Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 61

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ ERU LIÐNIR SEX DAGAR. ER HANN BÚINN AÐ TILKYNNA AÐ MÍN SÉ SAKNAÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera sjáaldur augna hans. AÐ GERA ÞETTA, HVAÐ SEM ÞAÐ NÚ ER TÍMINN FLÝGUR ÞEGAR MAÐUR ER … FORELDRAR MÍNIR HÖFÐU ALLTAF ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÉG MYNDI HELLA ÓTÆPILEGA Í MIG! HEYRÐU! ÞÁ ER NÚ GOTT AÐ ÉG SÉ UM AÐ HELLA Í GLÖSIN EN EKKI ÞÚ! „VILTU KOMA ÚT AÐ ÆFA TENGSLAMYNDUN?“ Fátt finnst mér betra en að bregða mér í gönguskóna, enda reyni ég að ganga nokkra kílómetra flesta daga. Ég hlusta mikið á tónlist, aðallega klassíska tónlist, hef ánægju af því að sækja tónleika og leikhús, bæði hér heima og erlendis. Þá les ég mik- ið, ekki síst ljóð sem ég hef ómælda ánægju af. Þegar ég nú tek fyrstu skrefin inn í áttræðisaldurinn vil ég fá að gera orð Vilborgar Dagbjartsdóttur að mínum þar sem hún segir í ljóði sínu Síðdegi: – en ég þræði dagana eins og skínandi perlur upp á óslitinn silfurþráðinn Fjölskylda Fyrrverandi sambýlismaður Ingi- ríðar er Guðjón Friðriksson, f. 9.3. 1945, sagnfræðingur og rithöfundur. Fyrrverandi eiginmaður Ingiríðar er Örn Ágúst Guðmundsson, f. 28.9. 1938, tannlæknir. Dóttir Ingiríðar og Guðjóns er Úlfhildur, f. 3.12. 1978, hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík. Maki hennar er Sigurður Grétar Ólafsson verk- efnastjóri. Barnabörn eru Kristín Hanna, f. 2010, Skarphéðinn Krummi, f. 2010, og Ylfa Matthildur, f. 2017. Systkini Ingiríðar eru Elsa S. Þorkelsdóttir, f. 6.6. 1953, lögfræð- ingur, búsett í Reykjavík, Indriði Þorkelsson, f. 2.2. 1957, lögfræð- ingur, búsettur í Kópavogi, og Valdís Þorkelsdóttir (samfeðra), f. 2.6. 1946, kennari, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Ingiríðar voru hjónin Ólafía Katrín Hansdóttir, f. 30.7. 1923, d. 9.2. 2020, húsfreyja og Þor- kell Skúlason, f. 20.6. 1925, d. 13.10. 2018, löggiltur endurskoðandi. Þau voru lengst af búsett að Kársnes- braut 13, síðar Birkigrund 43 í Kópavogi. Ingiríður Hanna Þorkelsdóttir Ása Kristjánsdóttir húsfreyja á Ketilsstöðum Helgi Guðmundsson bóndi og hreppstjóri á Ketilsstöðum Ingiríður Kristín Helgadóttir ljósmóðir og húsfreyja á Ketilsstöðum Hans Ágúst Kristjánsson búfræðingur og bóndi á Ketilsstöðum í Hörðudal, Dal. Ólafía Katrín Hansdóttir húsfreyja í Kópavogi Ólafía Katrín Hansdóttir húsfreyja á Hamri og í Reykjavík Kristján Guðmundsson bóndi á Hamri í Hörðudal, síðar bús. í Reykjavík Jóhanna Jóhannesdóttir húsfreyja í Fellsseli Jóhannes Guðmundsson bóndi í Fellsseli í Köldukinn Sigurveig Jakobína Jóhannesdóttir húsfreyja og bóndi í Hólsgerði Skúli Ágústsson bóndi í Hólsgerði í Köldukinn, S-Þing. Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja í Torfufelli Ágúst Jónasson bóndi í Torfufelli í Eyjafirði Úr frændgarði Ingiríðar Hönnu Þorkelsdóttur Þorkell Skúlason löggiltur endurskoðandi í Kópavogi Á Boðnarmiði fer Frímann Svav-arsson með þessa vísu: Hver er þessi eina á sem aldrei frýs gul og rauð og græn og blá og gerð af SÍS? Ég orti þessa vísu á sínum tíma og varð hún fleyg. Það er rétt sem Hólmfríður Bjartmarsdóttir segir: „Í afmælisriti Kveðanda á Húsavík 2006, sem Halldór er félagi í, er þessi vísa með fleiri vísum eftir Halldór á bls 17. Hann bað okkur í útgáfunefndinni um að birta hana þó hún væri ekki ný, því hún hefði lengi verið eignuð öðrum.“ Björn Ingólfsson segir svo frá: „Einu sinni sagði mér bóndi sem var nýfluttur á mölina að þetta væru mikil viðbrigði. Erfiðast væri samt að geta ekki farið út fyrir bæ að pissa á morgnana“: Það eru örlög ill og hörð og erfið bóndagreyi að mega ekki á móður jörð míga á hverjum degi. Kristján H. Theodórsson bætti við: Þægindin mér þykja fá, þörfin brýn að gera styr um. Ef ei lengur míga má mínum út frá bæjardyrum Gunnar J. Straumland hefur sögu að segja: „Fregnir hafa borist af því að heyrst hafi í fyrstu lóum vorsins og að einhverjir hafi jafnvel séð til þeirra, óvenjuönugra, eftir tafir við landamærin“: Lóur hvæsa dirrindí með drápsglampa í augum. Óvænt sóttkví olli því að þær fóru á taugum. Guðný Jakobsdóttir yrkir í orða- stað kýr, þar sem hún etur á bás sínum: Meðan jaga hagl og hríð húsin daga langa mig dreymir haga, dælli tíð, í dögg að kjaga, sumur blíð. Og svo eftir Jón Bjarnason frá Garðsvík: Alvörunni helst ég hef hafnað öðru fremur þótt hún reynist ágæt ef til alvörunnar kemur. Sigurður Geirdal orti: Það situr á móti mér meyja og margt væri gaman að segja en hvað hugurinn geymir og holdið um dreymir er þannig að best er að þegja. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hver er þessi eina á sem aldrei frýs? Armbandsúr er sígild fermingargjöf www.gilbert.is ARC-TIC úr Með leðuról 29.900.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.