Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 22

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 22
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Öflugur jarðskjálfti skók Norður- land um kl. 12.43 laugardaginn 2. júní 1934. Skjálftinn mældist af stærð 6,2 MS og fannst allt frá Búðardal í vestri og austur á Vopnafjörð, samkvæmt bókinni Náttúruvá á Íslandi. Upptök skjálftans voru á Dalvík- urmisgenginu um það bil einn kíló- metra austur af Dalvík. Fyrsti jarðskjálftakippurinn var langharð- astur og lengstur og var sagt að hann hefði staðið í hálfa aðra mín- útu (90 sekúndur). Sjómenn fundu mikið högg kom á báta sína og ná- lægt mynni Eyjafjarðar sást óvenjuleg hafsbylgja. Það þótti benda til þess að jarðskjálftinn hefði orðið undir hafsbotni. Miklar jarðsprungur mynduðust og skrið- ur féllu í fjöllum. Dalvík í rústum að mestu Jarðskjálftinn varð snarpastur á Dalvík og þar urðu mestu skemmd- irnar. Daginn eftir, þann 3. júní, sagði Morgunblaðið frá jarðskjálft- anum undir fyrirsögninni „Dalvík að mestu í rústum“. Sagt var að um 200 manns hefðu verið húsnæð- islaus eftir jarðskjálftann. Því nær öll hús á Dalvík skemmdust, þó mismikið. Víðar urðu skemmdir á húsum við Eyjafjörð, einkum í Hrísey. Fréttaritari Morgunblaðs- ins á Dalvík sagði þannig frá, með stafsetningu þess tíma: „Það má heita að Dalvík sje öll í rústum. Fullvíst er að 22 íbúðarhús eru alveg eyðilögð. Eru það allt steinhús. Hafa hús þessi skemst svo mikið, að þau aðeins hanga uppi á járnunum, sem í steypunni eru. - Þökin hanga uppi á þeim ennþá. En veggir eru allir sprungnir og hafa gengið úr skorð- um, svo að þeir geta hrunið niður við hverja hræringu. Virðingarverð þessara húsa, sem eyðilögðust eru um 200 þús. krónur. Auk þeirra hafa önnur steinhús skemst allmikið, svo sem sláturhús og íshús o.fl. Timburhúsin í þorpinu eru meira og minna skekt og skæld. en hanga saman. En grunnar þeirra og kjall- arar eru sprungnir mjög og lask- aðir. Rúður flestar brotnuðu í timb- urhúsunum, en færri í steinhúsunum. Meiðsl urðu engin á fólki hjer á Dalvík og gegnir það furðu í öllu því hruni og þeim felmtri, er sló á fólk, nema hvað stúlka ein, Rósa að nafni, frá Svalbarði, handleggs- brotnaði.“ Sveinbjörn Jónsson, bygging- armeistari á Akureyri sem síðar var kenndur við Ofnasmiðjuna, tók saman lýsingu á skemmdunum fyr- ir útvarpið. Þar kom m.a. fram að 17 torfbæir hefðu skemmst og „húsvilltir menn af þessum bæjum taldir 55“ eins og Náttúruvá á Ís- landi greinir frá. Þá segir hann að 33 steinhús hafi skemmst og hús- villtir á þeim stöðum 169 manns. Alls skemmdust 27 timburhús og 24 úr þeim heimilislausir. Alls skemmdust á Dalvík og nágrenni 65 íbúðarhús en 12 eyðilögðust. Af 548 íbúum á svæðinu voru 247 heimilislausir vegna hússkemmda. Þá skemmdust einnig frystihús, sláturhús, samkomuhúsið á Dalvík og Dalvíkurkirkja. Ömurleg aðkoma á Dalvík Áfram voru sagðar fréttir af jarðskjálftunum í Morgunblaðinu þriðjudaginn 5. júní. Þar kom fram að jarðskjálftar hafi haldið áfram bæði á sunnudag og mánudag. Þá var orðið ljóst að upptökin voru ná- lægt Dalvík og fleiri skemmdir á húsum höfðu komið í ljós. Lögð var áhersla á að þörf væri á skjótri hjálp fyrir Dalvíkinga og aðra sem áttu um sárt að binda. Morgunblaðið ræddi við Gunnar Schram, símstjóra á Akureyri, sem Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Dalvíkurskjálftinn Nær helmingur íbúa á Dalvík og nágrenni varð fyrir því að íbúðarhús þeirra skemmdust. Tjöld voru reist og einnig útbúin tjöld úr trégrindum og segldúkum. Einnig voru út- búnar íbúðir t.d. í fiskhúsi og skólahúsinu. Gjafir bárust víða að, peningar, matvæli og fleira til styrktar bágstöddum Dalvíkingum. Strax var hafist handa við endurreisn. Dalvíkurskjálftinn olli miklu tjóni - Jarðskjálftinn sterki 1934 er enn í minnum hafður - Upptökin voru mjög nálægt þorpinu Jón Gunnar Ottósson Ragnar Stefánsson 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 GEFÐU STARFSFÓLKINU DAGAMUN Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.