Morgunblaðið - 31.03.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 31.03.2021, Qupperneq 23
hafði farið til Dalvíkur. Hann sagði að aðkoman hafi verið hin ömurleg- asta. „Af 35 steinhúsum sem þar voru, er talið að aðeins 4-5 sjeu lítið sem ekki skemmd, en víst að 7 þeirra sjeu gereyðilögð. En svo lítið þarf til þess að þaui hrynji, að hættu- legt er að hafa þau uppistandandi. Timburhús eru þarna fleiri en steinhús. Mörg þeirra eru íbúð- arhæf, en flest skemd, og það meira, en sjeð verður utaná þeim í fljótu bili.“ Fólk sagði jarðskjálftasögur Ottó Jónsson, faðir Jóns Gunnars Ottóssonar, fyrrverandi forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, var drengur þegar jarðskjálftinn reið yfir Dalvík. Hann sést á myndinni til hægri við hlið frænda síns Bjarka Elíassonar, síðar yfirlög- regluþjóns í Reykjavík. Langamma Jóns Gunnars, Stef- anía Jónsdóttir, er einnig á mynd- inni. Jón Gunnar telur líklegt að myndin hafi verið tekin fyrir fram- an Ártún, heimili afa hans og ömmu Jóns Halldórssonar og Jó- hönnu Þorleifsdóttur. Stefanía langamma Jóns Gunnars var tvígift og var annar eiginmanna hennar hómópati. Einn sona hennar var Ingimar Óskarsson grasafræð- ingur. Jón Gunnar dvaldi talsvert á Dalvík sem barn. Hann man eftir því að fólk talaði um skjálftann. „Það var saga af því að afi hefði gripið klukkuna en dottið á rassinn með hana. Svo var sagt að pabbi hefði farið á milli herbergja í rúm- inu án þess að vakna. En hvað af þessu er satt veit ég ekki,“ sagði Jón Gunnar. Vigfús Sigurgeirsson, ljósmynd- arinn sem tók myndirnar, rak lengi ljósmyndastofu á Akureyri ásamt Jóni Sigurðssyni frá Dagverð- areyri, móðurafa Jóns Gunnars Ottóssonar. Bjarki Elíasson mundi vel eftir jarðskjálftanum. Vitnað er í frá- sögn hans í bók Kristmundar Bjarnasonar, Saga Dalvíkur 3. bindi. Bjarki var á leið heim úr sundi ásamt vinum sínum þegar jarðskjálftinn reið yfir. „Þá heyrðust í fjarska miklar drunur, að mér virtist úr Upsafjall- inu, og er ég leit þangað, sá ég moldarmökk og skriður uppi í fjall- inu og í Brimnesárgilinu. Um leið kom jörðin eins og í stórum öldum æðandi að okkur, og við duttum all- ir. Þetta stóð mjög stutt... Við flýtt- um nú för okkar heim...“ Þegar Bjarki kom heim í Vík- urhól var húsið allt sprungið og hóllinn sem það stóð á. Elías, faðir Bjarka, var að vinna við smíðar frammi í Svarfaðardal. Bjarki ætl- aði til hans á reiðhjóli til að segja honum tíðindin en komst ekki lengra en að nýja barnaskólanum. Þar var þversprunga í veginn sem hann þorði ekki yfir. Hann stóð þar grátandi þegar pabbi hans kom hjólandi innan úr Svarfaðardal. Þegar þeir komu heim sagði Elías: „Ljótt er að sjá, ekki verður búið í þessu húsi meir.“ Mesta eignatjón í jarðskjálfta Dalvíkurskjálftinn var líklega sá jarðskjálfti sem olli mestu tjóni á mannvirkjum hér á landi á 20. öld, að mati Ragnars Stefánssonar jarð- skjálftafræðings. „Það má segja að jarðskjálftinn á Kópaskeri 1976 hafi verið svipaður að stærð (6,2) og eins hve mikið tjón varð af hans völdum en en það varð líklega meira tjón á Dalvík,“ sagði Ragnar. Hann sagði tjónið á Dalvík skýrast af því hvað upptök jarðskjálftans voru nálægt þorpinu. „Skagafjarðarskjálftinn 1963 var af stærð 7,0 en upptök hans voru fyrir mynni Skagafjarðar og um 50 km frá landi. Það munar miklu um þá fjarlægð. Upptök Dalvík- urskjálftans 1934 urðu á 4-10 km dýpi en aðeins um einn kílómetra frá þorpinu,“ sagði Ragnar. En má búast við öðrum eins jarðskjálfta á þessu svæði? „Miðað við þá skráðu sögu sem við eigum þá er þetta einstakur jarðskjálfti á þessum stað. Það er hvergi getið um svona jarðskjálfta í annálum á þessu svæði,“ sagði Ragnar. Hann bjó í Svarfaðardal í 16 ár. „Það er stundum sagt að fólk vilji gleyma svona atburðum en Dalvíkingar hafa ekki gert það. Þeir hafa minnst jarðskjálftans 1934 reglulega. Þegar 70 ár voru liðin árið 2004 var afmælisins minnst og ég var m.a. fenginn til að halda þar erindi,“ sagði Ragnar. Hann nefndi að sérstakt herbergi sé tileinkað Dalvíkurskjálftanum í byggðasafninu Hvoli á Dalvík. Á heimasíðu safnsins kemur fram að húsið var byggt árið 1930. Eftir jarðskjálftann var það styrkt með því að setja stálbita utan á húsið og svo var steypt utan um bitana til að það hryndi ekki í næsta skjálfta. Ragnar kvaðst hafa heyrt að Dalvíkurskjálftinn hafi haft margs konar áhrif á hönnun húsa. Meðal annars hafi verið tekið tillit til jarð- skjálftahættu við hönnun og frá- gang húsþaka eftir jarðskjálftann. Byggingarstaðlar sem gerðir voru með tilliti til jarðskjálftahættu komu svo síðar. Ragnar nefndi grein sem jarð- skjálftanefnd, skipuð Eysteini Tryggvasyni jarðskjálftafræðingi, Sigurði Thoroddsen verkfræðingi og Sigurði Þórarinssyni jarðfræð- ingi, skrifaði og birtist í Tímariti Verkfræðingafélags Íslands haustið 1958. Þar fjölluðu þeir um jarð- skjálftahættu á Íslandi og hvöttu til þess að tekið yrði tillit til hennar við útreikninga á burðarþoli mann- virkja hér á landi. Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Dalvík 1934 Fólk dvaldi úti við, f.v. Anna Arngrímsdóttir með Birnu Kristjánsdóttur, Bergþóra Jónsdóttir, Ottó Jónsson (faðir Jóns Gunnars Ottóssonar), Bjarki Elíasson síðar yfirlögregluþjónn. Sitjandi f.v.: Hallfríður Sigurjónsdóttir, María Júlíusdóttir, Anna Ágústsdóttir, Ingunn og Hrönn Kristjánsdætur, Lovísa, Karla og Svanbjörg Jónsdætur, Stefanía Jónsdóttir (langamma Jóns Gunnars Ottóssonar og amma bræðrasonanna Ottós og Bjarka), Anna Jóhannsdóttir og Dagbjört Óskarsdóttir. Fólkið er nafngreint í Sögu Dalvíkur, 3. bindi, eftir Kristmund Bjarnason. Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari. FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 hjolhysi.com Toppgæði Verð frá 169.000,- Allar upplýsingar sendist á: kriben@simnet.is • Sími 863 4449 • www.hjolhysi.com Powrtouch Movers Tilbúnir til afhendinga TRIGANO Fortjöld fyrir hjólhýsi og húsbíla Eftirfarandi aukahlutir fylgja með fortjöl- dunum: Dúkur, hælar, stangir, pumpa, svuntur, loftklæðning og taska. BALI XL 145.000LIMA frá 155.000 r Upplásnu fortjöldin frá TRIGANO væntanleg í maí byrjun Tökum á móti pöntunum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.