Bændablaðið - 24.06.2021, Side 47

Bændablaðið - 24.06.2021, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 47 Þegar maður fer ðast um landið ber stundum fyr ir augu manns af þjóðveginum löngu aflögð landbúnaðar tæki, bílar, dráttarvélar og vinnuvélar af ýmsu tagi á stöðum sem oft eru nefndir „ bílakir kj ugar ðar “ . Vissulega má sjá í sumum af þessum „ kirkjugörðum“ vel upp raðaðar fornminjar um ýmiss konar vinnutæki fyrr i ára, en því miður er oftar en ekki þarna drasl sem engum er til sóma og er bara að grotna niður. Af þeim „bílakirkjugörðum“ sem ég hef gengið um og skoðað vil ég meina að á bilinu 80-90% sé ónýtt drasl sem ekki verður bjargað og væri betur komið í endurvinnslu málma. Nokkur samgöngusöfn, búnaðarsöfn og dráttarvélasöfn af ýmsu tagi má finna víða á landsbyggðinni, söfn sem mikið er lagt í að laða að gesti. Við sum af þessum söfnum mætti taka hressilega til í næsta nágrenni. Víða er þar „drasl sem aldrei verður bjargað“ og söfnunum ekki til sóma. Að hægja á niðurbroti er hægt með umhverfisvænum efnum Suma hluti þarf einfaldlega að varðveita og ótrúlegustu ryðhrúgur er hægt að gera upp þannig að þeir líti út nánast eins og nýir. Þangað til að tími gefst til að fara í að gera upp gamla ryðgaða hlutinn þarf að verja hann gagnvart áframhaldandi niðurbroti. Til eru efni sem eru minna skaðleg náttúrunni en önnur sem unnin og gerð eru úr náttúrulegum efnum samanber efni sem er gott ryðvarnarefni og er unnið úr ullarfitu úr sauðfé. Þarna er ég að vísa til smurefnis sem nefnist Fluid Film (hef skrifað áður um þetta efni hér sem gott smurefni og ryðvarnarefni). Sjálfur nota ég þetta efni mikið og hef góða reynslu af efninu, bæði sem smurefni og til að ryðverja hluti. Sem dæmi þá setti ég Fluid Film efni á helming af ómáluðu járnstykki sem stóð úti og ári seinna mátti greinilega sjá hvar efnið var og hvar ekki. Gamli bíllinn þarf ryðvörn, ást og umhyggju Því miður fyrir okkur sem búum í þéttbýliskjörnum þá eru götur saltaðar meira en góðu hófi gegnir í hálkutíð á veturna og saltið verður af saltpækli sem smýgur inn um allt á bílunum þegar við keyrum þá á veturna. Þetta er ekki til að auka endinguna á gömlum bílum, sérstaklega þeim bílum sem ekki eru ryðvarðir þegar þeir eru nýir. Marga nýja bíla þarf sá sem þá kaupir að ryðverja sjálfur og endurryðverja eftir nokkurra ára notkun. Mörg dæmi hef ég séð á tiltölulega nýjum bílum (3-7 ára bílum) að undirvagninn sérstaklega er svo ryðgaður að skipta þarf út nánast öllu sem kemur að bremsubúnaði. Bremsubúnaður í flestum bílum er sérstaklega viðkvæmur fyrir salti þar sem bremsur hitna og kólna á víxl og það eru kjöraðstæður fyrir ryðmyndun. Fyrir rúmum fjórum árum keypti ég 2003 árgerðina af sendibíl sem var að hálfu búið að breyta í húsbíl. Ég kláraði breytinguna og skráði bílinn sem húsbíl, en nota hann nánast daglega til og frá vinnu. Til að halda bílnum „þokkalega“ útlítandi þarf ég að bletta hann reglulega og alltaf að vera á verði gagnvart ryðmyndun. Með því að pússa, grunna og bletta í lakkið og mála yfir með glæru er hægt að halda þessum 18 ára bíl „ fjarskafríðum“ í einhver ár í viðbót og undirvagninn fær reglulega Fluid Film. Mörg söfn gamalla hluta fyllilega þess virði að heimsækja og skoða Samgöngusöfn á borð við Ysta- fellssafnið, safnið í Skagafirði, Skógum, Hvanneyri og fleiri eru fyllilega þess virði að skoða, en á flestum þessum söfnum má finna hluti sem voru ein ryðhrúga fyrir uppgerð, en eru nú flottir sýningar- gripir. Nýlega opnaði Mótorhjólasafnið á Akureyri sýningu um Snigil #1, Hilmar Lútersson, sem hefur gert upp tugi mótorhjóla. Flest þessara uppgerðu mótorhjóla og skellinaðra sem hann hefur gert upp síðustu 35 árin voru svo miklar ryðhrúgur þegar hann fékk gripina að ekki nokkrum manni hefði dottið í hug að reyna uppgerð. Þetta eru flottir sýningar- gripir í dag. ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is STREYMI ATLÖGU PYLSA GÓLA SAM- ÞYKKJA ERFIÐI HJÁLP- RÆÐI VAÐALL MÁLMUR EYGIR AUKASÓL UM- KRINGJA ÓSKUNDI TRUFLA FYRIRBOÐI VERKFALL EYJA Í ASÍU SENDIST VITLEYSU MIS- VIRÐING TVEIR EINS ÓNÁÐA RASKSKÁI KRAÐAK YFIR- BRAGÐ VOPN NÓTA NÁLEGA DÖKKT VESSA TÍÐKA REIÐI VISTA LEIKUR SAMTÖK HUGSÝNN HNÍFUR MÓK SÓMI SPLÆST ÚTSTÁELSI UNDIREINS BORG SLEPPA PANTA YFIRTAKA SKAMMA EFTIRSÓKN HYGGJA FRÁBÆR VÍK TVEIR EINS ÞEI ÞJAPPA STREÐ FORIR TVEIR EINS STÚTUR EIN- HVERJIR GEÐ- VONSKA JURT FÝLDUR SKIPAST H Ö F U N D U R B H • B R A G I@ T H IS .I S • K R O S S G A T U R .G A T U R .N E T 154 BEYGÐU BUNGA V ALLUR Ó FLÆKJA DYGGUR R LITÞROTA SHÁÐUR K I L Y R T U R FRÍR P SKJÓÐA ÓLAG O K I HAR-MÓNÍUM O R G E L IB L U ÚLDNA GNÆFA F Ú L N A L EINBLÍNA UM- HVERFIS S T A R A PÁLL U G GJÓSA DUNDAR AFBROT B A U K A R ROSI TVEIR EINS FÍNIRÍ S S SJÓNOPLEIKA L TVEIR EINS DANGL DILLA N O S S A TVEIR EINS RÍKI Í AFRÍKU R R SLYS Ó H A P P ILSKÓRH S P Ö N G GJALDA I N N A GÁLEYSI SPOTTAR R A SKAMBUR D Ú K K A KLIÐUR N SKRÆLA BYLGJAN A F H Ý Ð A LEIKFANG VEGSEMD R A ÞRAUT-SEIGJU KORN HORFT B Y G G MÁLREIF DIGRAST R Æ Ð I NÆ Y VELÚR GEYSAST F L O S EFTIR- TEKJA SKARK Á G Ó Ð I KRÚSI- DÚLLUR D K V E I N PARTI ÓHLJÓÐI B R O T I TÓNN RENGJA F AEMJAN K A S T FJAR-STÆÐA Ó R A R KEIP TVÍHLJÓÐI R E L L VARP RIBBALDI U R S A T U I Ð BÓKA E P I A K N VESÆLAR T A A U ROTA M F A Ú R IR TRÉ H Ö F U N D U R B H • B R A G I@ T H IS .I S • K R O S S G A T U R .G A T U R .N E T 153 Ryðgað „drasl“ er fyrir sumum gull en flestum lítið augnayndi Hilmar Lútersson, Snigill 1, við opnun sýningarinnar á verkum sínum á Mótorhjólasafninu á Akureyri. Pússa, grunna, mála. Ætti að vera til friðs næstu 6 mánuði. HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á Íslandi þann 11. júní. • Steinsagir • Kjarnaborvélar • Jarðvegsþjöppur • Sagarblöð • Kjarnaborar Víkurhvarfi 4 203 Kópavogur Opið mán. - fös. kl. 8-17. S. 588-0028 haverslun.is Husqvarna Construction Products Þjónustuverkstæði og varahlutir

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.