Morgunblaðið - 31.03.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
Alla daga,
örugg ferð
Sérhönnuð fjölsk lduhjól
til að ferja fjölsk lduna og allt
sem þér er kært á milli staða.
Hannaðu þitt hjól í dag!
Sendu tölvupóst á krumma@krumma.is
og pantaðu reynsluakstur.
Nánari upplýsingar á
krumma.is/fjolskylduhjol
Gylfaflöt 7, 112 Reykjavík
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið er að uppfærslu friðlýsing-
arskilmála fyrir friðlandið Gróttu. Um-
hverfisnefnd Seltjarnarness vill að
stjórnunar- og verndaráætlun verði
einnig endurskoðuð og leggur til að
friðlandið verði stækkað með því að öll
Seltjörn verði hluti af því þótt það
verði undir öðrum skilmálum en nú-
verandi friðland.
Grótta er sem kunnugt er í raun
eyja sem tengd er við land af mjóum
granda sem fer á kaf á flóði. Hún var
friðlýst árið 1974. Vegna fuglavernd-
unar er óheimilt að fara um svæðið frá
1. maí til 15. júlí ár hvert.
Uppfæra þarf skilmálana
Í bókun umhverfisnefndar Sel-
tjarnarness fyrr í þessum mánuði
kemur fram það álit að margt kalli á
uppfærslu skilmála fyrir friðlandið
Gróttu. „Skilmálarnir frá 1974 eru
að mörgu leyti barn síns tíma. Um-
ferð hefur aukist og árum saman
hafa ungar ekki verið orðnir fleygir
15. júlí þegar opnað hefur verið fyrir
umferð og Umhverfisstofnun þurft
að beita skyndilokun. Það þarf að
skerpa á því og fleiru,“ segir Hannes
Tryggvi Hafstein, formaður um-
hverfisnefndarinnar. Hann nefnir
einnig að starfsfólk bæjarins þurfi
að geta komist á bíl út í Gróttu þann
tíma sem lokað er til þess að sinna
eignum þar.
Hannes segir að Grótta sé vinsæll
viðkomustaður ferðafólks og höfuð-
borgarbúa. Í bókun umhverfis-
nefndar er nefnt að til viðbótar því
komi væntanleg áhrif reksturs veit-
ingahúss í Ráðagerði og Náttúru-
minjasafns í Nesi. Þá ógni sjósport
fuglalífi á varp- og uppeldistíma.
Umhverfisnefndin segir að Grótta
og Seltjörn séu heildstæð eining með
tilliti til náttúrufars, ólíkra vistkerfa og
lífríkis, þar á meðal fuglalífs. Friðlandi
geti verið skipt niður í minni svæði þar
sem gildi mismunandi friðunar- og
umgengnisreglur með tilliti til sér-
staks hlutverks þeirra. Nefnd eru í því
sambandi varpsvæði, uppeldissvæði
unga, fæðuöflun fugla og útivist fólks.
Seltjörn er breið vík á milli Gróttu
og golfvallarins á Suðurnesi og tekur
bæjarfélagið nafn sitt af henni. Nefnd-
in leggur til að starfshópur sem vinnur
að undirbúningi endurskoðunar frið-
lýsingar skoði kosti þess að stækka
friðland Gróttu þar sem öll Seltjörn
yrði hluti af friðlandinu. Nánar spurð-
ur um þetta segir Hannes að hluti Sel-
tjarnar sé nú þegar hluti af friðland-
inu. Grótta og Seltjörn séu heildstætt
náttúrusvæði. Þar sé fæðuuppspretta
fuglanna og þar taki ungarnir fyrsta
flugið. Segir hann að auka þurfi svig-
rúm fugla á varp- og uppeldistíma og
því hafi verið farið fram á að Seltjörn
verði hvíld frá 1. maí til 1. ágúst. Hann
tekur fram að stækkun hafi ekki verið
ákveðin. Þá níu mánuði sem eftir eru
sé fólki velkomið að nota svæðið til að
stunda sitt sjósport. Þá sé hægt að
stunda sjósport sunnan Seltjarnarness
allt árið og engum gönguleiðum verði
lokað.
Friðlýsing nái til allrar Seltjarnar
- Unnið að endur-
skoðun friðlýsingar
fyrir friðland Gróttu
á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjálfa Umferð fólks í Gróttu hefur aukist mjög og alls konar sjósport er stundað á Seltjörn. Umhverfisnefnd vill vernda fuglalífið betur.