Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 45 Nýlega kom út umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyr ir Ísland og var almenningi gefinn kostur á að leggja inn skr iflegar athugasemdir. Mér finnst margt ágætt í þessu skjali en sá þó ástæðu til að koma með athugasemdir vegna kaflans um lífrænan landbúnað. Þessar athugasemdir og athuga- semdir starfsfélaga míns um sama efni urðu tilefni greinaskrifa í síðasta Bændablaði. Þar sem lesendur Bændablaðsins hafa ekki séð ábendingar mínar óska ég eftir því að þær verði birtar í texta hér á eftir til hliðsjónar við skrifin í Bændablaðinu. Ég hef, ásamt fleirum, áður fjallað um þessi mál í blaðagreinum og fræðigreinum og er tilbúinn til að gera ítarlegri grein fyrir athugasemdum mínum ef þess verður óskað. Það verður að vera svigrúm til að ræða þessi mál frá ólíkum sjónarhornum. Talsmenn lífræns landbúnaðar gagnrýna t.d. gjarnan hefðbundinn landbúnað. Landbúnaðar- og umhverfismál framtíðarinnar eru svo mikil áskorun að við þurfum á allri vísindalegri tækni og þekkingu að halda til að leysa þau. Athugasemdirnar voru þessar: Ég vil byrja á að þakka fyrir áhugaverða og aðgengilega skýrslu. Ég get tekið undir margt sem þar stendur. Mér finnst þó rétt að gera athugasemd við 7. kafla þar sem fjallað er um lífrænan landbúnað. Þetta er viðfangsefni sem ég hef kynnt mér töluvert, bæði uppruna þessarar hugmyndafræði og framkvæmd nú á dögum. Margir halda að þessi hugmyndafræði sé niðurstaða vísindasamfélagsins á því hvernig beri að stunda landbúnað á umhverfisvænan hátt og hvernig beri að framleiða holl matvæli, en svo er ekki. Það eru um 100 ár síðan Rudolf Steiner og fleiri kynntu hugmyndir sínar um lífrænan landbúnað sem andsvar við tækniþróun í upphafi 20. aldarinnar. Þær byggðust ekki á vísindalegum niðurstöðum heldur áttu sér heimspekilegar og andlegar rætur. Ýmislegt í regluverki lífræns landbúnaðar stenst ekki vísindalega skoðun okkar tíma en samt er því enn haldið inni í hugmyndafræðinni. Þetta gerir það að verkum að ýmsar góðar lausnir eru bannaðar án þess að það sé stutt vísindalegum rökum. Sem dæmi um þetta má nefna tilbúinn áburð og tilbúin varnarefni gegn illgresi, sjúkdómum og meindýrum. Einnig má í þessu sambandi nefna lyf fyrir búfé. Þegar uppskera er fjarlægð af túnum eða ökrum fara næringarefni úr jarðveginum með uppskerunni. Vegna þessarar tilfærslu næringar- efna frá túnum og ökrum verður að bæta næringarefnum í jarðveginn í staðinn til að ekki gangi mikið á forða jarðvegsins. Tilbúinn áburður inniheldur næringarefni á aðgengilegu formi fyrir plöntur og oft í miklum styrkleika þannig að kostnaður við flutning og dreifingu verður í lágmarki. Hann er því mjög hentugur áburðargjafi en mikilvægt að miða skammtastærð við aðstæður á hverjum stað. Hann er mikilvæg viðbót við belgjurtir, búfjáráburð og annan úrgang sem verður til á hverjum stað. Illgresi, sjúkdómar og meindýr valda miklu tjóni á uppskeru um allan heim. Það er sjálfsagt að standa þannig að ræktun að tjón af völdum þessa verði sem minnst. Stundum er ræktunartæknin ein og sér ekki næg og þá getur þurft að grípa til varnarefna. Hvort er þá betra að nota tilbúin varnarefni með sérhæfða virkni eða nota lífrænt vottuð náttúruleg efni þar sem virknin er ekki aðlöguð viðfangsefninu? Hið sama má segja um dýralyf. Er það veikum dýrum fyrir bestu að gefa þeim annað hvort engin lyf eða lífrænt vottuð efni sem ekki eru þróuð sérstaklega gegn viðkomandi sjúkdómi? Myndum við vilja hafa þetta þannig í okkar heilbrigðiskerfi? Það er vandasamt að setja fram ábendingar og gagnrýni um lífrænan landbúnað eins og svo margt annað sem fólki er hugleikið og kært. Ég hef litið svo á að það sé skylda fræðimanna að benda á það ef verið er að markaðssetja vörur eða hugmyndafræði sem stangast á við þekkingu okkar á viðkomandi sviði. Þetta gildir ekki bara um landbúnaðinn. Læknisfræðin, lyfjafræðin, matvælafræðin og fleiri fræðasvið þurfa stöðugt að upplýsa fólk um það sem boðið er upp á en á sér ekki faglegan grundvöll. Að þessu sögðu, þurfum við líka að hafa auðmýkt gagnvart því hvað þekking okkar er takmörkuð og það sem við teljum rétt í dag getur verið talið rangt á morgun. Þekking okkar á hverjum tíma þarf þó að vera útgangspunkturinn en við þurfum að hafa hana í stöðugri endurskoðun. Við þurfum jafnframt að sýna fólki og skoðunum þeirra virðingu. Þó að ég telji það skyldu fræði- manna að upplýsa samfélagið hafa þeir ekki rétt til að taka fram fyrir hendurnar á fólki. Ég virði rétt fólks til að velja sinn lífsstíl og vörur. Þegar kemur að því að móta stefnu samfélags á einhverju sviði, t.d. landbúnaði, tel ég að vísindaleg þekking þurfi að ráða för. Ég skil það sjónarmið að vilja uppfylla óskir neytenda og þá einnig óskir um lífræna vöru. Ég held hins vegar að margir neytendur séu ekki endilega að biðja um lífrænar vörur heldur hollar vörur og umhverfisvænar en hvorugt er tryggt með lífrænni vottun. Slík vottun tryggir ákveðnar framleiðsluaðferðir sem alls ekki þurfa að skila betri niðurstöðum í þessum atriðum. Lífrænar vörur eru hins vegar jafnan kynntar sem betri vörur. Það er hægt að blekkja neytendur um tíma en fyrr eða síðar átta þeir sig á því ef vörurnar standa ekki undir því sem sagt er. Þess vegna er svo mikilvægt fyrir bændur að byggja framleiðsluaðferðir sínar á bestu þekkingu á hverjum tíma og landbúnaðarstefna þjóðarinnar þarf einnig að gera það. Guðni Þorvaldsson Gróffóðurkeppni Yara 2021 Kynning á keppendum Sláturfélag Suðurlands svf. | Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6000 | yara@yara.is | www.yara.is Knowledge grows 1. Vesturlandi, Kolbeinsstaðarhrepp hinum forna. 2. Rúmir 1600 ha. 3. Nýlegt fjós með Delaval róbót, nautauppeldi, sauðfé, hestar, geitur og ferðamenn. 4. Sigra að sjálfsögðu en úrvals fóður fyrir veturinn er loka takmarkið alltaf. 5. Veðurfar. Það er alltaf það sem hefur stærsta breytileikann ár frá ári, dag frá degi jafnvel. 6. Aftur er það veðrið. Akkúrat núna verður engin uppskera nema það rigni. 7. Heyfengur, grasfræ blanda frá fóðurblöndunni. 8. Reyna allt til að heyja meira af ö�ugra og lystugra fóðri ár frá ári fyrir kýrnar og nautin. Því fylgir jarðvinnsla og góð umhirða túna ár frá ári. Ásamt því þurfum við að auka breyti- leika í fóðrinu. Við höfum alltaf heyjað allt hey eins kröftugt og við höfum getað. Það hefur bitið okkur í rassinn með of stórum kálfum og lömbum. Við þurfum að skipuleggja heyö�un þannig að hægt sé að fóðra öll dýr á þann hátt sem þau þurfa hverju sinni hvort sem það er á lok meðgöngu, toppnum á mjaltarskeiðinu eða síðasta hjallanum í nautaeldinu. 9. Það jafnast fátt á við að renna í gegnum huppu, fjarvis og jord.is. Eina sem kemst nálægt er að spila og horfa á körfubolta. Hjá foreldrum mínum er það söngur hjá báðum og útivist hjá mömmu. 1. Breiðdal á austfjörðum. 2. 1300 ha. 3. Kúabú. 4. Vera með og gera sitt besta. 5. Að a�a góðra heyja með háu efnainnihaldi. 6. Ná góðu heyji á réttum tíma miðað við sprettu. 7. Vallarfoxgras Tukka 50%, Tenho 20% og vallarsveifgras Baron 30%. 8. Rækta meira, kalka og auka fjölbreyttni í grænfóðri. 9. Ferðast um landið okkar. Branddís Margrét Hauksdóttir, Kristján Ágúst Magnússon og Magnús Kristjánsson Snorrastaðir Gunnlaugur Ingólfsson og Þóra M. Aradóttir Innri-Kleif Spurningalistinn 1. Hvar er bærinn? 2. Stærð jarðar? 3. Gerð bús? 4. Hvaða markmið hefur þú sett þér í keppninni? 5. Hvað telur þú vera stærsta áskorunin í keppninni? 6. Hvaða þáttur er mikilvægast að heppnist? 7. Hvert er sáðgresi keppnisspildunnar? 8. Hvaða framtíðar áform hefur þú varðandi gróffóðurö�un á þínu búi? 9. Áhugamál SAMFÉLAGSRÝNI Er lífrænn landbúnaður framtíðin?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.