Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 22

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 ✝ Kristín fæddist í Hafnarfirði 11. 4. 1945 og lést að heimili sínu þar í bæ 1. 3. 2021. Kristín var dóttir hjónanna Sólveigar Eyjólfsdóttur, hús- freyju og matráðs- konu, f. 25.2. 1908, d. 31.1. 2005, og Haraldar Þórð- arsonar skipstjóra, f. 30.9. 1893, d. 2.10. 1951. Al- bróðir Kristínar er Eyjólfur Þorbjörn læknir, f. 29.7. 1940, og hálfsystir samfeðra Þóra, f. 24.4. 1924, d. 11.7. 1982. Eyjólf- ur er kvæntur Guðbjörgu Eddu Eggertsdóttur, f. 1951, og þeirra synir Eggert, f. 1981, og Haraldur Sveinn, f. 1985, d. 2015. Kristín gekk í Flensborg- arskólann í Hafnarfirði og lærði að því loknu til meinatæknis og vann við það í nokkur ár, bæði hér á landi og erlendis. Síðar lærði hún til geislafræðings og lauk því námi 1976. Starfaði hún við það fag til starfsloka, einkum á Landspítalanum, en einnig um lengri og skemmri tíma á hinum Norðurlöndunum. Árið 1982 sérhæfði hún sig í CT-myndgreiningartækni og starfaði lengst af við það. Hún tók mikinn þátt í félagsstarf- semi geislafræðinga og var oft fulltrúi Íslands í norrænu sam- starfi geislafræðinga. Kristín hafði ávallt mikinn áhuga á tónlist, einkum söng, og starfaði í nokkur ár við Söngskólann í Reykjavík. Einnig starfaði hún við smink í Þjóðleikhúsinu á sínum yngri árum. Hún hafði góða söngrödd og var félagi í nokkr- um kórum, þ.m.t. Söngsveitinni Fílharmóníu, Óp- erukór Hafn- arfjarðar, Kvenna- kór Reykjavíkur, Senjórítunum o.fl. Fór hún í margar söngferðir til út- landa með þessum kórum. Kristín hafði einnig mikinn áhuga á ballett, gekk í List- dansskóla Þjóðleikhússins sem barn og unglingur, og stundaði einnig ballettæfingar á efri ár- um, auk þess sem hún sótti all- ar ballettsýningar sem hún komst á. Kristín hafði yndi af ferða- lögum og ferðaðist mjög víða, einkum í Evrópu, en einnig til Bandaríkjanna, Kanada, Kína, Nýja-Sjálands og Ástralíu, svo eitthvað sé nefnt. Kristín fæddi dóttur í Dan- mörku 31.7. 1967 sem var ætt- leidd af dönskum hjónum. Hlaut hún nafnið Rikke May. Kristín og Rikke hafa haldið sambandi síðustu 24 árin. Rikke á þrjá syni, Ask 18 ára, Þór 16 ára og Braga 13 ára. Þau búa í Danmörku. Kristín bjó með móður sinni á fæðingarstað sínum og æsku- heimili að Brekkugötu 5 í Hafn- arfirði fram yfir sjötugt, er hún keypti íbúð á Hjallabraut 33, þar sem vel fór um hana. Útför hennar var gerð í kyrrþey frá Hafnarfjarð- arkirkju 11. mars 2021 að ósk hinnar látnu. Ég kynntist Kristínu snemma árs 1981, þegar við Eyjólfur, bróðir hennar, hófum sambúð. Þær mæðgur Kristín og Sól- veig, mamma hennar, tóku mér afskaplega vel, og við Stína, eins og hún var yfirleitt kölluð í fjölskyldunni, urðum fljótt góð- ar vinkonur. Við áttum líka mörg sameig- inleg áhugamál, svo sem að elda góðan mat, tónlist og ferðalög. Upp frá þessum tíma eyddum við nánast öllum stórhátíðum saman. Stína tók strax við fæðingu þeirra ástfóstri við syni okkar Eggert og Harald Svein. Hún vildi taka þátt í uppeldi þeirra, einkum menningarlegu uppeldi. Hún fór því með þá á unga aldri í óperu og leikhús og föndraði með þeim fyrir jólin. Hún fylgdist alla tíð vel með því sem þeir tóku sér fyrir hendur. Stína var góður kokkur og auk þess meistari í að útbúa glæsilegar skreytingar. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig skreytingin átti að vera og lagði óhikað á sig að heimsækja margar verslanir til að finna réttu borðana og blóm- in. Hún bakaði og skreytti kransakökur fyrir öll meiri háttar tilefni í fjölskyldunni. Stína var vinmörg og rækt- aði vinskapinn vel gegnum árin. Þær voru ófáar veislurnar sem hún sá um fyrir vini sína. Einn- ig voru þær mæðgur duglegar að bjóða til sín gestum allan ársins hring, ekki síst á aðvent- unni. Stína hafði gaman af því að klæða sig upp fyrir hátíðleg til- efni og átti falleg föt og mikið af fögrum skartgripum. Hún var glæsileg kona og fagurkeri fram í fingurgóma. Fjölskyldan átti sumarbú- stað í Sléttuhlíð fyrir ofan Hafnarfjörð, sem pabbi Stínu hafði byggt sjálfur og flutt að- föngin á staðinn á hjóli. Þetta var og er mikill sælureitur, þar sem gaman var að dveljast saman. Hafði Stína alla tíð miklar taugar til þessa staðar og færði bústaðnum t.a.m. jólagjafir á hverju ári. Stína hafði yndi af ferðalög- um og naut þess einnig að vinna og búa erlendis um lengri og skemmri tíma. Þannig tók hún að sér störf í sínu fagi í Noregi, Danmörku og Svíþjóð og bjó þá í þessum löndum um nokkurra mánaða skeið í senn. Við þrjú ferðuð- umst einnig svolítið saman, og oft tengdust þau ferðalög tón- list. Þannig fórum við til Moskvu og sáum Svanavatnið í Bolshoi- leikhúsinu, við heimsóttum saman Wagner-hátíðina í Bay- reuth í Þýskalandi, auk þess sem hún var við útskrift Egg- erts í Ungverjalandi og Har- aldar Sveins í Hollandi. Loks kom hún með okkur til Nýja- Sjálands um jól og áramót 2014-2015. Stína undirbjó sig vel fyrir allar ferðir, kynnti sér sögu landanna og helstu áfangastaði. Við ferðuðumst líka töluvert saman hér innanlands og ber þar einna hæst þegar við þrjú stóðum saman í skálinni á Snæ- fellsjökli og virtum fyrir okkur landið og miðin. Stórkostleg stund. Stína fæddist á Brekkugötu 5 og bjó þar nánast alla tíð með mömmu sinni, þar til hún fór á hjúkrunarheimili árið 2000. Eftir það bjó Stína ein í húsinu, þar til hún flutti í hentugri íbúð á Hjallabraut 33 í árslok 2016. Fór vel um hana þar og naut hún samvista við aðra íbúa hússins. Síðustu árin var hún líka í dagvistun á Hrafnistu í Hafn- arfirði og líkaði það afskaplega vel. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir. Kristín Vilborg Haraldsdóttir ✝ Kristmann Kristmannsson fæddist á Ísafirði 24. desember 1939. Hann lést á Land- spítalanum 28. febr- úar 2021. Foreldrar hans voru Krist- mann G. Jónsson, f. 1. janúar 1906, d. 28. apríl 1961 og Björg Sigríður Jónsdóttir, f. 13. júlí 1911, d. 26. september 1995. Bræður Kristmanns eru Jón, f. 12. maí 1933, d. 22. desember 2013, Guðbjörn, f. 19. október 1935, d. 25. júní 2019 og Jens Sigurður, f. 14. febrúar 1941. Þann 30. nóvember 1963 3) Linda Kristín, f. 1965, maki hennar er Geir Þorsteinsson, börn Hólmfríður Sara og Guð- rún Silja, barnabarn Ísak Andri. 4) Kristmann, f. 1972, maki hans er Ásgerður Hildur Ingi- bergsdóttir, börn Andri Snær og Karlotta. Kristmann ólst upp á Ísafirði og bjó þar til ársins 2020 er hann flutti í Kópavog. Hann var virk- ur í íþróttastarfi á Ísafirði og lék á sínum yngri árum með knatt- spyrnufélaginu Herði og síðar ÍBÍ. Kristmann stundaði fim- leika og var alla tíð mjög áhuga- samur um flestar íþróttagreinar. Hann var hestamaður og var lengi með hesthús ásamt Jóni bróður sínum. Kristmann vann ýmis störf á ævi sinni en starfaði lengst hjá Pósti og síma sem póstmeistari og stöðvarstjóri á Ísafirði. Útför Kristmanns fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 12. mars 2021, klukkan 13. kvæntist Kristmann eftirlifandi eig- inkonu sinni, Hólm- fríði Sigurð- ardóttur, f. 25. mars 1940, frá Rauðu- skriðu í Aðaldal. Þau eignuðust fjög- ur börn: 1) Hulda, f. 1962, maki hennar er Stefán Þór Ragn- arsson, börn Sigrún Harpa og Stefán Orri. 2) Arna Björg, f. 1963, maki hennar er Ingvaldur Línberg Gústafsson, börn Arnaldur Lín- berg, Júlía Línberg og Lísa Rut Línberg, barnabarn Sóldís Lín- berg. Elskulegi pabbi hefur nú kvatt lífið og eftir sitja margar minn- ingar um góðan og skemmtilegan mann. Pabbi var ötull að stappa í okkur stálinu þegar við stóðum frammi fyrir erfiðum verkefnum og að hvetja okkur áfram. Hann lagði mikið upp úr því að við stæðum okkur í vinnu. Hann hafði mikinn metnað fyrir því að við menntuðum okkur og studdi með ráðum og dáð svo það gæti orðið. Enginn var stoltari en pabbi þegar við útskrifuðumst úr menntaskóla eða háskóla. Þegar okkur börnunum sleppti tók það sama við gagnvart barnabörnun- um. Hvatning og áhugi á því sem þau voru að gera var honum of- arlega í huga hvort sem um íþróttastarf eða skólagöngu var að ræða. Pabbi og mamma áttu sitt heimili á Ísafirði í 60 ár og við systkinin nutum góðs af sam- starfi, ást og umhyggju þeirra. Það á einnig við um barnabörnin; þótt langt væri á milli staða og barnabörnin öll á höfuðborgar- svæðinu fylgdist hann vel með hvað var að gerast og heyrði reglulega í þeim. Þau mamma buðu barnabörnunum oft að koma vestur og vildu fá að hafa þau, gjarnan án foreldra, sem lengst. Margar dýrmætar minn- ingar eiga börnin okkar frá dvöl sinni á Ísafirði, ein með ömmu og afa. Ættfræðiáhugi pabba var mikill og það var aldrei komið að tómum kofunum hjá honum í þeim efnum. Hvort sem um fjöl- skylduna var að ræða eða vini var hann duglegur að upplýsa okkur um tengsl við aðra. Það sama átti við um staðhætti og fróðleik um sögu Íslands, þar var hann vel lesinn. Það vildu allir í fjölskyld- unni hafa pabba í sínu liði ef um spurningaspil eða -keppni var að ræða, karlinn vissi allt. Elsku pabbi hafði líka gaman af að spila á spil og margra skemmtilegra kvöldstunda minnumst við þar sem við spiluðum með honum langt fram á nótt. Okkur systrum þótti gaman að dansa við pabba, hann var mikill dansari og hafði yndi af góðri tónlist. Þær eru ófáar ferðirnar sem við fórum með mömmu og pabba í sumarbústaðinn í Hestfirði og norður í land til ömmu og afa. Pabbi var einnig duglegur að taka okkur systkinin með á hest- bak og leyfa okkur að koma með í hestaferðir. Við feðgar fórum eitt sinn í ævintýralega hestaferð á Hornstrandir í góðum hópi þar sem hestar og menn voru fluttir sjóleiðis inn í Jökulfirði og riðið var um Hornstrandir. Öll þessi minningabrot eru okkur afar kær en fyrst og fremst þökkum við pabba fyrir það veganesti sem hann gaf okkur í út í lífið. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Úr Spámanninum) Hulda, Arna, Linda og Kristmann. Það eru margar minningar, bæði gamlar og nýrri, sem sækja á hugann við andlát afa míns. Ég minnist þess hve ánægður afi var með fyrsta smíðaverkefnið mitt í grunnskóla sem var útskorinn hestur sem ég gaf honum og var alltaf varðveittur inni á skrifstof- unni hans. Ég man svo vel þegar ég og Andri frændi vorum á Ísafirði, nýbúnir að fjárfesta í fótbolta og fórum út á fótboltavöll sem er staðsettur nálægt sjónum. Eftir um klukkutíma endaði boltinn úti í sjó og við fórum, alveg miður okkar yfir að hafa týnt boltanum, heim til ömmu og afa. Afi sagði okkur bara að slaka á í smástund og fór með okkur á bílnum eftir veginum við sjóinn. Hann horfði hvert öldurnar leiddu og keyrði svo inn í fjörð og stoppaði svo inn við brú og sagði: „Hlaupið út, hér er hann“! Þetta fannst okkur al- gjör snilld. Og nokkrum árum síðar þegar ég fór vestur á Mýrarboltann. Þegar ég kom heim eftir fyrsta skiptið sem ég keppti í Mýrar- boltanum mæti ég afa sem var við dyrnar haldandi á garðslöngunni og hann sagði: „Stattu á miðjum grasblettinum“ og gusar svo ís- köldu vatninu á mig til að losa þá drullu sem hægt var áður en mér var hleypt inn í húsið. Ég man vel „kvikindisbrosið“ á afa þegar ég var gólandi yfir hversu ískalt vatnið væri sem hann bunaði á mig. En mikið skemmtum við okkur vel. Ég man líka þegar afi ákvað, eftir að hafa reddað mér sumar- vinnu fyrir vestan og allir aðrir í stórfjölskyldunni höfðu ákveðið að fara saman til Spánar, sem afi var ekki spenntur fyrir, og var fljótur að segja: „Ef Arnaldur ætlar að koma vestur verð ég hér með honum.“ Amma fór í þrjár vikur og við vinirnir vorum einir eftir. Amma stóð sveitt í eldhús- inu, sennilega í tvo til þrjá daga, að undirbúa okkur fyrir að vera einir og fyllti frystikistuna af bakkelsi, kleinum, skinkuhornum og öðru. Ásamt einhverju sem hægt var að hita upp og hafa í kvöldmatinn. Þegar amma kom heim aftur var frystikistan alveg tóm. Ég kunni svo vel að meta það þegar afi hrósaði mér fyrir að æfa jafnmargar íþróttir og ég gerði og talaði um hversu góður grunn- ur það væri fyrir fótboltann. Hann var svo mikill fótboltamað- ur sjálfur. Guð geymi þig elsku afi. Arnaldur Línberg. Við systkinin erum algjörlega sammála um það að margar okk- ar skemmtilegustu og bestu minningar tengjast ótal mörgum ferðum okkar til þín og ömmu á Ísafirði. Það fyrsta sem við hugs- uðum alltaf þegar kom að fríi í skóla eða íþróttum var: „Hvernig eigum við að komast vestur til ömmu og afa?“ Sama hve mikil læti okkur frændsystkinunum tókst að framkalla eða hversu frumleg prakkarastrikin okkar voru var alltaf hægt að treysta á að það heyrðist í þér „jóla-hvað?“ og lífið héldi svo áfram eins og ekkert hefði ískorist. Þú varst maður sem við litum upp til allt okkar líf og það var alltaf gott að vera í kringum þig. Þú varst alltaf svo áhugasamur um að vita hvað væri að gerast í okkar lífi og hvattir okkur áfram í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur, hvort sem það var skóli, íþróttir, vinna eða annað. Þú spurðir alltaf af forvitni og svar- aðir á hvetjandi hátt, sýndir það svo vel hversu stoltur þú varst af okkur. Þú varst allt það sem hægt er að óska sér í afa og meira til, þú varst einnig vinur okkar og stuðningsmaður. Á síðustu árum þegar heilsan var farin að trufla þig vildir þú aldrei að við hefðum áhyggjur af þér en sagðir samt aldrei ósatt. Þú svaraðir einfaldlega spurning- um um hvernig þér liði með fras- anum „ja svona“. Brúni leðurstóllinn í horninu í stofunni, sunnudagsbíltúrar á hvaða vikudögum sem er, frí- merki, ostarúllur og mjólkurglas. Allt eru þetta hlutir sem minna svo sterkt á þig elsku afi og myndum við gefa ansi margt fyr- ir að eiga eina gæðastund með þér í viðbót. Það er þó ekki eingöngu kvöl og pína sem fylgir því að kveðja þig heldur rifjast upp fyrir manni fallegar minningar um þig sem aldrei fyrr og hve gott það var að eiga þig að. Kveðja frá barnabörnum, Sigrún Harpa og Stefán Orri. Nú kveð ég um sinn og skil við svo ótalmargt og mér þykir það leitt að ég fæ engu breytt Nú er ég fer ég bið ei gráttu mig tak góðu stundirnar er okkur auðnaðist hér (Snorri Snorrason) Afi var mjög góður maður og er mér mjög kær og hefur alltaf verið. Mér mun alltaf þykja vænt um allar þær minningar sem ég á um hann. Allar ferðirnar til Ísa- fjarðar, óteljandi fílaspilin og bíl- ferðirnar um Ísafjörð og ná- grenni. Afi var viljasterkur maður og vildi alltaf gera hlutina á sinn hátt. Hann vildi helst ekki að við krakkarnir værum að hafa fyrir því að gera eitthvað fyrir hann en vildi þó alltaf gera allt fyrir okkur öll. Elsku afi okkar, hvíldu í friði, ég elska þig. Lísa Rut Línberg. Elsku Diddi afi. Hinn full- komni afi og langafi, stríðinn, duglegur og alltaf tilbúinn með spilastokkinn. Þvílík forréttindi sem það eru að fá að eiga svona mann í sínu lífi í gegnum súrt og sætt. Mann sem alltaf er tilbúinn að hlusta og hvetja mann áfram. Sama hvað við barnabörnin og svo barnabarnabörnin gerðum þá var hann alltaf til staðar, hrist- andi hausinn með bros á vör yfir fíflalátunum í okkur. Afi kenndi okkur margt, allt frá frímerkjum yfir í hestana, og það eru dýr- mætar minningar. Þótt þessi áhugamál hans afa hafi ekki náð að smitast til allra þá þykir okkur voða vænt um allar þær stundir sem við fengum að njóta saman. Samvera og ferðirnar okkar til Ísafjarðar og ferðir afa og ömmu til okkar urðu fleiri og verðmæt- ari með árunum. Elsku afi og langafi takk fyrir allt, við elskum þig. Júlía Línberg og Sóldís Línberg. Elsku afi minn. Afi var frábær einstaklingur sem kenndi mér margt um lífið sjálft og mikilvægi fjölskyldunn- ar. Hann var góðhjartaður, ákveðinn og virkilega góð fyrir- mynd. Margar stundirnar sátum við saman yfir frímerkjum en þar var hann á heimavelli. Einnig var gaman að hlusta á hann segja sögur um forfeður okkar en afi var mjög ættfróður og vel lesinn. Elsku afi minn, það sem ég er þakklát fyrir þig og allar þær ógleymanlegu minningar sem við höfum skapað saman á Ísafirði. Þín verður sárt saknað og þú munt alltaf eiga stað í mínu hjarta, þín Guðrún Silja. Elsku afi og langafi var frábær maður. Ákveðinn og staðfastur en einnig gríðarlega elskulegur og góður, betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Þú kenndir okkur svo margt, meðal annars að spila. Við spiluðum Svarta Pétur í ófá skipti þegar ég var yngri og ég skildi ekki hvernig þú vannst allt- af, þangað til ég komst að því að þú varst að svindla, svo lúmskur og stríðinn varstu, ekki hægt annað en brosa yfir því, þetta var svo snilldarlega gert. Við tók- umst oft á þegar ég var á mínum unglingsárum en ég er gríðarlega þakklát fyrir seinustu ár og hversu náin við náðum að verða á ný. Takk fyrir að vera alltaf til staðar. Við elskum þig, nú færðu að hvíla þig með englunum, Þín Hólmfríður Sara og Ísak Andri. Kær vinur er fallinn frá. Vin- skapur okkar Kristmanns hófst þegar ég var níu ára og fjölskylda mín flutti í Tangagötuna á Ísa- firði. Fljótlega fékk ég að taka þátt í leikjum púkanna í Tanga- götunni sem flestir voru í íþrótta- félaginu Herði og gekk ég því fljótlega í Hörð og er enn Harð- arpúki. Gott var að alast upp í Tangagötunni með þessum frá- bæru félögum í alls konar leikj- um. Vinskapur okkar Kristmanns var alla tíð mjög góður. Þegar ár- in liðu breyttust leikirnir og við fórum að horfa saman á stúlkurn- ar í Húsmæðraskólanum og náð- um við okkur í konur úr sama ár- gangi. Kristmann var góður í íþróttum, var ætíð í framlínunni í fótboltanum og var góður marka- skorari. Einnig var hann fjölhæfur í fimleikum. Við spiluðum saman fótbolta en ég fylgdist með hon- um í fimleikunum. Tímabilið sem fór í að stofna heimili leið hratt og við fórum að hittast á öðrum vettvangi. Unn- um saman í pólitík og gengum í reglu frímúrara. Í þessu öllu var Kristmann mjög fær, bæði víðles- inn og minnugur og störfuðum við saman til fjölda ára. Ef ég þurfti upplýsingar um menn og málefni hringdi ég í Kristmann og kom yfirleitt ekki að tómum kofunum. Eiginkonur okkar voru saman í saumaklúbbi ásamt fleirum og fengum við karlarnir að teljast með í félagsskapnum og áttum við þar margar góðar stundir. Kristmann Kristmannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.