Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 „Þótt vetrarlegt væri í kuldanum var rebbi værðarlegur og gæfur. Lét sér hvergi bregða þótt fólk væri í návígi,“ segir Eyþór Ingi Jóns- son, organisti við Akureyrarkirkju, sem náði um helgina frábærri mynd af snjóbörðum ref sem kúrði í kafaldsbyl í framdölum Eyja- fjarðar. „Að komast í návígi við rebba er sjald- gæft. Félagi minn var á ferðinni í sveitinni, sagði mér af þessum ref og sögunni fylgdi að hann væri sérstaklega gæfur. Ég beið því ekki boðanna og fór á staðinn með myndavélina mína sem er með 800 millimetra linsu. Með slíku tæki er auðvelt að taka myndir úr tals- verðri fjarlægð. Ég er líka nokkuð ánægður með myndina.“ Eyþór Ingi hefur lengi fengist við ljósmyndun. Einbeitir sér þar að því að mynda dýr, fugla og fyrirbæri náttúrunnar. „Ég er sveitastrákur vestan úr Dölum, nátt- úrubarn, og samkvæmt því vel ég mér mynd- efnin nánast ósjálfrátt,“ segir hann. sbs@mbl.is Ljósmynd/Eyþór Ingi Jónsson Værðarlegur refur í ríki vetrarins í Eyjafirði Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ef fyrirtækjum í orkugeiranum yrði gert að greiða fullan 1,32% fast- eignaskatt af mannvirkjum til raf- orkuframleiðslu, sem eru í dag und- anþegin skattlagningu, gæti árlegur fasteignaskattur af þeirri álagningu orðið á bilinu 8 til 10,5 milljarðar króna, sem rynnu til sveitarfélaga. Að mati Þjóðskrár má ætla að sú fasteignafjárfesting í raforkufram- leiðslu sem er í dag undanþegin fast- eignamati sé um 800 milljarðar króna. Orkusveitarfélög leita til ESA Þessar upplýsingar koma fram í drögum að kvörtun til Eftirlitsstofn- unar EFTA (ESA) vegna undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og skattaívilnunar raforkufyrir- tækja, sem Samtök orkusveitar- félaga eru með í undirbúningi. Drög- in voru lögð fram til kynningar og umræðu á seinasta stjórnarfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þótt Samtök orkusveitarfélaga fari ein með aðild málsins gagnvart ESA þá tekur sambandið þátt í kostnaði og veitir ráðgjöf sérfræðinga sam- bandsins. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu telja forsvarsmenn sveit- arfélaga að núverandi fyrirkomulag skattlagningar á mannvirki til raf- orkuframleiðslu feli í sér óheimila ríkisaðstoð. Sveitarfélögin hafa lengi barist fyrir því að fá auknar tekjur af raforkuframleiðslu og vilja að orku- fyrirtækjum verði gert að greiða fasteignaskatt af orkumannvirkjum. Í dag er stærstur hluti fasteignafjár- festingar fyrirtækja í raforkufram- leiðslu undanþeginn fasteignamati og álagningu fasteignaskatts og hef- ur verið gróflega áætlað að virkjana- mannvirki sem greiða þarf fasteigna- skatt af í dag séu aðeins um 20% af raunvirði allra virkjanamannvirkja. Í drögunum er gerð grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum vegna þessa og fram kemur að Þjóðskrá var beðin um að gera úttekt á orku- mannvirkjum sem tengjast fram- leiðslu og flutningi rafmagns með til- liti til hugsanlegs fasteignamats. Þjóðskrá áætlar að heildarfasteigna- mat allra orkumannvirkja gæti verið allt að 973 milljarðar kr. eða 913 milljarðar kr. umfram fasteignamat þeirra eigna sem sæta mati í dag. Flutningskerfi raforkunnar er ekki tekið með í kvörtuninni þar sem um einkaleyfisstarfsemi að ræða en heildarfasteignamat stöðvarhúsa, rafstöðva og vatnsaflsvirkjana er áætlað 847 milljarðar kr. Þar af eru eins og áður segir um 800 milljarðar undanþegnir fasteignamati og álagn- ingu skattsins. Sýni umfang ríkisstuðningsins Bent er á að fjárhagslegir hags- munir af þeirri fasteignafjárfestingu raforkuframleiðslunnar sem er und- anþegin fasteignamati séu því um 10,5 milljarðar kr. á hverju ári. Þjóðskrá setti einnig fram sviðs- mynd þar sem fasteignamat virkjana er byggt á uppsettu afli þeirra. Áætl- aði stofnunin að sú aðferð gæfi heild- armat á virkjunum upp á um 600 milljarða kr. Segir í drögunum að ef gengið væri út frá því að á þennan stofn yrði lagður skattur, næmi álagður fasteignaskattur tæpum átta milljörðum kr. á ári. Bent er á að fjárhæðin sem um ræðir sýni umfang þess ríkisstuðn- ings sem ætla megi að raforkufram- leiðendur á Íslandi njóti vegna áhrifa af undanþágunni sem veitt er í lögum um skráningu og mat fasteigna. Fasteignaskattar eru um 15,3% af heildartekjum sveitarfélaga, sem voru 47,7 milljarðar árið 2019. Virkjanaskattur yrði 8-10 milljarðar Morgunblaðið/Ómar Búrfellsvirkjun Stór hluti fasteigna í raforkuframleiðslu er ekki skattlagður. - Þjóðskrá áætlar að heildarfasteignamat orkumannvirkja gæti verið 973 milljarðar - Drög að kvört- un til ESA vegna skattaívilnunar til raforkufyrirtækja rædd í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.