Fréttablaðið - 09.09.2021, Page 42
98%
Á Rotten Tomatoes
þykir Shang-Chi brak-
andi fersk með 98% og
toppar jafnvel hápunkt
Batman þríleiks
Christophers Nolan,
The Dark Knight, sem
komst í 94%.
Kúng-fú kempan Shang-Chi
hefur hingað til ekki talist til
þekktustu ofurhetja Marvel
myndasögurisans, en staða
hans mun líklega breytast
varanlega í kjölfar gríðarlegra
vinsælda Shang-Chi and the
Legend of the Ten Rings, sem
bæði áhorfendur og gagn-
rýnendur hafa tekið opnum
örmum.
toti@frettabladid.is
Myndasögurisinn Marvel byggði
stórsókn sína inn á kvikmynda-
markaðinn á minna þekktum eða
hálfgleymdum ofurhetjum úr per-
sónugalleríi sínu, með mögnuðum
árangri.
Iron Man hafði þannig ekki þótt
líklegur til stórræðanna þangað til
Marvel veðjaði á hann með sam-
nefndri mynd 2008 þegar ballið
byrjaði. Þrettán árum síðar er Mar-
vel enn að tefla fram persónum úr
B-flokki með undraverðum árangri.
Þannig hefur bardagalistamaður-
inn Shang-Chi hingað til ekki verið
meðal nafntoguðustu hasarhetj-
anna á síðum Marvel-blaðanna, en
hefur gert stormandi lukku og sleg-
ið met í allar áttir frá frumsýningu í
Bandaríkjunum á föstudaginn.
Járnið hamrað
Marvel-hraðlestin hefur verið á
óslitinni sigurgöngu síðan kvik-
myndarmur myndasögurisans
teygði sig á hvíta tjaldið með Iron
Man og í kjölfarið röðuðust ryk-
fallin hugarfóstur hasarblaðahug-
myndafræðingsins Stan Lee í bíó.
Ýmist í eigin myndum: Captain
America, The Hulk, Thor, The Black
Panther, Ant-Man, Doctor Strange,
eða sameinuð undir merkjum
Guardians of the Galaxy og síðast
en alls ekki síst The Avengers, sem
unnu sig beint upp í úrvalsdeild
þar sem liðið lauk keppni 2019 með
Avengers: Endgame.
Þá var allt klárt fyrir fjórða fasa
heimsyfirráða Marvel og þegar
Covid-þokunni slotaði aðeins fyrr
í sumar reið Scarlett Johansson á
vaðið, þegar hún endurtók rullu
sína sem Black Widow enn eina
ferðina, þegar persónan fékk loks
að njóta sín í sinni eigin mynd.
Hvítu karlarnir á bekknum
Með Black Widow braut vopnfimi
leigumorðinginn og Hefnandinn
Natasha Romanoff hnausþykkt
glerþak hjá Marvel, þar sem myndin
var sú fyrsta sem hverfðist um og
hvíldi á herðum kvenhetju. Og nú
kemur Shang-Chi and the Legend of
the Ten Rings lóðbeint í kjölfarið og
markar þau tímamót að með henni
er asísk ofurhetja í forgrunni í fyrsta
skipti.
En tæpast það síðasta þar sem
sláandi vinsældir Shang-Chi eru
líklegar til þess að opna augu
Disney fyrir því að f leiri en hvítir
karlar dugi til þess að halda fok-
dýrum hasarmyndum gangandi.
Jafnvel þótt þessi bransi þjáist enn
af þröngsýni er engin hætta á öðru
en að Marvel og Disney fagni fjöl-
breytninni og kjósi jafnrétti með
buddunni.
Bjargvættur bíóanna
Marvel er einn angi Disney-veldis-
ins sem í sóttkvíðakasti ákvað að
frumsýna Black Widow samtímis
í kvikmyndahúsum og í streymi
á Disney+ gegn tæplega 4.000
króna, eða 30 dollara, aðgangseyri.
Ákvörðun sem ætlar að draga ýmsa
dilka á eftir sér. Ekki síst í harðvít-
ugri kjaradeilu við aðalstjörnuna,
Scarlett Johansson.
Þá hafa kvikmyndahúsaeigendur
lýst megnri óánægju með tilraunir
framleiðanda með frumsýningar
samtímis í bíó og streymi, enda
framtíð kvikmyndahúsa í upp-
námi eftir faraldurinn, þannig að
þau mega ekki við frekari búsifjum.
Shang-Chi er enn sem komið er
aðeins sýnd í kvikmyndahúsum og
þaðan er horft til myndarinnar von-
araugum eftir að hún fór langt fram
úr væntingum og rakaði saman 83,5
milljónum dollara á fjögurra daga
frumsýningarhelginni.
Innkoma Shang-Chi fyrstu þrjá
bíódagana kom henni í þriðja sæti
tekjuhæstu bíómynda faraldursins,
þar sem hún er rétt á hæla Black
Widow sem vitaskuld fékk net-
aðsóknina í forgjöf.
Slagkrafturinn í Shang-Chi er
þannig talinn geta orðið til þess
að Disney láti streymistilraunum
sínum lokið með Black Widow og
næsta Marvel-myndin, The Etern-
als, muni feta einstefnubraut Shang-
Chi í bíó.
Fjandskapast við Fu Manchu
Shang-Chi and the Legend of the
Ten Rings segir frá ævintýrum og
hremmingum uppgjafa leigumorð-
ingjans Shang-Chi, sem neyðist til
þess að gera upp við arf leið sína,
illan föður og umfangsmikil glæpa-
samtök hans.
Persónan er hugarfóstur mynda-
söguhöfundarins Steve Englehart
og teiknarans Jim Starlin og birtist
fyrst í myndasögublaðinu Marvel
Special Edition #15 í desember 1973.
Shang-Chi skaut upp kollinum af
og til í Marvel-blöðum í framhald-
inu og endaði með að fá sína eigin
myndasöguseríu, þar sem hann
sýndi lygilega færni sína í alls kyns
asískum bardagalistum þar sem
hann djöflaðist ýmist tómhentur
eða vopnaður í hasarblöðum sem
kennd voru við Master of Kung Fu.
Ættbogi Shang-Chi er goðsagna-
kenndur, en hann var í upphafi
óþekktur sonur meistarakrimmans
Dr. Fu Manchu og saga hans spunn-
in út frá bókum rithöfundarins Sax
Rohmer um doktorinn illa. Seinna
meir tónaði Marvel þessi ættar-
tengsl niður, eftir að fyrirtækið
missti útgáfuréttinn á myndasög-
unum um Dr. Fu Manchu, þannig
að faðir Sang-Chi varð að lokum
Zheng Zu.
Föðurómyndinni Zheng Zu hefur
síðan verið skipt út fyrir Xu Wenwu,
sjálfan Mandaríninn, í bíómynd-
inni þar sem þessi sígildi Marvel-
skúrkur og fjandvinur Iron Man,
velgir Sang-Chi undir uggum.
Brakandi fersk
Kínversk-kanadíski leikarinn Simu
Liu leikur Shang-Chi og Tony Leung
túlkar Xu Wenwu. Þá láta Awkwa-
fina, Ben Kingsley og Michelle Yeoh
einnig að sér kveða í myndinni sem
Destin Daniel Cretton leikstýrir, en
hann er þekktastur fyrir Just Mercy
með Michael B. Jordan og Jamie
Foxx í aðalhlutverkum.
Þessi vaski hópur má vel við una
því eins og staðan er viku eftir frum-
sýningu er Shang-Chi and the Leg-
end of the Ten Rings besta mynda-
sögubíómynd allra tíma, samkvæmt
dómasafni vefsins Rotten Tomatoes.
com.
Þar þykir Shang-Chi brakandi
fersk með 98% og toppar jafnvel
hápunkt Batman þríleiks Christop-
hers Nolan, The Dark Knight, sem
komst í 94%. Áhorfenda einkunn
Shang-Chi er örlítið lægri þar sem
hún stendur í 92% á meðan til
dæmis Black Panther rokkar í 96%
og fyrsta Iron Man myndin nær
94%.
Þessum tölum er vitaskuld slengt
fram með þeim fyrirvara að þær
geta breyst eftir því sem dómum
um myndina fjölgar og fleiri áhorf-
endur láta álit sitt í ljós. Það breytir
því ekki að Shang-Chi fer af stað
með látum og svo miklum glæsibrag
að ný rís sól í austri yfir kvikmynda-
húsum víða um lönd. n
Marvel í ferskum kúng fú fæting
Bardagakappinn Shang-Chi hefur hingað til ekki komist í fremstu röð ofurhetja Marvel og helst verið þekktur
meðal innvígðra og innmúraðra myndasögunörda. Það er heldur betur að breytast með bombunni Shang-Chi and
the Legend of the Ten Rings. MYND/DISNEY
Marvel stökk á bardagalistaæðið
sem gaus upp í Bandaríkjunum upp
úr 1970 með Sang-Chi og skyldleiki
persónunnar við leikarann og karate-
goðsögnina Bruce Lee dylst fáum.
MYND/MARVEL
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Veglegt sérblað um jólagjafir til starfsmanna og
viðskiptavina fyrirtækja kemur út 8. október n.k.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í mes lesna dagbl ði landsins.
26 Lífið 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 9. september 2021 FIMMTUDAGUR