Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 38
- heimur fágaðra möguleika
www.modern.is
FAXAFEN 10 · 108 REYKJAVÍK · 534 7777
- ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR AF PÖNTUNUM
SVO ÞÚ FÁIR HÚSGÖGNIN ÖRUGGLEGA HEIM FYRIR JÓLIN
7. - 16. SEPTEMBER
Drottningin sem kunni allt
nema… er bráðfjörug og
skemmtileg bók eftir Gunnar
Helgason og Rán Flygenring.
Rán hefur gert bókarkápur fyrir
ýmsar bækur Gunnars en þetta er í
fyrsta sinn sem þau vinna saman að
sögu, en auk þess er Rán höfundur
myndanna.
„Gunna hafði lengi langað til
að skrifa myndabók og sendi mér
langan texta sem var eins og deig
sem ég fékk að hnoða að vild. Ég tók
ýmislegt úr textanum og bætti ein
hverju við, enda óþarfi að tvítaka
hluti bæði í orðum og myndum.
Við ræddum saman um söguna og
samstarf okkar var samkrull af hug
myndum. Þegar ég var búin að tæta í
textann hans Gunna þá runnu samt
á mig tvær grímur og ég vissi ekki
alveg hvernig Gunni myndi taka því.
Svo varð það ekkert mál,“ segir Rán.
„Ég var ekkert viðkvæmur fyrir
því af því þetta var allt rétt og stýrt
af löngun til að gera betur,“ segir
Gunnar.
Leitin að ástinni
Af hverju gera myndasöguævintýri
um drottningu? „Ég hugsaði um
þetta í mörg ár. Mamma klikk átti
til dæmis að vera stutt bók en það
hefur reynst mér ofviða að skrifa
stuttan texta. Þegar ég sendi hand
ritið til Ránar fannst mér það vera
mjög stutt en Rán stytti það enn
meir,“ segir Gunnar. „Drottningin
er þarna vegna þess að ég held að
foreldrar séu í augum barna sinna
kóngur og drottning. Hugmyndin
um að mamma og pabbi geti ekki
eitthvað er mjög fjarri litlum börn
um.“
Þau segja að Elísabet II. Eng
landsdrottning sé fyrirmyndin að
Bambalínu drottningu, sem virðist
kunna allt. „Ég sá Elísabetu í sjón
varpinu gera við jeppa og eftir að
við byrjuðum að vinna bókina
keyrði Filippus drottningarmaður
á og það varð til þess að umferðar
óhapp var látið gerast í bókinni,“
segir Gunnar.
Ýmisleg t ger ist í my ndum
bókarinnar sem ekki er sagt frá í
textanum sjálfum. „Við vorum að
reyna að gera fyndna spennusögu
með undirliggjandi ástarsögu á 32
blaðsíðum. Það er höfuðverkur að
ná því í fáum setningum á fáum
blaðsíðum. Það var til dæmis ástar
saga í textanum en núna er hún
sögð í myndunum. Það þarf að leita
að henni en hún er þarna,“ segir
Gunnar.
Englandsdrottning er fyrirmyndin
Rán og Gunnar
unnu saman að
bók um Bamba
línu drottningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Bókin segir frá
hinni ákveðnu
og ráðagóðu
Bambalínu
drottningu sem
virðist kunna
allt. Það er samt
eitt sem hún á
eftir að læra.
Doktorsgráða Gunna
Undir lok bókar kemur í ljós hvað
það er sem hin vaska drottning
kann ekki – en það er nokkuð sem
allir fullorðnir eiga að kunna og
börn verða að læra. Er ekki klósett
húmor þarna á ferð? spyr blaða
maður og Rán svarar að bragði:
„Gunni er með meistara og dokt
orsgráðu í prumpubröndurum og
veit hvað börnum finnst fyndið.“
Hún bætir við: „Annars kom Lóa
Hlín (Hjálmtýsdóttir) á vinnu
stofuna mína þegar ég var að vinna
í teikningunum. Ég fór að viðra
brandarann við hana. Hún sagði þá
að sér þætti ferðalag bókarinnar, og
bóka almennt, skipta mestu máli.
Þessi orð hennar gjörbreyttu því
hvernig ég hugsaði um söguna og
bókina. Drottningin fer í heilmikið
ferðalag þar sem mjög margt gerist.“
Þau segja að bókin hafi upp
haflega verið hugsuð fyrir börn á
aldrinum þriggja til fimm ára en í
ljós hafi komið að hún henti einnig
eldri hópum. „Ég sagði á Facebook
að bókin væri fyrir þriggja til tíu ára
og tuttugu og þriggja til hundrað
og þriggja ára,“ segir Gunnar. „Ég
fékk svar frá einum sem sagði: Mér
fannst þetta geðveikt og ég er tutt
ugu og tveggja!“ ■
Við vorum að reyna að
gera fyndna spennu-
sögu með undirliggj-
andi ástarsögu á 32
blaðsíðum.
Gunnar Helgason.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
kolbrunb@frettabladid.is
Tónleikaröðin Jazz í hádeginu hefur
göngu sína á ný. Að þessu sinni ætla
þeir Mikael Máni Ásmundsson og
Leifur Gunnarsson að bjóða upp á
efnisskrá tileinkaða goðsögninni
Miles Davis.
Tónleikarnir verða í Borgarbóka
safninu Grófinni, í dag, fimmtu
daginn 9. september, kl. 12.1513.00.
Í Borgarbókasafninu Gerðubergi,
föstudaginn 10. september kl. 12.15
13.00 og Borgarbókasafninu Spöng
inni, laugardaginn 11. september kl.
13.1514.00. ■
Miles á 10 strengi
Mikael Máni gítarleikari.
Tónleikarnir verða í
Borgarbókasafninu,
Grófinni, í dag.
22 Menning 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 9. september 2021 FIMMTUDAGUR