Bændablaðið - 24.06.2021, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 35
hætt árið 2010 þar sem það stóð ekki
undir sér.
„ Í staðinn var ákveðið að hafa
opinn og ókeypis aðgang fyrir alla,
en fólki bauðst að kaupa bækling
á Hótel Laugarhóli með nánari
upplýsingum um sýninguna. Þegar
lokið verður við að laga húsið munum
við einnig endurskoða og lagfæra
sýninguna m.a. út frá framförum
í tækni og ljósum,“ segir Anna og
bætir við að erfitt sé að giska á hversu
margir leggi leið sína að Kotbýlinu
þar sem enginn starfsmaður sé
þar. Hún nefnir að á liðnu ári hafi
um 10 þúsund gestir komið á
Galdrasýninguna á Hólmavík þrátt
fyrir kórónuveirufaraldur.
Veglegur styrkur til viðgerða
Torfhús þurfa reglulegt viðhald og
Kotbýlið er engin undantekning á
því en Anna segir að ráð sér gert
fyrir að það þurfi að gera við og
viðhalda torfhúsum á 10-15 ára
fresti. Í sumar verða 16 ár liðin frá
því Kotbýlið var formlega opnað og
því sé eðlilegt að kominn sé tími á
stórar viðhaldsaðgerðir.
„Raki hefur farið illa með timbur
í grind og þaki, auk þess sem
snjóþyngsli til viðbótar við þungann
af torfinu hafa skekkt húsgrindina,“
segir Anna.
Galdrasýningin fékk veglegan
styrk úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða ti l að laga
Kotbýlið svo hægt verði að opna
aftur fyrir aðgang gesta að húsinu
og sýningunni þar inni. Í lok sumars
2018 var Kotbýlinu lokað fyrir
aðgangi gesta enda talin hætta á
að þakið myndi hrynja. Styrkurinn
úr sjóðnum nemur 4,6 milljónir og
mun að sögn Önnu duga til að gera
nauðsynlegar lagfæringar á húsinu
sjálfu.
Skemmtileg stemning
í vinnuhópnum
Verkefnið við lagfæringar er stórt,
en sjálfboðaliðar fjarlægðu allt torf
af Kotbýlinu svo hægt væri að vinna
í timburverkinu. Þetta er mikið verk
þar sem ekki er hægt að komast með
vinnuvélar að byggingunni. Því
þurfti að stinga allt upp í höndum
og mikið fjarlægt á hjólbörum en
eitthvað með kerru og beltahjól-
börum.
„ Það skapaðist skemmti leg
stemning hjá vinnuhópnum enda
gott veður og allir lögðu sig fram.
Á eftir gátu sjálfboðaliðar farið
í sund í Gvendarlaug við hliðina
á Kotbýlinu en svo skemmtilega
vill til að lagfæringar á umhverfi
laugarinnar fengu líka styrk úr
Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða til að bæta og auka öryggi,“
segir Anna. Um kvöldið var svo
veisla fyrir þátttakendur á Hótel
Laugarhóli og segir hún að þeir hafi
allt gott átt skilið fyrir dýramæta
aðstoð og velvilja.
Eitt helsta aðdráttaraflið
á Ströndum
Galdrasýningin er eitt helsta aðal-
aðdráttarafl ferðamanna á Ströndum
og á venjulegu ári hafa gestir verið
yfir 16 þúsund manns, en sýningin
er opin allt árið. Veitingasala er í
sömu byggingu á Hólmavík sem
styður við rekstur safnsins. Á
Galdrasýningunni eru fjölbreyttir
menningarviðburðir allt árið auk
þess sem sýningin heldur úti vef-
verslun þar sem seldar eru bækur
um galdra, rúnir og íslenska þjóðtrú
á erlendan markað.
Þurfti ekki stór áföll til að
hungurvofan berði að dyrum
„Meirihluti alþýðufólks fyrr á
öldum voru leiguliðar sem bjuggu
á kotjörðum eða vinnufólk og
kjör þeirra hafa ekki verið góð.
Fjölmargar jarðir báru mjög lítinn
bústofn og ekki hefur þurft stór
áföll til að hungurvofan berði að
dyrum. Það er því ekki undarlegt
að baráttu um jarðnæði bregði fyrir
í galdramálum og búandakarlakukl
sé algengt í galdrasögum og þjóðtrú,
jafnvel meingaldrar til að gera ná-
grannanum erfitt fyrir. Tilgangurinn
með galdrastöfunum segir okkur
mikið um amstur, áhyggjur og erfiði
alþýðufólks. Mikið af galdrastöfum
í galdraskræðum sem hafa varðveist
er ætlað að notast við í búskap,“
segir Anna.
Til að búskaparbaslið gengi betur
Hún segir að vinnuaðferðir hafi
fram eftir öldum verið frumstæðar
og mesta furða hvað fólk afrekaði
með líkamann sem aðalverkfærið,
t.d. við að bera tað á tún eða flytja
mó heim að bæ. „Sumt af því sem
þurfti að gera var hrein púlvinna,
eins og að mala taðköggla á tún
með kláru. Til aðstoðar við puðið
greip fólk til ólöglegra aðferða svo
lengi sem það trúði á töframátt
tungunnar og nytsemi galdrastafa.
Sláttur var auðveldari ef ljárinn beit
vel og þá ekki úr vegi að nota stafi,
galdravers og særingar, til að létta
sér lífið og búskaparbaslið gengi
betur.“
Hægt er að kynna sér Galdrasýn-
inguna á Ströndum nánar á
vefsíðunni galdrasyning.is. /MÞÞ
Guðjón Kristinsson, handverksmaður og hleðslumeistari.
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Torfhús þurfa reglulegt viðhald og Kotbýlið er engin undantekning á því. Af sýningunni inn í Kotbýlinu þegar það var opnað 2005.
Ástand Kotbýlisins fyrir viðgerðir. Þakið var hrunið að hluta og trégrind
hafði skekkst vegna snjóþyngsla.