Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 12
Þetta er fimmta viður- eign liðanna og hefur Ísland til þessa unnið einn leik af fjórum. 12 Íþróttir 4. september 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 4. september 2021 LAUGARDAGUR Ljóst er að það verður kosin ný stjórn í KSÍ á næstu vikum, eftir að fráfarandi stjórn sagði af sér í vikunni. Fréttablaðið fékk tvo aðila innan knatt- spyrnuhreyfingarinnar til að nefna breytingar sem mætti skoða hjá næstu stjórn. kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Stjórn KSÍ brást við ákalli samfélagsins um að segja af sér og boða til ársþings á dögunum, til þess að hægt væri að kjósa nýja stjórn. Tilkynnt var í gær að þingið yrði þann 2. október næstkomandi og þá yrði fundin tímabundin stjórn fram að næsta ársþingi sem er í febrúar. UEFA staðfesti í gær við vefmiðil- inn Vísi að fráfarandi stjórn myndi starfa áfram fram að þinginu í októ- ber. Í tilkynningunni sem stjórn KSÍ sendi frá sér í vikunni var tekið fram mikilvægi þess að vinna fag- hóps um endurskoðun viðbragða við kynferðisbrotum og of beldi innan hreyfingarinnar og hvernig staðið var og verður að stuðningi við þolendur verður áfram í for- gangi. Degi eftir að Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, hafði orð á því að sambandinu hefðu ekki borist ábendingar um of beldi af hálfu landsliðsmanna fóru þol- endur að stíga fram og greina frá sögum sínum. Guðni sagði af sér og fylgdi stjórnin degi síðar en Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri sambandsins, er komin í tíma- bundið leyfi frá störfum. Fréttablaðið hafði samband við einstaklinga sem hafa verið innan knattspyrnuhreyfingarinnar und- anfarin ár og spurði hvað þeir vildu sjá í næstu stjórn. n Þarf að þora að viðurkenna vandann Mótmæli voru fyrir utan húsnæði KSÍ fyrir leik Íslands og Rúmeníu þar sem þess var krafist að Klara Bjartmarz myndi segja upp störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Harpa Þorsteinsdóttir fyrrverandi landsliðskona „Það eru tveir punktar sem ég horfi til. Annars vegar mikilvægi þess að fólk einblíni ekki um of á KSÍ heldur líka á knattspyrnuhreyfing- una í heild. Það þarf að vera samstaða hjá öllum um stefnuna til framtíðar. Um leið má huga að kynjahallanum, en það er búin að vera þróun í gangi til að jafna kynjahlutfallið. Þessi breyting hefur verið að eiga sér stað, það má ekki gleymast, þó að það megi alltaf gera betur,“ segir Harpa, aðspurð út í kynjahallann, en fyrr á þessu ári var tilkynnt að ákveðnu markmiði sambandsins hefði tekist, að konur væru í 30 prósenta hlutfalli í nefndum á vegum KSÍ. „Það mikilvægasta er að hafa hæft fólk í þessum stöðum.“ Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA „Að mínu mati þarf að fara ofan í saumana á þessum málum öllum og það er nauðsynlegt að þora að viðurkenna vandamálið sem virðist hafa verið til staðar í hreyfingunni. Það þarf að setja af stað eitthvert ferli til að breyta þessum kúltúr. Það hlýtur að vera á sama tíma krafa að hlutfall kvenna í íþróttahreyfingunni, ekki bara innan KSÍ, muni aukast. Það er ekkert ákveðið hlutfall en það ætti að vera krafa um að fá fleiri konur inn í stjórnir og ráð innan íþrótta- hreyfingarinnar,“ segir Sævar, sem telur einnig mikilvægt að skerpa á verkferlum þegar kemur að ofbeldismálum. „Það hlýtur að vera krafa um að skerpa á verkferlunum, hvernig á að höndla mál eins og komu upp núna og að þeir verði notaðir. Að þau séu ekki að takast á við sakamál á sinn hátt heldur notast við verkferla ÍSÍ, í staðinn fyrir að tækla þetta með einhvers konar þöggun.“ kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Þegar undankeppni HM 2022 er að verða hálfnuð er staða Strákanna okkar í J-riðli ekki góð, í aðdraganda leiks Íslands og Norður-Makedóníu. Allt annað en sigur á sunnudaginn þýðir að vonir Íslands um að komast á lokakeppni HM aðra keppnina í röð eru litlar sem engar fyrir heimsókn Þýska- lands. Um leið getur Ísland blásið lífi í veika von um annað sætið, með sigri og hagstæðum úrslitum annars staðar. Það er ekki mikill tími sem gefst til endurhæfingar frá leiknum gegn Rúmeníu, en leikurinn á sunnudag er tæplega sjötíu klukkutímum eftir að leik Íslands og Rúmeníu lauk á fimmtudaginn. Það gæti hins vegar reynst Íslandi vel að andstæðing- arnir fengu sama tíma milli leikja, en þurftu þar að auki að ferðast frá Skopje eftir leik gegn Armeníu á fimmtudaginn. Þetta gæti orðið ákveðinn tíma- mótaleikur hjá tveimur aðilum íslenska landsliðsins. Nafnarnir Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson gætu leikið 100. leik sinn fyrir karlalandsliðið á sunnudaginn en aðeins Rúnar Kristinsson hefur náð hundrað leikjum eða meira fyrir karlalandsliðið. n Eitt tækifæri til að blása lífi í vonir Íslands í undankeppninni Birkir, hér fyrir miðju, leikur lík- legast 100. leik sinn fyrir Ísland á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Frá mótmælunum fyrir utan Laugar- dalsvöll á fimmtudaginn. kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Alþjóðaknattspyrnu- sambandið, FIFA, staðfesti í gær að sambandið væri með til skoðunar kynþáttaníðið sem leikmenn urðu fyrir meðan á leik Englands og Ung- verjalands stóð í Búdapest í vikunni. Enska knattspyrnusambandið óskaði eftir því að Evrópska knatt- spyrnusambandið, UEFA, gripi til aðgerða eftir að Raheem Sterling og Jude Bellingham urðu fyrir kyn- þáttafordómum á fimmtudaginn. Stutt er síðan UEFA úrskurðaði að Ungverjar skyldu leika tvo leiki fyrir luktum dyrum vegna óláta stuðningsmanna en það nær ekki til leikja í undankeppni HM sem er undir FIFA. Forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, var einn þeirra sem kölluðu eftir því að Ungverjum yrði refsað eftir að stuðningsmenn Ungverja- lands voru með kynþáttaníð í garð Sterlings og Bellinghams í gær en utanríkisráðherra Ungverjalands, Peter Szijjarto, svaraði um hæl að Bretar hefðu sýnt óvirðingu þegar þeir bauluðu á þjóðsöng Ítala á úrslitaleik Evrópumótsins í sumar. n Kynþáttaníðið inn á borð FIFA Sterling svaraði rasistunum með marki í Búdapest. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Félögin í ensku úrvals- deildinni í fótbolta karla eyddu meira en einum milljarði punda í félagaskiptaglugganum í sumar en annað árið í röð var minna eytt en árið áður. Þetta er í fyrsta sinn síðan árin 2008 til 2010 sem að félögin eyða minna tvö sumur í röð. Þá er þetta lægsta upphæð sem ensku úrvals- deildarfélögin hafa varið í leikmenn í sumarglugga í sex ár. Félögin borguðu 150 milljónir punda á lokadegi félagaskiptaglugg- ans en þar á meðal voru kaup Man- chester United á Cristiano Ronaldo fyrir rúmlega 20 milljónir punda. Heildarupphæð fyrir leikmenn í þessum glugga var 1,1 milljarður punda en hún var 1,3 milljarðar punda síðasta sumar. n Minni eyðsla annað árið í röð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.