Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 14

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Evrópska lyfjastofnunin EMA sam- þykkti í gær bóluefni Johnson & Johnson gegn kórónuveirunni, en ár var þá liðið frá því að Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin lýsti faraldrin- um formlega sem heimsfaraldri. Bóluefni Johnson & Johnson er hið fjórða sem stofnunin veitir markaðs- leyfi innan Evrópusambandsins. Ólíkt öðrum bóluefnum þarf einungis einn skammt af efninu áður en það nær fullri virkni. Þá er hægt að geyma efn- ið við hærra hitastig en þau bóluefni sem áður höfðu verið samþykkt. Tíðindin komu sama dag og Danir ákváðu að fresta tímabundið öllum bólusetningum með AstraZeneca- efninu í varúðarskyni vegna tilkynn- inga um alvarlegar aukaverkanir, sem hefðu mögulega valdið að minnsta kosti einu dauðsfalli. Stjórn- völd í Noregi og á Íslandi fylgdu í kjölfar Dana. Ákvörðun Dana var byggð á til- kynningu um að blóðtappi hefði dreg- ið einn mann í Danmörku til dauða eftir að sá fékk bóluefnið, en Austur- ríkismenn ákváðu á mánudaginn að taka tímabundið úr umferð eina send- ingu frá AstraZeneca, eftir að 49 ára gamall hjúkrunarfræðingur fékk blóðtappa og lést. Bresk stjórnvöld sendu frá sér yfir- lýsingu um að bóluefni AstraZeneca, sem þróað var með aðstoð vísinda- manna við Oxford-háskóla, væri bæði öruggt og skilvirkt. Forsvarsmenn AstraZeneca vörðu einnig bóluefni sitt og sögðu það hafa farið í gegnum strangt ferli í prófunum. Evrópska lyfjastofnunin sagði í fyrradag að hún hefði engin tengsl fundið milli bóluefnis AstraZeneca og andláts austurrísku konunnar. Í síð- ustu viku höfðu verið tilkynnt 22 til- felli af blóðtöppum innan Evrópska efnahagssvæðisins, en rúmlega þrjár milljónir manna hafa þar fengið bólu- efni AstraZeneca, samkvæmt yfirlýs- ingu EMA. Byggt á „ofurvarfærni“ Stephen Evans, prófessor við London School of Hygiene and Tropi- cal Medicine, sagði við AFP-frétta- stofuna að ákvörðun Dana byggðist á „ofurvarfærni“ vegna örfárra tilkynn- inga. Sagði Evans að þegar allt væri skoðað væri áhættumatið enn bólu- efninu í hag. Danir munu endurskoða ákvörðun sína eftir tvær vikur, en hún þýðir að ekki verður búið að bólusetja alla full- orðna í Danmörku fyrr en um miðjan ágúst, en áður hafði verið stefnt á júlí. AFP Bóluefni EMA samþykkti bóluefni Johnson & Johnson í gær. Samþykktu fjórða bóluefnið - Evrópska lyfjastofnunin samþykkti í gær bóluefni Johnson & Johnson - Eitt ár liðið frá heimsfaraldri - Danir fresta tímabundið bólusetningu með AstraZeneca Að minnsta kosti níu manns voru skotnir til bana í mótmælum í Búrma í gær, og hafa nú rúmlega sextíu mótmælendur látið lífið í kjölfar valdaránsins í landinu. Sex hinna látnu voru við friðsamleg mótmæli í bænum Myaing þegar lögreglan hóf skothríð án nokkurs fyrirvara, og sögðu sjónarvottar að fimm þeirra hefðu verið skotnir í höfuðið. Herforingjastjórnin sakaði í gær Aung San Suu Kyi, leiðtoga rétt- kjörinna stjórnvalda, um að hafa stungið undan 600.000 bandaríkja- dölum, eða sem nemur um 76,75 milljónum króna, og um 11 kíló- grömmum af gulli. Suu Kyi, sem setið hefur í stofufangelsi frá upp- hafi valdaránsins, hefur þegar verið sökuð um ýmsa glæpi, þar á meðal að hafa átt ólöglegar labb-rabb-tal- stöðvar og brot á sóttvarnalögum. Herforingjarnir færðu ekki fram neinar sannanir fyrir ásökunum sín- um, en þær voru taldar svar við samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í fyrradag, þar sem her- foringjastjórnin var fordæmd fyrir að beita friðsama mótmælendur of- beldi, þar á meðal konur, ungmenni og börn. Zhang Jun, sendiherra Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði eftir samþykkt ráðsins að kominn væri tími til að draga úr spennu í landinu og tími til að hefja viðræður til að leysa ástandið. Mannréttindasamtökin Amnesty International sökuðu herforingjana í gær um að beita „orrustuvopnum“ á óbreytta borgara, þar á meðal léttum vélbyssum, hálfsjálfvirkum rifflum og rifflum sem leyniskyttur nota. Héldu samtökin því einnig fram að morð herforingjastjórnar- innar á mótmælendum væru framin að yfirlögðu ráði. Níu mótmælend- ur skotnir til bana - SÞ fordæmir herforingjastjórnina AFP Mótmæli Búddamunkar mótmæltu valdaráninu í Jangon í gær. Kínverska þingið samþykkti í gær viðamiklar breytingar á kosn- ingalöggjöf Hong Kong. Yfirvöld í borginni, sem að nafninu til á að njóta sjálfstjórnar, fá nú m.a. heim- ild til þess að stýra því hverjir geta boðið sig fram til löggjafarsam- kundu borgarinnar eða nefnd- arinnar sem velur héraðsstjóra borgarinnar. Á löggjöfin að tryggja að ein- ungis „föðurlandsvinir“ fái að stýra borginni, en kínverskir embættis- menn hafa sagt að hollusta við kommúnistaflokkinn sé þar talin efst á blaði. Gagnrýnendur óttast að nýja löggjöfin muni endanlega koma í veg fyrir lýðræðislega um- ræðu í Hong Kong. KÍNA AFP Hong Kong Xi Jinping Kínaforseti greiddi atkvæði með tillögunni. Fá heimild til að úti- loka frambjóðendur Vilhjálmur Bretaprins varði í gær bresku konungsfjöl- skylduna fyrir ásökunum um að hún hefði sýnt af sér kynþátta- hyggju í garð Meghan, her- togaynju af Suss- ex og eiginkonu Harrys, yngri bróður Vilhjálms. „Við erum mjög svo ekki rasísk fjöl- skylda,“ sagði Vilhjálmur, sem var þá í heimsókn í skóla sem börn af ýmsum kynþáttum stunda nám í, í fátækrahverfi í Austur-Lundúnum. Vilhjálmur er fyrstur í fjölskyld- unni til þess að tjá sig opinberlega um ásakanir Harrys og Meghan, og sagðist hann eiga eftir að ræða við Harry. BRETLAND Konungsfjölskyldan ekki rasísk í háttum Vilhjálmur Bretaprins Japanir minntust þess í gærmorgun að tíu ár voru þá liðin frá jarð- skjálftanum og flóðbylgjunni sem leiddi til Fukushima-slyssins. Var haldin mínútuþögn um allt Japan kl. 14:46 að staðartíma, 5:46 að íslenskum tíma, til að marka þá stund sem jarðskjálftinn, sem mældist 9 að stærð, skall á hinn 11. mars 2011. Aðstandendur minntust ástvina sinna og lögðu blóm á leiði þeirra. Um 18.500 manns dóu eða týnd- ust vegna flóðbylgjunnar sem kom í kjölfar skjálftans, en hún olli einnig bilun í kjarnorkuverinu í Fuku- shima, sem dreifði geislavirkum efnum um nærliggjandi bæi. Naruhito keisari sagði í sérstakri minningarathöfn að minning harm- leiksins væri enn sterk áratug síð- ar. Sagði hann að samhjálp þeirra sem lifðu af hefði hjálpað þeim að komast í gegnum ólýsanlegar hörmungar. AFP Áratugur liðinn frá Fukushima Fukushima Íbúi í bænum Namie í Fukushima-héraði leggur blóm á leiði dóttur sinnar, sem lést eftir flóðbylgjuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.