Bændablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202118
LANDSJÁ
Það er hinn versti misskilningur
að markaður eigi að stýra stóru
og smáu í lífinu. Markaður inn
er fyrst og fremst gagnlegur þar
sem aðilar með góða yfirsýn
hafa eitthvað til þess að skiptast
á og verðleggja í samskiptum.
Nokkuð hefur verið um það
skrafað að í hinu nýja mælaborði
landbúnaðarins sé hægt að fá
yfirlit yfir flest það sem bændur
framleiði. Satt er og rétt að þar
er hægt að fletta upp framleiðslu
á ýmsum kjöttegundum og
grænmeti. Mjólkina vantar þó
inn í. Og það vantar öll önnur
verðmæti sem verða ti l hjá
bændum. Það vantar yfirlit yfir
almannagæðin: Búseta hringinn
í kringum landið, slegin tún og
bleikir akrar. Rauð þök og hvítir
veggir. Skógar og skjólbelti.
Uppgræðsla og menning.
Hestamaðurinn á fljúgandi skeiði
við hringveginn að sumarkvöldi.
Allt eru þetta almannagæði og
fyrir þetta fá bændur stuðning í
formi almannafjár.
Sköpun almannagæða
Síðustu vikur hefur verið farinn
fundahringur um landið, þar sem
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra hefur rætt „Ræktum
Ísland“ – við bændur og aðra
áhugasama. Með ráðherra í
för voru höfundar skýrslunnar.
Umræðuskjali þessu er ætlað að
mynda grunn fyrir samninga við
bændur um næstu búvörusamninga.
Talað er um mikilvægi þess
að nýta sem mest og best land-
kosti á hverjum stað til hvers
kyns verðmætasköpunar,
án þess að gengið sé á gæði
landsins. Þessi stefna – um
f jölbreytta verðmætasköpun
er nokkuð áhugaverð nálgun.
Víða í kringum okkur, í löndum
Evrópusambandsins og núna í
Bretlandi eftir að þeir gengu úr
tollabandalaginu, hefur þróunin
verið sú að aftengja stuðning við
framleiðslu á vörum en tengja
þess í stað styrki til bænda við
sköpun ákveðinna almannagæða.
Þessi almannagæði eru stundum
skilgreind sem byggðalandslag
eða líffræðilegur fjölbreytileiki,
nú eða þá að draga úr notkun
áburðarefna vegna mengunar.
Ástæðuna fyrir breytingunni
er að leita í smjörfjöllum og
vínvötnum níunda áratugarins,
þegar off ramleiðsla gerði
það óhjákvæmilegt að breyta
kerfunum.
Kaupa skal meiri bindingu
Hvað flokkast sem almannagæði
er einfaldlega samkomulag hverju
sinni – ákvörðun sem í eðli sínu
er pólitísk en byggir á almennum
stuðningi. Sú mynd sem dregin er
upp af stjórnvöldum í „Ræktum
Ísland“ er að það þurfi að
kaupa meira af umhverfislegum
almannagæðum af bændum. Það
helgast einkum af metnaðarfullum
markmiðum í loftslagsmálum. Þau
gera ráð fyrir að eyjan okkar verði
kolefnishlutlaus eftir nítján ár. Það
markmið mun ekki nást nema
bændur stórauki kolefnisbindingu
á sínum vegum. Bændur hafa
sjálfir sett sér umhverfisstefnu
og ætla ekki að liggja á liði sínu
í að ná árangri. Helsti vandinn er
að byrja – og þar eiga stjórnvöld
hlutverki að gegna með því að
gefa rennistart og sjá til þess að
hagrænir hvatar séu til staðar.
Samlag verði til um kolefni
Kolefnisbinding í stórum stíl er
fjármagnsfrek og verður ekki
framkvæmd með hugsjóninni
einni saman. Valkvæði r
kolefnismarkaðir hafa rutt sér til
rúms í nálægum löndum. Þar er
um að ræða leiðir fyrir fyrirtæki,
sem vilja draga úr kolefnisfótspori
sínu, að greiða fyrir bindingu. Í
slíku fyrirkomulagi felast tækifæri
fyrir íslenska bændur. Til þess að
grípa þau tækifæri þurfa bændur
að eignast markaðstorg. Torg
sem tengir þá saman sem vilja
kaupa bindingu við þá sem geta
komið henni í framkvæmd. Þetta
er í eðli sínu ekki ólíkt því sem
gerðist þegar bændur stofnuðu
afurðafélög um sölu á kjöti og
mjólk. Framfaramenn á fyrri
hluta tuttugustu aldar sáu sem
var að saman gætu bændur náð
bestum samningum um sölu
á sínum afurðum. Það hygg
ég að sé einnig framtíðin með
bindingu. Með því að koma upp
kolefnissamlagi mætti koma verði
á þau almannagæði sem binding
á kolefni eða samdráttur á losun
eru. Fordæmin spretta upp um
allar koppagrundir þessi misserin.
Í Sviss geta fyrirtæki til dæmis
keypt einingar sem felast í því að
kúabú gefa gripum efni sem draga
úr metanlosun. Svipaða sögu er
að segja frá Bandaríkjunum. Hér
á landi eru nú þegar til ákveðin
markaðstorg, Votlendissjóður og
Kolviður. En þau skortir aðföngin
sem bændur eiga – það er að segja
jarðirnar.
Aðkallandi verkefni
Ég tel að bændur geti byggt upp
öfluga hliðarbúgrein í formi
kolefnisbúskapar á næstu árum.
Þeir geta boðið upp á mikilvæg
gæði til þess að skiptast á við
stjórnvöld og fyrirtæki og
verðleggja í skynsamlegum
samskiptum. Kolefnissamlag
bænda og markaðsrammi af
hálfu stjórnvalda eru aðkallandi
verkefni í þágu almannagæða og
sjálfbærni í loftslagsmálum.
Kári Gautason
sérfræðingur hjá BÍ
Almannagæði og
kolefnissamlag
Kári Gautason.
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Gautavík í Berufirði formlega opnuð ferðamönnum 1. júlí:
Áhugafólk um iðnaðarhamp
streymir heim að bænum
– Fræðslusetur, silungarækt, alls konar dýr, golfvöllur og gönguleiðir
Ábúendurnir á bænum Gautavík
í Berufirði, þau Pálmi Einarsson,
Oddný Anna Björnsdóttir og
drengirnir þeir ra þr ír, 15, 13 og
7 ára, hafa ákveðið að opna býlið
fyr ir ferðamönnum í sumar.
Formleg opnun verður 1. júlí
og er planið að hafa opið frá kl.
11-16 alla daga vikunnar fram að
skólabyr jun. Hópar geta komið
utan þess tíma ef samið er um það
fyr ir fram.
„Frá því við byrjuðum að rækta
iðnaðarhamp sumarið 2019, ári eftir
að við fluttum, hefur fjöldi fólks
streymt til okkar vegna áhuga á því
sem við erum að gera. Við ákváðum
því að búa til ákveðinn ramma utan
um það sem við höfum upp á að
bjóða, hafa fleira í boði en áður og
gera þetta svona meira formlegt,“
segir Oddný.
Fræðslusetur um iðnaðarhamp
og samrækt
Hún segir að þeir sem sæki Gautavík
heim í sumar fái færi á að skoða
fræðslusetur um iðnaðarhamp og
samrækt (e: aquaponics) sem þau
vilji með tímanum einnig gera að
hampsafni. Í sama rými er inni-
ræktun á hampi, jarðarberjum og
silungi í 900 lítra heimagerðu
fiskabúri. „Þar er svokölluð sam-
rækt á ferðinni, þar sem skíturinn
frá fiskunum nærir plönturnar.
Silungunum er svo slátrað til matar
þegar þeir hafa náð sláturstærð,“
segir Oddný. Fyrir framan fræðslu-
setrið er akur með iðnaðarhampi,
en á því svæði er einnig ræktaður
hampur í kúluhúsum, kartöflur með
sérstakri aðferð, ásamt rófum, gul-
rótum og fleiru í gömlum görðum
úr fjárhúsunum.
Dýrin á bænum
Þeir sem hafa áhuga á dýrum geta
heilsað upp á dýrin á bænum, en
spökustu kindunum og lömbum
þeirra var haldið eftir þegar hinar
fóru á fjall á afgirtu svæði við
hlið útihúsanna. Á því svæði eru
einnig hestar, en ekki til útreiða.
Á bænum eru einnig grísir, land-
námshænur og gæsir sem vappa
um svæðið. Þá eru silungar í
f iskabúri inni í fræðslusetrinu
sem áður sagði. Tveir hundar eru
á bænum, annar er afar vinalegur
fjárhundur, Týra, sem röltir sall-
aróleg í kringum dýrin og þá gesti
sem sækja Gautavík heim. Hinn er
smáhundur, Lilla Krútt, „ sem er
sætust í heimi; voffar að ókunn-
ugum en bráðnar um leið og hún
er tekin upp,“ segir Oddný.
Golf, íþróttasvæði, á og fjara
Áhugafólk um golf getur spilað
á heimatilbúnum 7-holu par 3
golfvelli en verða að koma sjálf
með golfsett. Inni í hlöðunni hafa
þau útbúið íþróttasvæði sem gott
er að hafa til taks, sérstaklega á
veturna þegar algert myrkur ríkir
allt að 18 tíma á sólarhring. Þar má
meðal annars spila fótbolta, körfu-
bolta, borðtennis, fara í pílukast og
berja í boxbúða. Úti er eitt stórt
fótboltamark, hefðbundnar rólur
og trampólín. Inni í skógarrjóðrinu
er eldstæði, ungbarna- og trjáróla,
en þar getur fólk verið í skjóli og
fengið sér snarl.
„Á túninu verðum við svo með
sumarleikföng, en þar má einnig
breiða úr teppi og fá sér gott í
gogginn þegar vel viðrar, segir
Oddný. „Framhjá bænum rennur
falleg á sem börnum er velkomið
að leika sér við og í þegar ekki er
of mikið í henni, en rétt er að taka
fram að börn eru alfarið á ábyrgð
forráðamanna þar sem annars
staðar á svæðinu.“
Þá geta gestir einnig rölt niður
að fjörunni og víkinni sem bær-
inn dregur nafn sitt af, en þar er
fjölbreytt fuglalíf, litríkir steinar,
skeljar og sjávargróður. Þeir sem
stunda sjósund geta lagst til sunds
í víkinni, en þar eru einnig brattir
klettar sem strákunum í Gautavík
finnst gaman að stökkva af ofan í
sjóinn. Þegar ber eru tekin að vaxa
á svæðinu er fólki velkomið að
tína upp í sig, en eru ekki hugsuð
fyrir berjatínslu til að taka með.
Forn verslunarstaður
Gautavík er forn verslunarstaður
með fornminjum, en um staðinn
má lesa m.a. á vef Þjóðminjasafns
Íslands og Wikipedia. Gestum er
velkomið að ganga um staðinn eftir
merktum gönguleiðum og njóta
umhverfisins sem er ægifagurt.
Hinn 700 metra hái Búlandstindur,
sem margir trúa að sé orkustöð og
gnæfir yfir eins og fullkominn
píramídi, lætur engan ósnortinn.
Verslun og verkstæði
– íslenskt handverk
Pálmi, sem er iðnhönnuður að
mennt, hannar og framleiðir
gjafavörur, minjagripi og módel-
Gautavík við Berufjörð er forn verslunarstaður.
Hjónin og frumkvöðlarnir í Gautavík,
Oddný Anna Björnsdóttir og Pálmi
Einarsson.
B�rinn Gautav�� � Berufirði. Myndir / Úr einkasafni
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300