Fréttablaðið - 09.09.2021, Page 8
ÞAÐ ER L ANDSBANKI
NÝRR A TÍMA
Fyrirtækið þitt getur stofnað
til viðskipta á örfáum mínútum
í Landsbankaappinu. Þannig
færðu strax betri yfirsýn yfir fjár-
mál fyrirtækisins og reksturinn,
hvar sem þú ert.
Það tekur örfáar
mínútur að koma
í viðskipti í appinu
L ANDSBANKINN. IS
Hafsteinn og Karitas
Eigendur HAF Studio
Eftir hnökra á framboðs-
hliðinni í byrjun sumars
hefur bílaleigubílum farið ört
fjölgandi.
thorsteinn@frettabladid.is
Eftir að hafa fækkað um 38 prósent
frá því þegar mest var í júlí 2018
þar til í maí á þessu ári, hefur bíla-
leigubílum fjölgað um 16 prósent
frá maí til ágúst. Þetta kemur fram í
gögnum sem Samgöngustofa útbjó
fyrir Markaðinn.
„Það er ánægjulegt að greinin hafi
vaknað til lífsins fyrr en menn þorðu
að vona í vor,“ segir Steingrímur
Birgisson, forstjóri Hölds.
Fjöldi bílaleigubíla náði hámarki
í júlí 2018 en þá voru þeir 27 þúsund
talsins. Í kjölfarið fækkaði þeim jafnt
og þétt og í byrjun árs 2020 voru þeir
um 23 þúsund talsins.
Eftir að kórónuveiran kom til sög-
unnar og lamaði ferðaþjónustuna
seldu bílaleigur töluverðan hluta af
flota sínum. Bílaleigubílum fækkaði
úr 22 þúsundum í tæplega 17 þúsund
á tímabilinu maí 2020 til maí 2021.
Eftir fjölgun í sumar eru þeir nú
orðnir 19.500 talsins.
Þegar ferðamenn tóku að streyma
til landsins af miklum þunga í sumar
áttu bílaleigur erfitt með að anna
eftirspurninni, sem var meiri en
reiknað var með. Einnig voru tafir á
afhendingu og framleiðslu á nýjum
bílum.
Bílaleigubílum hefði mögulega
fjölgað hraðar ef ekki hefði verið
fyrir tafir í framleiðslu og afhend-
ingu vegna Covid-19.
„Greinin fór aftur í gang seinni-
partinn í júní. Eftirspurnin jókst
með stuttum fyrirvara og mun meira
en menn höfðu gert ráð fyrir,“ segir
Steingrímur.
„Það var allt fullbókað í sumar en
nú eiga menn lausa bíla.“
Á síðustu mánuðum hafa bíla-
leigur bætt töluvert við bílaflotann.
Frá því að fjöldi bíla náði lágpunkti
í maí – sem fyrr segir voru þeir tæp-
lega 17 þúsund talsins – hefur þeim
fjölgað um 2.700.
Í tilkynningu frá Bílgreinasam-
bandinu í gær kom fram að 8.612
nýir fólksbílar hefðu selst það sem
af er ári, samanborið við 6.254 á
sama tímabili í fyrra. Bílaleigur hafa
keypt 3.710 bíla á fyrstu átta mán-
uðum ársins samanborið við 1.646
á sama tíma í fyrra – það samsvarar
aukningu upp á 125 prósent milli ára
– og hafa því keypt um 43 prósent af
öllum seldum fólksbílum á árinu.
Þá hefur leyfishöfum fyrir bíla-
leigurekstur farið fjölgandi það sem
af er ári. Þeir eru nú um 100 talsins en
voru 86 í lok árs 2020.
Steingrímur segist bjartsýnn
fyrir veturinn miðað við bókunar-
stöðuna, sem hann telur ásættan-
lega. „En fyrirvarinn er stuttur, bók-
anir berast með einnar til sex vikna
fyrirvara, sem veldur því að erfitt er
að skipuleggja fram í tímann,“ segir
Steingrímur.
Sundurliðun á fjölda bílaleigubíla
eftir bílaleigum sýnir að Höldur,
leyfishafi Europcar á Ísland, er lang-
stærsta bílaleigan með rétt tæplega 5
þúsund bíla á sínum snærum. Næst
kemur ALP, leyfishafi Avis og Budget,
með tæplega 3 þúsund bíla og þriðja
stærsta bílaleigan er Bílaleiga Flug-
leiða, leyfishafi Hertz, með tæplega
2 þúsund bíla.
Samdráttur í komu ferðamanna á
síðasta ári kom skýrt fram í ársupp-
gjöri stærstu bílaleiganna.
Tekjur Hölds, stærstu bílaleigu
landsins, drógust saman um 25 pró-
sent á milli ára og námu 5,3 millj-
örðum króna árið 2020. Bílaleigan
tapaði 300 milljónum í fyrra saman-
borið við 238 milljóna króna hagnað
árið 2019. Tekjur ALP drógust saman
um 59 prósent á milli ára og námu
1,8 milljörðum króna árið 2020. ALP
tapaði 804 milljónum króna árið
2020, samanborið við 39 milljóna
tap árið áður. ■
Bílaleigubílum fjölgar til muna
Eftirspurnin jókst með
stuttum fyrirvara og
mun meira en menn
höfðu gert ráð fyrir.
Steingrímur Birgisson,
forstjóri Hölds.
Bílaleiga Fjöldi ökutækja í ökutækjaleigu
Höldur ehf. 4.997
ALP hf. 2.953
Bílaleiga Flugleiða ehf. 1.942
BLUE Car Rental ehf. 1.518
Bílaleigan Berg ehf. 661
Rent Nordic ehf. 633
Bílaleiga Reykjavíkur ehf. 554
Bílaleigan Geysir ehf. 539
Bílaleiga Kynnisferða ehf. 530
Brimborg ehf. 530
Stærstu bílaleigurnarFjöldi bílaleigubíla
8 Fréttir 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 9. september 2021 FIMMTUDAGUR
helgivifill@frettabladid.is
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnaráðherra,
fundaði með kollega sínum á Írlandi
um fyrirhugaðan nýjan fjarskipta-
sæstreng og mikilvægi þess að leyf-
ismál og annað slíkt gangi vel fyrir
sig á Írlandi. „Umræðan á fundinum
gaf ekki tilefni til annars en bjart-
sýni,“ segir hann.
Sigurður Ingi segir að á fund-
inum hafi meðal annars komið
fram í samtali ráðherranna að Írar
og Íslendingar séu að fást við hvort
tveggja sambærilegar og ólíkar
áskoranir í fjarskiptum, gagnavera-
iðnaði og loftslagsmálum sem þeim
tengjast.
„Fyrir það fyrsta þá búa hlutfalls-
lega fleiri í dreifbýli á Írlandi en hér
á landi, sem gerir þeirra „Ísland
ljóstengt“-verkefni hlutfallslega
umfangsmeira en hér á landi. Mik-
ill fjöldi stórra gagnavera er þegar á
Írlandi og fleiri eru þar á teikniborð-
inu. Uppbygging gagnavera hefur
farið hægar af stað hér á landi. Þá
kom einnig fram að raforkufram-
leiðsla fyrir gagnaver á Írlandi er
ekki eins græn og hér á landi.“ ■
Liðkar fyrir
nýjum sæstreng
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
samgöngu- og
sveitarstjórna-
ráðherra.