Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 56

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 56
56 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 ✝ Ingólfur Hauk- ur Kristjáns- son fæddist á Akureyri 20. októ- ber 1966. Hann lést á Landspítalanum deild 11E 18. mars 2021. Foreldrar hans voru Kristján Sig- mar Ingólfsson, f. 26. maí 1943, d. 7. maí 1990, og Linda Steingrímsdóttir, f. 19. nóv- ember 1946. Systkini Ingólfs Hauks eru: Dóra Kristjánsdóttir, f. 14. febrúar 1965. Maki hennar er Ársæll Kristjánsson, þau eiga þrjú börn; Gunnar Örn Krist- jánsson, f. 4. nóvember 1968. Maki hans er Helena Sigurðar- ján Ingi, f. 24. nóvember 2004. Ingólfur á tvær dætur: 1) El- ísabeth Lind, f. 30. apríl 1987. Maki hennar er Ástvaldur Helgi Gylfason, synir þeirra eru Ey- þór Ingi og Kristinn Freyr; 2) Rakel, f. 14. ágúst 1995. Sonur Sigrúnar Hildar er Jakob Freyr Atlason, f. 10. nóvember 1992. Ingólfur Haukur ólst upp á Svalbarðseyri til níu ára aldurs og fluttist þá til Dóru ömmu sinnar og Ingólfs afa síns í Bræðraborg á Hofsósi. Hann flutti til Vestmannaeyja um tví- tugt og lauk þar Stýrimanna- skólanum árið 1993 eftir að hafa unnið sem háseti í nokkur ár. Síðustu árin var hann stýri- maður á Víkingi AK-100 og bjó með fjölskyldu sinni í Kópavogi. Útförin fer fram í Linda- kirkju í dag, 31. mars 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: https://fb.me/e/1ej8WJK6S/. Virkan hlekk má einnig nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat/. dóttir, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn; Snorri Valdimar Krist- jánsson, f. 5. febr- úar 1974. Maki hans er Álfheiður Elín Bjarnadóttir, þau eiga þrjá syni. Hjálmar Skarphéð- insson, f. 17. októ- ber 1975. Maki hans er Monika Katarzyna Waleszczynska, þau eiga þrjár dætur. Kári Snær Skarphéðinsson, f. 28. október 1987. Maki hans er Andrea Gylfadóttir, þau eiga tvö börn. Ingólfur Haukur kvæntist Sigrúnu Hildi Guðmundsdóttur, f. 11. júlí 1971, hinn 1. septem- ber 2007. Barn þeirra er Krist- Í dag kveð ég elskuna mína, sem hefur fengið frið eftir þessa baráttu sem við ætluðum að vinna saman. Þú varst svo harð- ur á því, alveg allan tímann. Það var svo einstakt hvernig þú tókst á við veikindin með þínu einstaka jafnaðargeði og hélst í þinn skemmtilega húmor og stríðnina maður minn. Ég man þegar við hittumst fyrst og svo hittumst við nokkuð oft áður en við urðum kærustu- par og síðar hjón. Auðvitað ætl- uðum við að verða gömul saman og við töluðum stundum um það hvað við ætluðum að njóta og við yrðum nú að fara að byrja í golfi til að hafa eitthvað að gera á Tene í ellinni. Við vorum alltaf dugleg að njóta lífsins og gera eitthvað skemmtilegt saman og eins vorum við dugleg að nýta tímann í veikindunum og njóta og allar minningarnar sem við eigum saman eru ómetanlegar í dag. Ég hlakkaði alltaf til þegar þú varst að koma í land og það var alltaf ákveðin spenna, þann- ig að við vorum eins og kær- ustupar endalaust. Þú varst ein- stakur, svo góður og hlýr, alveg inn að beini. Þú hafðir svo skemmtilegan áhuga á fólki og varst mikill spjallari, og svo mikill símamaður líka sem svo stytti stundirnar síðustu árin. Gæti talið upp endalaus jákvæð lýsingarorð um þig elskan mín. Þú varst svo skemmtilegur og við áttum svo oft gott spjall yfir morgunbollanum, sem ég mun sakna. Ég mun sakna þín svo mikið að ég bara veit ekki hvað… ég get ekki ímyndað mér lífið án þín. Til þín ég hugsa staldra við. Sendi ljós og kveðju hlýja. Bjartar minningar lifa ævina á enda. (Hjartalag) Elska þig endalaust mikið. Hvíldu í friði. Þín Sigrún Hildur. Elsku hjartans pabbi minn. Mikið er sárt að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Missirinn er mikill. En ég á svo margar ljúfar og skemmtilegar minningar til að ylja mér við. Frábærar stund- ir með pabba mínum. Bryggjurúntarnir í Eyjum með viðkomu í sjoppunni þar sem við fengum okkur kókflösku með lakkrísröri eða ís. Kósí- kvöldin okkar í Áshamrinum. Heimsóknirnar til Hjálmars og Moniku og allra skemmtilegu vina þinna. Gistipartíin í Sælu- hlíð og dekrið á Breiðvangnum. Jól, áramót og páskar í Hnífsdal hjá ömmu Lindu, Skarphéðni afa, Kára Snæ og Snorra. Allt voru þetta ævintýri sem ég lifi á enn í dag. Ég held sérstaklega upp á ferðalögin okkar tveggja sem við fórum á hverju sumri til að hitta allt fólkið okkar. Við brunuðum í Bræðraborgina til uppáhalds ömmu Dóru. Fórum á Akureyri til Rakelar systur og Gunnars og fjölskyldu, á Svalbarðseyri til Dóru og fjölskyldu og í Heið- arholtið. Ég naut góðs af því hvað þú varst duglegur að rækta sambandið við fjölskylduna þína og fékk að kynnast stórfjölskyld- unni allri þrátt fyrir að búa fyrir sunnan. Við brunuðum allt á hæfilega löglegum hraða með tónlistina í botni og góluðum með: Ef ég ætti þrjár óskir, þá ég óskaði ég mér að ég gæti flogið, flogið til þín yfir fjöll, yfir höf til þín Svo varð ég stór og þú fékkst Sigrúnu þína og Jakob Frey inn í líf þitt og svo Kristján Inga. Ég kynntist Valda og eignaðist afa- strákana þína og þá tók við nýtt hlutverk. Afahlutverkið. Þú varst yndislegur afi strákanna okkar og fékkst auðvitað nafna í Eyþóri Inga. Þú komst austur í heimsóknir til að leika við Eyþór Inga og svo Kristin Frey og passaðir heima í Asparhvarfi þegar þú gast. Ég var hrædd um að þú fengir ekki að kynnast litlu bauninni minni þegar þú greind- ist og ég var ólétt en við fengum þrjú extra ár og þú kynntist Kristni Frey sem er uppátækja- samur grallari eins og afi var. Þú vildir ekkert drama eða væmni en varst samt alltaf til í knús. Þegar ég átti erfitt með að sofna í gamla daga leyfðirðu mér að gista á gólfinu inni hjá þér og hélst í höndina mína þar til ég sofnaði. Svo kom að því að ég vekti yfir þér og héldi í höndina þína þegar þú fórst í Sumarland- ið. Ég verð alltaf þakklát fyrir þessa kveðjustund. Takk elsku pabbi minn, fyrir að vera góður pabbi, tengdafaðir og yndislegur afi. Við elskum þig alltaf. Elísabeth Lind Ingólfsdóttir, Ástvaldur Helgi Gylfason, Eyþór Ingi Ástvaldsson, Kristinn Freyr Ástvaldsson. Minning um Inga bróður. Nú ertu farinn frá okkur minn kæri Ingi bróðir og minn besti vinur. Það er hræðilega ósann- gjarnt og erfitt að sætta sig við að missa þig svona snemma, ég veit að þín verður sárt saknað af fjölskyldunni og stórum vina- hópi. Ég er óendanlega þakklát- ur fyrir þann tíma sem við feng- um saman í lífinu og þegar ég lít til baka sé ég hversu ótrúlega mikið af góðum minningum við eigum. Þrátt fyrir að við ættum heima hvort á sínu landshorninu stærstan hluta ævinnar höfum við í raun varið miklum tíma saman og þess á milli verið eft- irlætisviðskiptavinir Símans, afi í Hofsósi skildi ekkert í því hvað þú værir að ólmast svona í síman- um. Það er svo margt gott um þig að segja, ekki bara traustur vinur vina þinna heldur einnig ótrúlega duglegur að halda góðu sambandi við vini og vandamenn. Það er aðdáunarvert hversu mannglögg- ur þú ert og hversu auðvelt þú átt með samskipti, enda með góða kunningja og vini hvert sem þú fórst og alltaf varstu hrókur alls fagnaðar með einstakan húmor og sanna gleði í hjarta. Æskuminningar hrannast upp og veita mér gleði á annars dapri kveðjustund. Æfingaakstur án aldurs á mótorhjóli og ævintýra- legir rúntar próflausir á VW- bjöllu og veiðiferðir á klappirnar og skak á árabátnum Hermóði, það er von að amma hafi haft áhyggjur af okkur bræðrum. Allt- af nenntir þú að drösla litla bró með og á bílprófsaldrinum voru þeir óteljandi rúntarnir og eftir- minnilegar ferðir á útihátíðir og á milli landshluta. Alltaf var jafn gaman að hitta þig og vera með þér, einnig lifa góðar minningar um samveru innanlands og utan á liðnum árum. Það hefur verið gaman að fylgjast með þér í lífinu, svo fjöl- breytt og farsælt. Sennilega var þín mesta gæfa að fara á vertíð í Vestmannaeyjum þar sem þú dast inn í samfélag sem smell- passaði fyrir þig og þinn karakt- er. Eftir nokkur ár sem háseti á Valdimari Sveinssyni VE-22 tókstu það stóra skref að fara í stýrimannaskólann þar sem þú eignaðist frábæra vini sem hafa fylgt þér síðan. Eftir góðan stýrimannstíma á Emmu VE-219 og stutt stopp á nokkrum skipum fékkstu draumastöðu á uppsjávarskipinu Víkingi AK-100 þar sem þú varst í góðum félagsskap. Snemma beygðist krókurinn á skakinu á Hermóði og þú varst svo stoltur af sjómannsferlinum og skipunum þínum, enda hörkutól til sjós og dugnaðarforkur til vinnu. Þú tókst á við veikindin af sömu elju og stóðst öldurnar í þrjú ár með þvílíkum hetjuskap og hélst áfram að bæta í góðar minningar þrátt fyrir erfiða tíma. Þú mátt vera manna stoltastur af fjölskyldu þinni og þrátt fyrir að það hafi tekið tíma að finna þá einu réttu til að kvænast var það happafengur. Aðdáunarvert var að sjá hvað þú sinntir börnunum þínum vel og þótt ég viti að þú munir ávallt fylgja þínum nánustu í anda þá nístir það inn að hjarta að þú fáir ekki meiri tíma með þínum ynd- islegu börnum, barnabörnum og eiginkonu. Hvíl í friði minn kæri bróðir og þegar minn tími kemur veit ég að þú munt bíða með opinn arminn og frábæra samveru. Þangað til mun ég efna loforðin sem ég gaf þér. Gunnar Örn Kristjánsson. Elsku Ingó okkar. Minning þín mun lifa í hjarta okkar allra sem þekktum þig og þína léttu lund. Þvílíkur öðlingur, alltaf varstu jafn duglegur að hughreysta aðra. Elsku tengdasonur minn, þín verður sárt saknað. Við Helgi vottum eiginkonu, aðstandendum og ástvinum okkar innilegustu samúð og biðjum góð- an guð að styrkja þau í þessari miklu sorg. Nú hvílir þú í landi ljóss og friðar elsku vinur. Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst, engill meðal manna. Hlutverk þitt í heimi hér, þú hafðir leyst af hendi. Af þeim sökum eftir þér, Guð englahópa sendi. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta.. (B.H.) Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Saknaðarkveðjur. Þín tengdó, Ingibjörg og Helgi. Minn kæri frændi. Án þín er allt frekar tómlegt á þessari stundu. Hvar sem þú ert er ég viss um að þú ert ekki einn á gangi. Við höfum þekkst alla okkar tíð og brallað margt sam- an. Margt vita sumir og aðrir minna en uppátæki okkar gætu fyllt heila bók. Okkar vegferð hefur ein- kennst af skemmtunum, ferða- lögum, matarveislum og ekki má gleyma okkar bestu stundum á Hofsósi í skjóli hjá ömmu og afa og síðar seinna meir við sjálfir með okkar fjölskyldum sem full- orðnir einstaklingar. Þótt amma og afi hafi sett okkur lífsreglur fylgdum við þeim ekki alltaf og kom það fyrir að fulltrúar hins opinbera urðu að láta vita af okkar uppátækj- um. Þú varst mér eins og bróðir og það leið varla sá dagur sem við sáumst eða heyrðumst ekki. Þú hafðir svo marga mannkosti að geyma, það vita þeir sem til þekkja. Umhyggja þín fyrir öðrum og verkefnum annarra var alltaf mikil öllum stundum. Þú vildir alltaf öllum hið besta og ef ósætti kom upp gerðir þú allt sem í þínu valdi stóð til að leysa þann ágreining. Að hafa fengið að verða samferða þér í gegnum líf- ið hefur gert mig að betri manni og ég hlakka til að hitta þig á nýjum stað þegar mér er ætlað. Elsku frændi minn: „Þú munt aldrei ganga einn“. Erlingur Ingi Sigurðsson (Elli). Elsku Ingó okkar. Það er erf- itt að sætta sig við það að þú sért farinn frá okkur. Missir okkar er mjög mikill. Við höfum aldrei kynnst annarri eins hetju og þér. Þú fórst í gegnum þessi þrjú ár af veikindum með algjörri yfir- vegun, með jafnaðargeði, styrk og jákvæðni. Þú meira að segja týndir aldr- ei húmornum. Við kveðjum þig með mikinn söknuð í hjarta og minnumst alla góðu stundanna sem við áttum með þér og Sig- rúnu og þinni fjölskyldu. Þú varst svo yndislegur mað- ur, góðhjartaður og vildir öllum svo vel. Jákvæðni þín, gleði, út- geislun og húmor smitaði frá sér hvar sem þú komst. Við sitjum hér með tár í augum og hugsum hvað við erum þakklát fyrir allar yndislegu minningarnar sem við eigum um þig. Allar skemmtilegu utanlands- ferðirnar til dæmis. Þær voru margar og skemmti- legar. Það var alltaf svo gaman að ferðast með þér. Þú þekktir alltaf einhvern, annaðhvort í flugstöðinni, flugvélinni eða jafn- vel erlendis. Ef það voru Íslend- ingar þar sem við vorum stödd þá þekktirðu þá, ættingja þeirra, eða fannst tengingu við fólkið. Það fannst líka öllum svo gaman að spjalla við þig. Þú varst svo skemmtilegur og með svo þægi- lega nærveru og yndislega orð- heppinn. Enda varstu vinmargur og vinsæll. Það sem við erum þakklát fyr- ir þann tíma sem Björn Ingi – Monsi ykkar – fékk með þér. Hann elskaði afa Ingó svo mik- ið. Þið voruð svo miklir vinir. Þú varst svo góður við hann, veittir honum alla þína athygli og lékst við hann þegar þú hittir hann. Enda sá hann ekki sólina fyrir þér. Takk elsku Ingó okkar fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Alla gleðina, hláturinn, vænt- umþykjuna og takk fyrir að vera alltaf svona góður við Björn Inga og okkur. Við vild- um öll svo sterkt halda í þá trú að þú yrðir viðstaddur brúð- kaupið okkar í sumar og myndir keyra brúðarbílinn, eins og planið var. Þú talaðir aldrei um neitt annað en hvað þú hlakk- aðir til og að við yrðum að fara að finna flottan bíl. Þú verður með okkur, það er engin spurn- ing. Við kveðjum þig í hinsta sinn okkar kæri mágur, svili og afi. Hvíldu í friði. Minning þín lifir í hjarta okkar. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elínborg, Björn Daði og Björn Ingi. Elsku hjartans Ingó. Mikið hvað lífið getur stundum verið ósanngjarnt. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Hér sit ég með tárin í aug- unum og minnist þín; rifja upp okkar áratuga löngu kynni, litlu augnablikin jafnt sem stóru stundirnar. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar ég byrjaði að vinna í frystihúsinu á Hnífsdal þá aðeins 14 ára – en þú rígfull- orðinn á 18. ári. Strax þá vakti það athygli mína hversu ynd- islegur þú varst; tillitssamur, nærgætinn og ljúfur. Ekki síst við okkur sem yngri vorum og þurftum kannski svolitla hand- leiðslu. Strax hafðir þú brenn- andi áhuga á fólkinu í kringum þig; sorgum þess og sigrum. Strax þá var lífsgleðin orðin þitt aðalsmerki. Það var hins vegar ekki fyrr en þú kynntist Sigrúnu Hildi vinkonu minni sem ljóst var að þú myndir alltaf eiga sérstakan sess í hjarta mínu. Þið voruð eins og sköpuð hvort fyrir ann- að og fátt sem gladdi mig meira en að fá að fagna ást ykkar með ykkur í ógleymanlegu, fallegu og afar fjörugu brúðkaupi ykk- ar árið 2007. Allar götur síðan höfum við brallað eitt og annað saman; búið til heilan haug af yndislegum minningum sem munu ylja mér um hjartarætur um ókomin ár. Alltaf var það þessi einlægi áhugi og umhyggja fyrir sam- ferðafólki þínu, vinum og vanda- mönnum, sem einkenndi öll þín samskipti við fólk – og þá skipti aldursmunur engu máli. Í hvert sinn sem þú sóttir mig heim gafstu þér tíma til að spjalla við börnin mín og spyrja þau út í þeirra líf; hvernig gengi í skól- anum, hvort þau væru skotin í einhverjum og hverjar væru þeirra vonir og þrár. Það þótti mér – og þeim – alla tíð afar vænt um. Og þetta sagði svo mikið um þig. Að fylgjast með aðdáunar- verðu æðruleysi þínu í veikind- unum síðustu ár hefur verið nístandi sárt en lærdómsríkt fyrir okkur sem staðið höfum hjálparlaus á hliðarlínunni með vonina eina að vopni. Elsku Ingó, um leið og ég þakka þér frá dýpstu hjartarót- um fyrir trausta og einlæga vin- áttu heiti ég þér því að ég mun passa upp á hana Sigrúnu þína og vefja hana örmum alla tíð. Ingólfur Haukur Kristjánsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Minningarkort Nýrnafélagsins er hægt að nálgast á nyra.is eða í síma 561 9244. Ykkar framlag er okkar styrkur, takk fyrir stuðninginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.