Morgunblaðið - 31.03.2021, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 31.03.2021, Blaðsíða 72
Á páskadag klukkan 20.05 verður frumsýnd ný íslensk stuttmynd á RÚV sem nefnist Sóttkví. Sögusvið hennar er Reykjavík í mars fyrir rúmu ári og segir af þremur vinkonum sem þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví. Þær sækja styrk og félagsskap hver til annarrar með reglulegum fjarfundum á meðan og auk innilokunar- innar er hver og ein að eiga við flóknar og á tíðum skoplegar aðstæður í einkalífi sínu sem magnast upp við einangrun og álag sóttkvíarinnar, eins og því er lýst. Með hlutverk vinkvennanna fara Elma Lísa Gunnars- dóttir, Birgitta Birgisdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir en handritið skrifuðu rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir. Reynir Lyngdal er leikstjóri þáttanna. Þrjár vinkonur í sóttkví á páskadag Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sæbjört Vala Ævarsdóttir, sjö ára stúlka í Fellabæ, veit fátt skemmti- legra en að leika við báða hunda fjölskyldunnar og láta þá leysa ýmsar þrautir. „Mér finnst sér- staklega gaman að láta þá gera ýmsar kúnstir og ég er búin að segja að þegar ég verð stór ætla ég að fá mér minn eigin hund,“ segir hún. Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir, móðir Sæbjartar, ólst upp við skepnur hjá nágrönnum í Fellabæ og í sveitinni í æsku. Hún hefur góða reynslu af hundum og unga fjölskyldan átti tvo áður en núver- andi hundar komu til sögunnar. „Pabbi segir að um leið og ég byrj- aði að tala hafi ég byrjað að suða um að vilja eiga hund, en samt var aldrei neinn slíkur hjá okkur,“ seg- ir Jarþrúður um æskuárin. „Ég hef samt alltaf verið mikil hundamann- eskja og þegar okkur bauðst að fá ástralska fjárhundinn Vask þurfti ég ekki að hugsa mig um tvisvar.“ Síðan hafi hún viljað fá annan hund til viðbótar fyrir tæplega tveimur árum og þá hafi nýfæddur Herk- úles, sem er af Coton de Tulier- kyni, orðið fyrir valinu. Hún leggur áherslu á að hundarnir séu ríkur þáttur í heimilislífi fjölskyldunnar, hennar og eiginmannsins Ægis Kristins Sævarssonar sem og barna þeirra, Sæbjartar og Heiðars Árna, sem er 14 ára. Þar næsti hundur í umræðunni Sæbjört var aðeins 10 mánaða þegar Vaskur kom nýfæddur inn á heimilið. Hún er í 2. bekk grunn- skólans og leikur sér mikið við hundana í frítímanum. Hún horfir stundum á myndbönd um hunda og eftir að hafa séð eitt slíkt á You- Tube, þar sem hundar leystu ýms- ar þrautir eins og til dæmis að hoppa yfir salernispappírsrúllur, ákvað hún að leggja svipuð verk- efni fyrir Vask og Herkúles. Móðir hennar myndaði keppnina og sjón er sögu ríkari. „Sko, Vaskur vinnur oft í klósettrúlluáskoruninni, því hann er betri að stökkva, og ég veit ekki hvort Herkúles getur unnið hann í svona keppni,“ segir Sæbjört. Þar sem fyrsta upptakan tókst vel ákvað Sæbjört að láta ekki þar við sitja og tók sjálf upp samkeppni hundanna í að tína upp nammibita af gólfinu. „Vaskur vinnur líka oft í kappátinu,“ segir sú stutta um leið og hún veltir fyrir sér hvaða þraut hún eigi næst að leggja fyrir gælu- dýrin. Mæðgurnar fóru með Herkúles á hundanámskeið fyrir skömmu og Sæbjört fer gjarnan með þegar hundunum er leyft að hlaupa fyrir utan bæinn án þess að vera í taumi en segist ekki fara oft ein með þá. „Ég er ekki nógu dugleg við það, en ein vinkona mín er stundum að passa hund,“ segir hún áköf. „Ég veit ekki hvaða tegund hann er en hún segir að hann sé blanda af mörgum hundum.“ Regla er á hundum fjölskyld- unnar, þeir mega sumt en annað ekki. „Stundum kemur Vaskur inn í herbergið til mín og sefur hjá mér en ekki uppi í rúmi,“ segir Sæbjört. „Það er líka mjög gaman að lesa fyrir hundana, en ég veit ekki al- veg hvað þeim finnst skemmtileg- ast að hlusta á. Mér finnst mjög gaman að hlusta á sögur og það er gaman að lesa.“ Sæbjört vill fá einn hund áður en hún flytur að heiman og þá helst Coton, sem geti þá eignast hvolpa með Herkúles. „Þar næsta hund ætla ég að eiga alveg sjálf,“ segir hún um framtíðarplönin, en teg- undin sé enn óljós. „Ég á eftir að ákveða það en það er svolítið erfitt því það eru til svo margar tegundir í heiminum.“ Kappát, hlaup, hopp og lestur góðra bóka - Sæbjört Vala í Fellabæ skemmtir sér með hundunum Ljósmyndir/Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir Góð saman Sæbjört Vala Ævarsdóttir og Herkúles njóta lífsins. Í næði Sæbjört Vala les fyrir Vask. MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Það má leiða að því líkur að byrjunarlið íslenska karla- landsliðsins í knattspyrnu verði óhefðbundið þegar það mætir Liechtenstein í undankeppni HM 2022 á Rhein- park-leikvanginum í Vaduz í J-riðli undankeppninnar í kvöld. Eftir tvo leiki á fjórum dögum og á leiðinni inn í þann þriðja á sex dögum má alveg búast við því að þjálfarar íslenska liðsins leggi meira traust á ferska fætur. Rúnar Alex Rúnarsson, Hólmar Örn Eyjólfsson og Hólmbert Aron Friðjónsson gætu því allir fengið tækifæri í byrjunarliðinu í Vaduz. »63 Margar breytingar á byrjunarliði íslenska karlalandsliðsins í Vaduz? ÍÞRÓTTIR MENNING 20% kynningarafsláttur af öllum sumarvörum 25. mars - 5. apríl ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is Skírdagur 12-18, Föstudagur Lokað, Laugardagur 12-18, Páskadagur Lokað, Annar í páskum 12-18 Sumarid- BRANCO garstóll. 18.900 kr. NÚ 15.120 kr. CAMBORD útigrjónapúði. Svartur eða sandlitaður. 39.900 kr.NÚ 31.920 kr. CANNES garðstóll. Ýmsir litir. 19.900 kr.NÚ 15.920 kr. TULIP sessa. Ýmsir litir. 50x50x8 cm. 4.695 kr. NÚ 3.756 kr. CALVI sófi. 3ja sæta. L264 cm. 164.900 kr. NÚ 131.920 kr. 2ja sæta. L176 cm. 118.900 kr. NÚ 95.120 kr. er komið nú15.120 nú31.920 nú15.920
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.