Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
✝
Þóra Svav-
arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 2.
febrúar 1958, hún
var dóttir hjónanna
Svavars S. Magn-
ússonar, f. 3. febrúar
1936, d. 13. júní
2017, og Emilíu Júl-
íu Kjartansdóttur, f.
1. júlí 1937. Tvíbura-
systir Þóru, Þórunn
S. Andersson, lést
27. október 2014 en eiginmaður
hennar er Anders Andersson, f.
19. maí 1956 í Svíþjóð. Þóra lést á
hjúkrunarheimili í Landskrona,
Svíþjóð, eftir um fjögurra ára
baráttu við heilabilun í kjölfar
blóðtappa í heila.
Sambýlismaður og barnsfaðir
Þóru er Göran Aronson, f. 7. apr-
íl 1953, og börn þeirra eru: 1) Jón
Svavar, f. 31. ágúst 1985, kona
hans er Emelie Lekenholt, Jón
Svavar á börnin: a) Emil b)
Naomi, saman eiga þau c) Eillie
d) Xander, fyrir á Emelie L. 2
börn. 2) Jenný Alexandra, f. 5.
mars 1990, sambýlismaður henn-
ar er Johan Cedergren, f. 5. júlí
1983, börn þeirra eru: a) Loke, b)
Saga Þórunn. Bræður Þóru og
Þórunnar eru: a) Jón Svavarsson,
f. 3. ágúst 1956, kona hans er
Ólöf Bára Sæmundsdóttir, f. 26.
nóvember 1959, börn þeirra: 1)
Sæmundur Þór, f. 1. febrúar
1979, kvæntur Ingu Birnu Ólafs-
dóttur, f. 24. janúar 1979 og eru
börn þeirra Ólafur Már, Sóley
Rós, Ólöf Birta og Aron Ingi. 2)
Erla Júlía, f. 7. nóvember 1985,
maður hennar er
Davíð Þor-
steinsson, f. 26.
febrúar 1981 og
eiga þau Jóhann
Otta og Emmu
Guðrúnu. 3) Árni
Snær, f. 7. október
1992. b) Kjartan
Svavarsson Magn-
usson, f. 14. júní
1967, kona hans er
Anette Magnusson,
f. 17. október 1968 í Svíþjóð, dæt-
ur þeirra eru: 1) Emelie Magn-
usson, f. 24. janúar 1991, maður
hennar er Anton Person og börn
þeirra: Louie, fæddur andvana,
tvíburastrákarnir Mio og Noel. 2)
Nathalie Magnusson, f. 24. maí
1993, og á hún dótturina Lovu
Sögu.
Þóra og Þórunn sóttu nám í
Hvassaleitisskóla og að loknu
gagnfræðaprófi fór Þóra í nám í
Póstskólanum hjá Pósti og síma
og starfaði hjá póstþjónustunni í
framhaldi þar til hún flutti til
Svíþjóðar 1977 með foreldrum
og þremur af fjórum systkinum. Í
Svíþjóð hóf hún störf hjá Póst-
inum í Landskrona, síðar sótti
hún sér frekara nám í fé-
lagsráðgjöf og starfaði hjá Inn-
flytjendastofnun Svíþjóðar, þar
til hún lét af störfum vegna
heilsubrests fyrir um fjórum ár-
um.
Þóra var búsett í Asmund-
storp í Landskrona. Útförin fer
fram frá kirkjunni í Asmund-
storp í dag, 12. mars 2021, klukk-
an 11.
Þegar móðir mín kom heim af
fæðingardeildinni með tvíbura-
systur mínar og þær lágu sofandi
í vöggunni sinni og gestir komu
til að sjá þær, þá sagði ég rogginn
eins og hálfs árs gamall „detta er
systir mín og detta er bróðir
minn“ því mér þótti það sjálfsagt
að fá eitt af hvoru. Árin liðu og
þær fóru að hlaupa um og gerðu
ásamt vinkonum sínum ýmis
prakkarastrik. Við fjölskyldan
fluttum svo í stærri íbúð í Skála-
gerði og þar kynntust þær jafn-
öldru sinni henni Þóru Sigur-
þórsdóttur og urðu hjá þeim
mörg ævintýrin. Áttu þær til að
fara í leiðangra til að skoða heim-
inn og oftar en ekki komu þær
heim í lögreglubíl, sem hafði þá
fundið þær fjarri heimili sínum
og í eitt skipti kom að þeim lög-
reglubíll og spurði lögreglumað-
urinn hvert þær væru að fara og
hvað þær hétu, svar kom að
vörmu og svaraði ein fyrir þær
allar; Þóra, Þórunn og Þóra, jæja
sagði löggimann frekar tortrygg-
inn og dreif þær inn í bílinn og
fann síðar út hvar þær ættu
heima, því Eyjólfur frændi og
sundkappi var í lögreglunni og
svaraði hinum í talstöðina að
hann kannaðist við hnáturnar.
Tíminn leið og þær uxu úr
grasi en alla tíð var fólk og vanda-
menn í vandræðum með að
þekkja þær í sundur en ekki ég
og mamma, við vissum alltaf hvor
væri hvað, meira að segja pabbi
var ekki alltaf með það á hreinu.
Þær sóttu nám í Hvassaleitis-
skóla og eiga þaðan miklar minn-
ingar og mörg vinaböndin, þrátt
fyrir að hafa flutt til Svíþjóðar
1977 og eru vinum og vinkonum
þeirra þökkuð tryggðarböndin öll
þessi ár. Þær systur komu hér
síðast til landsins 2013 þegar ár-
gangur þeirra í Hvassaleiti hélt
endurfundasamkomu og mátti
sjá á hópnum að þau höfðu engu
gleymt og jafnvel nánast ekkert
elst. Áður en þær fluttust til Sví-
þjóðar hafði Þóra lokið námi við
Póstskólann sem rekinn var af
Pósti og síma, Þóra og móðir mín
gengu báðar þessa menntabraut
og unnu á póstinum allt þar til
þær fluttust til Svíaríkis. Þar tók
við þeim nám í sænsku í þrjá
mánuði og að því loknu hófu þær
störf hjá sænsku póstþjónust-
unni. Þóra vann við póstútburð á
eyjunni Ven á Eyrarsundi og
hafði þar skellinöðru til að kom-
ast um en einn daginn varð hún
fyrir óhappi og í því slysi við-
beinsbrotnaði hún, sem olli henni
óþægindum til æviloka. Þóru var
mikill missir er Þórunn féll frá
eftir að hafa glímt við krabba-
mein í um sjö mánuði og rösku ári
síðar fékk Þóra blóðtappa í fram-
heila sem olli henni heilabilun
sem ágerðist upp frá því en núna
tvö síðustu árin hefur hún ekkert
getað tjáð sig, hvorki með tali né
riti. Síðasta árið hefur verið
henni og okkur fjölskyldunni
mjög erfitt og við ekki getað
heimsótt hana vegna heimsókn-
arbanns í Covid-19-ástandinu.
Það er móður okkar mikill missir
að sjá á bak báðum dætrum sín-
um og eiginmanni á innan við sex
árum. Litli bróðir, Kjartan, býr í
nágrenni við móður okkar og
annast hana frábærlega. Við fjöl-
skyldan viljum þakka vinar- og
hlýhug við andlát Þóru.
Jón Svavarsson.
Þóra Svavarsdóttirokkur að lífið tæki oft fast á þeimsem færu inn á þessar brautir, til
að fægja og þroska bæði per-
sónuleika og andlega hæfileika
miðilsefnanna, og það er óhætt
að segja að lífið hafi oft tekið fast
á Garðari vini mínum. En aldrei
kveinkaði hann sér eða sýndi
uppgjöf á neinu sviði, og var allt-
af tilbúinn að hlusta á og leið-
beina þeim sem leituðu til hans.
Ég bar alltaf, og ber enn,
mikla virðingu fyrir Garðari og
fannst alltaf mikið til hans koma.
Hann var stór persónuleiki og
ætlaði sér stóra hluti í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur. Og
hann gerði það. Það sem hann
framkvæmdi og áorkaði í andleg-
um málum á Íslandi voru ekki
fótspor neins meðalmanns. Og
eins og ég trúi öllu því sem hann
leiðbeindi og fræddi mig og svo
ótalmarga aðra um andleg mál,
þá trúi ég því líka að maður eins
og Garðar Jónsson fái ekki að
sitja lengi verkefnalaus í Sumar-
landinu. Satt að segja vonast ég
til að hitta þig sem fyrst aftur
Garðar minn, því ég efast um að
landamæri lífs og dauða muni
standa mikið í vegi fyrir þér.
Vertu sæll í bili vinur minn, og
ég vona að framhaldslífið taki þig
blíðari tökum en lífið gerði.
Ég vil votta fjölskyldu Garð-
ars mína dýpstu samúð, ég veit
að við söknum mest þeirra sem
fara of snemma.
Sigurður Bjarnason.
Elskulegur vinur og félagi er
fallinn frá, svo alltof, allt of fljótt.
Ég skil ekkert í almættinu að
kalla hann til sín frá hálfnuðu
verki. En það þýðir víst ekkert
að deila við Guð almáttugan,
heldur taka því sem að manni er
rétt og biðja um styrk í gegnum
það.
Kynni okkar Garðars miðils
og samstarf hófst fyrir um þrjá-
tíu árum. Það byrjaði með því að
sest var saman í hring með góðu
og traustu fólki sem hafði það að
markmiði að þjálfa ungan upp-
rennandi miðil, sem óx og þrosk-
aðist eftir því sem árin liðu. Eftir
margra ára þjálfun í hring var
farið af stað út fyrir þæginda-
rammann og tekist á við verkefn-
ið.
Að fara af stað og treysta sín-
um andlegu leiðbeinendum og
stjórnendum er mesti og besti
skólinn. Hans aðal, og besti sitj-
ari, stjórnandi hringstarfsins,
Sigurbjörn (Bjössi) fór víða um
land með Garðari, stjórnaði
fundum og hélt utan um hann og
var hans hald og traust fyrstu ár-
in. Þetta þróaðist allt með mikilli
vinnu, reynslunni og árunum.
Þeir eru óteljandi transfundirnir
sem haldnir hafa verið til að leið-
beina, hugga og hjálpa fólki.
Fræðslunámskeiðin sem haldin
voru til að fræðast um heiminn
hinum megin og allt þar á milli, á
heimili Guðrúnar í Mosó sem sá
um allt utanumhald af mikilli al-
úð, voru eftirsótt og rómuð fyrir
kærleika og hlýju.
Fræðslan og transmiðilsstarf-
ið hans var svo dýrmætt og gert
af svo miklum heilindum og kær-
leika að eftir var tekið.
Enda var eftirspurnin mikil að
komast á alla fundi og námskeið.
Læknamiðlunin var einn af
sterkum þáttum í starfi hans og
ófáar beiðnir og fyrirbænir sem
voru sendar og beðið um hjálp
sem var alltaf sjálfsagt mál að
liðsinna um eins og hægt var.
Garðar miðlaði einnig og kenndi
OPJ, Orkupunktajöfnun/ar-
tæknina, sem er heildræn með-
ferð til hjálpar fólki. OPJ-nám-
skeiðin voru haldin í Liljuhúsinu,
í samstarfi við Pálu sem sá um
allt utanumhald. Var sú sam-
vinna og umhyggja kærleiksrík
og góð, sem skilaði sér til nem-
endanna. Þessi tækni hefur rutt
sér til rúms vegna þess hversu
beinskeytt hún er til hjálpar
fólki.
Garðar var afburða djúptrans-
og læknamiðill og einstakur
fræðari, ég legg hann að jöfnu
við þá þjóðkunnu menn, fyrir sín
störf, þá Hafstein Björnsson og
Einar Jónsson á Einarsstöðum,
slíkir voru hæfileikar hans og
störf.
Opna heima færa nær
dauðans leyndir rofin
vekja augu andans blær
upplokin hugar hofin.
Flett af hel og hugarsátt
lífið dauðinn gefur
ástvinur frá heimi hátt
umfaðma þig hefur
Man þá hvert þitt helgað mál
opinn faðmur, hjarta
Og tekur á móti hverri sál
frá landi himinn bjarta
(G.J.)
En allt hefur sitt upphaf og allt
hefur sinn endi.
Við hjónin héldum utan um
fundina hans hér og erum við af-
ar þakklát fyrir samstarfið sem
var á faglegum og traustum
grunni alla tíð.
Að hafa fengið að taka þátt í
þessari vegferð með þér, kæri
vinur, er okkur ómetanlegt.
Hafðu hjartans þakkir fyrir ynd-
islegt samstarf og allan velvilja
og hjálpsemi í okkar garð.
Guðs blessun fylgi þér og þínu
fólki.
Innilegar samúðarkveðjur til
barnanna hans, móður og ann-
arra ástvina.
Sigríður og Ásmundur,
Arkarlæk.
Opna heima færa nær
dauðans leyndin rofin
vekja augu andans blær
upplokin hugar hofin.
Flett af hel og hugarsátt
lífið dauðinn gefur
ástvinur frá heimi hátt
umfaðmað þig hefur.
Man þá hvert þitt helgað mál
opinn faðmur, hjarta.
Og tekur móti hverri sál
frá landi himinn bjarta.
(Garðar Jónsson)
Það er þyngra en tárum taki
að þurfa að kveðja góðan vin og
félaga í blóma lífsins. Garðar lést
á Sjúkrahúsi Akraness þann 1.
mars eftir stutta en snarpa bar-
áttu við krabbamein. Ég var svo
heppinn að kynnast Garðari fyrst
fyrir tæmum 40 árum þegar ég
og Herdís, systir hans, byrjuðum
okkar sambandsár. Við áttum
töluverða samleið bæði í leik og
starfi.
Hann stóð þétt við okkar hlið
og reyndist okkur einstaklega vel
jafnt í blíðu og stríðu. Það var
aðdáunarvert að fylgjast með því
hvernig hann tókst á við veikindi
sín með æðruleysi og stappaði
stálinu í okkur hin.
Mér auðnaðist sá heiður að fá
að vera honum við hlið þegar
hann kvaddi þennan heim.
Farðu í friði, minn kæri vinur,
ég mun ætíð minnast þín og
geyma minningu um góðan dreng
í hjarta mínu.
Þó að kali heitur hver
hylji dali og jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Þinn vinur og félagi,
Sigurgeir.
Ég hafði miklu ánægju af því
að vinna með og kynnast Garðari.
Hann var mjög trúr, áhugasamur
og skapandi persóna. Hann
hjálpaði mér gífurlega við að inn-
leiða og þróa EBS-hugsun (end-
urbóta- og krítíska hugsun) í
verksmiðjunni á Grundartanga
og fékk aðra til að hugsa um
hvernig hægt væri að betrum-
bæta þáverandi ástand.
Ég hugsa með hlýju til Garð-
ars og hef ávallt álitið hann mjög
góðan vin. Megi hann hvíla í friði.
Wayne Faaland, Noregi.
- Fleiri minningargreinar
um Garðar Jónsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
✝
Fannlaug
Svala Snæ-
björnsdóttir
fæddist á Rauf-
arhöfn 1. mars
1954. Hún lést á
heimili sínu, dval-
arheimilinu
Barmahlíð á
Reykhólum, 4.
mars síðastliðinn.
Foreldrar
hennar voru Snæ-
björn Einarsson, kennari frá
Raufarhöfn, f. að Garði í Þist-
ilfirði 25. október 1902, d. 22.
október 1982, og Erika Anna
Stakalies Einarsson, f. í Aust-
ur-Prússlandi 18. ágúst 1923,
d. 10.11. 2009.
Systkini Fannlaugar eru: 1)
Ingvar Guðmundur múrari, f.
24.6. 1951, maki Ingigerður
Guðmundsdóttir, f. 17.7.
1954. Börn þeirra eru a) Guð-
mundur, f. 18.5. 1975, b) Snæ-
björn, f. 26.8. 1978, c) Eva
Lind, f. 8.12. 1985. Fyrir átti
Ingigerður Ástu Björk, f.
1.10. 1971, 2) Einar Friðrik,
iðnverkamaður, f. 25.3. 1953,
d. 18.5. 2018, maki Ólafía
Agnarsdóttir, f. 1.4. 1960.
Börn þeirra eru a) Þórarinn
Jóhann, f. 14.2. 1979, b) Ei-
ríkur Snæbjörn, f. 19.7. 1981,
c) Jóhanna, f. 18.11. 1991. 3)
Guðjón Sigurður
múrarameistari, f.
27.4. 1955, maki
Soffía Björns-
dóttir bókari, f.
18.3. 1956. Börn
þeirra eru a) Elín
Anna, f. 3.5. 1974.
b) Björn, f. 28.7.
1979. c) Hrafn-
hildur, f. 18.10.
1983. d) Helga
Soffía, f. 20.6.
1990. 4) Snæbjörn, f. 7.5.
1958, d. 10.8. 1965.
Fannlaug var fædd og upp-
alin á Raufarhöfn. Þar lauk
hún grunnskólagöngu og
stundaði svo nám við Kvenna-
skólann á Blönduósi 1971-
1972. Það sama ár flutti hún
ásamt foreldrum sínum til
Hafnarfjarðar. Hún vann í
Kaupfélaginu í Norðurbæ
Hafnarfjarðar þar til hún
veiktist árið 1979. Árið 1997
flutti hún á dvalarheimilið
Barmahlíð á Reykhólum þar
sem hún bjó til dánardags.
Útför Fannlaugar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag, 12. mars, klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana
verða aðeins nánustu ætt-
ingjar og vinir viðstaddir at-
höfnina. Streymt verður frá
athöfninni.
Í dag kveðjum við þig elsku
Lalla.
Nú þegar þú ert farin frá
okkur og hefur fengið hvíldina
löngu langar mig að þakka þér
fyrir þær yndislegu og dýr-
mætu minningar sem ég á um
okkur og held fast í.
Það var svo gott að koma í
pössun til þín og ömmu á
Hjallabrautinni, borða pönnu-
kökur og sitja í sjónvarps-
stólnum og horfa á teikni-
myndir og sápuóperur. Þegar
amma var að vinna og við vor-
um bara tvær gengum við
ávallt út í Kaupfélag þar sem
ég fékk að velja mér sælgæti
og svo gengum við oft í bóka-
búð Olivers Steins á Strand-
götunni þar sem ég fékk að
velja mér nýja litabók og liti.
Við vorum svo góðar vinkonur
og fyrir það er ég þakklát.
Mér þykir við hæfi að kveðja
þig í hinsta sinn með bæninni
sem þið amma kennduð mér
og við fórum með saman fyrir
svefninn þegar ég gisti hjá
ykkur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthól-
um)
Hvíldu í friði elsku frænka.
Þín
Hrafnhildur (Habbý).
Fannlaug Svala
Snæbjörnsdóttir
Ástkær dóttir og systir,
ÞÓRA KRISTÍN BÁRÐARDÓTTIR,
Norðurbakka 17b, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 6. mars á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut.
Útförin mun fara fram þegar ástandið í
þjóðfélaginu leyfir athöfn og erfidrykkju.
Tilkynnt verður um dagsetningu útfarar síðar.
Kistulagning og bálför fara fram þriðjudaginn 16. mars klukkan
13:30 í Fossvogskapellu. Nánir vinir og fjölskylda eru velkomin,
en í samráði við fjölskyldu vegna fjöldatakmarkana.
Við þökkum starfsfólki deildar 12 E og gjörgæsludeildar fyrir
samhygð og frábæra umönnun og þjónustu.
Bárður Sigurgeirsson Linda Björg Árnadóttir
Sigurgeir Bárðarson Harpa Björnsdóttir
Guðmundur Örn Bárðarson María Lind Baldursdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN ERLENDUR ÞÓRARINSSON
frá Húsavík,
lést 4. mars á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 15. mars klukkan 13.00. Vegna aðstæðna í
samfélaginu verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir en
útförinni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju – beinar útsendingar.
Aðalheiður Gunnarsdóttir
Margrét Stefánsdóttir Þorgeir Guðmundsson
Þórarinn Stefánsson
Ingibjörg María Stefánsd. Ragnar Sigurjónsson
Halla Stefánsdóttir
Guðmundur Jón Stefánsson Hulda Sigríður Jeppesen
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
SIGURÐUR JÓHANN RUI HELGASON,
er látinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
björgunarsveitina Ársæl á heimasíðunni
www.landsbjorg.is.
Anna María Sigurðardóttir
Helgi Jóhannesson Þórný Jónsdóttir
Anna Lucia Helgadóttir Jóhannes L.L. Helgason