Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 53

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 Snorri Másson stýrir hlaðvarpinu Skoðanabræður ásamt bróður sín- um Bergþóri Mássyni. Sjálfur hlustar Snorri reglulega á hlaðvörp og fékk K100 hann til þess að gefa lesendum álit á því sem hann hlust- ar á. Hlaðvörp hafa verið gífurlega vinsæl undanfarið og erfitt getur verið að finna hlaðvarp sem hentar áhugasviði hvers og eins enda um svakalegt úrval að ræða. Við hér á K100 erum mikið áhugafólk um hlaðvörp og ákváðum að ræða við það fólk sem heldur úti hlaðvarpi hér á Íslandi og fá það til þess að gefa okkur upp hvaða hlaðvarpsþætti, fyrir utan sína eigin, það hlustar á í frítíma sínum. Það ætti að geta gefið fólki góðar hugmyndir um áhuga- verð hlaðvörp sem henta þess áhugasviði. Snorri Másson úr hlaðvarpinu Skoðanabræður „Skoðanabræður byrjaði bara sem einhver til- raun mín og Bergþórs Mássonar bróður míns í hljóðveri á Hverfisgötu hjá Útvarpi 101. Við feng- um síðan nokkur hundruð hlustanir á fyrstu þætt- ina og okkur fannst það svo svakalega mikið að við ákváðum að halda áfram. Síðan hefur þetta bara stækkað og stækkað og nú framleiðum við tvo þætti í viku og fjármögnum okkur með tæpum 400 áskrifendum. Hvað tölum við um? Því er ógern- ingur að lýsa í stuttu máli en þá er bót í máli að hlaðvarpsformið gerir hvort eð er engar kröfur um stutt mál. Við kveikjum bara á hljóðnemunum og skrúfum frá gasinu. Skoðanabræður leita bara sannleikans um íslenskt samfélag nákvæmlega eins og það er í dag. Við höfum tekið viðtöl við allt frá röppurum til ráðherra og skemmti- legast finnst okkur í raun og veru bara að ræða við vini okkar. Það skemmir síðan ekki fyrir þegar þeir eru líka frægir, þannig að það hlusta allir,“ segir Snorri að- spurður út í hlaðvarpið Skoð- anabræður. Sjálfur segist Snorri hlusta mikið á þýskt útvarp og jafnvel spænskt. „Ég hlusta sjálfur eiginlega alls ekki á efni líkt því vonda efni sem ég framleiði sjálfur. Ég hlusta mik- ið á þýskt útvarp og jafnvel spænskt, þannig að mér verður að fyrirgefast að mæla með því hér í íslenskum miðli,“ segir hann. Hlaðvarpslisti Snorra: „Fyrst skal þó nefnt þrennt íslenskt og gott,“ segir hann. Halldór Laxness á hlaðvarpsveitum í boði RÚV „Hér má finna skáldsögur eins og Kristnihald undir Jökli og þýðingar eins og Birtíng. Það er al- veg frábært að geta smellt skáldinu í eyrun og hlýtt á hans yndislega tilgerðarlega málróm eins og hann stæði fyrir framan mann. Það er lofsvert hjá RÚV að setja þetta efni inn.“ Úti á túni „Þessi viðtalsþáttur Bændablaðsins er til marks um það mikla líf sem býr í þeim ágæta miðli. Ég er með krónískt samviskubit yfir tengslaleysi mínu við landsbyggðina og þessi þátt- ur brúar bilið. Ég hlustaði til dæmis á langt viðtal þar um daginn við Gísla Guðjónsson ritstjóra Eið- faxa um lífið sem kynbótadómari hesta. Hver hefði haldið!“ Frjálsar hendur „Illugi Jökulsson finnst mér að fari með mjög ábyrgum hætti með það frelsi sem RÚV veitir honum með því að gefa honum frjálsar hendur. Ég vil helst að útvarp felist bara í lestri upp úr gömlum bókum og blöðum.“ Presseschau hjá Deutschlandfunk „Mér skilst að einhvern tímann hafi það verið stundað hér á Ís- landi að lesa upp úr forystugreinum dagblaðanna í útvarpinu, en ekki búum við við slíkan munað í dag. Þjóðverjar gera það þó enn þá – jafnt úr inn- lendum dagblöðum sem erlendum. Niðurstaðan er frábær yfirsýn yfir heimsmálin frá ólíkum sjón- armiðum og þetta getur maður fundið á hlað- varpsveitum.“ XRey „Ég var gáttaður á gæðunum í þessu spænska verðlaunahlaðvarpi í boði Spotify. Nafn- ið er gaumgæfilega tvírætt: Um er að ræða svo nákvæma rannsókn á hinum margspillta fyrrver- andi Spánarkonungi (ex-rey á spænsku) að engu er líkara en hann hafi á endanum verið lagður undir röntgengeisla (x-ray á ensku).“ Áhugaverð hlaðvörp: Snorri Másson gefur álit Ljósmynd/Aðsend Snorri og Bergþór Mássynir Stjórna hlaðvarp- inu Skoðanabræður og framleiða tvo þætti á viku.Snorri Másson Ég hlusta sjálfur eiginlega alls ekki á efni líkt því vonda efni sem ég framleiði sjálfur." Fjölskyldubingó mbl.is verður á sínum stað á fimmtudagskvöldið þar sem þau Siggi Gunnars og Eva Ruza sjá til þess að færa fjöl- skyldum landsins bingótölurnar beint heim í stofu. Í síðustu viku mætti dúettinn Sycamore Tree sem þau Ágústa Eva og Gunnar Hilmarsson skipa og tóku lagið fyrir þátttakendur. Á fimmtudaginn mætir engin annar en poppstjarna okkar Íslend- inga, Páll Óskar Hjálmtýsson, og tekur lagið fyrir þátttakendur fjöl- skyldubingósins. Ásamt þeim Sigga og Evu verður furðu-DJ-inn í setti, tóm gleði og fullt af stórglæsilegum vinningum. Allar upplýsingar um þátttöku og útsendingu má finna með því að fara inn á heimasíðu bingósins á www.mbl.is/bingo. Allar fyr- irspurnir vegna bingósins er hægt að senda á bingo@mbl.is. Páll Óskar tekur lagið Morgunblaðið/Eggert Fjölskyldubingó Páll Óskar ætlar að taka lagið fyrir bingógesti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.