Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 26

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 ✝ Óskar Karl Þórhallsson fæddist 4. ágúst 1940 á Húsavík. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 3. mars sl. áttræður að aldri. Óskar var sonur hjónanna Þórhalls Karlssonar, skip- stjóra og útgerð- armanns, f. 1908, d. 1979, og Hrefnu Bjarnadóttur, f. 1905, d. 1989. Systkini hans voru Hörð- ur Þórhallsson, skipstjóri og út- gerðarmaður, f. 1942, d. 2020, lengst af búsettur á Húsavík, og Hjördís Sævar loftskeytamaður, f. 1932, d. 1985, lengst af búsett í Noregi. Óskar gekk í hjónaband 30. des. 1960 með Elísabetu Maríu Jóhannsdóttur (Elsa), f. 10. jan. 1941 á Akureyri, d. 29. des. 1996. Þau hófu búskap á Húsa- vík en fluttu suður og settust að í Keflavík árið 1964. Þau eign- uðust fjögur börn: A. Hrefna Björg Ósk- arsdóttir, f. 16. júlí 1959. Hún á tvö börn, Elías Mar og Iðunni börn og eitt langafabarn. Árið 2000 tók Óskar saman við eftirlifandi eiginkonu sína, Agnesi Árnadóttur, f. 9. des. 1943, og gengu þau í hjónaband 12. janúar 2018. Agnes á tvö börn, Birki Þór Elmarsson, í hjónabandi með Rósu Friðriks- dóttur, alls eiga þau fimm börn, og Elísu Björk Elmarsdóttur, í hjónabandi með Fannari Helga Þorvaldssyni, þau eiga þrjá syni og fjögur barnabörn. Óskar starfaði alla sína tíð við sjómennsku, var lengst af skipstjóri. Frá 1972 var hann skipstjóri á sínum eigin bátum, þar á meðal Arney KE50, sem hann átti í félagi við Dag Ingi- mundarson, en þeir ráku útgerð saman allt til ársins 2000. Óskar var farsæll og fengsæll skip- stjóri og var m.a. níu sinnum aflakóngur á vertíð í Sandgerði. Hann var náttúruunnandi, stangveiðimaður og golfari. Hann hafði unun af ferðalögum og ferðaðist víða. Óskar verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, 12. mars 2021, klukkan 11, að við- staddri nánustu fjölskyldu og vinum. Athöfninni er streymt á slóðinni: https://www.facebook.com/ groups/oskarkarl/ Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/4ebxtyv6/ Virkan hlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/ Unu. Hrefna á þrjú barnabörn. B. Þórhallur Óskarsson, f. 30. júlí 1961, kvæntur Elínu Þórhalls- dóttur. Þórhallur á þrjú börn, Óskar Örn, Júlíönu Krist- björgu og Rebekku Lísu. Fyrir átti Elín Auði. Þórhallur á tvö barnabörn. C. Karl Einar Óskarsson, f. 2. ágúst 1963, giftur Önnu Pálínu Árnadóttur. Saman eiga þau Sveinbjörgu Önnu, Þórhall og Árna Vigfús. Kalli og Anna Pála eiga þrjú barnabörn. D. Kristinn Óskarsson, f. 10. maí 1969, giftur Steinþóru Eir Hjaltadóttur. Þau eiga Ísak Erni og Elísabetu Maríu. Krist- inn og Steinþóra eiga eitt barnabarn. Fyrir samband þeirra Óskars og Elsu hafði Óskar eignast soninn Lárus, f. 17. jan. 1957, í sambúð með Eddu Þórð- ardóttur sem á tvö börn. Lárus á börnin Grétu, Jón Karl, Guð- mund Kristin, Ólínu Þuríði og Brynjar Mar. Lárus á 13 barna- Elsku pabbi minn. Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð, það er dálítið skrítið að vera að kveðja þig eftir okkar stuttu kynni, mig langar að segja svo margt, hversu mikið við fórum á mis, ég hefði viljað kynnast þér miklu fyrr og systkinum mínum. Það hefði verið gaman að fara með þér á sjó og í lax, ásamt mörgu öðru, en við náðum að fara nokkrar golfferðir á Nesið og Sandgerði og þær ferðir mun ég geyma í hjarta mínu en þú gafst mér lífið og stóra barnahópinn minn. Takk fyrir allt elsku pabbi, við sjáumst í sumarlandinu þegar minn tími kemur. Lárus Óskarsson. Elsku pabbi minn hefur nú leyst landfestar í hinsta sinn og lagt á hafið eilífa. Hann var sjó- maður frá barnsaldri og öll mín uppvaxtarár var hann alltaf á sjó. Hann var farsæll og fengsæll skipstjóri og aflakóngur í Sand- gerði margoft. Hann var veður- glöggur, áræðinn, heiðarlegur og duglegur. Hann var mikill fjöl- skyldumaður og barnagæla, hafði gaman af að ferðast, bæði innan- lands og utan og var einstaklega fróður um land og sögu. Hann hafði gaman af söng og dansi og að vera í góðra vina hópi. Hann var örlátur og greiðvikinn þegar til hans var leitað. Eftir að mamma dó var hann mér mikil styrkur og við reyndum að styðja hvort annað í sorginni, þá náðum við að kynnast sem fullorðið fólk og samband okkar varð mun nán- ara. Hann hjálpaði mér með börnin, bauð okkur með í ferða- lög eða bara á rúntinn. Hann var börnunum mínum einstaklega góður afi og var ævinlega til stað- ar fyrir þau. Hann var líka ákaf- lega hrifinn og stoltur af litlu barnabörnunum mínum. Pabbi gaf mér góð ráð, hvatti mig og studdi þegar ég þurfti þess með. Pabbi var gæfusamur þegar hann valdi sér konur. Mamma og hann voru samhent og dugleg, byggðu upp sitt fyrirtæki ásamt Degi og komu okkur börnunum til manns. Heimili þeirra stóð ávallt opið og margir eiga þaðan ljúfar minningar. Sívaxandi fjöl- skyldan veitti þeim mikla gleði og hjörtun stækkuðu í takt. Það var honum mikið áfall er mamma lést aðeins 55 ára gömul og var hann lengi að jafna sig á því. Blessun- arlega lágu leiðir hans og Agnesar saman, hann lifnaði við og naut lífsins með henni hvort sem var heima, í bústaðnum, á Húsavík eða erlendis. Agnes reyndist honum afskaplega vel í veikindum hans og lagði sig alla fram um að gera líf hans bærilegt og innihaldsríkt, einnig hefur hún verið okkur fjölskyldunni elsku- legur vinur og börnunum yndis- leg amma. Blessuð sé minning elsku pabba míns, ég veit að það hafa orðið fagnaðarfundir í sum- arlandinu góða. Hrefna Björg. Ég vakna, lyktin er ekki góð og ég er sjóveikur. Báturinn velt- ur í hægum takti og ég skríð fram úr kojunni hans pabba og fer fram í stýrishúsið til hans. „Ertu vaknaður? Komdu og sjáðu drottningu Atlantshafsins.“ Það er súluger við bátinn og þær stinga sér í sífellu. Sjórinn morar af vaðandi fiski og höfrungar skoppa á öldutoppum. Svona er fyrsta minning mín af sjónum þegar ég fékk að fara í róður með pabba sem ungur drengur. Það er ekki skrítið að svona sjónarspil dragi menn á sjóinn og sjó- mennskan átti eftir að verða ævi- starfið hans pabba. Hann valdi sjómennskuna ungur og fékk sjálfur að fara í róðra með öldn- um afa sínum. Lífríkið í hafinu, veður, vindar og straumar urðu einhvern veginn eins og partur af honum og hann hafði eitthvert sérstakt innsæi sem leiddi hann um ólgandi hafið og gaf oftar en ekki góðan afla. Pabbi var líka lánsamur að fara í gegnum allan sinn feril án mannskaða og var jafnan með góða menn í sinni áhöfn og var eftirsótt að komast í pláss hjá honum. Veiðimennskan átti ekki bara við á sjónum heldur einnig í landi þar sem hann hafði unun af stangveiði. Sérstaklega var það Laxá í Aðaldal sem hann hafði dálæti á. Hann var félagi í Veiðifélaginu Flúðum og eignað- ist þar marga og góða félaga. Oft fékk ég að fylgja með og naut þess að vera með og kenndi pabbi mér margt um veiði og náttúruna yfirleitt. Það eru margar minningar sem spretta fram þegar maður kveður þann sem hefur verið í lífi manns alla tíð. Það var gæfa pabba að leiðir hans og mömmu lágu saman, þau stofnuðu fjöl- skyldu og fluttu til Keflavíkur þar sem þau bjuggu sér gott heimili. Mamma var akkerið og festan og það var því stórt skarð höggvið í tilveru pabba þegar hún féll frá allt of snemma. Það var eftir að mamma dó sem mér fannst samband okkar pabba breytast og við eignuðumst nán- ara vinasamband sem byggðist á gagnkvæmri virðingu og vænt- umþykju. Okkur tókst að láta okkur líða vel í návist hvor ann- ars og eyddum meiri tíma saman í leik og starfi. Elsku pabbi, þegar þú nú legg- ur úr höfn í hinsta sinn finn ég fyrir þakklæti að hafa átt ykkur mömmu að foreldrum. Það er mín gæfa. Systkinum mínum þakka ég og fjölskyldum þeirra fyrir tryggð og stuðning. Og elsku Agnes, takk fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú hefur gefið pabba. Hún er ómetanleg og fal- leg. Ég horfi útá hafið þegar húmar að kveldi, ég horfi á fjöllin baða í haustroðans eldi. Skip eru að veiðum úti við eyjar, æskumenn lokkar hinn óræði mar. Einhver sárljúfur strengur innst í sál minni hljómar, um söknuð og trega gömul minning þar ómar. Er lít ég til baka yfir leiðina fornu, yfir lyngbrekku heima er gengum við þar. Sátt leikur aldan við sæbarða steina, syngjandi þrestir í leik milli greina. Haustkyrrur, vetur og helskuggar flýja, hækka fer sólin og þá kemur vor. Gaman nú væri að vera á ný ungur, ösla yfir læki, mýrar og klungur. Hugur minn reikar um æviskeið liðið, meðan úthafsins bárur hylja í sand- inum spor. (Guðmundur G. Halldórsson) Þórhallur. Nú er komið að leiðarlokum á ferðalagi okkar feðga. Við höfum ferðast mikið saman í leik og starfi. Það er margs að minnast á þessu ferðalagi okkar. Margar ferðir norður í land til að heim- sækja afa og ömmu sem og aðra ættingja. Á þessum ferðalögum var endalaust verið að telja upp nöfn á fjöllum og firnindum sem ég kunni sko alls ekki að meta á þeim tíma, en í dag er ég þakk- látur því þetta festist einhvern veginn í huga manns og nú miðla ég þessu til minna afkomenda. Takk kærlega fyrir þennan fróð- leik, pabbi. Margar voru veiðiferðirnar sem við fórum í Laxá í Aðaldal og margs að minnast sem of langt væri að telja upp. Síðasta veiði- ferðin okkar var í Rangá og er hún mér og Önnu minni minnis- stæð og erum við endalaust að minnast þess hversu glaður Óskar Karl Þórhallsson HINSTA KVEÐJA Afi. Ég ætla að passa sjó- manninn. Við ætlum að borða kex. Þegar fuglarnir syngja líður afa Óskari vel. Krummi Snær. ✝ Erla Wigelund fæddist í Grindavík 31. des- ember 1928. Hún lést á Hrafnistu í Laugarási 22. febr- úar 2021. For- eldrar Erlu voru hjónin Vilborg Dagbjartsdóttir, f. 26.12. 1911, d. 20.1. 1988, húsfreyja, og Peter Wigelund, f. í Þórshöfn í Færeyjum, 25.6. 1899, d. 22.12. 1974, skipa- smiður í Keflavík og Reykjavík. Systir Erlu er Svala Wigelund, f. 2.3. 1930, kaupkona í Reykjavík, gift Steinþóri Steingrímssyni, píanóleikara og málara. Fljótlega eftir fæðingu Erlu flutti fjölskyldan til Keflavíkur og síðar til Reykjavíkur. Erla gekk í Barnaskóla Keflavíkur, í barnaskóla í Reykjavík og lauk gagnfræðaprófi frá Ingimars- skóla. Erla starfaði um skeið á lögfræðistofu í Reykjavík og sinnti verslunarstörfum í snyrti- vöruverslun í Austurstræti. Um þær mundir sótti hún nám við Leiklistarskóla Ævars R. Kvar- an en þar kynntist hún lífs- förunaut sínum, Kristjáni Krist- jánssyni tónlistarmanni. Kristján var hljómsveitarstjóri frægustu dans- og dægurlaga- Pétur, f. 1994. Langömmubörn Erlu eru nú tíu talsins. Þau Erla og Kristján stofnuðu og starfræktu verðlista sem í upphafi var pöntunarlisti sem fólki gafst kostur á að panta upp úr og fá sent í pósti. Þau hjónin tóku síðan upp á því að ferðast um landið og selja fatnað til fólks á landsbyggðinni. Bernskudraumur Erlu rættist svo þegar þau hjónin opnuðu verslunina Verðlistann við Laugalæk í Reykjavík árið 1965. Erla stóð vaktina í Verðlistanum í 52 ár eða allt til ársins 2014. Erla tók virkan þátt í ýmsu fé- lagsstarfi. Hún var fyrsti for- maður Lionsklúbbsins Eng- eyjar. Hún sinnti ýmsum trúnaðarstörfum í þágu félags- ins og var gerð að heiðursfélaga í klúbbnum árið 1990. Erla var einnig ötull talsmaður Kaup- mannasamtaka Íslands og var sæmd viðurkenningu samtak- anna. Árið 2012 hlaut Erla svo þakkarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) fyrir ævistarf sitt og fyrir að vera konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Útför Erlu fer fram frá Laug- arneskirkju í dag, 12. mars 2021, klukkan 15. Streymt verður frá athöfn- inni. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/79bwtex4/. Einnig má nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/andlat/. hljómsveitar lands- ins á þeim árum, KK-sextettsins. Erla giftist 31.7. 1949 Kristjáni Kristjánssyni (KK), f. 5.9. 1925, d. 2.6. 2008, tónlistar- manni og hljóm- sveitarstjóra. Hann var sonur Sigrúnar Elínborgar Guð- jónsdóttur, f. 7.10. 1904, d. 10.2. 1971, saumakonu, og Kristjáns Karls Kristjáns- sonar, f. 14.11. 1902, d. 26.5. 1977, prentara. Börn Kristjáns og Erlu eru: 1) Þorbjörg Kristjánsdóttir, f. 7.12. 1949, d. 10.10 2019 versl- unarmaður en dætur hennar eru Erla Sigurðardóttir, f. 1967 og Elínborg Sigurðardóttir, f. 1971. 2) Pétur Wigelund Kristjánsson, f. 7.1. 1952, d. 3.9. 2004, tónlist- armaður og verslunarmaður, en eiginkona hans er Anna Linda Skúladóttir og eru börn þeirra Íris Wigelund, f. 1980, Kristján Karl, f. 1984 og Gunnar Wigel- und, f. 1989. 3) Sigrún Júlía Kristjánsdóttir, snyrtifræðingur og framkvæmdastjóri, f. 4 11. 1959, gift Jóhanni Ásmundssyni tónlistarmanni og eru börn þeirra Auður Elísabet, f. 1982, Ásmundur, f. 1986, og Ragnar Elsku besta Erla amma er dá- in. Mér verður hugsað til þess er ég var lítil og sá ekki sólina fyrir henni. Ég vaknaði og vildi bara fara beint til ömmu. Hún átti ekki heima langt frá en kannski langt fyrir þriggja eða fjögurra ára barn, en ég lét mig hafa það enda mamma upptekin af litlu systur minni. Hjá ömmu fékk ég athygli, ást og umhyggju, það sem allir þrá. Amma sýndi mörgum þenn- an kærleika og hlýju. Mér fannst hún amma alveg frábær í alla staði, fyndin, góð, fjölhæf, ræðin, elskaði athygli og að láta fólk hlæja. Það sem hún var sérstak- lega góð í var að láta laga það sem þurfti að laga og halda öllu við. Annars elskaði amma fréttir, fréttir af kóngafólki og dönsku- blöðin, það mátti ekki gleyma að ná í þau á föstudögum. Ég var svo heppin að eiga hana Erlu ömmu að. Hún hringdi alltaf að athuga hvort við borðuðum nógu hollt, hvernig peningamálin gengju og hvernig öllum liði. Hún var alveg einstök og við áttum einstakt samband, henni fannst alltaf að hún ætti mig, enda átti hún í mér hvert bein og hringdi ég oft í hana til að fá hjálp með hin ýmsu mál enda fannst henni allt koma sér við. Hún amma var mikil drottning og ég vil minnast hennar þannig, að halda ræðu og segja brandara, þannig fannst henni lífið skemmtilegt. En ég mun sakna hennar þangað til við hittumst á ný. Erla „litla“. Enn fjölgar í partíinu þarna uppi og nú er búðarkonan sjálf mætt til að halda uppi fjörinu og tryggja það að fólk sé sómasam- lega til fara. Amma var dugleg, sjálfstæð, úrræðagóð og umhyggjusöm kona. Það átti því ekki vel við hana að vera upp á aðra komin líkt og var hennar veruleiki síð- ustu mánuði. Þrátt fyrir þá stað- reynd að enginn er ódauðlegur þá er maður aldrei alveg tilbúinn að kveðja ástvin sem skipar svo stór- an sess í lífi manns. Ég var alla tíð mjög hænd að ömmu og á margar góðar minn- ingar af því þegar ég gisti hjá þeim afa og hjálpaði ömmu með dagsuppgjörið í Verðlistanum. Ég minnist ömmu þar sem hún lá í gólfinu með myndavélina á lofti á danskeppnum, þegar Egill frændi og ég vorum að keppa, og lét svo framkalla filmuna í þrí- eða fjórriti þrátt fyrir að hausana vantaði á sumar myndirnar. Amma sótti mig oft upp í útvarps- hús þegar ég var búin að lesa inn barna- og unglingaþætti en hún missti aldrei af þætti. Heimili ömmu og afa iðaði af lífi og amma var alltaf boðin og búin að halda veislur. Þá var eng- in veisla nema amma tæki til máls. Yfirleitt enduðu ræðurnar á klúrum brandara en þar til amma steig úr pontu héldu afi og aðrir fjölskyldumeðlimir niðri í sér andanum og misstu stundum út hjartslátt ef brandarinn var mjög grófur eða óviðeigandi. Amma var mannvinur og var alltaf til staðar fyrir fólkið sitt en einnig ýmsa aðra sem stóðu henni ekki eins nærri. „Vantar þig ekki aur?“ heyrðist gjarnan og barna- börnin voru leyst út með pening- um fyrir ís. Amma var allt fram á síðasta dag áhugasöm um menn og málefni og spurði gjarnan spurninga eins og um væri að ræða hraðaspurningar í Gettu betur nema það sem er frábrugð- ið þeim er að amma beið ekki endilega alltaf eftir svari áður en hún varpaði næstu spurningu fram. Engar spurningar voru þess eðlis í huga ömmu að ekki væri viðeigandi að spyrja þeirra. Amma kom stundum í mat á heimili okkar Ástmars. Amma og Ástmar áttu fallegt vináttusam- band og ræddu á jafnréttisgrund- velli um allt á milli himins og jarð- ar, iðulega viðskipti og pólitík. Amma var í verslunarrekstri til 86 ára aldurs og kraftur henn- ar og elja var einstök. Áföllin þeg- ar hún missti Pétur, föður minn, og síðar afa reyndust henni afar þungbær. Einnig þjáðist hún af svima sem orsakaðist af kristöll- um í eyra og síðar vírus á heyrn- artaug sem hömluðu henni í leik og starfi. Eftir að hún hætti af- skiptum af verslunarrekstri fannst mér eins og lífskraftur hennar færi þverrandi og heils- unni hrakaði. Eftir að Þorbjörg dóttir hennar lést var eins og slokknaði smám saman á lífs- neistanum. Hún var orðin sátt og södd lífdaga. Ég á ömmu svo margt að þakka og hún hefur verið ein af mikilvægustu manneskjunum í mínu lífi. Hjarta mitt er uppfullt af ást og þakklæti til ömmu og ég hugga mig við óteljandi dýrmæt- ar minningar um dásamlega ömmu sem mér þótti svo undur- vænt um. Takk fyrir umhyggj- una, elskuna, áhugann, stuðning- inn, húmorinn og samfylgdina elsku amma. Íris Wigelund Pétursdóttir. Í dag er kvödd Erla Wigelund móðursystir mín. Heimili Erlu og Kristjáns var mitt annað heimili frá því ég fyrst man. Erla leit á mig sem sína yngri systur og var minn bandamaður alla tíð. Hún var kvenskörungur og sterkur stólpi margra í lífsins ólgusjó. Þegar hún var nýlega minnt á það hafði hún sjálf varla tekið eftir því, sem lýsti henni vel. Það sóp- aði að henni frænku minni hvar sem hún kom, kraftur og hug- rekki voru henni í blóð borin. Um- hyggja, glaðværð og skemmtileg- heit standa upp úr minningum um Erlu, sem ég kveð með þakk- læti og kærleika. Hrefna Wigelund Steinþórsdóttir. Erla Wigelund hefur kvatt þessa jarðvist. Hún fæddist í Ás- garði í Grindavík rétt fyrir árslok 1928. Móðir hennar, Vilborg Júlía Kristín Dagbjartsdóttir, Villa, var nýorðin sautján ára þegar Erla kom í heiminn. Hún hafði kynnst Færeyingnum Peter Wi- gelund, skipasmíðameistara og kafara, sem var kostgangari á matsölustað þar sem Villa vann, en árið áður hafði hann orðið Norðurlandameistari í hnefaleik- um. Þegar Villa hélt aftur heim í Grindavík var hún ekki kona ein- sömul. Peter hafði verið ráðinn austur á land, þar sem hann teiknaði og byggði nokkra fallega trébáta, Gylli, Fylki og Stellu. Villa útvegaði sér fljótlega kon- Erla Wigelund

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.