Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202138
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum á Keldum
Keldnalandið. Mynd / Jenna Film
Keldnalandið og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði
– framtíð rannsókna á dýrasjúkdómum
Á Tilraunastöð Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum hefur
ver ið unnið að rannsóknum á
dýrasjúkdómum frá því um
miðja síðustu öld. Tilraunastöðin
hefur því lengi gegnt mikilvægu
hlutver k i í þj ónustu við
landbúnað og fiskeldi hér lendis.
Sér fr æðingar hennar hafa
staðið í stafni við rannsóknir á
smitsjúkdómafaröldrum í búfé,
oft af völdum áður óþekktra
smitefna. Auk þessa hafa á
Keldum ver ið stundaðar öflugar
grunnrannsóknir á sviði dýra-
heilbr igðis.
Tilraunastöðin hefur skapað
sér nafn erlendis, sérstaklega
fyrir rannsóknir á mæðiveirunni.
Mæðiveiran var einangruð á Keldum
á sjötta áratug síðustu aldar, sú
fyrsta í flokki lentiveira. Rannsóknir
Keldnafólks á mæðiveirunni
lögðu stóran hluta af þeim grunni
sem byggt var á þegar lentiveira í
mönnum þ.e. eyðniveiran (HIV),
greindist tveimur áratugum síðar.
Blikur eru nú á lofti um framtíð
Tilraunastöðvarinnar á Keldum
og þess kröftuga rannsóknastarfs
sem þar fer fram því áætlanir eru
um að land stofnunarinnar renni
inn í félagið Betri samgöngur ohf.
sem hluti af framlagi ríkisins við
lagningu Borgarlínu.
Í samþykktum fyrir hlutafélagið
Betri samgöngur ohf., kemur
m.a. fram að félagið skal með
sérstökum samningi við fjármála-
og efnahagsráðuneytið taka við
landi í eigu ríkisins við Keldur í
Reykjavík. Allur ábati af þróun og
sölu landsins skal renna óskertur
til verkefnisins um uppbyggingu
samgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Í þessu sambandi hefur lítið verið
rætt eða ritað um þá stofnun og
starfsemi sem er á Keldnalandinu
og hefur verið þar um langt árabil.
Keldnalandið og Tilraunastöðin
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði
hefur verið staðsett á Keldum
frá árinu 1948. Þá hafði ríkið
nokkru áður keypt Keldur og
eyðibýlið Keldnaholt og lagt
undir Tilraunastöðina. Styrkur
frá Rockefellersjóðnum í Banda-
ríkjunum 1945 var notaður til upp-
byggingar á staðnum. Á næstu
áratugum þar á eftir var mikil
uppbygging í rannsóknum og
aðstöðu á Keldum. Fjármagn var
fyrir utan fé af fjárlögum, sjálfs-
aflafé sem m.a. var aflað með á
sölu ormalyfja og bóluefna til
notkunar í búfé sem stöðin hafði
á þeim tíma einkasöluleyfi á.
Árið 1951 keypti Tilraunastöðin
16 hektara úr landi Grafarholts
fyrir sjálfsaflafé. Á níunda áratugi
síðustu aldar fór hluti af landi sem
þá tilheyrði Tilraunastöðinni undir
byggðina í Grafarvogi samkvæmt
samingi ríks og borgar frá árinu
1983. Þann 26. maí 1983 (í kjölfar
samninga við Reykavíkurborg) fól
þáverandi menntamálaráðherra
Ti l raunastöðinni umsjón og
forræði allra landsvæða í eigu
ríkisins á Keldum, utan lands
umhverfis rannsóknarstofnanir
atvinnuveganna á Keldnaholti.
Tilraunastöðin er starfrækt sam-
kvæmt sérlögum nr. 67/1990 og
lögum nr. 50/1986 um Rannsókna-
deild fisksjúkdóma.
Dýrasjúkdómastofnun:
rannsóknir, vöktun og þjónusta
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði er
eina dýrasjúkdómastofnun landsins
og hefur starfað sem slík í rúm 70
ár. Þar hefur því byggst upp áratuga
sérþekking í dýrasjúkdómum
og dýraheilbrigði. Stofnunin
sér um rannsóknir, ráðgjöf og
þjónustu í þágu heilbrigðiseftirlits,
sjúkdómagreininga og sjúkdóma-
varna fyrir búfé, eldisfisk og
önnur dýr. Undan þessum skyldum
verður ekki komist ef stunda á
arðvænlegan ábyrgan landbúnað
og fiskeldi. Aukning og efling
matvælaframleiðslu og útflutnings
matvæla, meiri kröfur um eftirlit og
gæðastjórnun kallar á stöðuga þróun
í rannsóknum og aðferðafræði. Sem
dæmi má nefna:
• gríðarlega framleiðsluaukningu
í fiskeldi en umfang þjónustu
• Sinnir rannsóknum, þjónustu og vöktun á sviði dýrasjúkdóma.
• Tengist læknadeild Háskóla Íslands, hefur sérstaka stjórn og
sjálfstæðan fjárhag.
• Rannsakaðir eru sjúkdómar í spendýrum, fuglum, fiskum og
skeldýrum. Tilgangur rannsóknanna er að efla skilning á eðli
sjúkdóma og skapa nýja þekkingu.
• Þjónustuskyldur eru greiningar og vöktun á dýrasjúkdómum
• Er innlend tilvísunarrannsóknastofa á nokkrum sviðum, unnið
er eftir gæðakerfi og faggilding er á völdum prófunaraðferðum
samkvæmt alþjóðlegum faggildingarstaðli.
• Helstu fræðasvið eru príonfræði, veirufræði, bakteríufræði,
sníkjudýrafræði, meinafræði, ónæmisfræði, sameindalíffræði
og tilraunadýrafræði.
• Framleidd eru bóluefni og mótefnablóðvökvar og tekið er
blóð úr hestum og kindum til notkunar á rannsóknastofum
sjúkrahúsanna.
• Stofnunin er þátttakandi í Lífvísindasetri HÍ og þar eru
háskólanemar í rannsóknarverkefnum bæði í grunn- og
framhaldsnámi.
• Árið 2020 unnu 50 manns um 43 ársverk á Keldum. Flestir
starfsmenn eru háskólamenntaðir, 15 með doktorspróf, 9 með
meistarapróf.
Nokkrar staðreyndir um starfsemi
Tilraunastöðvarinnar á Keldum
Hryssan Brynja og folaldið Lilja frá Keldum vorið 2021. Mynd / Charlotta Oddsdóttir