Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 65

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 H eimildamyndin Er ást var frumsýnd og vann til áhorfendaverðlauna á Skjaldborg, hátíð ís- lenskra heimildamynda, síðastliðið haust þegar þriðja bylgja kófsins var við það að skella á landanum (en þar áður hafði hátíðinni, sem fer vana- lega fram um verslunarmannahelg- ina, verið frestað og færð til Reykja- víkur frá heimili sínu fyrir vestan, Patreksfirði). Áður en skellt var í lás enn á ný hafði myndin verið sýnd í tvær vikur í Bíó Paradís en hefur nú fært sig inn á glænýja streymisveitu listabíósins, Heimabíó Paradís, þar sem hún er landsmönnum aðgengi- leg gegn eingreiðslu. Einnig má taka fram að myndin er tilnefnd til Eddu- verðlauna sem heimildamynd ársins. Er ást fjallar um Helenu Jóns- dóttur danshöfund og kvikmynda- leikstjóra og samband hennar við eiginmann sinn, Þorvald Þorsteins- son myndlistarmann og rithöfund, sem lést af slysförum á heimili þeirra í Antwerpen í Belgíu árið 2015. Óhætt að segja að verkið sé af- ar persónulegs eðlis en einblínt er á frásagnir Helenu af lífshlaupi og sambandi þeirra hjóna. Myndin var tekin upp á árunum 2015 til 2020 í Belgíu og á Íslandi og skrásetur sorgarferli Helenu. Um leið er Hel- ena að standa vörð um arfleifð Þor- valdar sem listamanns sem fylgir því að fara í gegnum aragrúa mynd- og hljóðverka, skrifta og finna þeim far- veg, samhengi og geymslustað. Þessari flóknu stöðu og margbrotnu tilfinningum henni tengdum eru gerð skil. Myndin hefst á evrópskri skógar- sýn – söguhetjan (og lítill hvutti) færist hægt inn í ramma á reiðhjóli eftir leið malarvegarins í átt að myndavélinni. Klippt er á Helenu sitjandi á bekk í trjálendi og í fram- haldi er heimferð hennar miðlað með borgarmyndum af síki, neðanjarðar- lest og rúllustiga. Píanónótur slá ljúfsáran upphafstón en rödd Hel- enu tekur yfir hljóðrásina teljandi upp fimm stig sorgarferlis (afneitun, reiði, úrvinnsla, þunglyndi og sátt), eins og þau hafa verið skilgreind af fagaðilum. Þetta ferli afmarkar sorgina sem línulega þróun en Hel- ena segir að „raunveruleikinn er sá að það er ekkert línulegt við þetta“, heldur upplifir hún hana „sem rússí- banaferð sem á sér hvorki upphaf né endi“. Við tekur atriði með Helenu á vinnustofu þeirra hjóna, þar sem hún fer í gegnum verk Þorvaldar – til skrásetningar og varðveislu. Sen- an sviðsetur á beinskeyttan hátt flókið ferli sem Helena á í vændum – að fara í gegnum veraldlegar leifar lífs sem var – og minningarnar sem við það vakna. Augað hvílir þolin- mótt á hverju orði Helenu en hún er mynduð í nærmynd er hún ræðir að- komu og stuðning Þorvaldar að verki hennar Tímum. Súmmað er út og frá henni, eins og til að gefa henni pláss. Örskömmu síðar er eins og Helena klökkni og yfirgefur hún sjónarsviðið í hvelli. Súmmið sýnir fram á næmi og virðingu aðstand- endanna gagnvart aðalpersónunni. Upphafsatriðarunan, sem hér hefur verið lýst, kynnir helstu þemu, að- stæður og efnistök á lipran hátt. Almennt eru raddirnar í verkinu aðeins tvær: Helenu og Þorvaldar. Á vissan hátt er því um portrett- eða viðtalsmynd við Helenu að ræða, þar sem hún er nánast undantekning- arlaust í hlutverki þess sem segir frá. Samsetning er þó lífleg og fim – Helena er bara í mynd þegar það skiptir máli. Notuð eru viðtöl við Þorvald, myndefni úr hirslum ís- lensku sjónvarpsstöðvanna af list- þátttöku þeirra og efni úr einkasafni fjölskyldunnar. Samband og saga þeirra er rakin línulega. Helena var einstæð móðir að vinna í íslensku listalífi þegar þau kynntust. Allt frá upphafi voru þau afar náin og ást- fangin „eins og unglingar“. Greint er hispurslaust frá skini og skúrum, áföllum og sigrum sem urðu á vegi þeirra en betra er að spilla ekki fyrir lesendum með ítarlegri umfjöllun. Þó er vert að geta þess að Helena ræðir fíknisjúkdóm Þorvaldar og af- stöðu sína til hans. Myndin sem hlýst af er afar mannleg – af breysku og heillandi fólki – og upp- lifir rýnir þakklæti í garð Helenu fyrir að hleypa áhorfendum nærri sér í þessum erfiðu aðstæðum. Einn- ig verður að hrósa Kristínu Andreu Þórðardóttur leikstjóra fyrir að skapa jafn sterkt trúnaðarsamband og raun ber vitni. Vefur myndarinnar er heillandi – stafrænar tökur Bjarna Felix Bjarnasonar eru fágaðar og glæsi- legar – og skeytt afar vel saman við eldra efni í klippingu Sighvats Óm- ars Kristinssonar. Myndin er rúmar fimmtíu mínútur og í raun afar þétt- ofin og efniviður nægur í mynd í „fullri“ lengd. Á stöku stað væri kærkomið að anda jafnvel meira í þunga tilfinninga og jafnvel fá fleiri senur með Helenu í aðstæðum með öðru fólki og fá meiri innsýn í hvers- dag hennar. Fókusinn er því þröng- ur, sem auðvitað getur líka talist styrkleiki. Tónlist Úlfs Eldjárns er á köflum fullleiðandi fyrir smekk und- irritaðs, sem er þó örlítið strangur í þeim efnum. Heilt yfir er Er ást falleg frásögn um ást og missi – sögð af miklu ör- læti. Hún ætti að höfða til þeirra sem hafa áhuga á lífi listamanna en ekki síður til allra sem hafa elskað og misst. Alltaf, hverful, alltumlykjandi Þakklæti „Myndin sem hlýst af er afar mannleg – af breysku og heillandi fólki – og upplifir rýnir þakklæti í garð Helenu fyrir að hleypa áhorfendum nærri sér í þessum erfiðu aðstæðum,“ segir m.a. í gagnrýni um Er ást. Hér sést Helena með hvutta sínum á leið upp rúllustiga í Antwerpen í Belgíu. Heimabíó Paradís Er ást bbbmn Leikstjórn og handrit: Kristín Andrea Þórðardóttir. Kvikmyndataka: Bjarni Felix Bjarnason. Klipping: Sighvatur Ómar Kristinsson. Ísland, 2020. 52 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® VIÐ MÆTUM AFTUR 15. APRÍL EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR. Risa Páskaknús á ykkur öll og hlökkum til að hitta alla í bíó aftur. VÆ NT AN LEG Í B ÍÓ VÆNTANLEG Í BÍÓ ÓSKARS- TILNEFNINGA MYNDIRNAR MÆTA AFTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.