Bændablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 2021 49
Prjónaðar tátiljur með gatamynstr i
fyr ir börn úr Drops Flora.
DROPS Design: Mynstur fl-004-by
Stærðir: (fyrirburar) 0/1 (1/3) 6/9 (12/18) mánaða
2 (3/4) ára
Lengd fótar: (8) 9 (10) 11 (12) 14 (16) cm
Garn: Drops Flora (fæst hjá Handverkskúnst)
- (50) 50 (50) 50 (50) 50 (50) g litur á mynd nr 20,
ferskjubleikur
Prjónar: hringprjónar nr 2,5 eða sú stærð sem þarf
til að fá 26 lykkjur x 34 umferðir í sléttu prjóni =
10x10 cm.
Garðaprjón (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
TÁTILJA: Tátiljan er prjónuð fram og til baka frá
miðju að aftan.
Fitjið upp (44) 44 (48) 52 (52) 56 (56) lykkjur á
hringprjón nr 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið
frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: *1
lykkja slétt, 1 lykkja brugðið*, endurtakið frá *-*út
umferð. Haldið svona áfram með stroff í (3) 3 (3) 4
(4) 5 (6) cm. Í næstu umferð frá réttu er gerð ein
gataumferð þannig: *2 lykkjur slétt saman, sláið 1
sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið*,
endurtakið frá *-* út umferð.
Haldið áfram með stroff eins og áður þar til stykkið
mælist alls (5) 5 (5) 6 (6) 7 (8) cm.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, JAFNFRAMT er
fækkað um (9) 9 (11) 13 (13) 13 (13) lykkjur jafnt
yfir = (35) 35 (37) 39 (39) 43 (43) lykkjur. Klippið
þráðinn frá.
Setjið nú ystu (11) 11 (12) 13 (13) 15 (15) lykkjurnar
á þráð í hvorri hlið = 13 lykkjur eftir á prjóni í öllum
stærðum. Prjónið A.1 yfir 13 lykkjurnar, byrjið frá
réttu. Haldið svona áfram með mynstur í (3) 3½ (4)
4½ (5½) 6½ (8) cm, prjónið síðustu umferð brugðið
frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um (5) 5 (3) 1 (1)
1 (1) lykkjur yfir 13 lykkjurnar = (8) 8 (10) 12 (12)
12 (12) lykkjur, klippið þráðinn frá. Næsta umferð er
prjónuð frá réttu þannig: Prjónið lykkjurnar af þræði
í annarri hlið, prjónið upp (7) 9 (10) 11 (13) 16 (21)
lykkjur meðfram hlið á miðjustykki, prjónið (8) 8 (10)
12 (12) 12 (12) lykkjur á prjóni (= framan), prjónið
upp (7) 9 (10) 11 (13) 16 (21) lykkjur meðfram hinni
hliðinni á miðjustykki og prjónið lykkjurnar af seinni
þræði = (44) 48 (54) 60 (64) 74 (84) lykkjur í umferð.
Prjónið (2½) 3 (3) 4 (5) 5 (5) cm GARÐAPRJÓN –
sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eftir (1) 1½
(1½) 2 (3) 3 (3) cm fækkið lykkjum í annarri hverri
umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) að réttu
máli þannig:
Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok umferðar með því
að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju.
Að auki eru prjónaðar 2 lykkjur slétt saman hvoru
megin við 2 miðju lykkjurnar í umferð (= 4 lykkjur
færri í annarri hverri umferð) = ca
(32) 36 (42) 48 (52) 62 (72) lykkjur
eftir í umferð.
Fellið af og saumið sauminn undir
fæti og upp meðfram miðju að aftan
í ystu lykkjubogana svo að saumur-
inn verði ekki þykkur.
Prjónið hina tátiljuna alveg eins.
SNÚRA: Klippið 3 þræði ca 1 metra.
Tvinnið þá saman þar til þeir taka í,
leggið snúruna saman tvöfalda og
þá kemur hún til með að tvinna sig
aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn
enda. Þræðið snúruna í gegnum
gataumferðina á tátiljunni (byrjið og
endið mitt að framan). Endurtakið á
hinni tátiljunni.
Sokkaskór á börnin
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 8 3 5 4
9 1 4 2
3 8 5 9 1
6 1 8 7 5 2
8 2 6 5 1
4 2 3 1 8 7
8 3 7 2 9
6 4 8 3
5 7 4 2 6
Þyngst
8 7 4 5
2 6 1 9
5 1 2 9
5 1 2 3
6 8 4 7
7 3 8 2
1 9 3 4
2 5 7 3
3 8 5 6
8 9 7
4 9 5
6 2 5 3
5 3
5 2 6 1
1 4
1 4 6 9
5 1 8
8 5 9
5 2
6 7 1 9
8 6 4
5 3 8
4 6
7 9 4
2 9 7
8 1 3 4
3 8
Lambafile með bernaise
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Egill Rúnar býr á Sauðárkróki
með foreldrum sínum og tveimur
systrum sem heita Elsa Rún og
María Guðrún. Hann hefur gaman
af hjólreiðum, vinum sínum,
jeppaferðum og buggybílaferðum
með pabba sínum.
„Ég fer eins oft og ég get í
sveitina til ömmu og afa. Þau búa
á Kúskerpi í Blönduhlíð og eru með
stórt mjólkurbú og fleira.
Ég hef mikinn áhuga á vélum og
tækjum og öllu í kringum það,“ segir
Egill.
Nafn: Egill Rúnar.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Sauðárkróki.
Skóli: Árskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Fjölíð (smíða og baka
og brasa ýmislegt með höndunum).
Hvert er uppáhaldsdýr ið þitt? Kýr.
Uppáhaldsmatur: Lambafile með
bernaise.
Uppáhaldshljómsveit: Dimma.
Uppáhaldskvikmynd: Fast and
furious.
Fyrsta minning þín? Datt úr rólu og
meiddi mig.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu
á hljóðfær i? Er ekki mikið í
boltaíþróttum en hjóla mikið á
fjallahjóli.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Sjúkraflutningamaður
eða bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur ger t? Fjögurra daga
hálendisferð á buggybíl um Fjallabak
á Suðurlandi í fyrra og fékk að fara
rúnt í sérútbúnum rallýbíl hjá Gumma
Snorra, vini pabba. Það var rosalegt.
Ger ir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Fer í sveitina og kemst
heyskap, í útilegu með fjölskyldunni
og í hálendisferðir með pabba á jeppa
eða buggýbíl og auðvitað leika við vini
mína.
Næst » Ég skora næst á Dagrúnu
Dröfn Gunnarsdóttur.
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland
Landbúnaðarleikföng
Árnanes (Höfn 6km)
Vönduð gisting í fallegu umhver�,
�ölbreytt afþreying.
Leitið tilboða.
www.arnanes.is / arnanes@arnanes.is / S. 478-1550 & 896-6412