Bændablaðið - 24.06.2021, Page 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. júní 202150
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
SAMFÉLAGSRÝNI BÆKUR& MENNING
Sögur Skugga:
Gaddavírsátið og aðrar sögur
Gaddavírsátið er heiti bókar
Jochums Magnúsar Egger ts-
sonar sem tók sér l ista-
mannsnafnið Skuggi og var
áberandi í bæjar- og menn-
ingar lífi Reykjavíkur um miðja
síðustu öld. Hann var þekktur
fyr ir þrasgirni, skáldskap,
f r æðastör f og fr umlegar
kenningar um landnám Íslands.
Þekktasta smásaga Skugga
er Gaddavírsátið, sem höfundur
gaf tvívegis út í l i tlum
ritlingum. Sagan kom svo sem
neðanmálssaga í Bændablaðinu
á árunum 1987-1988. Hér segir af
lausamanni í Nýja-Jórvíkurhreppi
sem leggur sér gaddavírsrúllu til
munns. Í bókinni eru að auki
sögurnar þrjár af Guðmundi
Kristmannssyni, verðlaunasaga
Skugga af trýnaveðri fyrir
vestan, sagan af stórveldum
Stefáns Bjarnasonar, sönn saga úr
Skjóðufirði og Reykjavíkursaga
af yfirnáttúrulegum marhnúti.
Árni Matthíasson rekur æviferil
Jochums í inngangi bókarinnar.
Útgefandi er Bókaútgáfan
Sæmundur.
Skjóðufjörður er bæði
ljótur og leiðinlegur
Eftirfarandi brot er úr sögunni
Þjóðjarðir, sönn saga úr
Skjóðufirði. „Skjóðufjörður er
bæði ljótur og leiðinlegur. – (Svei
nafninu!) – Þið sem
viljið hafa heimildir
fyrir öllum sköpuðum
hlutum viljið líklega
fá að vita hvar fjörð
þennan er að finna á
kortinu. Þá er best
að segja ykkur það:
Hann skerst inn á
mil l i landsfjórð-
unganna. – Skjóðu-
fjörður ber nafn
með rentu. Það er
ótótlegt pláss og
andstyggilegt og
er sagt að kölski
hafi rekið út úr sér
tunguna og bölvað
er hann fór þar um á síðustu
„vísitasíuferð“ sinni. En þetta
gerir kölski ekki nema þegar
eitthvað gengur fram af honum, en
þá má mikið vera, því svo er sagt
að sá gamli kalli ekki allt ömmu
sína. Skjóðufjörður er því allt
annað en björgulegur staður. Og
með því nú hefur kvisast að okkar
mesti sagnfræðingur eigi nú að
fara að skrifa sögu Skjóðufjarðar
í 50 bindum og hafa lokið verkinu
árið 2000, því þá ætlar sjóður sá
sem enn er ekki fæddur en á að
heita „ómenningarsjóður“ að gefa
út allt heila safnið. Hefur einhver
skattstjóri, eða skattasvindlari,
sem ekki heitir Steinn, reiknað
það út af kunnáttu sinni að þá
loksins verði komið svo gott lag á
Búnaðarbankann að gera megi úr
honum bókhlöðu. – Og með því svo
stendur skrifað þann 29. febrúar,
sem ber upp á hlaupár, í 1933.
bindi í „Framkvæmdaþróunar-
sögu bændasamvinnunnar“ , bls.
11932, í 6.–7. línu að ofan, að
sagan endurtaki sig, þá þykir
oss tími til kominn að leggja
örlítil drög að þessu mikla verki
sem á að heita „Hin skipulagða
ofsóknarstarfsemi íhalds-
og eyðslustéttarinnar. Saga
Skjóðufjarðar í 50 bindum. Til
varnaðar uppvaxandi og óbornum
kynslóðum“.
Hundtík prestsins
Böslubúskapur var í Skjóðufirði
um þessar mundir og annar eins
músagangur hafði ekki þekkst frá
landnámstíð. Tryggvi bóndi hafði
orðið að bæta við sig einum ketti.
Var það fress eitt mikið, en bleyða
var fyrir á búinu.
Þrátt f yri r
þetta lögðust
mýsnar á þessar
fáu rollur hans
og nöguðu gat á
búrkistuna hennar
Þjóðbjargar. –
Húsdýr Skjóðu-
f j ar ðar bænda
höfðu gengið illa
undan vetrinum,
að köttunum
undanteknum. Þeir
voru beinastæltir
og kampagleiðir,
hvæstu og breimuðu.
Kettirnir voru að
heita mátti einu
húsdýrin í Lyngási,
að undantekinni hundtíkinni hans
Tryggva bónda er hann kvaðst
vera einráður yfir og Þjóðbjörg
sagði að hann mætti víst eiga
hana einn fyrir sér, tíkin væri
víst ekkert of góð handa honum.
– Tryggvi bóndi var talinn
einfaldur og grunnhygginn og
Þjóðbjörg þóttist hafa tekið niður
fyrir sig og vera vangefin. – En
hundtíkin var þannig tilkomin
að presturinn, sem vandi komur
sínar að Lyngási árið áður en
hún Tómhildur litla fæddist,
hafði skilið tíkina eftir og sagt
Tryggva að best væri að hann
hefði hana af því hún hefði hænst
að honum. – Það þótti annars
merkilegt að presturinn skyldi
endilega þurfa að gista í Lyngási
og það svona oft, jafnlítil og
óvistleg húsakynni og þar voru
– ekkert nema baðstofukytran –
og bóndinn varð að ganga úr rúmi
fyrir gestinum. Tryggvi og Polly
– svo hét hundtík prestsins – urðu
því að liggja annarstaðar og hafa
velgjuna hvort af öðru.“ /VH
Jochums Magnúsar Eggertsson-
ar, sem tók sér listamannsnafnið
Skuggi, var þekktur fyrir þrasgirni,
skáldskap, fræðastörf og frum-
legar kenningar um landnám Ís-
lands.
Það er ljóst að ef ekki verður
brugðist við er hætta á því að
mörg heimili lendi í vandræðum
með skuldbindingar sínar.
Hagsmunasamtök heimilanna
hafa þrýst á r íkisstjórnina að
ver ja heimilin fyr ir afleiðingum
Covid-faraldursins en því miður
talað fyr ir daufum eyrum. Kröf-
ur samtakanna er hófsamar og
sanngjarnar en þær eru að r íkis-
stjórnin:
• Tryggi að enginn missi
heimili sitt vegna afleiðinga
heimsfaraldursins.
• Setji þak á verðtryggingu
húsnæðislána og leigu miðað
við upphaf faraldursins í mars
2020.
• Setji þak á vexti óverðtryggðra
lána með breytilegum vöxtum
og sjái til þess að vaxtalækkanir
Seðlabankans skili sér að fullu
til neytenda.
Það er því miður fátt sem vekur
bjartsýni um að heimilin verði á
nokkurn hátt varin fyrir afleiðingum
faraldursins og fæst ekki betur séð en
að enn og aftur eigi heimilin að bera
skaðann af þeim hamförum sem hafa
gengið yfir heiminn.
Verðtryggð snjóboltaáhrif
Það er ekki gaman að vera með
svartsýnisspár og maður verður bara
að vona að þær gangi ekki eftir á
sama tíma og maður reynir með
öllum ráðum að koma í veg fyrir að
afleiðingar skelli af fullum þunga á
heimilum og fjölskyldum landsins.
Það er því miður ljóst að bæði
lántakar og leigjendur munu finna
fyrir verðbólgunni sem nú virðist
vera að fara á flug. Til að setja
ástandið í tölulegt samhengi þá nemur
hvert prósentustig af dæmigerðu
30 milljóna króna húsnæðisláni
300.000 kr. sem jafngildir hér um bil
mánaðarlegum ráðstöfunartekjum
einstaklings í láglaunastarfi. Þar
sem leiga er verðtryggð mun hún
einnig hækka, verði ekkert að gert.
Flest heimili munu finna fyrir þessu,
en afleiðingarnar verða verstar fyrir
þau heimili sem eru með verðtryggð
lán því höfuðstóll þeirra mun stækka
eins og snjóbolti verði ekkert að gert.
Það er staðreynd að allt of margir
eru enn fastir í gildru verðtryggðra
lána og hafa af ýmsum ástæðum ekki
getað endurfjármagnað lánin til að
nýta sér vaxtalækkanir undanfarinna
mánaða. Þetta eru oft tekjulágir
einstaklingar og fjölskyldur sem
eiga í nægum erfiðleikum nú þegar
og mega ekki við væntanlegum
snjóboltaáhrifum.
Hvers virði eru
stefnuskrár og loforð?
Stjórnmálamenn hafa á undan-
förnum mánuðum gripið til frasa
eins og „við erum öll í þessu
saman“ þannig að þegar við hjá
Hagsmunasamtökunum, sáum
smugu ti l að hjálpa þessum
fjölskyldum í samvinnu við Flokk
fólksins, þá héldum við að því yrði
vel tekið.
Undir þinglok lagði Inga Sæland
því fram breytingarti l lögu við
frumvarp um breytingu á lögum um
fasteignalán til neytenda sem hefði
hjálpað mörgum heimilum sem eru
föst í gildru verðtryggðra lána til að
losna úr henni.
Þessi hófsama ti l laga Ingu
Sæland snerist einfaldlega um að
veita neytendum með verðtryggð
húsnæðislán rétt til að breyta þeim
í óverðtryggð lán, án íþyngjandi
kostnaðar.
Það hefði átt að vera auðvelt
að fá tillöguna samþykkta þar sem
hún samræmdist stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar og stefnu margra
flokka sem hafa sumir haft afnám
verðtryggingar á stefnuskrám sínum
árum saman.
Það voru því mikil vonbrigði
að þrátt fyrir stefnuskrár, fögur
fyrirheit og loforð í tengslum við
lífskjarasamninga um að taka
markviss skref í átt til afnáms
verðtryggingar, var tillagan felld
með 27 atkvæðum gegn 8.
Nei og ærandi þögn
Atkvæðin féllu alveg eftir flokks-
línum og afstaða stjórnmálaflokka
til þess að veita neytendum valfrelsi
um að afnema verðtryggingu
húsnæðislána sinna liggur því fyrir
eins skýr og hún getur orðið á þessu
stigi.
Einungis Flokkur fólksins og
Píratar greiddu atkvæði með tillög-
unni, á meðan stjórnarflokkarnir allir
sögðu nei, þvert á eigin samþykktir
og stefnu.
Aðrir flokkar, Miðflokkurinn,
Samfylkingin og Viðreisn, sátu hjá.
Þögn þeirra er ærandi og í henni felst
afstaða; afstaða með ríkjandi öflum,
afstaða gegn breytingum og afstaða
gegn hagsmunum heimilanna á
erfiðum tímum.
Flokkum sem standa ekki með
yfirlýstri stefnu sinni og flýja þegar
á hólminn er komið um leið og þeir
taka jafn afgerandi afstöðu og raun
ber vitni, með sérhagsmunum og
gegn fólkinu í landinu, er hreinlega
ekki treystandi.
Ef alþingismenn fella jafn
hófsama tillögu sem þessa til að
hjálpa venjulegu fólki, fyrir hverja
eru þeir þá að vinna? Eru þeir að
vinna fyrir þig og þitt heimili eða
eru þeir að verja aðra hagsmuni?
Það þarf að skila sér inn á Alþingi
að almenningur er ekki fóður fyrir
bankana!
Við látum ekki blekkjast lengur!
Fólkið fyrst og svo allt hitt!
Ásthildur Lóa Þórsdóttir
formaður Hagsmunasamtaka
heimi lanna og frambjóðandi
Flokks fólksins
Við látum ekki blekkjast lengur!
Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Frelsi til að hafa ólíka sýn
Í Bændablaðinu fimmtudaginn
10. júní sl. bir tist grein eftir
Eygló Björ k Ólafsdóttur,
for mann Ver ndunar og
ræktunar – VOR, félags
fr amleiðenda í l ífr ænum
búskap. Þar fer hún fram á
yfir lýsingu frá undir r itaðr i,
rektor Landbúnaðarháskóla
Íslands, um afstöðu skólans
t i l aðsendr a umsagna
tveggja sér fræðinga skólans
vegna umr æðuskj als um
landbúnaðarstefnu, Ræktum
Ísland!
Líkt og hjá öðrum
háskólum hafa sérfræðingar
Landbúnaðarháskóla Íslands
fullt frelsi ti l að senda inn
umsagnir í sínu nafni og gerir
skólinn ekki athugasemdir
við það. Það er ljóst að sýn
sérfræðinga á hinar margvíslegu
ræktunaraðferðir er mismunandi
og hefur það yfirleitt verið talinn
kostur innan skólans að nemendur
fái að kynnast þeim og taka síðan
upplýsta ákvörðun um það hvert
þeir vilja sjálfir stefna. Það er ekkert
launungarmál, og hef ég átt um það
samtöl við Eygló, að innan skólans
eru sérfræðingar sem eru gagnrýnir
á þær reglur sem beitt er við lífræna
ræktun.
Landbúnaðarháskóli Íslands
hefur átt farsælt samstarf við
VOR og lífræna bændur. Má þar
nefna nýtt verkefni sem stutt er
af Nýsköpunarsjóði námsmanna í
sumar um bindingu og losun kolefnis í
lífrænni ræktun í samstarfi við Biobú
ehf., meistaraverkefni sem stutt er af
VOR, og afar vel heppnað málþing
VOR í nóvember síðastliðnum
undir yfirskriftinni Lífræn ræktun,
umhverfi og lýðheilsa. Metaðsókn
er í starfsmenntanám skólans á
Reykjum í lífrænni ræktun matjurta
og háskólanemendur hafa notið
góðs af heimsóknum á lífræn bú.
Þá er boðið upp á sumarnámskeið
á vegum skólans sem snúa m.a.
að Bokashi, hringrás og nýtingu
lífræns úrgangs annars vegar og að
matarfrumkvöðlum hins vegar.
Landbúnaðarháskólinn bauð
VOR að vera með í umsókn
ti l Evrópusambandsins í
janúar síðastliðnum og ýmis
samtöl hafa átt sér stað um
hvernig auka megi tilraunir og
samanburðarrannsóknir sem
snúa að lífrænni ræktun.
Landbúnaðarháskóli Íslands
leggur í stefnu sinni 2019-2024
áherslu á að efla rannsóknir
og alþjóðastarf og samþætta
rannsóknir, nýsköpun og
kennslu. Lögð er áhersla
á að fjölga nemendum og
samstarfsverkefnum. Það er afar
ánægjulegt að sjá afrakstur af
starfseminni, en á tveimur árum
hefur fjöldi nemenda tvöfaldast
og styrkir til samstarfsverkefna
þrefaldast. Þessi þróun styrkir
innviði og al la starfsemi
skólans. Hér er sóknartækifæri
fyrir lífræna bændur og aðra sem
stunda hefðbundinn búskap, sem og
þá sem koma með nýjar hugmyndir
sem hafa ekki áður sést.
Samtal um ólíka sýn er af hinu
góða, enda er ekkert kerfi hafið
yfir gagnrýni. Byggjum það á
vandaðri röksemdafærslu, jákvæðni
og virðingu. Framtíð íslensks
landbúnaðar er björt og tækifærin
eru óþrjótandi.
Ragnheiður I . Þórarinsdóttir,
rektor Landbúnaðarháskóla
Íslands
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir.