Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 16

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í gær var greintfrá því aðKomm- únistaflokkurinn í Kína hefði fengið þingið þar í landi til að samþykkja nýja löggjöf sem gerir endanlega út af við lýðræði í Hong Kong. Löggjöfin var samþykkt með 2.895 atkvæð- um gegn engu, sem sýnir við hverju íbúar Hong Kong mega búast af þingi sínu í framtíðinni, en meðal þess sem nýju lögin eiga að tryggja er að einungis „þjóðhollir“ Hong Kong-búar geti boðið sig fram til setu á þinginu þar. Fulltrúi utanríkis- ráðuneytis Kína skýrir „þjóð- hollustuna“ á þann veg að ekki sé verið að tala um einlitt þing, enda hafi kínversk stjórnvöld skilning á blandaðri menningu Hong Kong. „Þjóðhollustan“ þýði hins vegar að frambjóð- endur til þings Hong Kong verði að „elska Alþýðulýðveldið Kína eins og það er nú undir stjórn Kínverska kommúnistaflokks- ins“. Ekki þarf að koma á óvart að lýðræðissinnar hafi gagnrýnt löggjöfina harðlega, sem og alla framgöngu Kínverska komm- únistaflokksins í landinu, sem hefur látið handtaka mikinn fjölda stjórnarandstæðinga og í raun þegar afnumið það litla lýð- ræði sem eftir var í Hong Kong, meðal annars með því að fresta kosningum í fyrra. Ástæðan sem gefin var fyrir þeirri frestun var kórónuveirufaraldurinn, en hann hefur þó ekki hindr- að aðra starfsemi í Kína eða kosningar annars staðar. Íbúum Hong Kong var lofað því þegar Bretar létu Hong Kong af hendi til Kína árið 1997 að þeir fengju að búa við óbreytt stjórnarfar í hálfa öld. Það loforð entist innan við helming þess tíma. Þetta skýrir hörð viðbrögð lýðræðissinna, til að mynda Lo Kin-hei, formanns Lýðræðis- flokks Hong Kong, sem var handtekinn árið 2019 fyrir þátt- töku í óleyfilegri samkomu. Hann bendir á að nýju lögin séu það versta sem gerst hafi frá því að Hong Kong var afhent Kína og að það sem gerst hafi síðasta árið sýni að „stjórnvöld muni gera hvað sem þau vilja, hvenær sem þau vilja og hvernig sem þau vilja, á þann hátt sem hefði áður verið óhugsandi“. Gagnrýni hefur einnig borist að utan, meðal annars frá Bret- landi og Japan sem hafa lýst miklum áhyggjum af þróuninni, og sömuleiðis hafa borist fréttir af því að vaxandi efasemdir séu meðal erlendra fyrirtækja í Hong Kong og að sum þeirra hyggist færa starfsemi og starfs- fólk annað, til að mynda til Singapúr. Miklu skiptir að kínversk stjórnvöld finni fyrir slíkum við- brögðum þó að reynslan sýni að litlar líkur séu á að þau láti álit annarra hafa áhrif á sig í þessu efni. Þingið í Kína sam- þykkti með 2.895 atkvæðum gegn engu að gera þingið í Hong Kong óvirkt} Lýðræðið afnumið Rupert Murdochvarð níræður í gær. Það væri ekki að öðru jöfnu sér- stök frétt. En þessi blaðakóngur hefur lengi verið að og er enn að. En við vitum að „blaða- kóngar lengi hafa lýðinn frætt,“ enda heimildin „Tóta litla tindil- fætt“. Og útgefandinn gefur ekkert eftir hvar sem borið er niður. Þegar ríkisstjórnarhöfðingjar hér og hvar kveinka sér undan misnotkunaráráttu fjölmiðlarisa, sem tuddast áfram á grundvelli auðs, tækni og lagaskjóls fyrir nokkurri minnstu ábyrgð á fram- göngu sinni gera þeir ekkert með það. En þegar Murdoch ræskti sig lágt í kjölfarið fór samstundis um þá. Jafnvel úthaldsbesta goð rokksins þurfti að horfa á frauku sína flýja í náðarfaðm gamla brýnisins. Og afmælið í gær nýtti hann til að árétta að hann væri verkum hlaðinn og skaut því næst og ekki úr neinu launsátri á ólundarliðið sem prédikar að málfrelsi rísi áfram undir heilögu nafni sínu þótt einungis sé opið ofstæk- isfullu meinlokuliði og svo þeim sem beygja sig í ógeðfellt og mann- skemmandi duft þeirra. Murdoch braust undan oki verka- lýðshreyfinga sem þröngsýnar klíkur höfðu náð á sitt vald. Ákvörðun hans um að láta ekki kúgast tryggði tilveru- tíma fjölmiðla í áratugi. En þrátt fyrir hugrekki og afl hefði Mur- doch orðið undir hefði hann hefði ekki átt skjól af pilsfaldi Marg- aretar Thatcher, sem dugði betur en mörg skotheld vesti lög- reglusveita. Að vonum þótti honum lítið koma til árása léttadrengja í garð frúarinnar síðar og hafði smátt álit á Major eftirmanni hennar. Það réð úrslitum að Murdoch lét The Sun, sem var og er útbreitt mjög, kúvenda frá stuðningi við Íhaldsflokkinn og til Blair sem komst með myndarlegum sigri inn í númer 10 við Downing- stræti. Á hinn bóginn er ekki við- eigandi að að nefna hvernig Blair „verðlaunaði“ þennan pólitíska velgjörðarmann sinn síðar meir. En þá gilti hið sama og um Keikó, að það sagði meira um Blair en blaðakónginn. Á síðari tímum getur vart meiri áhrifa- manns í heimi fjöl- miðla en Murdoch} Önnum kafinn sem áður E kkert fer jafnmikið í taugarnar á bændum og að heyra að þeir lifi á ölmusum frá ríkinu. Neytendum finnst líka afleitt hve matarkarfan er dýr. Það er kominn tími á sátt. Á hverju ári renna um 30 milljarðar króna til landbúnaðar. Helmingurinn kemur beint frá ríkinu en hinn hlutinn er greiddur af neytendum í formi yfirverðs á landbúnaðarafurðum í skjóli tolla og innflutningskvóta. Halldór Blöndal lét meta þennan hluta af sérfræðingum meðan hann var landbúnaðarráðherra. Síðan hafa flest- ir viðurkennt þessa byrði neytenda af verndinni. Í nýlegri grein í Vísbendingu segir Sigurður Jóhannesson: „Gefum okkur líka að stuðn- ingnum sé einkum ætlað að styðja við byggð í sveitum, gamlan atvinnuveg og menningu. En ef þetta eru meginmarkmið landbúnaðarstefn- unnar má færa rök að því að fénu sé ekki vel varið.“ Bændur eru sannarlega ekki skúrkarnir í þessari sögu. Því miður hafa þeir oft verið óheppnir með talsmenn og forystu sem hefur talið að hún ætti fyrst og fremst að verja óhagkvæmt og úrelt kerfi. Nýlegur dómur um mis- notkun Mjólkursamsölunnar á markaðsráðandi stöðu er dæmi um þetta. Þrálátar deilur eru engum til góðs og löngu kominn tími til að slíðra sverðin og finna hagkvæma lausn fyrir bæði bændur og neytendur. Hagstofa Íslands sýnir afkomu sauðfjárbúskapar, sem líklegast er þjóðlegasta búgreinin. Um helmingur sauð- fjárræktenda er með minna en 200 kindur. Árin 2017-18 töpuðu þessir aðilar 3-400 milljónum hvort ár. Skuldir þeirra voru nálægt þremur og hálfum milljarði króna. Þær skuldir verða ekki greiddar af slík- um rekstri. Stærri búin voru þó réttum megin við strikið í afkomu en skuldir miklar og eigið fé lítið. Vill stór hluti þjóðarinnar samt ekki einmitt styrkja þennan þjóðlega rekstur? Fólki finnst notalegt að sjá kindur flæða um hálendið og naga grasbörð. Margir borga glaðir fyrir þann lúxus. En hvert renna peningarnir? Sigurður segir: „Stór hluti fjárins rennur til íslenskra fram- leiðenda eggja, kjúklinga og svínakjöts. Þeir geta sett upp hátt verð í skjóli hárra tolla á þessum vörum. Á árunum 2017-2019 var fram- lag neytenda vegna þessa yfir 70% af því sem bændur fengu fyrir kjúklinga og egg og rúmur helmingur af því sem bændur fengu fyrir svínakjöt. Kjúklinga-, eggja- og svínabú eru fá og minna meira á verksmiðjur en hefðbundinn búskap. Þau breyta litlu um byggð í sveitum. Tilvera þeirra réttlætir tæpast milljarðastuðning.“ Með beingreiðslum til þeirra sem stunda alvörubúskap má fella niður tolla og innflutningskvóta og greiða sam- bærilega fjárhæð beint til bændanna. Þá batnar hagur beggja, neytenda og bænda. Ríkið gæti jafnvel greitt upp skuldir allra sauðfjárbænda gegn hagræðingu í greininni. Allt sem þarf er vilji og þor til þess að fórna óhagkvæmu kerfi. Benedikt Jóhannesson Pistill Hættum að niðurlægja bændur Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is É g skil ekkert í þessu, næ ekki upp í það hvaða rugl þetta er í þessu hyski. Þetta er ekki þjófnaður, þetta er rán. Munurinn á þjófi og ræningja er sá að ræninginn kemur á daginn en þjófurinn um nóttina,“ seg- ir Pétur Guðmundsson, aðaleigandi jarðarinnar Ófeigsfjarðar á Strönd- um norður, um kröfu ríkisins um að meginhluti Ófeigsfjarðarheiðar og þar með upptökusvæði alls vatns til fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar verði úrskurðaður þjóðlenda. Óbyggðanefnd ákvað á síðasta ári að taka til meðferðar tiltekin af- mörkuð svæði í landshlutum sem nefndin hefur áður úrskurðað um. Í þeim málum háttaði svo til að ríkið hafði ekki gert kröfur um að umrædd lönd og landskikar yrðu úrskurðuð þjóðlendur en óbyggðanefnd vakið athygli á að óvissa kynni að ríkja um eignarhald. Hins vegar er óbyggða- nefnd ekki heimilt, samkvæmt dóm- um Hæstaréttar, að úrskurða um svæði sem ríkið hefur ekki gert kröfu til. Með breytingum á þjóðlendu- lögum var nefndinni heimilt að fjalla um þessi mál að nýju. Ríkið gerði kröfu um öll þau lönd sem óbyggðanefnd hafi á sínum tíma gert athugasemdir við. Þau voru upphaflega sautján en mörg hafa verið sameinuð og eru nú níu talsins. Nú hefur óbyggðanefnd kallað eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta. Jarðamerkjabréf sögð óljós Langstærsta landsvæðið er austan og sunnan Drangajökuls. Gengið er út frá því að svæðið næst sjónum verði talið eignarland jarðanna en heiðarlöndin upp til jök- uls og sunnan við jökul verði úr- skurðuð þjóðlenda. Fullyrt er að landamerkjabréf jarðanna séu að nokkru leyti óljós hvað varðar landa- merki gagnvart jöklinum og heiðinni austan og sunnan hans. Auk þess bendi gróðurfar til þess að stærsti hluti kröfusvæðisins sé utan eign- arlanda. Pétur frá Ófeigsfirði hyggst taka til varna. „Við eigum þangað sem vötnum hallar. Við gerðum at- hugasemdir við að okkar hluti af Drangajökli væri þjóðlenda en sætt- umst á að þeir dæmdu málið þannig. „Ég skil ekki þetta kjaftæði um þjóð- lendu og þjóðgarðinn. Þetta er ein- hver almesta vitleysa sem nokkrum manni hefur dottið í hug.“ Telur Pétur greinilegt að til- gangurinn með málinu sé að koma í veg fyrir virkjun Hvalár. Það sé hugsunin hjá þessu liði að stoppa allt, sama hvort það séu atvinnuvegir, samgöngur eða annað sem snerti Vestfirðina. Hvetur hann fólkið frek- ar til að fá sér almennilega vinnu en að standa í þessu. Segir Pétur að kröfugerð um þjóðlendu breyti ekki miklu fyrir eigendur jarðarinnar. Þeir séu sjálfbærir. Það breyti hins vegar töluverðu fyrir Vestfirðinga ef komið verður í veg fyrir virkjun Hvalár. Deilur hafa staðið um Hvalár- virkjun. HS Orka setti undirbúning hennar tímabundið á ís á síðasta ári og voru markaðsaðstæður til- greindar sem ástæða. „Þetta er ekki þjófn- aður – þetta er rán“ Hv alá H va lá Krafa ríkisins um þjóðlendumörk Ríkið gerir kröfu um svæði austan og sunnan Drangajökuls Mörk þjóðlendu skv. úrskurði óbyggða- nefndar 2019 Krafa ríkisins um þjóðlendu 2021 Óbyggðanefnd er langt komin með verkefni sitt en það er að úrskurða um það hvort lönd teljist eignarlönd eða þjóð- lendur. Nefndin er nú að fjalla um kröfur ríkisins um þjóð- lendur í Ísafjarðarsýslum, auk svæðanna sem sagt er frá hér til hliðar. Málsmeðferð er ekki hafin á tveimur landsvæðum, annars vegar á Austfjörðum og hins vegar á eyjum og skerjum í kringum landið. Reiknað er með að þau verði tekin til meðferðar á þessu ári og úrskurðir verði kveðnir upp á næstu tveimur til þremur árum. Tvö svæði alveg eftir STÖRF ÓBYGGÐANEFNDAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.