Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Smáauglýsingar 569 1100 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi St.10-26 - netverslun www.gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Bílar SÁ ALLRA FLOTTASTI. AUDI E-Tron 55 Quattro Premium Plus. Árgerð 2019, ekinn 3 Þ.KM, Rafmagn, sjálfskiptur. Verð 9.950.000. Rnr.215107. Er á staðnum. Fylgir hraðhleðslu tengi og kapall til að hlaða heima. MJÖG VEL BÚINN OG FALLEGUR BÍLL. BMW 5 520d X-Drive Sport- line. Árgerð 2018, ekinn 34 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 5.990.000. Rnr.226027. Bíllinn er á staðnum. Glæsilegur bílll. MMC Outlander Intense+ Plug in Hybrid. Árgerð 2020, Nýr bíll. Bensín/Rafmagn, sjálfskiptur. Sumar og Vetrardekk. Verð 5.090.000. Rnr.226129. Er á staðnum. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Chrysler Town & Country Limited 1/2016, ekinn aðeins 70 þ.km. 7 manna. Leðursæti. Rafdrifnar hliðarhurðir og skottlok. Hlaðin búnaði. Frábært verð kr. 4.490.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Suðurhólar 18, Reykjavík, fnr. 205-0868, þingl. eig. Joseph Oyeniyi Ajayi, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur- vatns sf., þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 11:00. Súluhólar 4, Reykjavík, fnr. 205-0043, þingl. eig. Marteinn Unnar Heiðarsson, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður og Súluhólar 4,húsfélag, þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 11. mars 2021 Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi, s: 458-2000 Einnig birt á www.naudungarsolur.is Grímuskylda er á uppboðinu. Uppboð verður haldið í aðstöðu Vöku hf., Héðinsgötu 1-3, Reykjavík, föstudaginn 19. mars n.k. kl. 11:00. Allir viðstaddir skulu skrá sig með nafni og símanúmeri við komu á uppboðsstað. Viðstaddir skulu jafnframt sitja, nota andlitsgrímur og tryggja að fjarlægð milli ótengdra sé a.m.k. 1 metri. Boðnar verða upp eftirfarandi eignir: Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem greiðsla, einungis debetkort eða peningar. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 11. mars 2021 UPPBOÐ AI540 AP966 AX599 BB770 BF263 BF801 DP367 DS237 EK940 FD885 FF581 FHG88 HBG73 HM728 JGL41 JOV38 KH100 KI425 KS583 KV488 LR896 MD016 MHJ58 MX841 NB334 ND486 NF012 NM969 NO818 NX660 OH699 OO820 PD787 PI398 PP350 PX959 PY995 RG937 RL931 RM610 RM662 SA796 SI908 SO855 SP082 SZ439 TN050 TP246 TX207 TX836 UB825 UO442 UP206 USB58 UU687 UZ052 VA452 VE235 VG966 VH066 VH716 VOY40 VY729 VYT23 YBV98 YF793 YR826 YZ110 ZR090 ZS791 ✝ Ólafía Helga- dóttir fæddist 28. ágúst 1924 í Hafnarfirði þar sem hún ólst upp. Hún lést 5. mars 2021 á gjörgæslu- deild Landspít- alans við Hring- braut. Foreldrar henn- ar voru Helgi Ólafsson trésmíða- meistari og Þóra Guðrún Krist- jánsdóttir húsmóðir. Systkini Ólafíu (Lóu) voru þau Þórunn K. Helgadóttir, f. 4. feb. 1920, d. 29. des. 2010, Krist- jana Pálína Helgadóttir, f. 5. ágúst 1921, d. 8. nóv. 1984, Sól- rún Katrín Helgadóttir, f. 18. apríl 1928, d. 30. sept. 2012, og samfeðra bróðir Kristinn Stefán Helgason, f. 10. nóv. 1914, d. 16. apríl 1970. Lóa giftist Ragnari Björns- syni húsgagna- bólstrara þann 30. maí árið 1956. Fyrsta hjúskap- arárið bjuggu þau í Reykjavík en svo eftir það alla sína tíð í Hafnarfirði. Dætur þeirra eru 1) Helga Þóra, f. 28. sept. 1957, eig- inmaður Magnús Pálsson, börn þeirra eru Ragnar Páll og Krist- jana Lóa og barnabarn Lóa Lilý, 2) Birna Katrín, f. 15. ágúst 1961, eiginmaður Björn Ingþór Hilmarsson, synir þeirra eru Ragnar og Daði. Útförin fer fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í dag, 12. mars 2021, klukkan 13. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/2ffyk7mh Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ Með söknuði og miklu þakk- læti kveð ég mömmu mína og bestu vinkonu. Það er óraun- verulegt að hugsa til þess að geta ekki hringt og spjallað. Margs er að minnast, mamma var lífsglöð og skemmtileg kona sem hafði sterkar skoðanir á hlutunum, hún var alltaf til staðar fyrir fjöl- skylduna, var stoð og stytta fyrir okkur í gegnum hvað sem var, ávallt tilbúin að rétta fram hjálp- arhönd, og fyrir það verð ég æv- inlega þakklát. Þegar aldurinn færðist yfir og pabbi farinn í Draumalandið bar ég oft upp við hana hvort hún vildi nú ekki fara í félagsstarf eldri borgara, var hrædd um að henni myndi leiðast, en hún var fljót til svars; hún hafði ekki tíma, það var svo mikið að gera. Mamma var mikil hannyrðakona sem hún lagði stund á allt fram á síðasta dag og liggur eftir hana mikið af fallegum útsaumi og öðru handverki. Einnig fannst henni gaman að baka og alltaf var til hjá henni nýbakað þegar komið var við á Ölduslóðinni Hún var ávallt óspör á hrós og hvatningu, mátti ekkert aumt sjá og vildi öllum vel, hvort sem það var mannfólkið, dýrin eða gróð- urinn. Hún fylgist vel með barna- börnum sínum og var mjög stolt af þeim öllum, hún var spennt yf- ir að sjá fyrsta barnabarnabarn- ið sitt koma í heiminn, en nafna hennar lét sjá sig þremur dögum eftir að hún skildi við. Ég kveð mömmu með söknuði og hlýju og ylja mér við góðar minningar, takk fyrir allt sem þú gafst mér, hvíl í friði elsku mamma. Þín dóttir, Birna Katrín. Mig langar að minnast tengdamóður minnar sem lést eftir snögg veikindi. Það er und- arlegt að sitja hérna og skrifa um hana Lóu. Ég kynntist þeim heiðurs- hjónum Ragnari og Lóu þegar við Birna Katrín byrjuðum að rugla saman reytum. Það var ávallt gott að koma á Ölduslóð- ina. Þar var ávallt boðið upp á kaffi og nýbakað bakkelsi því Lóu fannst gaman að baka og eiga eitthvað með kaffinu þegar litið var í heimsókn. Minningar streyma fram og af mörgu er að taka, en það kemur efst í huga þegar farið var í veiðitúra með þeim hjónum sem ófáir voru. Í einni slíkri ferð var farið í Víði- dalinn, þetta var þriggja daga veiðiferð og Lóa í essinu sínu því henni fannst mjög gaman að veiða. Við vorum þrjú með eina stöng í þetta skiptið, og við herramennirnir buðum dömunni að byrja og viti menn; lax mætt- ur á stöngina strax, við mikla gleði. Þetta lýsir Lóu vel, hversu áköf hún var í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Það verða tómlegir sunnu- dagsmorgnarnir fyrir okkur Birnu og Skottu án morgunkaffis á Ölduslóðinni sem var fastur lið- ur síðustu 17 árin. Þín verður sárt saknað og er ég endalaust þakklátur fyrir að hafa verið svo lánsamur að kynn- ast heiðurskonu eins og þér Lóa. Þinn tengdasonur, Björn Ingþór. Mig langar til að minnast Lóu tengdamóður minnar með örfá- um orðum. Ég kynntist Lóu fyrir meira en fjörutíu árum þegar ég og Helga Þóra dóttir hennar fór- um að vera saman. Lóa og henn- ar fjölskylda tók mér vel strax í upphafi. Lóa var hjartahlý og glaðlynd kona og var henni margt til lista lagt. Hún var góð- ur bakari, kokkur og hannyrðir voru henni mjög kærar sem og blómarækt. Á yngri árum fór Lóa oft með bónda sínum Ragnari Björnssyni í veiðiferðir og einnig tók hún þátt í því að rækta upp laxá vest- ur á Skógarströnd. Lóa aðstoð- aði Ragnar við uppbyggingu fyrirtækis fjölskyldunnar með ýmsum hætti. Hún hafði alltaf mjög gaman af góðri músík og þegar við kom- um við hjá henni var hún allaf með útvarpið á og hlustaði á alls konar músík. Mín fjölskylda hefur búið er- lendis í langan tíma og á hverju ári, yfirleitt um jólin, höfum við komið til landsins til að halda jól með fjölskyldunni. Og alltaf komum við að opnum dyrunum hjá Lóu, sem var mjög gestrisin, og hin ljúfa og létta lund gerði dvölina alltaf mjög ánægjulega. Ég og fjölskylda mín kveðjum Lóu með miklum söknuði en á sama tíma gleðjumst við yfir því að glæný Lóa Lily fæddist þrem- ur dögum eftir andlát langömmu sinnar. Magnús Pálsson. Elsku amma Lóa. Við bræð- urnir viljum minnast og þakka þér fyrir allar góðu stundirnar og ómetanlegu minningarnar. Þótt aldurinn hafi verið orðinn hár þá varstu ung í anda. Alla okkar ævi höfum við haft þig nærri okkur og þú varst stór hluti af okkar lífi. Öllum þeim kærleik, ást og góðu ráðum sem þú gafst okkur munum við búa að alla okkar lífstíð. Þér var mjög umhugað um að okkur gengi vel og fylgdist alltaf vel með okkur, sem við vitum að þú munt gera áfram þó að það sé frá öðrum stað núna. Það eru óteljandi stundir sem við eigum aldrei eftir að gleyma sem við áttum með þér sem aldrei verður hægt að endurgera. Það verða skrítnir tímar næstu hátíðir þar sem þú gerðir í gegnum árin allt sem í þínu valdi stóð til að halda uppi rétta andanum. Alveg sama um hvaða tyllidaga var að ræða þá var alltaf hápunktur hvers og eins þegar fjölskyldan sameinað- ist í kaffi- og matarboðum með þér. Ósjaldan komum við við hjá þér á Ölduslóðinni og þú þá að líta eftir blómunum sem þú hafir mikið yndi af eða baka allt mögu- legt. Þú varst besta amma í heimi og við eigum eftir að sakna þín svo óskaplega mikið. Við munum alla tíð geyma minning- arnar um þig í hjartanu. Ragnar og Daði. Ólafía Helgadóttir ✝ Sigurður Guðni Jónsson fæddist 28. október 1929 á Hóli í Köldu- kinn. Hann lést á Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík 24. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Magnea Krist- ín Sigurðardóttir, f. 25. mars 1904, d. 25. febrúar 1998 og Jón Jakobsson, f. 30. nóvember 1889, d. 20. desember 1944, bændur á Hóli. Bræður Sigurðar voru Helgi, f. 1933, d. 2003, Jakob, f. 1936, d. 2010 og Marinó, f. 1937. Upp- eldissystir þeirra var Hólm- fríður Sigurð- ardóttir, f. 1920, d. 2014. Sigurður hlaut menntun sína í hefð- bundnum sveita- skóla, eins og tíðk- aðist á þeim tíma. Hann tók við búi á Hóli eftir foreldra sína. Síðustu árin dvaldi hann á Hvammi á Húsavík. Útförin fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag, 12. mars 2021, klukkan 13.30. Slóð á streymi: https://tinyurl.com/29uwa828 Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ Í dag kveð ég Sigga frænda minn. Undanfarna daga höfum við, sem stöndum næst honum, komið saman til að skipuleggja útförina hans og minningarnar hafa hrannast upp. Ég og Dísa systir áttum athvarf hjá honum og „frænku“ sumarlangt ár eftir ár, í heildina líklega ein 15 ár. Aldrei skammaði hann mig fyrir leti, þegar ég rétt drattaðist úr sporunum, átti að hjálpa til við bústörfin, en vildi frekar liggja í bókum, þar sem á heimilinu var dágott bókasafn alls konar spenn- andi bóka. Hann var alltaf hlýr og missti sárasjaldan þolinmæðina við mig, það var þá helst þegar ég hljóp ekki nógu hratt „fyrir kind- ur“. Ég minnist hans fyrst og fremst sem fjárbónda, sem þótti vænt um kindurnar sínar, hugs- aði vel um þær og mundi öll nöfn- in þeirra. Hann passaði líka að eiga alla „liti“ hvítt, mórautt, grátt, golsótt, höttótt og alls kon- ar og fannst nauðsynlegt að eiga forystufé. Lömbin voru uppá- halds..! Hann átti hunda og ketti og ég man eftir honum að leggja sig eftir hádegismatinn með kött- inn ofan á bringunni og báðir jafn værðarlegir. Já það er gott að eiga minningar um góðan frænda. Guð blessi minningu hans. Margrét Einarsdóttir. Sigurður Guðni Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.