Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Aðalfundur
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn
að Skarfagörðum 4, Reykjavík,
föstudaginn 26. mars 2021 og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða:
Stjórn Hampiðjunnar hf.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á
eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
tveimur vikum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum
fyrir upphaf aðalfundar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa
borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10
dögum fyrir aðalfund.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð,
þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig
að dagsetning komi fram.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Slysum í umferðinni fækkaði um-
talsvert á seinasta ári og á faraldur
kórónuveirunnar og minni umferð
vegna sóttvarnaaðgerða án vafa
stóran þátt í þeirri þróun. Skráð
slys og óhöpp í umferðinni í fyrra
voru samtals 5.504 en voru 6.619 á
árinu á undan. Hins vegar létu fleiri
lífið í umferðarslysum í fyrra en ár-
ið á undan eða átta einstaklingar í
sjö slysum, sjö karlmenn og ein
kona. Sá yngsti sem lést var 28 ára
og sá elsti 92 ára.
Í nýútkominni skýrslu Sam-
göngustofu um umferðarslys á sein-
asta ári er bent á að Ísland er í
hópi þeirra þjóða þar sem fæstir
láta lífið í umferðinni miðað við
höfðatölu.
Fram kemur að alvarlega slös-
uðum fækkaði talsvert á milli ára
eða úr 182 í 149 og er Ísland komið
vel undir markmið um fækkun
slysa sem sett voru í umferðar-
öryggisáætlun eða um 9% og var
þeim markmiðum náð í fyrra í
fyrsta sinn síðan þau voru sett
fram.
„Lítið slösuðum fækkar einnig,
úr 948 í 858, og lækkar þar með
heildarfjöldi slasaðra og látinna úr
1.136 í 1.015 eða um 10,7%. Hafa
aldrei færri slasast í umferðinni frá
því núverandi skráningarfyrirkomu-
lag var tekið upp árið 1992,“ segir í
slysaskýrslunni.
Þrátt fyrir fækkun slysa fækkaði
þeim lítið milli ára sem slösuðust af
völdum ölvunaraksturs eða úr 38
árið 2019 í 37 í fyrra. Alvarlega
slösuðum og látnum vegna ölvunar
undir stýri fjölgaði í fyrra úr sex í
ellefu og þar af létust þrír að því er
segir í skýrslunni. „Það sama er
upp á teningnum þegar kemur að
akstri undir áhrifum fíkniefna.
Slösuðum vegna fíkniefnaaksturs
fækkar á milli ára úr 36 í 31 en al-
varlega slösuðum og látnum vegna
fíkniefnaaksturs fjölgar úr fjórum í
átta og þar af lést einn.“
Færri ungir ökumenn slös-
uðust alvarlega á seinasta ári
Áberandi góður árangur náðist í
fyrra með fækkun alvarlegra slysa
fótgangandi vegfarenda og færri
ungir ökumenn og ferðamenn lentu
í alvarlegum slysum.
Ef litið er á umferðarslys eftir
mánuðum má sjá að flest alvarleg
slys eða 19 áttu sér stað í ágúst.
Slys þar sem meiðsli voru lítil áttu
sér flest stað í janúar og júlí eða 56
í hvorum mánuði. Slysatíðnin
minnkaði sérstaklega mikið í apríl
en þá voru 294 slys og óhöpp skráð
í umferðinni samanborið við 461 í
mánuðinum á undan og 400 í maí.
Tölur um staðsetningu slysa leiða
í ljós að flest slys og óhöpp urðu á
gatnamótum Miklubrautar og
Grensásvegar annars vegar og
gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar hins vegar.
„Þar á eftir eru tvö hringtorg í
Hafnarfirði; annars vegar þar sem
mætast Flatahraun, Fjarðarhraun
og Bæjarhraun og hins vegar þar
sem mætast Reykjanesbraut,
Hlíðarberg og Lækjargata. Þegar
kemur að slysum með meiðslum eru
gatnamót Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar með flest slys. Þar á
eftir eru svo gatnamót Reykjanes-
brautar og Bústaðavegar, gatnamót
Miklubrautar og Háaleitisbrautar
og gatnamót Miklubrautar og
Grensásvegar. Utanbæjar verða
flest slysin á helstu stofnleiðum út
frá höfuðborgarsvæðinu enda er
umferðin mest þar,“ segir í skýrsl-
unni.
Í samantekt um slasaða í umferð-
inni eftir búsetu þeirra kemur fram
að fjöldi slasaðra miðað við íbúa-
fjölda er nokkuð mismunandi eftir
landshlutum eða allt frá 1,9 slös-
uðum á hverja 1.000 íbúa á Vest-
fjörðum til 4,3 á Austurlandi.
Skýrsluhöfundar benda á að ef
seinasta ár er borið saman við
næstu fimm ár á undan megi sjá að
færri íbúar í öllum landshlutum
slösuðust á árinu 2020 en að jafnaði
árin fimm á undan. „Íbúar Suður-
lands, Vestfjarða og Suðurnesja
slasast töluvert minna en síðustu
ár,“ segir í skýrslunni.
Færri slys meðal ferðamanna
Fækkun erlendra ferðamanna
birtist með skýrum hætti í umferð-
arslysatölunum og fækkaði slysum
erlendra ferðamanna í umferðinni
um 77% í fyrra frá árinu á undan. Á
seinasta ári slösuðust 45 erlendir
ferðamenn í umferðinni hér landi
en þeir voru 193 árið 2019 og 202 á
árinu 2018 en á því ári komu ríflega
2,3 milljónir ferðamanna um Leifs-
stöð. Í fyrra voru þeir um 479 þús-
und.
Slysatölur um farartæki og hópa
vegfarenda í fyrra sýna að 60 slös-
uðust alvarlega í fólksbílum, 18
slösuðust alvarlega á þungum bif-
hjólum, 42 á reiðhjólum og rafhjól-
um og tólf fótgangandi vegfarendur
slösuðust alvarlega á seinasta ári.
Tölur yfir öll slys á seinasta ári
leiða í ljós að slysum á reiðhjólum
og rafhjólum fjölgaði verulega í
fyrra. Þá voru skráð 164 slys eða
óhöpp á reiðhjólum og rafhjólum en
voru 101 árið á undan og 120 á
árinu 2018.
Mun færri slösuðust í hópferða-
bílum í fyrra en á árunum á undan
eða ellefu samanborið við 45 á árinu
2019, 28 árið 2018 og 53 2017.
Aldrei færri slasast frá 1992
- Slysum og óhöppum í umferðinni fækkaði umtalsvert á seinasta ári samkvæmt nýrri slysaskýrslu
Samgöngustofu - Alvarlega slösuðum í umferðinni í fyrra fækkaði talsvert á milli ára eða úr 182 í 149
Í slysaskýrslu Samgöngustofu
er lagt mat á áætlaðan
heildarkostnað við öll umferð-
arslys. Talið er að hann hafi
numið 40,5 milljörðum á sein-
asta ári, 43,2 milljörðum árið
2019 og 53,3 milljörðum á
árinu 2018.
Af tölum Samgöngustofu má
ráða að á seinustu fimm árum
nemi samanlagður kostnaður
vegna umferðarslysa og
óhappa í umferðinni rúmum
250 milljörðum króna.
250 milljarðar
á fimm árum
KOSTNAÐUR VIÐ SLYSIN
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Alþjóðlegt teymi vísindamanna frá
Austurríki, Þýskalandi og Banda-
ríkjunum, með íslenska plöntustein-
gervingafræðinginn Friðgeir Gríms-
son í fararbroddi,
er nýbúið að lýsa
áður óþekktri
tegund fornflugu
af ættbálki tví-
vængja.
Friðgeir starf-
ar við Háskólann
í Vínarborg og
það var á hans
ábyrgð að kryfja
steingerða flug-
una, sem og greina og túlka maga-
innihald eftir síðustu máltíðir henn-
ar. Það sem gerir fundinn
sérstaklega áhugaverðan er að
magainnihaldið hefur einnig varð-
veist, en það gefur sjaldgæfa innsýn
í fæðuöflun og næringu flugna fyrir
um 47 milljónum ára.
Virkar í skordýrafrævun
„Þetta var sannarlega skemmti-
legt og skilaði miklum upplýsing-
um,“ segir Friðgeir í samtali við
Morgunblaðið. „Með þessum rann-
sóknum komumst við að því að
venjulegar litlar flugur, ekki býflug-
ur, hafa flogið á milli blóma og náð
sér í magafylli af frjókornum. Með
niðurstöðunum sýnum við fram á að
flugur hafa tekið þátt í að bera frjó-
korn á milli og frjóvga blóm.
Þegar magainnihaldið er skoðað
verður þetta allt svo myndrænt og
það er sjaldgæft að færi gefist á
svona rannsóknun. Greinin var birt
á miðvikudag í tímaritimu Current
Biology og nú þegar hef ég fengið
fyrirspurnir. Þetta þykir merkilegt í
þessum bransa og ekki á hverjum
degi sem maður fær tækifæri til
þess að kryfja tæplega 50 milljón
ára gamla flugu.“
Steingerð fornflugan fannst í
vatnasetlögum við Messel í Þýska-
landi, en þau eru þekkt fyrir ein-
staka steingervinga spendýra og eru
á heimslista UNESCO. Þar er grafið
tvisvar á ári undir ströngu eftirliti
og hvert korn skráð niður, eins og
Friðgeir orðar það. Það var þó ekki
flugan sjálf sem vakti hvað mesta at-
hygli rannsakenda heldur útþaninn
kviðurinn sem var enn fullur af síð-
ustu máltíðinni. Við greiningu kom á
óvart að í ljós komu frjókorn fjölda
mismunandi blómplantna.
Fjölbreytileiki frjókornanna
bendir til þess að flugan hafi átt þátt
í frjódreifingu mismunandi plöntu-
tegunda. Samkvæmt upplýsingum
frá Friðgeiri undirstrikar þetta að
flugur af ættbálki tvívængja hafi
verið virkar í skordýrafrævun innan
fornra hitabeltisvistkerfa og jafnvel
varpað skugga á starf býflugunnar.
Krufði steingerving
47 milljón ára fornflugu
- Bar frjókorn - Síðasta máltíðin - Íslendingur í hópnum
Ljósmynd/Senckenberg
Steingerð Flugan sem fannst við Messel í Þýskalandi og var krufin.
Friðgeir
Grímsson
Umferðarslys árið 2020
Fjöldi slysa eftir mánuðum
Slasaðir og látnir eftir
vegfarendahópum árið 2020
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Lítil meiðsli Alvarleg slys Banaslys
Í fólksbílum 66% Í hópferðabílum 1%
Í sendi- og vörubílum 6% Á léttum
bifhjólum 1% Á þungum bifhjólum 4%
Á reiðhjólum og rafhjólum 16%
Fótgangandi 4% Aðrir 2%
H
ei
m
ild
:S
am
gö
ng
us
to
fa
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
Slasaðir og
látnir alls
1.015