Fréttablaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 41
Hofsstaðaskóli • Leiðbeinandi á frístundaheimili Urriðaholtsskóli • Atferlisþjálfi • Grunnskólakennari á yngsta stig • Leikskólakennari • Leiðbeinendur á frístundaheimili Leikskólinn Akrar • Deildarstjóri • Leikskólakennari • Sérkennslustjóri Leikskólinn Kirkjuból • Leikskólakennari Leikskólinn Mánahvoll • Leikskólakennarar Leikskólinn Sunnuhvoll • Leikskólakennari Krókamýri - Heimili fatlaðs fólks • Starfsmenn Fjölskyldusvið • Hlutastarf á heimili ungrar konu Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is gardabaer.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ kopavogur.is Kópavogsbær auglýsir laust starf forstöðumanns Gerðarsafns. Forstöðumaður Gerðarsafns heyrir undir forstöðumann menningarmála hjá Kópavogsbæ. Ráðið er í starfið til fimm ára í senn. Forstöðumaður mótar hlutverk og listræna stefnu Gerðarsafns og ber meðal annars ábyrgð á sýninga- og viðburðahaldi, rekstri safnsins, safnverslunar og veitingasölu, á safneign Gerðarsafns og öðrum listaverkum í eigu Kópavogsbæjar. Forstöðumaður sinnir samstarfi við aðrar menningarstofnanir bæjarfélagsins og sambærilegar stofnanir annars staðar. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um starfið og sækja um á heimasíðu bæjarins kopavogur.is Forstöðumaður Gerðarsafns Félagsmálaráðuneytið auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar Embætti forstjóra Barna – og fjölskyldustofu. Félagsmálaráðuneytið leitar að framsæknum stjórnanda sem hefur þekkingu á málefnum barna og hæfni til að leiða innleiðingar- og breytingaferli. Barna- og fjölskyldustofu er ætlað að vinna að farsæld barna í samræmi við bestu þekkingu og reynslu hverju sinni. Stofnunin mun sinna verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Þar á meðal eru verkefni á sviði barnaverndar en við stofnun Barna- og fjölskyldustofu verður Barnaverndarstofa lögð niður. Barna- og fjölskyldustofa mun jafnframt gegna lykilhlutverki við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og fara með tilgreind verkefni í þágu barna sem nánar er kveðið á um í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Barna- og fjölskyldustofu er ætlað að vera verkfærakista ríkisins vegna samþættrar þjónustu við börn og fjölskyldur. Í því felst meðal annars að vera stuðningur við sveitarfélög og ríkisstofnanir vegna þjónustu í þágu barna, með ráðgjöf, leiðbeiningum, fræðslu og þróun gagnreyndra aðferða og úrræða í þágu barna. Í því felst jafnframt að hafa yfirumsjón með úrræðum á vegum ríkisins, þar á meðal Stuðlum, Barnahúsi og öðrum meðferðarúrræðum og fóstri. Meðal verkefna Barna- og fjölskyldustofu verður yfirumsjón með upplýsingakerfum samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna og gagnagrunni og stafrænum lausnum fyrir barnavernd á landsvísu. Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála Félagsmálaráðuneytið leitar að framsæknum stjórnanda sem hefur áhuga á að byggja upp nýja stofnun. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála mun hafa eftirlit með gæðum þjónustu sem er veitt á grundvelli laga um barnavernd, laga um Barna- og fjölskyldustofu, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, laga um málefni aldraðra, laga um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Helstu verkefni stofnunarinnar er útgáfa rekstrarleyfa, frumkvæðiseftirlit með gæðum þjónustu, afgreiðsla kvartana yfir þjónustu, beiting viðurlaga við brotum á reglum og þróun gæðaviðmiða. Stofnunin mun taka við gæða- og eftirlitsverkefnum frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar og eftirlitsverkefnum frá Barnaverndarstofu. Félagsmálaráðuneytinu, 4. september 2021. Umsóknarfrestur er til 23. september 2021. Nánari upplýsingar um störfin má finna á starfatorgi Stjórnarráðsins, www.starfatorg.is Fyrirtæki ársins 2021 hagvangur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.