Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Vélar fyrir
atvinnumenn
og
handverksfólk
Yfir 40 ára frábær
reynsla á Íslandi
Opið virka daga 9-18
laugardaga 10-16
Spónsuga 2 stærðir
Verð frá 89.800
Súluborvél DP18
Verð 95.160
Tifsög Decoflex
Verð 44.590
Súluborvél DP16
Verð 64.840
Fræsari HF50
Verð 77.350
Bandsög
Basa3
Verð131.830
Slípivél
BTS800
Verð 48.920
Borðsög
HS80
Verð 30.9
Borðsög TS310
Verð 95.170
Bútsög HM80L
Verð 24.230
Slípivél
OSM600
Verð 61.910
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Vefverslun brynja.is
Slípivél
OSM100
Verð 53.180
Þyktarhefill/afréttari
HMS10810
Verð 114.100
Búkki
fyrir bútsagir
Verð 29.800
80
Hollvinasamtök Húsavíkurkirkju
voru formlega stofnuð að lokinni
kvöldguðsþjónustu á sunnudaginn
var. „Þónokkuð af nýjum hollvinum
skráði sig í samtökin á fundinum,“
sagði Helga Kristinsdóttir, formað-
ur sóknarnefndar.
Hún var áheyrnarfulltrúi á fyrsta
stjórnarfundi hollvinasamtakanna.
Þar skipti stjórnin með sér verkum.
Sólveig Mikaelsdóttir er formaður,
Heiðar Hrafn Halldórsson er ritari
og Jóna Matthíasdóttir gjaldkeri.
Meðstjórnendur eru Guðmundur
Bjarnason og Dóra Ármannsdóttir.
Helga sagði að komið hafi fram að
fólk sé farið að hafa samband við
hollvinasamtökin.
„Þörfin á viðgerð Húsavíkur-
kirkju hefur fengið mikla umfjöllun
og athygli. Fólk deildi þeirri frétt og
hún fór víða. Svo á að gera heima-
síðu og Facebook-síðu. Það á líka að
útbúa dreifibréf því eldri kynslóðin,
sem þykir ekki síst vænt um kirkj-
una sína, er ekki öll á samfélags-
miðlunum. Við stofnuðum strax
söfnunarreikning og það er farið að
safnast inn á hann,“ sagði Helga.
Viðgerð á kirkjuturninum gengur
fyrir öllu öðru, að sögn Helgu. Stefnt
er að því að hún fari fram í sumar.
Von er á fulltrúum fasteignasviðs
Þjóðkirkjunnar og frá Minjastofnun
Íslands. Þeir munu kortleggja þörf-
ina fyrir viðgerðir og eiga fundi með
þeim sem koma að verkefninu.
Eins og komið hefur fram þarfn-
ast Húsavíkurkirkja mikillar við-
gerðar. Mikill fúi er í kirkjuturn-
inum og víðar. Allir þverbitar utan á
turninum eru fúnir og margir
skrautlistar illa farnir. Fjórir kross-
ar eru á kirkjunni og voru þeir allir
ónýtir. Smíði nýrra krossa er hafin.
Arkitekt Húsavíkurkirkju var Rögn-
valdur Ólafsson og var kirkjan vígð
árið 1907. Hún er eitt helsta kenni-
leiti Húsavíkur.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavíkurkirkja Kirkjuturninn og
fleira er illa farið af fúa. Í forgrunni
eru Vaðfuglar Sigurjóns Pálssonar
sem standa á þaki verbúðanna.
Hollvinasamtök
að hefjast handa
- Viðgerðir á
Húsavíkurkirkju
helsta verkefnið
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framkvæmdastjóri Arctic Hydro
vonast til að fá framkvæmdaleyfi
fyrir virkjun Þverár í Vopnafirði á
vormánuðum þannig að hægt verði
að hefja framkvæmdir í sumar.
Breytingar á aðalskipulagi vegna
virkjunarinnar hafa verið staðfest-
ar og deiliskipulag er til yfirferðar
hjá Skipulagsstofnun.
„Við erum búnir að semja við
framleiðendur véla og röra, verk-
taka og þjónustuaðila,“ segir
Skírnir Sigurbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Hydro. Þá
hefur verið gerður langtímasamn-
ingur við HS orku um kaup á allri
framleiðslu virkjunarinnar.
Þverárvirkjun verður með allt
að 6 MW afl. Þverá á upptök í
Smjörfjöllum og sameinast Hofsá.
Handhafar vatns- og landsréttinda
eru eigendur jarðanna Egilsstaða,
Hrappsstaða og Háteigs. Stöðvar-
húsið verður um 160 fermetrar að
stærð. Frá tveggja hektara lóni
sem þjónar aðallega sem miðlun
innan sólarhringsins liggur 5,3
kílómetra aðrennslispípa að stöðv-
arhúsi.
Beðið eftir deiliskipulagi
Framkvæmdin hefur farið í gegn
um mat á umhverfisáhrifum og
breyting á aðalskipulagi hefur ver-
ið staðfest. Sveitarstjórn Vopna-
fjarðarhrepps hefur einnig sam-
þykkt deiliskipulag fyrir virkjana-
svæðið og það er nú til yfirferðar
hjá Skipulagsstofnun. Sótt verður
um framkvæmdaleyfi þegar þeirri
vinnu lýkur.
Virkjunin verður tengd við að-
veitustöð Rarik á Vopnafirði og fer
þannig inn á landskerfið. Skírnir
segir að virkjunin verði með eyja-
keyrslubúnaði þannig að hún geti
starfað þótt samband Vopnafjarð-
ar við landskerfið rofni, en það
gerist iðulega enda yfir há fjöll að
fara. Raunar stendur til að Lands-
net leggi línuna á versta kaflanum
yfir Hellisheiði í jarðstreng. Það
ætti að draga úr hættu á straum-
rofi.
Tilkoma virkjunarinnar mun því
auka afhendingaröryggi og fram-
boð raforku í Vopnafirði. Notkunin
er raunar afar misjöfn, eftir því
hversu mikil starfsemi er í gangi í
fiskiðjuveri Brims og öðrum at-
vinnufyrirtækjum, eða allt frá 1,5
og upp í 18 megavött.
Arctic Hydro byggði og rekur
Hólsvirkjun í Fnjóskadal. Skírnir
segir að verkefnið sé af svipaðri
stærðargráðu, kosti um tvo millj-
arða.
Framboð raforku eykst
verulega í Vopnafirði
- Ráðgert að framkvæmdir við Þverárvirkjun hefjist í sumar
Þverá Úr Þverárdal, horft í átt að brúnni yfir Þverá. Stöðvarhús virkjunar-
innar verður byggt skammt fyrir neðan. Í fjarska sést til Háganga.