Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 40

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 40
FER M IN G A R TILB O Ð ÍFU LLU M G A N G I R 10.000 kr. AFSLÁTTUR AF HEILSURÚMUM 25% AFSLÁTTUR AF MJÚKVÖRU VIÐ DÝNUKAUP Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, á 6. hæð Gróf- arhússins, hefur verið opnuð sýning norsku frændanna Gudmund Sand og Haakon Sand, „Sirkús Norður- skautsins“. Þeir frændur fylgdu sirkuslistafólki í Sirkus Íslands eftir við líf og störf í rúmt ár og beittu að- ferðafræði heimildaljósmyndunar til að fanga kjarna sirkuslífs á Íslandi. Gudmund og Haakon Sand vinna að persónulegum verkefnum á sviði kvikmynda og ljós- myndunar og hafa verk þeirra hlotið lof og verðlaun á kvikmyndahátíðum víða um lönd. Sýning norskra heimildamynda- gerðarmanna um Sirkus Íslands FÖSTUDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Valur vann sinn fyrsta sigur gegn KR í Vesturbæ í 22 ár þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, í DHL-höllinni í gær. Jordan Roland átti sannkallaðan stórleik fyrir Valsmenn, skoraði 40 stig, þar af 24 stig í fyrri hálfleik. Þá var þetta annar sigurleikur Valsmanna í röð en liðið er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Þá vann Grindavík fjögurra stiga sigur gegn Þór frá Þorlákshöfn í Grindavík, Kefla- vík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með sigri gegn Haukum og ÍR lagði Hött í Seljaskóla. »34 Áralangri bið Valsmanna eftir sigri gegn KR í Vesturbæ lauk í gær ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Forsvarsmenn Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði halda sérstaklega upp á 10 ára afmæli safnsins í sumar, en frá áramótum hefur verið birt mynd og texti úr sögu safnsins á fésbókar- síðu þess á hverjum degi og verður upprifjuninni haldið áfram daglega til stofndagsins 8. júlí. „Þá verðum við með fjölbreytta afmælishátíð, fáum tónskáld og tónlistarfólk í heimsókn auk þess sem áformað er að taka í notkun nýtt og sérstakt bókasafnsrými,“ segir Þórarinn Hannesson, forstöðumaður safnsins frá upphafi og starfsmaður þess að mestu í sjálfboðavinnu. Reyndar eini starfsmaðurinn. Markmiðið með stofnun Ljóðaset- ursins var og er að vekja athygli á ís- lenskum kveðskap, halda innlenda ljóðlist í heiðri og viðhalda henni með kynningu af ýmsu tagi. Setrið hefur verið opið eftir hádegi á sumr- in en samkvæmt samkomulagi við gesti, fyrst og fremst hópa úr skól- um, á veturna. Auk þess hefur verið boðið upp á ýmsa viðburði, bæði í setrinu og á netinu. „Við höfum verið með lifandi viðburði á hverjum degi klukkan fjögur á sumrin, ljóðalestur, tónlist eða hvað sem okkur hefur dottið í hug,“ segir Þórarinn. Siglufjarðarstofa Samkomubannið vegna kórónu- veirufaraldursins hefur raskað starfseminni en þá hefur netið komið sér vel. „Þegar við gátum ekki tekið á móti gestum í mars í fyrra datt mér í hug að senda efnið beint út á fésbókarsíðu setursins og gerði það í 50 daga í röð, eitthvað nýtt í 40 til 50 mínútna útsendingu á hverjum degi. Síðan hef ég sent út efni með sama hætti endrum og sinnum og það er allt aðgengilegt á síðunni.“ Þórarinn ólst upp á Bíldudal en hefur búið á Siglufirði frá 1993 og verið þar kennari með meiru. 1994 tók hann þátt í að stofna Ungmenna- félagið Glóa og hefur verið formaður þess síðan 1995. Hann hefur lagt mikið af mörkum í menningarlífinu, samið lög og texta, spilað og sungið, gefið út plötur og bækur. Og stofn- aði Ljóðasetrið, svo fátt eitt sé talið. „Ég og Elfar Logi, bróðir minn, fengum þessa hugmynd um Ljóða- setrið í framhaldi af menningar- starfsemi Glóa,“ útskýrir Þórarinn, en með honum í stjórn eru Kristín Anna Guðmundsdóttir, eiginkona hans, og tengdafaðirinn Guðmundur Jón Skarphéðinsson. Þórarinn bætir við að hann hafi haft gaman af ljóð- um í æsku, ort sjálfur í gegnum tíð- ina og áhuginn á ljóðum hafi aukist með árunum. Hann leggur áherslu á að forsvarsmenn ungmennafélags- ins hafi frá byrjun verið menningar- lega sinnaðir og byrjað að halda ljóðakvöld 2005, sem hafi þróast í ljóðahátíð 2007. Hún hafi verið hald- in á hverju hausti síðan. Eitt af markmiðunum með setrinu er að eignast eintak af öllum íslensk- um ljóðabókum. „Við eigum nú rúm- lega 3.000 bækur, sem er um þriðj- ungur allra útgefinna ljóðabóka. Núverandi rými er samt að fyllast en við höfum fundið nýstárlega leið til að bæta úr því og opnum nýja rýmið á afmælisdaginn.“ Þórarinn bætir við að enn fremur sé unnið að því að útbúa listamannsíbúð á efri hæð setursins og þegar skipt hafi verið um þak á húsinu í fyrrasumar hafi myndast skemmtilegt rými á háaloftinu. „Hugmyndin er að setja þar upp Siglufjarðarstofu, þar sem bókmenntum, sem tengjast Siglu- firði, verða gerð skil.“ Ljóðið í vari á Sigló Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Ljóðasetur Um þriðjungur útgefinna íslenskra ljóðabóka eru í setrinu. - Saga Ljóðaseturs Íslands rifjuð upp daglega á netinu - Sérstakt bókasafnsrými tekið í notkun á 10 ára afmælinu Skemmtistaður Þórarinn Hannesson spilar gjarnan og syngur fyrir gesti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.