Bændablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 44

Bændablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202144 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 HAUGHRÆRUR Svalir og sólpallar fyl last einstökum ævintýr al j óma þegar búið er að koma þar fyr ir smekklegum og sumar legum blómaker j um og pottum, stútfullum af glóðvolgum og glænýjum sumarblómum. Fjöldinn allur af sumarblóma- tegundum þrífst vel við íslenskar aðstæður og hægt að finna blóm fyrir hvers manns ker, alla mögulega og ómögulega liti, stór eða lítil blóm, hávaxin og lágvaxin, hangandi, upprétt, breið- eða grannvaxin og þannig mætti lengi telja. Mikilvægt að hafa göt í botni íláta Við val á kerjum og pottum til ræktunar er nauðsynlegt að hafa göt á botni ílátanna til að tryggja að vatn sitji ekki á rótum plantnanna. Þegar kemur að gróðursetningunni er gott að setja bút af jarðvegsdúk eða gamalli tusku yfir götin, áður en jarðvegur er settur í ílátin, er það gert til að tryggja að fína efnið úr moldinni skolist ekki út úr pottinum og valdi óþrifum í grennd. Ef um er að ræða stóra potta eða ker er ágætt að setja góðan slurk af vikri eða grófri möl neðst í pottinn og fylla svo upp með góðri pottamold. Plönturnar eru svo teknar úr pottunum og þeim raðað í pottinn í þeirri uppsetningu sem þykir falleg, oft er heldur minna bil á milli plantna í pottum en í beðum. Fyllt er upp í bilið á milli plantnanna með gróðurmoldinni og passað upp á að moldaryfirborðið sé 2-3 cm fyrir neðan pottbrúnina, þá er auðvel t að vökva ofan í pottinn án þess að mold og vatn sullist yfir brúnina. Uppáhaldspottarnir með í fríið Eftir gróðursetningu er vökvað yfir pottinn og hann settur á sinn stað. Plöntur í pottum og kerjum þarf að vökva eftir þörfum allt sumarið og ágætt að gefa þeim venjulegan pottablómaáburð með vökvunarvatninu 1-2 sinnum í viku allt sumarið. Þó er óþarfi að gefa áburð fyrstu tvær til þrjár vikurnar eftir gróðursetningu því pottamoldin inniheldur að jafnaði áburð sem dugar í þann tíma. Yfir sumarið er ágætt að fjarlægja visin blóm eftir þörfum til að halda kerinu fallegu og endurnýja plöntur ef þær verða fyrir skakkaföllum. Þegar farið er í frí er alveg tilvalið að taka með sér uppáhaldspottana og stilla þeim upp við hjólhýsið eða tjaldvagninn, það sýnir að fólki er full alvara í ræktuninni. /gh Glæný sumarblóm í ker ÞINN GARÐUR þín kolefnisbinding SAMFÉLAGSRÝNI Samningur Noregs og Bretlands um viðskipti með landbúnaðarvörur Nú í byr jun júní voru undir- r itaðir samningar um viðskipti milli Bretlands annars vegar og Noregs, Íslands og L ichtenstein hins vegar. Samningur inn við Ísland hefur víða ver ið til umræðu en fróðlegt er að taka samninginn við Noreg líka til skoðunar. Í fréttatilkynningu frá norskum stjórnvöldum þann 4. júní sl. eru helstu atriði samningsins reifuð. Í henni er greint frá því að samningurinn feli ekki í sér neina nýja tollkvóta fyrir ost, nautakjöt og kindakjöt. Þar er m.a. haft eftir Olaug V. Bollestad, landbúnaðar- og matvælaráðherra Noregs, að í þessum mikilvæga fríverslunarsamningi hafi tekist að gæta hagsmuna landbúnaðar sem stundaður er á landsbyggðinni og sem byggir á grasnytjum. Enn fremur er haft eftir Bollestad að þrátt fyrir móðgandi (offensive) kröfur frá bresku samninganefndinni hafi engir nýir kvótar verið veittir fyrir innf lutningi á viðkvæmum afurðum eins og nautakjöti, kindakjöti og mjólkurafurðum. Þetta sé sú framleiðsla sem skiptir sköpum til að ná markmiði stjórnvalda um að landbúnaður sé stundaður um allt land. https: //www.regjer ingen.no/no/ aktuel t/ny-fr ihandelsavtale-med- storbr i tannia-gi r-avklar ing-om- handel-med-landbruksprodukter / id2857118/ Þetta er framleiðsla sem veitir ekki aðeins mikilvæg störf í landbúnaði, heldur stuðlar einnig að atvinnu í matvælaiðnaði og öðrum fyrirtækjum sem háð eru greininni, segir ráðherrann enn fremur. Gert var ítarlegt mat á áhrifum veittra innflutningskvóta á land- búnað og matvælaiðnað segir Bollestad. Útgangspunkturinn var að veita innflutningskvóta fyrir vörur þar sem Noregur hefur þegar innflutningsþörf eða þar sem kvótinn er á tímabilum utan þess sem norsk framleiðsla annar eftirspurninni. Bretland fékk aðeins kvóta sem ESB hefur nú þegar. Sumir kvótanna sem Bretum eru veittir eru kvótar sem ESB nýtir nú að litlu leyti vegna takmarkaðs áhuga á norska markaðnum. Verður að gefa eitthvað til að fá samning Svo er það í öllum viðræðum að við verðum að gefa eitthvað til að ná samkomulagi, segir ráðherrann síðan. Kvótar voru veittir fyrir 100 tonn af svínakjöti og 100 tonn af skinku. (Hér má skjóta inn að Norðmenn eru 15x fleiri en Íslendingar.) Að auki voru veitt 50 tonn af svínarifjum fyrir desembermánuð þegar venjulega er um innflutning að ræða. Einnig 120 tonn af pylsum og 158 tonn af alifuglum. Alls nemur þessi kvóti innan við tveimur prómillum af norskri kjötframleiðslu. Við gerð bráðabirgðasamn- ingsins við Noreg fengu Bretar 299 tonna ostakvóta gegn samsvarandi samdrætti í ostakvóta ESB. Þessum kvóta verður haldið áfram í fasta samningnum. Samningurinn við Bretland þýðir einnig að fjórir breskir ostar með landfræðilega upprunamerkingu bætast á listann yfir fasta osta með krónutollum. Á móti fá Norðmenn tollfrjálsa kvóta fyrir fjórar afurðir, þar á meðal 513 tonn af osti. Erna Bjarnadóttir verkefnisstjór i og hagfræðingur hjá MS Erna Bjarnadóttir. Ef fólk þar f að taka á sig óhóf- legar byrðar í baráttunni við loftslagsbreytingar og sumir meir i en aðr ir, mun það leiða til andstöðu við nauðsynlegar aðgerðir. Og það verður til þess að við náum ekki árangr i í að vinna gegn þeir r i ógn sem loftslagsvá af mannavöldum er. Í haust lagði Samfylkingin til aðgerðaráætlun til þess að fjölga störfum, örva eftirspurn og styðja við loftslagsvæna verðmætasköpun á Íslandi. Tillagan var lögð fram með till iti ti l alþjóðlegra lofts- lagsskuldbindinga Íslands á tímum hamfarahlýnunar og í ljósi efnahagssamdráttar, sögu- legs fjöldaatvinnuleysis og fram- leiðsluslaka vegna kórónuveiru- faraldursins. Tillögunni var vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu með samþykkt Alþingis við þinglok 12. maí. Með grænu atvinnubyltingunni lögðum við meðal annars til að stofnaður verði grænn fjárfest- ingasjóður með fimm milljarða í stofnfé, sem styðji við loftslags- væna atvinnuuppbyggingu og grænan hátækniiðnað. Orku- skiptum verði hraðað, ráðist verði í kraftmikið skógræktarátak, stuðning við grænmetisframleiðslu, skipu- lega uppbyggingu iðngarða og stóreflingu almenningssamgangna um allt land. Með þessu er hægt að slá tvær flugur í einu höggi – örva eftirspurn og atvinnu en um leið skapa grænna samfélag á Íslandi og auðvelda okkur að ná metnaðarfyllri loftslagsmarkmiðum á næstu árum. Samvinna innanlands og yfir landamæri Líffræðilegur fjölbreytileiki hafsins skiptir okkur hér á Íslandi miklu máli og verði þróunin þar ekki stöðvuð mun hún hafa slæm áhrif á fiskimiðin okkar og stórkostleg neikvæð efnahagsleg áhrif um leið. Réttlát umskipti í átt að kolefnishlutlausri framtíð er eitt brýnasta umhverfis-, samfélags- og efnahagsmál samtímans. En það kallar á samvinnu þvert á flokka og á milli landa. Samræma þarf aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og tryggja mannsæmandi störf og lífskjör. Við jafnaðarmenn vi l jum leggja okkar af mörkum þannig að grænu umskiptin verði sanngjörn og að allir fái að vera með. Á endanum verða allir að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Við verðum að tryggja að kostnaðurinn lendi ekki þyngst á þeim sem minnst hafa milli handanna. Raunar gætu grænu umskiptin leitt af sér sanngjarnari skiptingu gæða en við þekkjum í dag. Jöfnuður og hagsæld Við í Samfylkingunni ætlum að taka forystu og leiða grænu umskiptin í samvinnu við atvinnurekendur, vinnandi fólk og samfélagið allt. Tæknibyltingin opnar á fjöl- mörg tækifæri. Sama gildir um tæknibyltinguna og græn umskipti að það þarf að koma í veg fyrir að þróunin auki ójöfnuð. Hún þarf þvert á móti að auka jöfnuð. Við jafnaðarmenn óttumst ekki nýja tækni. En við óttumst hins vegar að hið gamla og úrelta fái að ráða. Græn umbylting á vinnu- markaðnum er hafin en spurningin er hvernig við látum þessa umbyltingu gerast á réttlátan hátt. Hvernig forðumst við atvinnuleysi og að þau sem hafa minnst á milli handanna nú þegar verði illa úti? Markaðurinn einn mun aldrei leysa þetta stóra vandamál sem við stöndum frammi fyrir vegna hlýnunar jarðar. Það þarf pólitíska forystu og sameiginlegt átak verkalýðshreyfinganna og stjórnvalda til að tryggja réttlát græn umskipti. Oddný G. Harðardóttir, oddvi ti Samfylkingar innar í Suðurkjördæmi Réttlát græn umskipti Oddný G. Harðardóttir.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.