
_ Leikurinn fer fram í kvöld kl. 18.
Staðan:
Fram 12 9 0 3 351:286 18
KA/Þór 11 7 3 1 277:241 17
Valur 12 6 3 3 325:268 15
ÍBV 12 6 2 4 292:271 14
Haukar 12 4 3 5 296:307 11
Stjarnan 12 5 0 7 307:316 10
HK 11 4 1 6 267:289 9
FH 12 0 0 12 230:367 0
Grill 66-deild kvenna
Fram U – Valur U ................................ 26:24
Afturelding – ÍR ................................... 26:22
Staðan:
Fram U 13 11 0 2 387:306 22
Afturelding 12 8 0 4 295:268 16
Valur U 12 8 0 4 343:299 16
ÍR 12 7 0 5 293:268 14
Grótta 12 6 0 6 289:291 12
HK U 11 6 0 5 291:288 12
Víkingur 13 3 0 10 302:343 6
Selfoss 12 3 0 9 274:340 6
Fjölnir-Fylkir 13 3 0 10 290:361 6
.$0-!)49,Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Stundum er talað um „sex stiga
leiki“ eða „fjögurra stiga leiki“, allt
eftir því hvort stigakerfið er notað.
Fjölniskonur unnu einmitt einn slík-
an (fjögurra stiga) í gærkvöld þegar
þær lögðu Skallagrím að velli, 98:90,
í Grafarvogi í úrvalsdeild kvenna í
körfubolta, Dominos-deildinni.
Allt stefnir í að þessi tvö lið berjist
um fjórða sæti deildarinnar og sæti í
undanúrslitum Íslandsmótsins og
Fjölnir náði fjögurra stiga forskoti á
Borgnesinga, sem að öðrum kosti
hefðu jafnað Grafarvogskonur að
stigum.
Ariel Hearn átti magnaðan leik
fyrir Fjölni en hún skoraði 46 stig,
hitti úr níu af fimmtán þriggja stiga
skotum, og tók 13 fráköst. Segja má
að hún hafi unnið einvígið við Keiru
Robinson sem skoraði 39 stig fyrir
Borgnesinga, þar af 29 í fyrri hálf-
leik. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
skoraði 25 stig fyrir Skallagrím.
_ Þá var viðureign Breiðabliks og
Snæfells í Smáranum ekki síður
mikilvæg en þar mættust liðin í
sjötta og sjöunda sæti. Breiðablik
stakk þar af í fjórða leikhluta og
vann góðan sigur, 93:76, sem fleytir
liðinu ansi nálægt lygnum sjó í deild-
inni.
Snæfell situr eftir með fjögur stig
og útlit er fyrir að Hólmarar heyi
einvígi við KR um að halda sér í
deildinni.
Isabella Ósk Sigurðardóttir fyr-
irliði Breiðabliks átti magnaðan leik
en hún tók hvorki fleiri né færri en
28 fráköst og skoraði auk þess 21
stig. Hayden skoraði 22 stig fyrir
Snæfell sem mætti með aðeins átta
leikmenn í Smárann.
Átta umferðum er ólokið í deild-
inni en leikin er þreföld umferð í
stað fjórfaldrar vegna þess hve langt
hlé var á Íslandsmótinu fyrri hluta
vetrar.
_ Valskonur náðu undirtökum í
toppbaráttu deildarinnar í fyrra-
kvöld með því að vinna Keflavík á
nokkuð sannfærandi hátt, 80:67, og
Haukar sýndu aukinn styrk sinn
með stórsigri á botnliði KR, 120:77.
Eftir að Sara Rún Hinriksdóttir
kom til liðs við Hauka er Hafn-
arfjarðarliðið líklegt til að elta Val
og Keflavík í baráttunni um tvö efstu
sætin í deildinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Magnaðar Ariel Hearn gnæfir yfir Keiru Robinson í leiknum í Grafarvogi.
Hearn skoraði 46 stig fyrir Fjölni en Robinson skoraði 39 fyrir Skallagrím.
Lykilsigur hjá
Fjölniskonum
- Isabella tók 28 fráköst fyrir Breiðablik