Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 17
Lely Center Ísland
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ASPLA rúlluplast
frá 9.900.- + vsk.
STRÚKTÚR ehf | Bæjarflöt 9 | 112 Reykjavík | struktur@struktur.is | Sími: 588 6640
Nú á allt að seljast. Eigum þessa lengd á lager.
Litað bárujárn
Þykkt: 0,60 mm
Breidd: 1045 mm
Klæðir: 988 mm
3.600 kr m² m/vsk.
40% afslá�ur meðan birgðir endast
2.160 kr m² m/vsk
RAL 9005 Svart
Lengd: 4.800 mm
Plata = 4,8 * 0,988 = 4,74 m2
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
Smiðshöfða 12 · 110 Reykjavík · sími 586 8000 · verslun@roggi.is · www.roggi.is
Þjónusta við iðnaðinn
Trésmíðavélar, sagarblöð, handfræsitennur,
fræsihausar, borar, viðgerðarefni, sporjárn,
rennijárn, ‚útskurðarhnífar, demantsblöð
�i���gur um hámar�sa�a fis�veiðiárið ���������, ásamt ti���gum og a�amar�i
sam�v�mt á�v�rðun stjórnva�da �yrir fis�veiðiárið ���������.
Haf r annsóknastofnun
hefur kynnt úttekt á
ástandi nytjastofna og ráð-
gjöf fyr ir næsta fiskveiðiár.
Leggur stofnunin til 13%
lækkun aflamarks þorsks
fiskveiðiár ið 2021/2022. Því
lækkar ráðlagður heildar-
afli þorsks úr 256.593 tonn-
um á yfirstandandi fiskveiðiár i í
222.737 tonn.
Á grundvelli varúðarsjónarmiða
og langtímamarkmiða um sjálfbæra
nýtingu er lagt til aflamark fyrir
tæplega 30 nytjastofna.
Ástæður lækkunar
á aflamarki þorsks
Í kynningu Hafró segir að tvær
meginástæður séu fyrir því að ráð-
lagt sé að minnka veiðar á þorski.
Árgangar 2013 og 2016 eru litl-
ir og hafa þeir umtalsverð áhrif til
lækkunar á stærð viðmiðunarstofns-
ins. Megin uppistaða í þyngd stofns-
ins er 4 til 9 ára þorskur og nú eru
tveir af þeim sex árgöngum slakir.
Samkvæmt Hafró sýnir stofn-
matið á þorski í ár að stofnstærðin
hefur verið ofmetin á undanförnum
árum. Viðmiðunarstofn árið 2020
var þannig ofmetinn um 19%
miðað við núverandi mat.
Mæligildi eldri fisks, bæði í
aldursgreindum afla og í stofn-
mælingum, hafa síðustu ár verið
hærri en áður hafa sést. Vægi yngri
fisks, sem er enn ekki kominn að
fullu í veiðina, var einnig minnkað
miðað við það sem áður var. Þessar
breytingar leiða til þess að stofn-
matið fylgir nú betur breytingum í
stofnmælingum en áður var.
Þorskstofninn er enn mjög
sterkur. Ef frá eru talin undanfarin
5 ár eða svo hefur stofninn ekki
verið stærri í 40 ár. Sókn er enn
nærri sögulegu lágmarki.
Gert er ráð fyrir að viðmið-
unarstofn þorsks verði svipaður
að stærð þangað til árgangarnir frá
2019 og 2020 koma inn í viðmið-
unarstofninn eftir 2 til 3 ár, en
horfur eru á að þeir séu um og yfir
meðallagi.
Aflamark ýsu lækkað
Samkvæmt aflareglu verður aflamark
ýsu 50.429 tonn, sem er 11% hækkun
frá yfirstandandi fiskveiðiári. Áætlað
er að viðmiðunarstofninn muni
halda áfram að vaxa næstu tvö árin.
Árgangar frá 2015 til 2017 eru metnir
nálægt meðaltali, árgangur 2018 lítill
og niðurstöður stofnmælinga benda
til að árgangar 2019 og 2020 verði
yfir meðallagi.
Ufsi lækkaður um 1%
og grálúða um 13%
Litlar breytingar eru á ráðgjöf ufsa
samkvæmt aflareglu stjórnvalda.
Aflamark samkvæmt aflareglu fyrir
fiskveiðiárið 2021/2022 er 77.561
tonn, eða um 1% lægra en síðastliðið
fiskveiðiár.
Ráðgjöf fyrir grálúðu hækkar um
13% frá fyrra ári og er 26.650 tonn
Hrygningarstofn gullkarfa hefur
minnkað. Nýliðun gullkarfa hefur
verið mjög slök undanfarinn áratug
og af þeim sökum hefur hrygningar-
stofn minnkað á undanförnum árum
og fyrirséð að sú þróun muni halda
áfram á næstu árum. Samkvæmt
aflareglu verður heildaraflamark
gullkarfa 2021/2022 því 31.855
tonn, 17% lægri en á yfirstandandi
fiskveiðiári.
Leggja til auknar veiðar á
sumargotsíld
Viðsnúningur virðist nú vera í
þróun stofnstærðar íslensku sumar-
gotssíldarinnar sem minnkaði
ört frá árinu 2008 vegna slakrar
nýliðunar og þrálátrar frumdýra-
sýkingar í stofninum. Árgangur
2017 er metinn stór og kemur inn
í viðmiðunarstofninn í ár. Ráðgjöf
samkvæmt aflareglu stjórnvalda
hækkar því úr 35.490 tonnum fyrir
fiskveiðiárið 2020/2021 í 72.239
tonn fyrir 2021/2022, eða um
104%. /VH
Ráðgjöf Hafró fyrir fiskveiðiárið 2021/2022:
Leggur til 13% lækkun
aflamarks þorsks