Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 17

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Það kann að vera óralangur vegur frá fjármálum til heil- brigðismála. Ekki dettur nokkrum sjúk- um manni í hug að leita sér lækninga hjá manni eða konu menntuðum í fjár- málum. Það er frekar að fólk í vandræðum með fjármál leiti til lækna til að fá ráð í fjármálum. Ekki er víst að það séu hollráð, læknar og heilbrigð- isstarfsfólk eru hlutfallslega fær- ari í að laga mannanna mein en sálarmein fjármálanna. Tenging heilbrigði og fjármála er augljósust í kostnaði og ábata af aðgerðum eða lyfjagjöf. Heilbrigðissýn almennings Það vakti athygli fyrir nokkrum árum að ríkisstjórnin fékk á sig áskorun í almennri undir- skriftasöfnun, að útgjöld til heilbrigðismála skyldu verða 13% af landsframleiðslu. Sennilega eru útgjöld til heilbrigðismála sem næst 10-11% af landsframleiðslu. Í þessari undirskriftasöfnun var það ekki útskýrt á hvern veg auknum útgjöldum skyldi ráð- stafað og þaðan af síður vissi megnið af þeim sem skrifuðu undir þessa áskorun hvar aukinna fjár- veitinga væri þörf. Áskorunin var í raun sjúkdómavæðing heillar þjóð- ar. Slíkt er alls ekki sjálfbært. Það má auka útgjöld til heil- brigðismála á ýmsa vegu. Því má ætlast til þess, þegar gerð er krafa um aukin útgjöld, að jafnframt sé gerð grein fyrir þeim ávinningi sem skal ná fram. Það að auka útgjöld til heil- brigðismála til þess eins að bæta launa- kjör heilbrigðis- starfsfólks eykur ekki velferð skjól- stæðinga heilbrigð- iskerfisins. Ef það er markmið í sjálfu sér að auka útgjöld til heilbrigðismála, þá er rétt að gera sér grein fyrir þeim markmiðum sem að er stefnt til að auka velferð notenda heil- brigðisþjónustu. En heilbrigðismál gera huga minn sem ferð villts manns á þokuslungnu fjalli. Hvernig vegnar með mikil útgjöld Þau 17% útgjalda af landsfram- leiðslu sem varið er til heilbrigðis- mála í Bandaríkjunum skila af sér í þríþættu heilbrigðiskerfi; einu versta heilbrigðiskerfi í iðnvæddu land, einu dýrasta heilbrigðiskerfi í iðnvæddu landi og ef til vill við- unandi heilbrigðiskerfi fyrir her- menn og þá sem látið hafa af her- þjónustu. Eftir stendur að vera kann að þau sjúkrahús, sem þjóna dýrasta hluta kerfisins, séu meðal bestu sjúkrahúsa í heimi og jafnframt með öflugustu rannsóknarsjúkra- húsum í heimi. Það vill stundum gleymast í umræðu um heilbrigð- ismál að tilgangurinn með rekstri heilbrigðisstofnana er ekki aðeins að auka velferð í nútíð, heldur einnig og ekki síður að auka vel- ferð í framtíð. Rannsóknir í heilbrigði Tilgangurinn með rannsóknum á heilbrigðissviði er að auka velferð mannkyns en alls ekki að auka álit og viðurkenningu þeirra sem rann- sóknirnar stunda. Ég minnist rannsóknar á legu- tíma á Kleppsspítala á tveimur tímabilum. Tilgangur rannsókn- arinnar var að kanna áhrif nýrra lyfja, sem komu fram eftir 1960. Íslenskir læknar veittu sjúklingum aðgang að þessum lyfjum þegar þau komu fram. Samkvæmt athug- un á legutíma voru áhrifin ótvíræð og læknar töldu að velferð sjúk- linganna hefði aukist í samræmi við legutímann. Á sama veg má huga að stöðu þeirra sem fengu „blæðandi maga- sár“. Á uppvaxtarárum mínum var slíkt meira áfall fyrir þann sem fyrir varð en tárum tók. Ný lyf hafa komið til og bætt velferð. Það er einfalt að leggja mat á kostnað og ábata af lyfjameðferð. Einföld tenging fjármála og heilbrigð- ismála. Hjá þeirri kynslóð, sem kom á undan mér, voru kransæða- sjúkdómar faraldur. Það er mjög líklegt að beytt mataræði, hreyf- ing og lífsstíll, og síðast en ekki síst leit og meðferð við of háum blóðþrýstingi, hafi valdið straum- hvörfum, og aukinni velferð. Sennilega hefur rannsókn- arstarfsemi Hjartaverndar lagt eitthvað af mörkum til aukinna lífsgæða. Þá hefur Íslensk erfðagreining aukið velferð þjóðarinnar, fyrir fleiri en stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins í efnislegum gæðum. Klúður Það er þyngra en tárum taki að sjá hvernig starfsemi leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins hefur fjar- að út og ekkert tekið við, að sinni. Prófessor Níels Dungal er sennilega meðal fyrstu manna til að vekja athygli á sambandi reyk- inga og lungnakrabba. Með stofn- un Krabbameinsfélagsins var lagður grunnur að skrásetningu krabbameina þannig að hægt væri að leggja mat á árangur með- ferðar við þeim. Með krabbameinsskrá er í raun hægt að leggja mat á kostnað og ábata af forvirkum rannsóknum í heilbrigðismálum Það hefur mikið verið rætt og ritað um „fullveldi“. Í huga þess, er þetta ritar, felst fullveldi meðal annars í því að þjóð geti veitt sér grunnþjónustu í heilbrigðismálum og veitt þjónustu á sviði heilbrigðismála með þeim hætti að ekki þurfi að sækja einfalda þjón- ustu yfir landamæri. Fullveldi og heilbrigði Leit og skimun að frumubreyt- ingum í leghálsi kvenna er meðal fyrstu forvirku rannsókna á heil- brigðissviði. Skipuleg leit að brjóstakrabbameini fylgdi í kjölfar leghálsskimunar. Árangur er vel mælanlegur með krabbameins- skránni. Sambandsleysi og klúður hefur leitt til þess að úrvinnsla þessarar leitar og rannsóknir eru færðar til útlanda þegar háværar raddir heyrast um „fullveldi“. Það er óþarfi að hafa minni- máttarkennd í heilbrigðismálum. Tilkoma opinna hjartaaðgerða hér á landi og árangur þeirra er ekki til að þegja um. Opnar hjartaað- gerðir á Íslandi voru fullveld- isþáttur. Það má jafnvel reikna út ábatann af fullveldinu í hjartaað- gerðum. Annað klúður í uppsiglingu Það er óþarfi að stofnanavæða alla heilbrigðisþjónustu. Verulegur hluti heilbrigðisþjónustu getur far- ið fram utan stofnana. Það eru ein- ungis alvarleg tilfelli sem þarfnast aðgerða sem þurfa að fara fram á sjúkrahúsum. Svo virðist sem það sé opinber stefna í framkvæmd að hætta að kaupa þjónustu af sjálfstætt starf- andi sérfræðingum. Í ljósi þess að við búum við opinbert sjúkratryggingakerfi er nauðsynlegt að til sé þekking til kaupa á heilbrigðisþjónustu. Ef slík þekking er ekki til hjá kaup- anda þjónustunnar, þá hlýtur að liggja í augum uppi að kaupand- inn, ríkið, þarf að afla þekkingar til kaupa á þessari þjónustu. Í kommúnistaríkjum þykja bið- raðir sjálfsagðir hlutir. Á Íslandi þykja biðraðir í heilbrigðisþjón- ustu alveg sjálfsagður og nauðsyn- legur hlutur. Biðraðir eru vond tæki til að koma í veg fyrir of- lækningar. Í biðröðum er horft fram hjá kostnaði af kvölum í bið- tíma. Hugsjón Því ef hugsjónin er ekki líf og lífið er ekki hugsjón, hvað er þá hugsjónin? Og hvað er þá lífið? Heilbrigðismál eru hugsun um líf- ið. Það þarf að horfa á heilbrigð- ismál af djörfum hug en ekki með því hugarfari að bæla eigi niður óþarfa vanda. Bælingin er vand- inn! Eftir Vilhjálm Bjarnason » Tilkoma opinna hjartaaðgerða hér á landi og árangur þeirra er ekki til að þegja um. Opnar hjartaaðgerðir á Íslandi voru fullveldis- þáttur. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður og verður það aftur. Heilbrigði og fjármál Stundum færir lífið manni mjög erfiða andstæðinga. Það er eins og þeir séu algjörlega óstöðvandi. Þeir æða áfram á leið sinni að markmiðinu. Stráfella allt sem á vegi þeirra verður. Stundum er andstæðingurinn manneskja. Stundum sjúkdómur. Andstæð- ingurinn getur í raun verið hver sem er – og hvað sem er – jafnvel komið úr mjög óvæntri átt. Hann getur meira að segja verið svepp- ur, myglusveppur. Í stríði er mikilvægt að þekkja sjálfan sig. Og ekki síður and- stæðinginn. Myglusveppur er mjög erfiður andstæðingur. Hann er reyndar skaðlaus utandyra en innandyra getur hann verið afar hættulegur. Ef leki kemur að hí- býlum getur hann myndast á að- eins 24-48 klukkustundum – við rétt skilyrði. Og hann kann þá list að dreifa sér. Myglusveppurinn er vel vopn- um búinn. Hernaðarlistin felst í að skjóta gró og sveppahlutum út í loftið. Þetta eru efnavopn. Geta innihaldið sveppaeiturefni (e. mycotoxin) – sannkallaður „kill- er“, sem þú annaðhvort andar að þér eða einfaldlega snertir. Þá er trójuhesturinn kominn inn. Og þú ert orðinn veikur. En myglusveppurinn er ekki bara útbúinn baneitruðum efna- vopnum. Hann er líka mjög snjall. Það er nefnilega mjög erfitt að greina orsök slappleikans. Þannig nær hann að blekkja hvern lækn- inn á fætur öðrum. Tala nú ekki um foreldra sýktra barna. Svo getur liðið mjög langur tími þang- að til einkennin koma fram. Jafn- vel mörg ár. Og eitt er víst. Því lengri tíma sem þú eyðir með myglu- sveppi – því verra. Og ungum börnum er mest hætta búin. Samkvæmt íslensk- um lögum er skóla- skylda í grunnskólum Íslands. Ein- staklingum frá sex til 16 aldurs er skylt að sækja þá. Í fljótu bragði hef ég ekki fundið neitt um skólaskyldu myglu- sveppa í íslenskum lögum. Það kann þó að vera yf- irsjón af minni hálfu. Enda ekki löglærður. Kannski er það bara af einstökum áhuga sem myglu- sveppurinn mætir í grunnskóla landsins. Snilld hans er ekki til- viljun. Hann er námfús. Skoðum örfá dæmi um námsferilinn. Kópavogur – Kársnesskóli Í febrúar 2017 uppgötvast mikl- ar rakaskemmdir og mygla í Kársnesskóla í Kópavogi. Skólinn er rýmdur. Tvö hundruð nem- endur eru fluttir á brott. Starfs- fólk og nemendur hafa fundið fyr- ir óþægindum. Starfshópur er stofnaður til að fara yfir málið. Bæjaryfirvöld kaupa 20 fær- anlegar kennslustofur. Bæj- arstjórn Kópavogs fer úr bæj- arstjórnarsalnum til að hægt sé að nota hann undir kennslu. Í júní 2017 kemur fram tillaga frá starfshópnum. Lagt er til að skól- inn verði rifinn. Tillagan er sam- þykkt. Kópavogur – Álfhólsskóli Mars 2021. Mygla greinist í þaki byggingar Álfhólsskóla í Kópavogi. Tekin er ákvörðun um að loka alfarið einni álmu. Ekki hefur komið í ljós hvort myglan hafi náð að hafa áhrif á loftgæði. En þessi ákvörðun er samt sem áður tekin með öryggi nemenda og starfsfólks að leið- arljósi. Stjórnendur vinna nú að endur- skipulagningu kennslu, sem augljós- lega raskast þegar loka þarf heilli álmu. Niðurstöður mælinga voru kynntar fyrir starfsfólki, stjórn foreldrafélagsins og skólaráði um leið og þær lágu fyrir. Bréf var sent á foreldra. Akranes – Grundaskóli Mars 2021. Rakaskemmdir koma í ljós. Tveimur þriðju af húsnæði lokað um leið og fyrstu niðurstöður liggja fyrir. Starf- semi dreift á sjö mismunandi staði í bæjarfélaginu. Að sögn skólastjóra er um flókið verkefni að ræða enda 800 manna vinnu- staður. Þess ber að geta að það er ekki komin endanleg niðurstaða um hvort það sé mygla í húsnæð- inu þegar þetta er skrifað. Í sjón- varpsfréttatíma RÚV var skóla- stjórinn spurður hvort ekki væri um að ræða fullróttækar aðgerð- ir. Um það segir skólastjórinn: „Það er betra að ganga lengra og bakka en að fara of skammt og sitja uppi með eitthvað verra.“ Sá sem veit hvenær hann getur barist og hvenær ekki verður sig- ursæll. (Höf. Sun Tzu) Reykjavík – Fossvogsskóli Mars 2019. Fyrstu fréttir í fjöl- miðlum um raka og myglu í Foss- vogsskóla. Gamlir nemendur og kennarar tala þó um að byggingin hafi lekið í langan tíma – jafnvel frá upphafi. Það er þó í hrópandi mótsögn við stjörnugjöf Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) sem hefur ávallt gefið Fossvogsskóla fimm stjörnur af fimm mögulegum – fyrir loftgæði. Reykjavíkurborg hræðist ekki myglusvepp. Telur meintan and- stæðing ofmetinn. Honum er mætt af hörku. Reykjavíkurborg pissar ekki í sig af hræðslu eins og nágrannasveitarfélögin. Enda er hún miklu stærri. Og er auk þess borg. Reykjavíkurborg ræðst til at- lögu gegn myglusveppnum. Fer í endurbætur. Fimm hundruð milljónir og málið er dautt. HER mun stimpla allt í bak og fyrir. Enda geta þeir ekki verið að skoða allt. Skólinn er svo stór. HER er auk þess að glíma við al- vöruandstæðinga. Eins og Fiski- kónginn. Hann skal ekki fá að selja hákarl. Það verður einhver annar að gæta hagsmuna barnanna í Fossvogsskóla. Desember 2020. Minnisblað frá Verkís. Náttúrufræðistofnun Ís- lands (NÍ) er búin að greina sýn- in sem voru tekin nokkrum vikum fyrr. Helvítis foreldrarnir (og börnin) í Fossvogsskóla höfðu rétt fyrir sér. Það er allt vaðandi í þessum baneitraða eiturefnafram- leiðanda. Meira að segja kon- ungur myglusveppanna er mætt- ur, Aspergillus versicolor, sem framleiðir meðal annars „ákaflega krabbameinsvaldandi efni“ svo notuð séu orð NÍ. Ég held að hann sé hættulegri en Fiskikóng- urinn, svei mér þá. Mars 2021. Fossvogsskóli er opinn alla virka daga. Myglu- sveppurinn fær að að njóta vaf- ans. Með öryggi myglusveppsins að leiðarljósi er skólanum haldið opnum. Græna byltingin í al- gleymingi. Og það er ekki eins og börnin hafi gleymst. Það er búið að funda um málið. Og skipa nefnd. Eða voru það tvær nefnd- ir? Eldur, eldur Í gær fékk ég tölvupóst frá skólastjórnendum Fossvogsskóla. Föstudaginn 12. mars verður brunaæfing í Fossvogsskóla. Ég mun fylgjast spenntur með. Þeg- ar eldur kemur upp í skólanum er mikilvægt að allir haldi ró sinni. Og harki af sér. Við leyfum brenndu barni ekki að forðast eld- inn. Enginn fer út fyrr en vanda- málið hefur verið greint. Og búið að funda um málið. Eldur er auð- vitað ekki sama og eldur. Það þarf að taka sýni. Hugsanlega þarf að bæta eldvarnir. Alla vega óþarfi að að fara í taugum inni í miðju eldhafinu. Það verður hægt að hleypa börnunum út í sumar. Þegar skólinn er búinn. Eftir 88 daga. Af menntun og myglusveppum Eftir Magnús Pálma Örnólfsson »Myglusveppurinn er vel vopnum búinn. Hernaðarlistin felst í að skjóta gró og sveppa- hlutum út í loftið. Þetta eru efnavopn. Magnús Pálmi Örnólfsson Höfundur á barn í Fossvogsskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.