Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 41
Þegar nálgaðist þinglok blasti við
flestum að frumvarp umhver fis-
ráðherra um stofnun þjóðgarðs á
hálendi Íslands myndi daga uppi.
Málið var illa unnið í ósátt við
sveitar félögin og flesta hagaðila og
átti ekkert annað eftir en að daga
uppi og deyja.
Á el lef tu stundu ákváðu
stjórnarflokkarnir þrír að halda málinu á
lífi og leggja fram nýtt frumvarp á næsta
kjörtímabili. Hálendisþjóðgarðurinn,
eins og umhverfisráðherra sér hann
fyrir sér, yrði að veruleika, bara á næsta
kjörtímabili.
Meirihlutinn samþykkti að vísa
málinu til ríkisstjórnarinnar og að fela
ráðherra að leggja fram nýtt frumvarp
um sama efni.
Bindur næstu ríkisstjórn
Alla jafna bindur slík samþykkt ekki
næstu ríkisstjórn, en ef hún verður
samsett eins og sú sem nú situr, þá er
illt í efni. Í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnarinnar stóð:
„ Stofnaður verður þjóðgarður á
miðhálendinu í samráði þverpólitískrar
þingmannanefndar, umhver fis- og
auðlindaráðuneytisins, sveitar félaga,
náttúruverndar- og útivistarsamtaka
og annarra hagsmunaaðila.“
Þarna eru engir fyrirvarar settir af
samstarfsflokkum VG í ríkisstjórn,
þó að ýmsir framámenn stjórnarinnar
hafi á seinni stigum viljað flagga
fyrirvörum.
Samstaða eða sýndarsamráð
Brýnt er, þegar slíkt stórmál er til
umfjöllunar að það sé gert í sem
víðtækastri samstöðu í samfélaginu.
Sér í lagi á það við þegar meira en
þriðjungur landsins er tekinn undir
þjóðgarð í ósátt við flest sveitarfélög
sem land eiga á hinu fyrirhugaða
svæði sem þjóðgarðurinn á að ná
yfir. Sveitarstjórnir sem fara með
skipulagsvald á svæðinu voru lítið
með í ráðum og gegndu einungis
því hlutverki að vera áheyrendur að
ráðagerðum ríkisstjórnarinnar. Rétt er
að minna á að fulltrúi Miðflokksins
í þverpólitískum undirbúningshópi
sem vann skýrslu, sem sögð er vera
grundvöllur málsins, sagði sig frá
þeirri vinnu á lokametrum hennar,
m.a. vegna þess að honum þótti
ekki tekið tillit til athugasemda
hagaðila með forsvaranlegum hætti.
Fjölmargir hafa lýst því samráði
sem umhverfisráðherra viðhafði sem
sýndarsamráði. Þegar hagaðilar lýsa
sig sem fullbólusetta fyrir fagurgala
um samráð og víðtæka sátt, þá hefur
eitthvað misfarist í ferlinu.
Hvort viljum við færri
eða fleiri á hálendið?
Bent hefur verið á að mörg efnisatriði
málsins séu óljós, ekki nægjanlega
vel unnin eða beinlínis ósamrýmanleg
markmiðum frumvarpsins. Þannig
virðist til dæmis ekki ljóst hvort
markmið frumvarpsins sé að
ferðamönnum á svæðinu fjölgi eða
fækki.
Stóra stoppið í
nýting orkuauðlinda
Stofnun hálendisþjóðgarðs, eins og
ráðgert var, setur í fullkomið uppnám
ýmsa hagkvæma orkunýtingarkosti á
svæðinu. Á sama tíma og stjórnvöld,
og raunar landsmenn allir, virðast
áhugasöm um orkuskipti, þá eru það
skilaboð í þveröfuga átt að þrengja jafn
mikið að orkuvinnslu og flutningskerfi
raforku og í stefndi. Umræður um nýt-
ingu grænnar orku, sem óvíða eru í
jafn miklum mæli og hérlendis verða
afkáralegar í þessu samhengi.
Valdið fært frá kjörnum fulltrúum
Skipulag og stjórnsýsla alls svæðisins
átti að færast frá lýðræðislega kjörnum
fulltrúum sveitarfélaganna til fulltrúa
annarra sveitarfélaga, félagasamtaka
og embættismanna. Það sama má segja
um umsjón, rekstur og ákvarðanatöku
sem flytja átti frá réttkjörnum fulltrúum
til þessara aðila.
Þjóðlendur og þjóðgarðar
Benda má á að engin tilraun
var gerð til að greina eða bera
saman rekstur þjóðgarða annars
vegar og þjóðlendna hins vegar,
til að mynda hvaða vankantar eru í
núverandi kerfi þjóðlendulaga, sem
hugsanlega mætti sníða af til að ná
fram mörgum af þeim markmiðum
sem þjóðgarðinum var ætlað
að ná fram. Stjórnfyrirkomulag
þjóðlendna er einfalt og skilvirkt.
Það stjórnfyrirkomulag sem lagt
var til með hálendishugmyndinni
var flókið og boðleiðir langar
Víðtækar heimildir ráðherra
Frumvarpið gerði ráð fyrir að færa
ráðherra málaflokksins nánast
alræðisvald. Þannig var gert ráð fyrir
því í frumvarpinu að ráðherra geti
ákveðið stækkun Hálendisþjóðgarðs
og friðlýsingu landsvæða með
reglugerð. Einnig er gert ráð fyrir
að ráðherra gæti gert breytingar á
stjórnunar- og verndaráætlun ef hann
teldi áætlunina fara í bága við lögin
eða reglugerð, sem hann reyndar
setur sjálfur. Valddreifing var í
skötulíki í frumvarpinu og margt
fleira mætti týna til í þeim efnum.
Hefðbundin landnýting
Landsmenn hafa, mann fram af
manni nýtt hálendið fyrir bústofn
sinn til beitar, veiða og nú síðast
til ferða- og náttúruupplifunar.
Öræfin voru um aldir svipuð dulúð
og leyndardómum. Að vissu leyti
má segja að landsmenn allir hafi
átt þá sameiginlegu hugmynd,
hver fyrir sig, að eiga hlutdeild í
landsvæðinu. Ekki hefur heldur
tekist að sannfæra bændur um að
ævaforn réttur þeirra til að nýta
svæðið til beitar yrði tryggður.
Þessum eignaréttindum þeirra yrði
stefnt í hættu. Með frumvarpinu var
verið að gera víðtækar breytingar
í þá átt að hefðbundin landnýting
sem landsmenn hafa átt rétt til
frá örófi alda, svo sem búfjárbeit,
f jal lagrasatekja, fuglaveiði ,
hreindýraveiði og veiði í ám og
vötnum, verði sett í sífellt meira
mæli sett undir reglugerðarvald eins
ráðherra. Betur er heima setið en af
stað farið í þessu tilliti.
Við erum öll umhverfissinnar
Flestir eru sammála um að ganga vel
um landið og vernda náttúruperlur.
Staðreyndin er að ef fjárveitingar
hætta skyndilega að vera fyrirstaða er
fátt í núverandi fyrirkomulagi mála
sem hindrar að markmiðsákvæðin
frumvarpsins náist. Það er okkar
mat að málum sé í meginatriðum
best fyrir komið eins og nú er, þar
sem bændur, vörslumenn landsins,
gegna lykilhlutverki, þar sem
rekstraraðilar sem hafa byggt upp
starfsemi innan þjóðgarðslínunnar,
eins og hún var lögð til, geta starfað
við forsvaranlegt rekstrarumhverfi.
Sjálfstæðisflokkur og
Framsókn skuldbundin
Í ljósi þess hvernig mál þróuðust
við þinglok er ljóst við hverju fólk
má búast ef Sjálfstæðisflokkurinn,
Framsókn og Vinstri-grænir halda
ríkisstjórnarsamstarfi sínu áfram.
Stofnanavæðing hálendisins.
Hálendisþjóðgarður í þeirri mynd
sem umhverfisráðherra hefur
teiknað svo skýrlega upp. Þessir
tveir flokkar hafa gefið upp boltann
og munu ekki verða fyrirstaða í
vegferð Vinstri-grænna að leggja
þriðjung al ls landsins undir
þjóðgarð. Það stefnir því í sama
graut í sömu skál, haldi núverandi
stjórnarflokkar samstarfi sínu
áfram.
Miðflokkurinn eina fyrirstaðan
Eina vörnin fyrir stofnanavæðingu
hálendisins er Miðflokkurinn,
sem allan tímann hefur staðið
vörð um skipulagsvald og
sjál fsákvörðunarrétt svei tar-
félaganna og verið á móti
alræðisvaldi miðstýringar.
Bergþór Ólason,
form. umhver fis- og
samgöngunefndar
Karl Gauti Hjaltason,
nefndarmaður
í umhver fis- og
samgöngunefnd
Höfundar eru þingmenn
M iðflokksins
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR
gerðir dráttarvéla
SAMFÉLAGSRÝNI
Stofnanavæðing hálendisins stöðvuð
Karl Gauti Hjaltason.Bergþór Ólason.