Morgunblaðið - 31.03.2021, Side 58
58 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
✝
Þórhallur Guð-
mundsson
fæddist 4. janúar
1964 í Bröttuhlíð á
Hofsósi. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 21.
mars 2021.
Þórhallur var sonur
hjónanna Birnu
Þórhallsdóttur, f.
1938, og Guð-
mundar Kristjáns-
sonar, f. 1931, d. 1988. Systkini
hans eru Helga Þórdís, f. 1955,
Kristján, f. 1957, Kristinn, f.
1961, og Gylfi, f. 1971.
Þórhallur lauk grunnskóla-
göngu sinni í Keflavík og síðar
námi í húsasmíði frá Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
Þórhallur starfaði lengst af
sínum starfsferli sem smiður, en
sinnti einnig sölu-
störfum á tímabili.
Síðustu æviárin
starfaði hann sem
smiður hjá Nesfiski
í Garðinum.
Þórhallur var
kvæntur Helen
Antonsdóttur, f.
1960. Eiga þau sam-
an soninn Ástþór
Orra. Úr fyrra sam-
bandi á Þórhallur
tvær dætur, Fanneyju Rut og
Maríu. Úr fyrra sambandi á Hel-
en börnin Steinar Örn og Ernu
Ósk. Þórhallur á átta barnabörn
og eitt langafabarn.
Útförin fer fram frá Keflavík-
urkirkju í dag, 31. mars 2021,
klukkan 11. Í ljósi aðstæðna
verða einungis nánustu aðstand-
endur viðstaddir athöfnina.
Þú hringdir með slæmar
fréttir en leyfðir mér nú samt
að ausa yfir þig upplýsingum
um hann Flóka fyrst. Sagðir
mér svo að þú hefðir farið til
læknis og fengið slæmar fréttir,
að þú ættir að lesa smásögur en
ekki langar skáldsöguseríur.
Við hlógum en mér brá og við
tóku svefnlausar nætur. Um
viku síðar fer jörðin að skjálfa
og fréttirnar um krabbameinið
taka að versna. Þá hefst
ógleymanlegur tími þar sem
skjálftar hrista upp allar minn-
ingarnar um þig. Allan tímann
sem ég vildi að við hefðum átt
saman og hélt að við myndum
deila næstu áratugi. Vegna þess
að tími okkar saman kom í
skömmtum í formi helgarheim-
sókna og síðar allt of fárra
kaffiheimsókna. Grillveislur í
garðinum, bíltúr um bæinn,
skoða alla biluðu bílana sem ég
keypti gegn þínum ráðum. Svo
má ekki gleyma símtölunum
sem voru aldrei styttri en hálf-
tími en við hefðum getað talað
saman í marga klukkutíma. Þú
varst svo stoltur af fólkinu þínu
og hafðir endalaust ánægju af
afrekum barnabarnanna. Gleði-
tárin við eldhúsborðið þegar við
hittumst á miðjum vinnudegi og
ég sagði þér að Flóki (enn eitt
barnabarn) væri á leiðinni, það
er líklegast fallegasta minningin
með þér. Áfallið að missa þig
svona hratt og svona snemma
er svakalegt og eitthvað sem
skilur okkur eftir í aðstæðum
sem eru okkur óskiljanlegar.
Ég er búin að taka upp símann
til að hringja í þig nokkrum
sinnum, mig langar svo að
heyra hvað þér finnst um nýju
veirureglurnar eða hvort þér
finnist ráðlegt að fara í frí til
Spánar. Stórar og litlar ákvarð-
anir hef ég alltaf tekið eftir ráð-
um frá þér pabbi minn.
Jörðin hætti loks að skjálfa
og gosið hófst, þá hafði Helen
samband, það er kominn tími til
að kveðja. Við systur keyrðum
brautina og virtum fyrir okkur
reykmökkinn frá Geldingadöl-
um, við vorum á leiðinni að sjá
þig í síðasta sinn. Takk fyrir
allt sem þú hefur gefið mér og
kennt um lífið, þú skilur eftir
þig fjöll af fallegum augnablik-
um sem aldrei verða gleymd.
Það var enginn eins og þú
pabbi, ég elska þig.
María Elínardóttir
Elsku bróðir minn er horfinn
á braut aðeins 57 ára eftir
snarpa baráttu við krabbamein.
Þú varst einstaklega ljúfur og
alltaf mætti manni fallega bros-
ið þitt og glettni. Það er svo
sárt að þurfa að kveðja þig.
Margar minningar koma upp
í hugann frá yngri árum eins og
þegar þú varst að kenna yngsta
bróður okkar frönsku. Þið sátuð
úti á stétt og hafðir þú lært
nokkur orð í frönsku úr sjón-
varpinu frá frönskukennslu frú
Vigdísar.
Elskur vinurinn, ég veit að
pabbi hefur tekið vel á móti þér
í draumalandinu, þín er sárt
saknað. Minning um góðan
dreng lifir.
Elsku Helen, börnin, barna-
börnin, barnabarnabarnið,
tengdabörnin og mamma, megi
góður guð styrkja ykkur í sorg-
inni.
Þín systir,
Helga.
Þórhallur Guðmundsson
tengdapabbi kom inn í mitt líf
fyrir tæpum 22 árum. Frá
fyrstu kynnum vorum við miklir
félagar, enda með svipaða lífs-
sýn og yfirvegun að leiðarljósi.
Þórhallur lauk iðnbraut húsa-
smíða við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og var gríðarlega
fær smiður. Í hvert sinn sem
hann hjálpaði manni við smíða-
vinnu var hann búinn að ímynda
sér í hausnum fyrir fram hvern-
ig verkið ætti að líta út. Fyrir
mér var þetta furðulegur hæfi-
leiki þar sem ég var ekki einu
sinni búinn að ímynda mér
hvernig ég ætti að handlanga
hamarinn til hans fyrirfram, þó
taldi ég mig vera nokkuð góðan
handlangara. Það var ekki að
spyrja að því, þegar verkið var
fullklárað var það alltaf svo gott
sem óaðfinnanlegt, enda fékk
hann viðurnefnið millimetra-
maðurinn hjá okkur fjölskyld-
unni. Eftir því sem árin liðu og
ég fór að fúska mikið sjálfur í
smíðavinnu var ekki laust við að
púlsinn færi í botn þegar milli-
metramaðurinn kom í heimsókn
í úttekt. Þegar hann byrjaði að
benda á hinar og þessar villur
hjá manni sagði ég nú alltaf við
hann að ég væri nú ekki að
byggja Buckingham-höll. Hon-
um þótti það merkilega fyndið,
en mér var alvara með þessu.
Þegar ég og Erna bjuggum
nokkur ár í Danmörku á sínum
tíma var ekki að spyrja að því
að Þórhallur var duglegur að
koma í heimsókn á hverju ári
og nánast hvert sinn sem hann
kom gat hann aðstoðað við ein-
hver verk. Smíðað var grind-
verk í bakgarðinum og fyrir
framan íbúðina sem við bjugg-
um í, engu máli skipti þótt þetta
væri leiguíbúð. Þarna sá maður
líka að maðurinn vissi fátt betra
en að skapa eitthvað í hönd-
unum á sér.
Hann var ákaflega stoltur af
öllum sínum barnabörnum og
fyrir mér leit þetta út eins og
öll þessi barnalukka í kringum
hann væri öflug vítamínsprauta
fyrir sálarlífið hjá honum. Alltaf
spratt fram bros þegar maður
mætti með börnin í heimsókn,
hann stóð upp frá því sem hann
var að gera og gaf þeim stórt
og gott afaknús. Börnin með-
tóku alla þá ást sem hann gaf
þeim og fyrir vikið dýrkuðu þau
afa sinn. Honum þótt fátt
skemmtilegra en að mæta á
íþróttamót hjá börnunum okk-
ar, tala nú ekki um ef að það
tengdist fótbolta, sem var ein af
hans uppáhaldsíþróttum.
Eftir situr hafsjór af minn-
ingum með tengdapabba, ótal
ferðalög innanlands í útilegu og
sumarbústaði. Utanlandsferðir
saman til Kanarí og Spánar, þar
sem við áttum margar einlægar
spjallstundir á kvöldin með leð-
urbakaða húð eftir sólargeisla
dagsins yfir nokkrum köldum
bjórum.
Takk fyrir allt sem þú hefur
kennt mér í lífinu Þórhallur
Guðmundsson, takk fyrir að
vera alltaf til staðar þegar á
reyndi og fyrir að veita börn-
unum mínum ótakmarkaða ást
og umhyggju.
Margeir Einar Margeirsson.
Elsku afi, við munum aldrei
gleyma öllum góðu stundunum
sem við höfum átt, það var allt-
af jafn gaman að koma til ykk-
ar. Það fyrsta sem þú gerðir
var alltaf að standa upp og
labba brosandi í átt að okkur og
svo gafstu okkur stórt knús. Við
elskum þig af öllu hjarta. Takk
fyrir að vera alltaf svona góður
við okkur og brosmildur, við
elskum þig.
Bergdís Brá og Markús Þór.
Elsku afi, þú studdir mig allt-
af í öllu sem ég gerði, alveg
sama hvað það var, og vildir
alltaf að öllum liði sem best.
Frá því að ég var lítil hefur mér
alltaf liðið best hjá þér. Þú
hjálpaðir mér mikið í lífinu og
mér finnst vanta einhvern part
af mér með þig ekki lengur til
staðar. Ég mun alltaf elska þig
af öllu mínu hjarta.
Helen María.
Elsku Lalli. Engin orð fá því
lýst hve mikil sorg býr í hjarta
mínu við að skrifa þessar línur.
Okkar fyrstu kynni voru þegar
við báðir fluttum í Eyjabyggð-
ina í Keflavík 1974, ég 11 ára og
þú 10 ára, báðir steingeitur og
nánast eitt ár milli okkar, jafn
gamlir tvo daga á ári. Það tókst
á milli okkar mikil vinátta sem
átti eftir að vara ævilangt.
Þú varst mikill keppnismaður
og voru ófáar stundirnar sem
við áttum saman á fótboltavell-
inum í Eyjabyggðinni ásamt
stórum hópi drengja sem komu
saman til að spila knattspyrnu.
Það skilaði sér heldur betur
nokkrum árum síðar þegar við
urðum báðir Íslandsmeistarar
með 4. flokki ÍBK í Neskaup-
stað 1977.
Við fengum báðir okkar
fyrstu vinnu í frystihúsinu hjá
Óla Sól við Hafnargötuna þar
sem við unnum saman á vél-
unum með öllum „flottu stelp-
unum“, okkur fannst það alla-
vega.
Síðar lá leið okkar til Kefla-
víkurverktaka, þar sem við fór-
um að vinna við húsasmíði. Þú
fórst á samning og kláraðir þitt
nám og vannst alla tíð við fagið.
Kobbi verkstjórinn okkar kall-
aði þig alltaf Þórhall en ekki
Lalla eins og við hinir í smíða-
flokknum. Ástæðan fyrir því var
að í sveitinni þar sem hann var
alinn upp hafði verið leiðinlegur
hundur sem hét Lalli.
Mér er minnisstætt þegar
pabbi lánaði okkur Novuna til
að fara á ball á Borg í Gríms-
nesi og við settum bílinn óvart í
park á 100 km hraða á Reykja-
nesbrautinni og fórum báðir í
framrúðuna og það drapst á
bílnum, en viti menn; við sett-
um bara bílinn í gang, báðir
með kúlu á enninu, og fórum á
ballið.
Við félagarnir fórum tveir
með 2. flokki Keflavíkur í fót-
bolta til Hollands í viku æfinga-
ferð, ég sem þjálfari og þú sem
fararstjóri, nuddari og allsherj-
ar reddari. Man hvað við vorum
stoltir af strákunum hvað þeir
væru stilltir, en nokkrum árum
síðar komumst við að því að
þeir höfðu laumað sér út eftir
að við vorum sofnaðir.
Þegar þú fórst í hjarta-
aðgerðina á Landspítalanum
2018 sá ég mér leik á borði að
kaupa Liverpool-treyju með
nafni þínu og gefa þér. Þú varst
allavega steinhissa, sem Man.
Utd-aðdáandi, hvað ég væri að
pæla. Ég sagði við þig að ég
væri búinn að tala við lækna-
teymið sem myndi skera þig og
þeir ætluðu að skipta um blóð
og þú myndir vakna upp sem
Liverpool-maður! Ekki tókst
þetta hjá mér því áfram varst
þú grjótharður Man. Utd-mað-
ur eins og þú varst alla tíð.
Þrátt fyrir að við værum ekki
í daglegum samskiptum var
alltaf mikill kærleikur á milli
okkar. Alltaf hringdi ég í þig á
afmælisdaginn 4. janúar og þú
til baka tveimur dögum síðar.
Nú þegar þú hefur kvatt
þennan heim sitja eftir ótal
margar frábærar minningar um
þig og okkar samskipti í gegn-
um árin. Mér þykir innilega
vænt um þær stundir sem ég
átti með þér í veikindum þínum
þegar við rifjuðum upp prakk-
arastrikin í vinnunni í gamla
daga og hlógum saman.
Elsku Helen, Ástþór, Erna,
Steinar, Birna og aðrir ættingj-
ar og vinir, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð og sendi hlýjar
kveðjur á þessum erfiða tíma.
Megi guð vera með ykkur.
Þinn vinur,
Freyr Sverrisson.
Þórhallur
Guðmundsson
Mikið er það
óraunverulegt og
ósanngjarnt að sitja
hér og skrifa minn-
ingargrein um
barnabarnið sitt.
Stórt skarð er höggvið í barna-
hóp okkar Ævars. Guðjón Elí var
annað barnabarnið okkar af átta.
Hann var fjörugur grallari sem
nánast ólst upp á fótboltavellin-
um. En fótboltinn átti alla tíð hug
hans og hjarta.
Snemma sýndi hann einstakan
karakter, var bara smá patti þeg-
ar hann hélt fyrstu Bubbatón-
leikana á tröppunum heima hjá
sér. Hann byrjaði ungur í fót-
bolta, fyrst með Reyni Sandgerði
og seinna meir með Keflavík.
Hann var í kringum 10 ára þegar
ég kom að horfa á hann keppa og
var hann þá búinn að spreyja á
sér hárið blátt, allt það sumar var
hann svo með spreyjað hár þegar
hann var að keppa.
Seinna meir tók við agaður
ungur maður sem var með allt
sitt á hreinu og einstaklega metn-
aðarfullur. Enda flott fyrirmynd
fyrir litlu frændur sína sem allir
rökuðu á sér hárið, honum til
stuðnings þegar hann missti sitt.
Elsku hjartað okkar, við afi
þinn erum svo þakklát fyrir þann
tíma sem þið mæðgin bjugguð
hjá okkur meðan þið biðuð eftir
nýju íbúðinni ykkar sem nú er
loksins tilbúin, en þú náðir ekki
að sjá.
En þú settir þó þinn svip á
hana, síðasta skiptið sem þú fórst
út af spítalanum valdirðu sófa og
stóla fyrir mömmu þína.
Við áttum yndisleg jól saman
þótt veikindi þín hafi vissulega
sett strik í reikninginn. En ynd-
islegt var að hafa ykkur bræður á
heimilinu, að læðast í kökuboxin
mín og svo elskaðir þú ömmumat.
Fjölskyldan stækkaði svo í jan-
úar þegar þið bræður eignuðust
lítinn hvolp, hann Lucas, sem var
sannkallaður gleðigjafi á þessum
erfiðu tímum.
Guðjón Elí sýndi mikið æðru-
leysi og hugrekki í sinni baráttu.
Kvartaði aldrei og barðist til síð-
asta dags. Þegar ég spurði hann
núna í febrúar hvort hann hafi
fengið slæmar fréttir frá læknun-
um sagði hann: „Nei bara smá
brekka, amma.“
Guðjón Elí
Bragason
✝
Guðjón Elí
Bragason
fæddist 13. júní
2002. Hann lést 19.
mars 2021.
Útförin fór fram
29. mars 2021.
Þú komst í heim-
inn með látum,
bráðakeisara og
kvaddir okkur svo
með
eldgosi sem var
svo táknrænt fyrir
þig.
Elsku Hanna mín
og Elfar, Bragi og
fjölskylda. Missir
ykkar er mikill. Guð
styrki ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Hvíl í friði elsku strákurinn
okkar. Núna ertu laus við allar
kvalir og kominn á fallegan stað.
Minning um fallegan og ljúfan
dreng lifir með okkur.
Kveðja,
Guðlaug amma og Ævar afi.
Við í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja erum harmi slegin yfir frá-
falli Guðjóns Elís Bragasonar.
Guðjón Elí hóf nám við skólann á
haustönn 2018 og var til fyrir-
myndar í alla staði. Hann var á
fjölgreinabraut en sameinaði
námið fótboltaáhuga sínum því
hann var jafnframt á afreks-
íþróttasviðinu í knattspyrnu
þetta fyrsta ár sitt. Þrátt fyrir
veikindin sem gerðu vart við sig
ári síðar hélt Guðjón Elí samt
ótrauður áfram námi og stóð sig
vel. Hann tók sér leyfi eina önn
vegna veikindanna en kom í sum-
arskólann síðastliðið sumar til að
vinna það upp því hann ætlaði að
klára þetta og það segir auðvitað
meira en mörg orð um hvaða
mann hann hafði að geyma.
Guðjón Elí var afskaplega ljúf-
ur drengur og vinmargur. Þeir
kennarar og starfsmenn sem ég
hef hitt bera honum allir vel sög-
una.
Það væri hægt að hafa mörg
orð um alla hans hæfileika og þá
mannkosti sem hann hafði til að
bera og ljóst að hann skilur eftir
sig ljúfar minningar hjá öllum
þeim sem kynntust honum.
Það er aldrei auðvelt að sætta
sig við það þegar ungt og efnilegt
fólk er hrifið svona á burt. Guð-
jóns Elís verður sárt saknað með-
al nemenda og starfsfólks en
minningin um góðan dreng sem
kvaddi þennan heim allt of fljótt
mun lifa með okkur. Við kveðjum
Guðjón Elí með söknuði og hlýju í
hjarta.
Fjölskyldu hans og vinum
sendum við hugheilar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd Fjölbrautaskóla
Suðurnesja,
Kristján Ásmundsson,
skólameistari.
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
" 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
(1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744